Morgunblaðið - 19.07.2010, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 19.07.2010, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ 2010 útipottar – 30% útisófar - 30% !"#$ &'()*+ ,-$./(,0$//1 234567" ,831 93:#: &;<=>6"?=@;=:?:&1 AB!+ -/,1 C$ D,E EE-E(FFF+?G<3+"= H IB<3 ' )3J6KGGL M bl 11 82 44 1 UNDIRFÖT • SUNDFÖT Skálastærðir A-FF Kvenfatnaður Stærðir 36-46 Hæðasmára 4 - Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind Símar 555 7355 - www.selena.is Útsalan í fullum gangi 30-60% afsláttur af völdum vörum Nýtt kortatímabil ÚTSALAN HAFIN Bæjarlind 6, sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 www.rita.is Morgunblaðinu hefur borist athuga- semd frá Fornleifavernd ríkisins vegna fréttar um fornleifafund við Þingmúla, sem er svohljóðandi: Fornleifavernd ríkisins fer með stjórnsýslu fornleifamála á Íslandi. Minjaverðir eru starfsmenn Forn- leifaverndar ríkisins á landsbyggð- inni og má finna upplýsingar um hvernig hægt er að hafa samband við þá á heimasíðu Fornleifaverndar ríkisins http\\ www.fornleifavernd.is. Á undanförnum árum hafa ítrekað komið upp mál eins og við Þingmúla, það er að í ljós hafa komið fornleifar við framkvæmdir á bú- eða kirkju- jörðum. Fornleifavernd ríkisins tek- ur ákvörðun um hvort og þá hvaða fornleifarannsókn er nauðsynleg til þess að framkvæmd geti haldið áfram. Ef matið leiðir í ljós að meiri háttar fornleifarannsókn er nauð- synleg, þá leitar Fornleifavernd eftir fjárstyrk vegna rannsóknarinnar. Í slíkum tilfellum er samið við forn- leifafræðinga sem starfa utan stofn- unarinnar um að vinna verkið. Hvað varðar Þingmúla þá fóru tveir minjavarða Fornleifaverndar ríkisins ásamt aðstoðarmanni að Þingmúla, rannsökuðu minjarnar, mátu þær og skráðu. Þau dvöldu þar í tvígang við störf í nokkra daga og mun allur kostnaður vegna ferða þeirra og starfa falla á Fornleifa- vernd ríkisins, en ekki á ábúendur. Bændum landsins er því óhætt að láta Fornleifavernd ríkisins vita ef fornleifar koma í ljós við fram- kvæmdir á jörðum þeirra. Þeir þurfa hvorki að greiða fyrir störf starfs- fólks Fornleifaverndar ríkisins né annarra fornleifafræðinga. Fornleifavernd ríkisins hefur lengi barist fyrir að fá sjóð sem stæði straum af kostnaði vegna óvæntra fornleifarannsókna. Stofnunin er því vissulega sammála því sem kemur fram í greininni varðandi slíkan sjóð. Kristín Huld Sigurðardóttir forstöðumaður Fornleifaverndar Athugasemd frá Fornleifavernd Daníel Jakobsson, útibússtjóri Landsbanka Íslands á Laugavegi, hefur verið ráðinn bæjarstjóri Ísa- fjarðarbæjar. 27 einstaklingar sóttu um starf bæjarstjóra. Umsóknirnar voru teknar til úrvinnslu hjá Capacent sem síðan lagði niðurstöðurnar fyr- ir bæjarstjórn. Daníel nýr bæjar- stjóri Ísafjarðar „Stemningin er svakalega góð og það er búið að ganga ótrúlega vel. Þetta hefur verið miserfitt en er eiginlega léttara þegar maður lítur til baka eins og oft er,“ segir Kristín Jóna Hilmarsdóttir sem lýkur 30 daga göngu þvert yfir landið í dag ásamt þeim Önnu Láru Edvardsdóttur og Margréti Hall- grímsdóttur. Þegar blaðamaður slær á þráðinn eru þær stöll- ur staddar á Langanesi og eru því komnar lang- leiðina, en þær ljúka ferðinni á Fonti sem er ysti oddinn á Langanesi. Samkvæmt gps-tæki hópsins hafa þær gengið 613,33 km og eiga eftir 35 km sem gengnir verða í dag en leiðin er í allt um 650 km. „Það stendur upp úr í ferðinni að hafa vaðið yfir Þjórsána í þvílíka kraftinum upp að mitti en við fengum aðstoð við að komast þar yfir. Á föstudag- inn var hittum við líka Steingrím J. Sigfússon á Öxafjarðarheiðinni. Hann er einmitt frá þessum slóðum og fór fyrstur þessa leið sem kölluð er Steingrímsstígur. Hann hafði haft spurnir af ferðalagi okkar og þar sem við erum að ganga heiðina kemur bíll á móti okkur og stoppar. Þar var Steingrímur kominn og spyr hvort við séum göngukonurnar miklu. Það var skemmtilegt að spjalla við Steingrím sem sýndi förinni áhuga,“ segir Kristín Jóna. maria@mbl.is Óðu Þjórsá upp að mitti og hittu fjármálaráðherra  Ljúka 650 km göngu þvert yfir landið í dag Afrek Göngukonur á ferð sinni þvert yfir landið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.