Morgunblaðið - 19.07.2010, Síða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ 2010
Jarðfræði
í Elliðaár-
dal
Þriðjudagskvöldið 20. júlí
verður farin göngu- og
fræðsluferð í Elliðaárdal
undir leiðsögn Einars
Gunnlaugssonar, jarðfræðings.
Jarðfræði Elliðaárdals er
stórkostleg. Í dalnum má t.d.
finna jökulrákaðar grágrýtisklappir, hraun frá nútíma,
sjávarhjalla og merkileg setlög. Gangan hefst við
Minjasafn Orkuveitunnar í Elliðaárdal kl. 19:30.
• Orkuveita Reykjavíkur rekur
stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
50
28
1
07
/1
0
Athugið að efni dagsins getur riðlast af
ýmsum ástæðum og er því bent á að nánari
upplýsingar er að finna á vef Orkuveitunnar.
Þær stofnanir sem staðið hafa sigsvo vel við að mæta brýnustu
þörfum þeirra sem einkum líða
skort í kreppunni komust ekki hjá
að gera hlé á starfsemi sinni vegna
sumarleyfa.
En neyðin ferekki í frí.
Hún bítur alla
365 daga ársins.
Sem betur fer
bítur hún ekki
alltaf þá sömu þessa 365 daga sem
almanakið heldur utan um. En hún
er til staðar alla 365 dagana.
Góðviljaðir borgarar, svo semveitingamenn og samhjálpar-
fólk hafa hlaupið undir bagga á lok-
unartímanum.
En nú hefur verið upplýst að þaðeru margar og ólíkar leiðir fær-
ar í vanda eins og þessum.
Þannig hefur slyngur athafna-maður, sem segist ekki hafa
nema 10 milljónir króna í mán-
aðarlaun, eftir að þrengja fór að og
má ekki fá stjórnarlaun í tilteknu
fyrirtæki vegna hæfisskorts og má
ekki láta það borga sér arð vegna
fjárskorts fundið það snjallræði að
láta það borga sér „framfærslu“
upp á rúmar 20 þúsund krónur á
dag alla 365 daga ársins.
Það bætir úr þeirri þungu neyðsem 10 milljón króna mán-
aðarlaunin augljóslega geta ekki
dekkað.
Ekkert fyrirtæki skilur betur en365 að ekki er hægt að hlaupa
frá framfærsluskyldum einhvern af
hinum 365 dögum ársins og því best
að borga þá alla.
Og snilldin er að það er Arionbankinn endurreisti sem í raun
sér um framfærsluna.
365 daga framfærsla
Veður víða um heim 18.7., kl. 18.00
Reykjavík 17 heiðskírt
Bolungarvík 19 heiðskírt
Akureyri 11 skýjað
Egilsstaðir 12 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 19 léttskýjað
Nuuk 13 léttskýjað
Þórshöfn 11 þoka
Ósló 21 heiðskírt
Kaupmannahöfn 21 léttskýjað
Stokkhólmur 22 heiðskírt
Helsinki 23 skýjað
Lúxemborg 23 heiðskírt
Brussel 22 heiðskírt
Dublin 20 skýjað
Glasgow 18 skýjað
London 23 heiðskírt
París 25 heiðskírt
Amsterdam 22 léttskýjað
Hamborg 22 heiðskírt
Berlín 23 heiðskírt
Vín 17 alskýjað
Moskva 28 heiðskírt
Algarve 28 heiðskírt
Madríd 36 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 35 léttskýjað
Aþena 31 heiðskírt
Winnipeg 22 léttskýjað
Montreal 25 léttskýjað
New York 32 léttskýjað
Chicago 30 skýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR KL. 12 Í DAG
19. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:54 23:15
ÍSAFJÖRÐUR 3:25 23:54
SIGLUFJÖRÐUR 3:07 23:38
DJÚPIVOGUR 3:16 22:52
Á Skötumessu sem haldin verður
hátíðleg í Garði á Reykjanesi á
þriðjudag verður boðið upp á skötu,
saltfisk og saltaðar kinnar auk ým-
issa skemmtiatriða, allt til styrktar
góðum málefnum. Ásmundur Frið-
riksson, bæjarstjóri í Garði og
skipuleggjandi hátíðarinnar, segir
að 240 manns séu þegar búnir að
bóka komu sína en hann eigi á von á
húsfylli, um 300 manns. Þetta er í
fimmta skipti sem hátíðin er haldin
og fer hún ætíð fram þann 20. júlí
eða á Þorláksmessu á sumri. „Það
var þennan dag árið 1198 sem Þor-
lákur helgi var tekinn í dýrlingatölu
af páfanum í Róm. Við sem erum
hrifin af skötu notum hvert tækifæri
til að borða hana og þess vegna hef-
ur þessi hátíð mælst mjög vel fyrir.“
Undanfarin ár hefur ágóði af há-
tíðinni runnið til MND-félagsins en í
ár mun hann einnig renna til ung-
menna á sambýlum fatlaðra í Garð-
inum. „Við ætlum að bjóða þeim í
unglingahelgi, kíkja með þau í keilu,
út að borða og enda í leikhúsi, lík-
lega að sjá söngleikinn Buddy
Holly,“ segir Ásmundur.
Skemmtiatriðin hafa verið af ýms-
um toga, sögur sagðar og söngvar
sungnir, en þau koma alltaf frá fólk-
inu í salnum að sögn Ásmundar.
„Það verður fullt af fólki og mikil
stemning,“ lofar hann. Hátíðin fer
fram í Gerðaskóla og hefst klukkan
19 á þriðjudag. kjartan@mbl.is
Skötumessa á Þorláksmessu á sumri
Búist við húsfylli í Garðinum Til
styrktar MND og sambýlum fatlaðra
Hilmar Bragi Bárðarsson
Skata Skötuvinir taka gleði sína.
Helen Ólafsdóttir setti nýtt brautar-
met í kvennaflokki í Laugavegs-
hlaupinu sem fram fór á laugardag
þegar hún kom í mark á fimm tímum,
21 mínútu og 12 sekúndum. Bætti
hún met Bryndísar Ernstsdóttur um
u.þ.b. tíu mínútur. Sigurvegari í
karlaflokki var Þorlákur Jónsson á
tímanum 4 klst., 48 mínútum og 1
sekúndu. Alls komust 267 hlauparar í
mark af þeim 279 sem lögðu af stað
frá Landamannalaugum. Að sögn
Önnu Lilju Sigurðardóttur hjá
Reykjavíkurmaraþoni var þátttaka
góð þrátt fyrir að óvenjumargir hafi
hætt við af ótta við öskufok. Askan
hafi þó ekki sett strik í reikninginn þó
að sumir hafi komið nokkuð svartir í
mark. Þá olli hiti hlaupurum nokkr-
um vandræðum og þurftu nokkrir að
fá vökva í æð að hlaupi loknu.
Einnig hlaupið fyrir vestan
Á Vestfjörðum fór fram mikil hlau-
pahátíð sem hófst með Óshlíðar-
hlaupi á föstudag og lauk með Vest-
urgötuhlaupi í gær. Sigruðu þau
Þórólfur Ingi Þórsson og Hrefna
Bjarnadóttir í Óshlíðarhlaupinu en
Sveinn Margeirsson og Eva Margrét
Einarsdóttir í því síðarnefnda. Að
sögn Rúnars Pálmasonar, blaða-
manns Morgunblaðsins, var feikilega
góð stemning og vel að hlaupunum
staðið. Margt af ferðafólki hafi verið
á svæðinu í tengslum við hlaupin og
þátttaka góð.
Hjólreiðakeppni, sk. Svalvoga-
keppni, var haldin í fyrsta skipti og
var afar vel heppnuð þrátt fyrir að
sumir sprengdu dekk jafnvel fjórum
sinnum að sögn Rúnars. Athygli
vakti að einn keppandi tók þátt í öll-
um liðum hátíðarinnar en það var
Sigurður Þórarinsson. Þreytti hann
Óshlíðarhlaupið á föstudag, tók þátt í
hjólreiðakeppninni á laugardag og
hljóp síðan hálfa Vesturgötu á sunnu-
dag.
Öskusvartir í
Laugavegshlaupi
Hlaupahátíð haldin á Vestfjörðum
Rásmark Hlauparar í Laugavegs-
hlaupinu ræstir af stað í blíðviðrinu.