Morgunblaðið - 19.07.2010, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 19.07.2010, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ 2010 10 Daglegt líf The Grand Daddy-hótelið í Cape Town, Suður-Afríku, er allt annað en venjulegt. Nafnið er í fyrsta lagi at- hyglisvert en hótelið státar líka af hjólhýsagarði sem komið hefur verið fyrir á þaki hótelsins. Hjólhýsin eru öll af tegundinni Airstream og það af eldri gerðinni. Þau hafa nú verið gerð upp og skreytt af listamönnum borg- arinnar. Samtals eru hjólhýsin sjö og er hvert hannað að innan með sér- stöku þema. Meðal þeirra má nefna skreytingar í stíl Gullbrár og bjarn- anna þriggja og bandarískt þema þar sem innanstokksmunirnir minna á ekta bandarískt heimili frá því um 1950. Á hótelinu má líka finna venju- leg herbergi en með óvenjulegum nöfnum eins og Sugar Daddy-svít- una. Síðan má ekki gleyma að fá sér drykk á The Daddy Cool Bar, barnum sem gefur sig út fyrir að vera svalasti barinn í bænum, fullur af skrauti og flottri innanhúshönnun í formi stóla, spegla og margs annars. Hugmynda- fræðin á bak við hótelið er lúxus í bland við skemmtilegheit og létt- leika, eins og sjá má í frumlegum nöfnum. Svalasti barinn í bænum Rómantískt Hvert hjólhýsanna á þaki Grand Daddy-hótelsins hefur þema. Pabbi kúl í Cape Town Svanhildur Eiríksdóttir svei@simnet.is V ið hittumst þrjár á hár- greiðslustofunni hennar Kolbrúnar [Valdimars- dóttur] og fórum að ræða um gallerí. Það hafði oft borið á góma, enda margar okkar búnar að vera lengi að, og nú sögðum við nei, nú hættum við að tala bara um þetta og framkvæmum,“ sagði handverkskonan Hildur Harð- ardóttir um upphaf Gallery átta, sem níu konur reka í Ásbergshúsi við Hafnargötuna. Gallery 8 var opnað í febrúarlok en þar selja 9 handverks- og listakonur vörur sínar og hönnun. Afgreiðslustörfunum skipa þær jafnt á milli sín sem og kostnaði við rekst- ur gallerísins. Flestar eru konurnar margreyndar í faginu en fæstar vinna þó að list sinni eingöngu. Þær hafa allar aflað sér þekkingar í gegn- um margvíslegt nám og námskeið, að undanskilinni Sigríði Albertsdóttur sem datt niður á hugmynd sína alveg óvart, en hún hannar skartgripi úr pappír og efni. „Þannig var að ég var að horfa á pappírshrúgu sem hafði á nokkrum dögum borist inn um bréfa- lúguna og safnast upp á heimilinu og ég hugsaði með mér, get ég ekki nýtt þetta í eitthvað? Ég fór að prófa að búa til hring, varð ánægð með út- komuna og hélt því áfram að þróa skartgripina. Ég kalla skartið mitt Regnbogaskart,“ sagði Sigríður sem er lyfjafræðingur að mennt. Engin að gera það sama Grunnhugmyndin í Gallery 8 er að engar tvær listakvennanna séu að gera það sama. Þó svo að nokkrar þeirra hanni skartgripi vinna engar tvær með sama efnið. Sveindís Valdi- marsdóttir notar pappamassa, kaffi, litsterkar jurtir, krydd, sand og ösku í skartgripi sína og Hjördís Haffjörð hannar skart úr gleri, íslenskum Frjóar konur láta drauma sína rætast Hafnargatan í Reykjanesbæ iðar af listalífi en á undanförnum mánuðum hafa sprottið upp gallerí og vinnustofur tólf handverks- og listakvenna. Mikki Meðal fatnaða í línu Spíral eru buxur, toppar, bolir og slár. Hér eru Ingunn og Íris með slána Mikka ref á milli sín og klæddar í eigin hönnun. Fjölbreytt Úrval listmuna og handverks er að finna í Gallery 8. Á heimasíðu Orkuseturs er ekki bara fróðleikur og ábendingar um orku- notkun heldur er síðan stútfull af ým- iskonar forvitnilegum reiknivélum tengdum orkunotkun. Meðal annars er þar hægt að reikna út hvað ferð á milli tveggja staða í einkabílnum kostar sem og rekstrar- og umhverfiskostnað mis- munandi bifreiða miðað við mismun- andi forsendur. Þá má reikna út hversu mikið sparast af eldsneyti og útblæstri með því að ganga eða hjóla, sparnaðinn af því að skipta út glóper- um fyrir sparperur, hversu mikinn skóg þarf til að binda koltvísýringinn sem kemur frá bílnum á ári sem og raforkunotkun nýrri og eldri heim- ilistækja. Þá eru á síðunni ýmis ráð og fróð- leikur sem gagnast við að draga úr orkunotkun sem aftur lækkar raf- magnsreikninginn. Að auki er ítarleg umfjöllun um orkugjafa framtíð- arinnar og hvernig megi draga úr nei- kvæðum áhrifum okkar á móður jörð. Vefsíðan www.orkusetur.is Morgunblaðið/Kristinn Bensín Kostnaðurinn svíður en ýmislegt má gera til að draga úr honum. Eyðslan sýnd svart á hvítu Góðar ferðahandbækur bæta nýrri vídd í ferðalögin innanlands og gera þau innihaldsríkari og eftirminnilegri en ella. Fjölmargar slíkar hafa sannað ágæti sitt á undanförnum árum – Vegahandbókin er löngu orðin klassík en að auki má benda á bækur eins og 101 Ísland þar sem Páll Ásgeir Ás- geirsson bendir á áhugaverða staði við þjóðveginn sem ella gætu auð- veldlega farið fram hjá ferðalöngum. Margir hafa haft gleði af bókinni Heitar laugar á Íslandi sem bæði fjallar um náttúrulaugar og mann- gerðar laugar sem gaman gæti verið að heimsækja. Þjóðsögur við þjóð- veginn gefa tilefni til að staldra við á ákveðnum stöðum, setjast niður og njóta nestis um leið og lesin er upp- hátt saga sem ku hafa gerst einmitt þar. Þá má nefna Íslenskan stjörnu- atlas sem er ómissandi í pottaferðum á haust- og vetrarkvöldum auk góðra handbóka um íslenska flóru og fugla- líf, svo eitthvað sé nefnt. Endilega … … notið ferða- handbækurnar Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hveravellir Í bók um heitar laugar. Að utan lítur það út eins og hvert annað epli en þegar bitið er í það kemur sannleikurinn í ljós. Hin nýja tegund af epli, Redlove-eplið, er nefnilega rautt í gegn og mætti ætla að það héldi að það væri tómatur. Það er svissneski gróðurhúsaeig- andinn Markus Kobert sem síðast- liðin 20 ár hefur dundað sér við að þróa þetta nýja epli í heimalandi sínu. Það gerði hann með því að setja sam- an þekkt afbrigði líkt og Royal Gala- og Braeburn-epli í bland við leynihrá- efni sem hefur ekkert bragð en gefur eplinu þennan rauðbleika lit. Lit- brigði eplisins er líkt við ber en það er stútfullt af andoxunarefnum. Eins og stendur hefur breska fyrirtækið Suttons, sem staðsett er í Devon hér- aðinu, einkaleyfi á að selja Redlove- eplatré á tæp 25 pund stykkið eða um 5.000 kr. íslenskar. Þegar hafa verið lagðar inn 1.500 pantanir en áætlað er að eplið verði komið í hillur breskra verslana eftir fimm ár. Ný eplategund frá Sviss Redlove-eplið er rautt í gegn Epli Hið nýja epli er rautt í gegn. Samkeppnisreglur og upplýsingar: www.jonsigurdsson.is Samkeppni um minjagripi og handverk. Vertu með! ÍS L E N S K A /S IA .I S /I S L 50 72 8 06 /1 0

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.