Morgunblaðið - 19.07.2010, Blaðsíða 11
Daglegt líf 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ 2010
Kýrnar „leika við hvurn sinn fingur“
þegar þær fara út á vorin, jafnvel
virðulegar maddömur sletta úr
klaufunum. Þessi atburður hefur
mikið aðdráttarafl á unga sem aldna
og nokkrir kúabændur bjóða því al-
menningi heim til að njóta stund-
arinnar. Fallegar kýr á beit eru mik-
ilvægar fyrir ímynd íslenskrar
mjólkurframleiðslu, ímynd sem kúa-
bændur vilja standa vörð um.
Rannsóknir sýna ótvírætt fram á
mikilvægi útbeitar fyrir nautgripi.
Útbeitin hefur jákvæð áhrif á heil-
brigði kúnna, marktæk fækkun verð-
ur á algengustu sjúkdómstilvikum
s.s. doða, súrdoða, júgurbólgu, leg-
bólgum og liðabólgum. Kýrnar fá
tækifæri til eðlilegrar félagslegrar
hegðunar, árásargirnin minnkar og
lægra settar kýr eiga auðveldara
með að forðast þær hærra settu.
Kýrnar hreyfa sig mun meira, eiga
auðveldara með að leggjast og
standa upp og hvíldaratferli er
ótruflað. Hreyfingin eykur einnig þol
og heilbrigði kúnna og er dánartíðni
lægri í hjörðum sem eru á beit. Kvíg-
urnar þurfa sömuleiðis að njóta út-
beitar. Fyrir utan ávinninginn varð-
andi líkamlegt heilbrigði lærir
ungviðið að hegða sér í hóp þar sem
gripirnir eru á mismunandi aldri.
Þetta er mikilvæg þjálfun því þegar
fyrstakálfskvígurnar koma inn í kúa-
hjörðina, langt gengnar með eða ný-
bornar, lenda þær yfirleitt neðst í
virðingarstiganum.
Rannsóknir sýna nú sömuleiðis
fram á hagkvæmni útbeitar. Sem
dæmi framleiða Írar og Nýsjálend-
ingar, ráðandi þjóðir á heimsmarkaði
nautakjöts og mjólkurafurða, nánast
allt á útbeit. Í fyrrasumar hóf Mat-
vælastofnun átaksverkefnið „Útivist
nautgripa“ til að tryggja að ákvæð-
um reglugerðar um átta vikna útivist
nautgripa hið minnsta ár hvert, að
graðnautum eldri en sex mánaða
undanskildum, sé framfylgt. Héraðs-
dýralæknar heimsóttu kúabú þar
sem grunur lék á um að kýrnar væru
ekki settar út, bændur fengu í kjöl-
farið bréf þar sem þess var krafist
að kýrnar fengju að njóta útivistar.
Árangur átaksins var mjög góður,
flestir bændur brugðust vel við og
hleyptu kúnum út. Átakinu verður
haldið áfram nú í sumar, skoðað
verður sérstaklega hvort kvígurnar
fá að fara út. Gerð verður skrifleg
krafa um útivist og málunum fylgt
eftir þar til úrlausn fæst.
Katrín H. Andrésdóttir, héraðs-
dýralæknir hjá Matvælastofnun.
Heilbrigði og velferð dýra
Þegar kýrnar dansa
Sælar Útbeitin hefur jákvæð áhrif á heilbrigði kúnna.
steinum og perlum. Auk þess selur
Hjördís glervörur og glerdýr í Gall-
ery 8. Bæði Dröfn H. Guðmunds-
dóttir og Hildur Harðardóttir selja
fatnað úr ull og skreyta með silki og
roði. Dröfn saumar alklæðnað úr ull-
arprjóni en Hildur notar þæfða ull í
sjöl, slár og nælur sem hún hannar
og býr til. Hildur selur einnig vatns-
litamyndir í galleríinu og deilir
myndlistinni með Fríðu Rögnvalds-
dóttur sem gerir lágmyndir úr olíu
og steypu á striga. Steinunn Guðna-
dóttir hannar leðurvörur með roði,
aðallega veski og ýmsa fylgihluti s.s.
armbönd, belti o.fl. en Kolbrún Valdi-
marsdóttir og Ingibjörg Magn-
úsdóttir eru mestmegnis í hönnun
húsbúnaðar og innanhússkrauts.
Kolbrún notar plexigler í vörur sínar,
sem hún vinnur samhliða eiginmann-
inum, Hilmari Guðsteinssyni, undir
merkjum hilmko. Þau gera m.a.
kertastjaka, matarbakka,
skartgripastand og skrautfígúrur
eins og jólakött og hreindýr. Ingi-
björg Magnúsdóttir hefur nýlokið 4
ára námi frá Iðnskólanum í Hafn-
arfirði og hún sagði járnið hafa heill-
að mest á námsárunum. Hún gerir
m.a. fatastanda, kertahólka og serv-
éttuhringi sem allir fá útlit eftir
veðri, þ.e. hamraðir með mynstri sem
minnir á snjó eða rigningu.
Auk margvíslegrar listmennt-
unar og vinnu við hönnun og sköpun
koma konurnar úr ýmsum starfs-
stéttum eins og leik- og grunnskóla-
kennslu, hárgreiðslu og lyfjafræði
eins og þegar hefur komið fram.
Flíkur með ævintýraleg nöfn
Neðar á Hafnargötunni, nánar
tiltekið í Fishershúsi, hafa listakon-
urnar og vinkonurnar Íris Jónsdóttir
og Ingunn Yngvadóttir komið sér
fyrir. Þær hanna flíkur undir merkj-
um Spiral og ævintýrið sem byrjaði
smátt er orðið býsna stórt, eins og
þær viðurkenndu í samtali við blaða-
mann. „Við byrjuðum í apríl sl. og
ákváðum að sjá hvert þetta myndi
leiða okkur. Við höfðum sett stefnuna
á sýningu á ljósanótt en núna 20. júlí
erum við að halda tískusýningu á
Flughóteli þar sem við kynnum nýju
línuna okkar,“ sögðu þær stöllur og
bættu við að ferlið væri búið að vera
ævintýri líkast. Nokkrar flíkurnar
hafa líka fengið ævintýraleg nöfn á
borð við Mikka ref, Lilla klifurmús
og Snjóengil. – En hvernig hófst
þetta ævintýri? „Við erum æsku-
vinkonur og báðar mikla fatafríkur.
Þennan draum hefur oft borið á
góma í samtölum okkar og núna
ákváðum við að láta verða af þessu,
hætta að tala um þetta og fram-
kvæma. Við erum nokkuð duglegar
við það að stinga okkur út í djúpu
laugina,“ sagði Íris. Þær sjá báðar
um hönnun, útfærslu og saumaskap
en vegna anna þurftu þær að ráða sér
aðstoðarkonu, Birnu Huld Helga-
dóttur kjólameistara. Bæði Ingunn
og Íris eiga langan feril að baki í
hönnun og listsköpun. Íris er mynd-
listarmenntuð og kennir myndlist við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Ing-
unn byrjaði ung að sauma og hanna
og hefur á undanförnum árum hann-
að leðurvörur, m.a. töskur sem seldar
eru í Reykjavík Bags. Í Fishershúsi
hefur Magdalena Sirrý einnig að-
stöðu fyrir hönnun sína og vörur en í
hennar safni er mikið úrval prjóna-
vara.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Vinsælt Það hefur hitt í mark hjá Gallery 8 að listakonurnar taka á móti
hópum, hvort sem er á opnunartíma eða utan hans.
Fríður hópur Listakonurnar níu í Gallery 8 á Hafnargötu í Reykjanesbæ allar samankomnar. F.v. Fríða, Sveindís,
Hjördís, Hildur, Sigríður, Kolbrún, Steinunn, Ingibjörg og Dröfn.
Ekki gleyma að vera með blóm í
hárinu farir þú til San Francisco, ráð-
lagði söngvarinn Scott McKenzie í
lagi sínu hér forðum daga og bætti
síðan við að þar muni ferðalangar
hitta indælt fólk. Hann hafði grein-
lega rétt fyrir sér en borgin er efst á
lista breska blaðsins Independent
yfir staði sem þykir hvað best fyrir
samkynhneigða að búa á.
Andrúmsloftið í borginni þykir af-
slappað og þangað flykktust hipp-
arnir á sínum tíma en stjórnvöld í
borginni eru einnig frjálslynd miðað
við aðrar bandarískar borgir. Enda er
Kalifornía aðeins annað af tveimur
ríkjum Bandaríkjanna þar sem hjóna-
band tveggja aðila af sama kyni er
leyfilegt. San Francisco hefur því orð-
ið vinsæll brúðkaupsstaður hjá sam-
kynhneigðum pörum en í borginni er
stundum sagt að finna megi fjögur
samkynhneigðustu horn heims, á
gatnamótum Castro og 18 strætis.
San Francisco talin best
San Fransisco Allir eru velkomnir.
Frjálslynt sam-
félag í blóma
ódýrt og gott
kr.
pk.
Grillaður kjúklingur
og Pepsi eða Pepsi Max, 2 l
998