Morgunblaðið - 19.07.2010, Page 17
Minningar 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ 2010
✝ Stefán H. Skúla-son fæddist á fæð-
ingardeild Landspít-
ala 25. október 1986.
Hann lést á Landspít-
alanum Fossvogi að
morgni 12. júlí 2010.
Móðir er Katrín
Árnadóttir, f. 1970,
gift Páli E. Winkel, f.
1973. Systur Stefáns
eru Guðný Kristín, f.
2002, og Katrín Pála,
f. 2003. Foreldrar
Katrínar eru Guðný
Sigurðardóttir og
Árni Þorsteinsson. Foreldrar Páls
eru Guðný Jónsdóttir og Per Winkel.
Stefán bjó í Furubergi 1 í Hafn-
arfirði alla sína barn-
æsku en flutti á sam-
býlið Hólmasundi í lok
ársins 2002. Stefán
hóf skólagöngu í
Lyngási og Safamýr-
arskóla árið 1992. Að
því loknu fór hann í
sérdeild Fjölbrauta-
skólans við Ármúla.
Stefán var alla tíð
áhugasamur um tón-
list og sótti tónlistar-
námskeið hjá Fjöl-
mennt auk sund-
námskeiða.
Útför Stefáns verður gerð frá
Viðistaðakirkju í dag, 19. júlí 2010,
og hefst hún kl. 13.
Elskulegi afadrengur. Það er
þyngra en tárum taki að kveðja þig
hinstu kveðju. Þú hefur frá fyrstu tíð
verið sólargeislinn minn og samband
okkar verið náið og umvafið hlýju. Á
þessari kveðjustund hellast yfir mig
dásamlegar minningar um öll þau 23
ár sem okkur auðnaðist að eiga sam-
an. Minnisstæðar eru fjölmargar
ferðir okkar saman um landið en m.a.
fórum við í hringferð um landið og
ferðuðumst um Vestfirðina. Ávallt
varst þú glaður, ánægður og hvers
manns hugljúfi í ferðunum. Þá eru
mér sérstaklega kærar stundirnar
sem við áttum saman, oft einir, í
Furuberginu þar sem við spjölluðum
um heima og geima og nutum nær-
veru hvor annars.
Yndislegi afadrengur, ég bið Guð
að blessa minningu þína og veit að þér
líður vel nú eftir hetjulega baráttu í 23
ár. Þín verður ávallt sárt saknað.
Árni Hreiðar Þorsteinsson.
Þó vindur blási á litla logann þinn
og líka streymi regn – hann blikar
þarna.
Því flýgurðu ekki hátt í himininn?
Þar hlýtur þú að verða fögur stjarna.
(Þýð. Helgi Hálfdánarson.)
Í dag kveðjum við ljúfan dreng,
Stefán Hansen. Stefán var með okkur
í leik og starfi á Lyngási sl. 18 ár. Síð-
astliðinn föstudag fór Stefán í frí eins
og allir aðrir á Lyngási, nema hann
ákvað að fríið sitt skyldi vera öllu
lengra en okkar hinna. Það verður
skrítið að mæta aftur eftir sumarfrí
og hafa ekki Stefán með í hópnum,
enginn að hlusta og hlæja að bæjarins
nýjasta slúðri eða að hlusta á Ladda í
botni og hlæja dátt. Hann var að öllu
jöfnu lífsglaður, hafði ljúft skap og
smitandi hlátur sem kallaði fram bros
hjá okkur öllum. Hann var mikil fé-
lagsvera og naut þess að spjalla í
góðra vina hópi. Óbilandi kjarkur og
leiftrandi húmor er okkur ofarlega í
huga.
Kenndu mér klökkum að gráta,
Kynntu mér lífið í svip,
Færðu mér friðsæld í huga
Finndu mér leiðir og veg.
Gefðu mér gullin í svefni,
Gættu að óskum og þrám,
Minntu á máttinn í sálu,
Minning er fegurri en tár,
Og sjáðu hvar heiður himinn
Handan við þyngstu ský
Er dagur sem dugar á ný.
(Sigmundur Ernir.)
Um leið og við vottum fjölskyldu
Stefáns samúð okkar, þökkum við
góðar stundir á liðnum árum. Minn-
ingin um yndislegan dreng lifir.
F.h. allra vina á Lyngási,
Birna Björnsdóttir.
Elsku Stebbi okkar.
Lífið í Hólmasundinu er tómlegt
þessa dagana. Við söknum þess svo
mikið að hafa þig ekki hér hjá okkur,
brosandi og hlæjandi.
Alla daga hress og kátur en lést þó
vel í ljós ef það var eitthvað sem þér
líkaði ekki.
Þú varst alltaf fyrstur allra til að
skella upp úr yfir uppátækum ann-
arra og fékkst okkur undantekning-
arlaust til að hlæja með þér, alltaf
sami grallarinn.
Við vitum að þú ert kominn á góðan
stað og sendir okkur bros í laumi.
Þar sem englarnir syngja sefur þú,
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær,
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér kær,
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens.)
Fyrir hönd starfsfólks og íbúa í
Sambýlinu Hólmasundi 2,
Svanhildur Geirarðsdóttir.
Þú varst bara 10 ára þegar ég kom í
heiminn og eru þessi 14 ár búin að
gefa mér svo mikið. Þú varst uppá-
haldið mitt.
Ég man þegar þú fermdist þá var
ég bara 4 ára og ég hljóp upp að alt-
arinu og ríghélt í þig, elsku Stebbi
minn.
Manstu eftir því?
Við höfum verið saman öll okkar jól
og ég get ekki hugsað mér jólin án
þín. Það verður tómlegt, ég sakna þín
strax.
Ég veit að þú ert kominn á góðan
stað og brosir út að eyrum eins og þú
varst vanur að gera. Ég trúi því líka
að þú getir gert allt sem þig langar og
sérstaklega staðið í löbburnar þínar.
Mér þótti svo gott að koma til þín
og leggjast í vatnsrúmið þitt. Þú
manst þegar afi bað þig um að passa
mig þegar ég var lítil. Þú varst svo
góður við mig svo bara hlóstu, Stebbi
minn. Þú ert bestur.
Ég mun varðveita hringinn sem þú
gafst mér í fermingargjöf. Takk fyri
allt og allt.
Ég elska þig og sakna þín,
Árný Sara.
Að setjast niður og kveðja þig,
elsku fallegi strákurinn okkar, er nær
óbærilegt. Í tæp 17 ár áttir þú heima
hjá okkur og hafa alltaf verið órjúf-
anleg bönd á milli okkar. Það eru svo
margar fallegar minningar hjá okkur
og erfitt að byrja, nema þann dag sem
þú fæddist, fallegur strákur og allt
virtist í góðu lagi, en svo kom í ljós að
þú varst með meðfæddan hjartagalla
og það þurfti að fara til London með
þig í aðgerð. Þú fórst um allt húsið í
þinni göngugrind og vildir helst borða
bara sjálfur, það gekk eins og best
varð á kosið en svo áttu sér stað þeir
hlutir sem gerðu allt þitt líf öðruvísi, í
júlí 1987.
Alltaf hefur þú verið gleðigjafi hvar
sem þú komst með hlátur þinn og
hlýju. Ekki varstu til að byrja með
mikið ánægður þegar fjölgaði í hópn-
um á heimilinu með tilkomu frænd-
systkina en þegar á leið fann maður
hve áhugasamur þú varst um þau og
glaður að fylgjast með þeim stækka
og dafna. Þegar þú varst á 17. ári
fluttir þú að heiman eins og aðrir ung-
ir menn og þá á sambýli í Hólmasundi
2, með eigin íbúð. Við vitum að þú
eignaðist góða vini þar og annars
staðar sem leið þín lá.
Ég er afar þakklát fyrir þann tíma
sem við áttum saman og mun ég um
alla tíð varðveita minningu um ynd-
islegan, hjartahlýjan dreng. Guð
blessi minningu Stefáns og varðveiti
sál hans.
Guðný Sigurðardóttir.
Nú er komið að kveðjustund elsku
Stebbi frændi.
Margs er að minnast og margs að
sakna. Ég veit ekki hvað setja á á blað
þar sem svo margar og góðar minn-
ingar koma upp og erfitt að stoppa
táraflóðið.
Ég var þrettán ára gömul þegar þú
fæddist og ég var svo spennt að vera
stóra frænka. Við áttum margar og
góðar stundir saman enda bjóst þú
heima hjá okkur og fékk maður þann
heiður að kynnast þér eins og þú
varst, góður og flottur frændi. Sólar-
hringsgamall fórst þú í aðgerð til
London og biðum við í þrjár vikur eft-
ir að fá að knúsa og kynnast þér.
Þú verður alltaf besti frændi, hetj-
an okkar, lítill drengur sem mátti þola
margt.
Ég mun sakna þín sárt.
Elsku Kata systir, Palli, Guðný
Kristín, Katrín Pála, mamma og
pabbi, ég sendi ykkur mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Þín frænka,
Steinunn Árnadóttir.
Elsku Stebbi frændi okkar er dá-
inn. Þú sem varst alltaf svo kátur og
glaður þrátt fyrir mikla fötlun.
Ég man svo vel þegar þú komst í
heiminn, svo fallegur lítill drengur
sem barðist fyrir lífi sínu.
Ég sá þig ekki fyrsta mánuðinn og
var það erfið bið svo loks komstu heim
eftir vel heppnaða aðgerð í London.
Yndislega fallegur drengur svo
glaður alltaf.
Þótt þú hafir ekki getað tjáð þig þá
veit ég vel að þú varst bráðvel gefinn
þú ærðist af gleði þegar þér var keyrt
alla daga heim til afa og ömmu. Þú
vissir nákvæmlega hvert ferðinni var
heitið.
Þér þótti best að vera hjá afa og
ömmu enda elskuðu þau þig og lifðu
fyrir þig.
Hvernig verða jólin án þín, elsku
Stebbi minn. Það verður aldrei eins
án þín. Ég trúi og veit í hjarta mínu að
núna ertu frjáls og sennilega ertu
hlaupandi í löbbunum þínum.
Þín verður sárt saknað.
Elsku Kata mín, það sem þú hefur
þurft að ganga í gegnum er eitthvað
sem engin móðir ætti að þurfa ganga í
gegnum og mundu að við elskum þig.
Elsku Kata mín, Palli, Guðný
Kristín, Katrín Pála, amma Guðný og
Addi afi
Guð veiti ykkur styrk.
Helga Sæunn og fjölskylda.
Það var sárt að fá fréttirnar af því
að þú værir búinn að kveðja þetta líf,
elsku Stebbi okkar. Í okkar augum
varstu sannkölluð hetja þar sem þú
barðist hetjulega við veikindi þín. Við
eigum minningar um þig frá þínum
yngri árum þar sem mamma gætti
þín oft brot úr degi á heimili okkar.
Þar fengum við tækifæri til að kynn-
ast þér betur og þykir okkur það
ómetanlegt að hafa átt þann tíma með
þér.
Þó að samverustundunum hafi
fækkað með árunum, fengum við
reglulega af þér fréttir sem okkur
þótti vænt um að fá. Við minnumst þín
ávallt sem fallega og duglega frænda
okkar.
Þínar frænkur,
Katrín Helga, Guðrún
Harpa og Tinna Björk.
Það er erfitt að kveðja ungan og
góðan dreng. Stefán hitti ég fyrst fyr-
ir rúmlega 20 árum, þegar Steinunn
kynnti mig fyrir honum. Hann var
sólargeisli í lífi allra sem þekktu hann
og voru svo heppnir að fá að kynnast
honum. Vil ég þakka fyrir allar stund-
irnar okkar saman, megi góður guð
fylgja þér, litli vinur. Elsku Katrín,
Páll, Guðný Kristín, Katrín Pála,
Guðný og Árni, ég votta ykkur mína
dýpstu samúð.
Blessuð sé minning Stefáns.
Jón V. Guðmundsson.
Stefán H. Skúlason HINSTA KVEÐJA
Elsku Stefán. Við kveðjum
þig með söknuði. Takk fyrir
allt, guð blessi þig, stóri frændi.
Elsku Kata, Palli, Guðný,
Katrín, amma og afi, megi góð-
ur guð veita ykkur styrk í sorg-
inni.
Guðný Margrét, Guð-
mundur og Pálína Ósk.
Elskulegi bróðir okkar.
Þegar mamma og pabbi
sögðu okkur af því að þú værir
dáinn og farinn til Guðs urðum
við mjög leiðar. Við sögðum
mömmu og pabba að við mynd-
um alltaf minnast þín með gleði
og væntumþykju.
Hafðu það gott á himnum
kæri bróðir.
Guðný Kristín og Katrín Pála.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR ÞORGEIRSSON,
Pósthússtræti 1,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðjudaginn
13. júlí.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn
22. júlí kl. 14.00.
Erna Sigríður Sigurðardóttir,
Lilja Bergmann Sigurðardóttir, Friðrik Sverrisson,
Garðar Sigurðsson, Ásta Halldóra Böðvarsdóttir,
Gunnlaug Olsen, Sturla Ólafsson,
Kolbrún Dóra Kristinsdóttir, Þór Sigurðsson,
Jóna Kr. Olsen Sigurðardóttir, Leif Erik Williams
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
FRIÐRIKA BETA LÍKAFRÓNSDÓTTIR,
Álfhólsvegi 66,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð föstudaginn
9. júlí.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Innilegar þakkir til starfsfólks Álfhóls fyrir góða og
hlýja umönnun.
Hrönn Guðný Gunnarsdóttir, Jón Oddur Jónsson,
Rósa Sigríður Gunnarsdóttir, Hannes Kristinsson,
Bjarney Sólveig Gunnarsdóttir, Böðvar Böðvarsson,
Gunnar Björgvin Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
JÓN MAGNÚSSON
Ljósulind 2
Kópavogi,
lést föstudaginn 16. júlí á krabbameinsdeild
Landspítalans.
Þuríður Gísladóttir,
Arnar Jónsson, Helga Þórdís Gunnarsdóttir,
Rögnvaldur Örn Jónsson, Jóna Björg Olsen,
María Björk Jónsdóttir, Sveinn J. Kjarval,
Brynjar, Arndís, Hilmar, Selma og Róbert.
✝
Útför elskulegrar mágkonu og frænku okkar,
MAGNEU KATRÍNAR HANNESDÓTTUR,
frá Stóru Sandvík,
Stóragerði 36,
Reykjavík,
verður gerð frá Selfosskirkju þriðjudaginn 20. júlí
kl. 13.30.
Hrefna Gísladóttir
og systkinabörn hinnar látnu.