Morgunblaðið - 19.07.2010, Page 24

Morgunblaðið - 19.07.2010, Page 24
24 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ 2010 Grínfréttasíðan The Onion er einn af þeim allra skemmtilegustu stöð- um veraldarvefsins til þess að eyða tíma sínum á »27 » Hætta er á því að fjöldi breskra sviðslistabygg- inga, óperur og leikhús, verði rif- in á næsta ári vegna nið- urskurðar á rík- isframlögum til þeirra, að því er fram kemur í nýrri skýrslu The Theatres Trust, stofnunar sem helg- ar sig varðveislu og verndun breskra sviðslistabygginga. Í úttekt- inni segir að óvissa ríki um framtíð 55 bygginga og þar af séu nokkrar í Wallsend, Derby og Workington sem eigi á hættu að verða jafnaðar við jörðu. Forstöðumaður stofnunar- innar, Rob Dickins, hefur áhyggjur af því að nokkrum sviðslistahúsum, sem starfandi eru í dag, verði lokað og að þau verði síðar rifin niður. Sviðslista- byggingar í hættu Framlög skert og hætta á niðurrifi Hackney Empire í London er á válista Í frétt um ferða- leikhúsið Light Nights, sem birtist í Morg- unblaðinu föstu- daginn sl., sagði að engar sýn- ingar yrðu í leikhúsinu í sumar sökum þess að mennta- málaráðuneytið hefði neitað leik- húsinu um styrk, að því er haft var eftir eiganda þess, Kristínu G. Magnús. Í fréttinni kom fram að þó yrðu haldnar sýningar í undantekn- ingartilfellum en láðist að nefna að þar væri um pantaðar hópsýningar að ræða, þ.e. að hópar, 30 manns eða fleiri, gætu pantað sýningu hjá leikhúsinu. Slíkar pantanir fara fram í gegnum tölvupóst á net- fangið info@lightnights.com eða í síma 5519181. Sýningar geta verið á íslensku eða ensku. Hægt að panta hjá Light Nights Kristín G. Magnús 63. bókin í bókaflokknum neon er komin út, Glæpir eftir þýska lögfræðinginn Ferdinand von Schirach, en hann hefur sótt og varið mál í Berlín í þrjá ára- tugi, að því er fram kemur í til- kynningu frá útgefandanum, Bjarti. Schirach segir í bókinni sögur af sérstæðum glæpum, kostulegum refsingum og skrýtnum örlögum, eins og því er lýst. „Hvernig stendur á því að maður sem drepur eiginkonu sína með öxi fær vægustu refsingu? Hvað verður um ólánlega smákrimma sem brjótast inn hjá jap- önskum auðjöfri og grípa óvart með sér hundrað ára ættardjásn?“ segir m.a. um bókina. Bjarni Jónsson íslenskaði. Bókmenntir Lögfræðingur segir sögur af glæpum Ljósmyndarinn Peter Beym opnaði í fyrra- dag sýningu í Listhúsi Ófeigs á ljósmyndum sem hann hefur tekið á Íslandi og er yfirskrift sýningarinnar Íslensk augna- blik. Peter, réttu nafni Piotr Jerzy Beym, fæddist í Póllandi árið 1966 en fluttist búferlum þaðan af pólitískum ástæðum þegar hann var 19 ára, að því er segir í tölvupósti. Þá lagðist hann í ferðalög og settist að á Íslandi árið 2005. Sýning hans í Listhúsi Ófeigs, að Skóla- vörðustíg 5, stendur til 11. ágúst. Ljósmyndun Íslensk augnablik í Listhúsi Ófeigs Út er komin skáldsagan Bók- mennta- og kartöfluböku- félagið eftir Mary Ann Shaf- fer og Annie Barrows. Í bókinni segir af rithöfund- inum Juliet Ashton sem er að leita að efni í næstu skáld- sögu sína og fær bréf frá manni sem hefur undir hönd- um bók sem hún átti áður. Þegar hún kemst að því að hann er í Bók- mennta- og kartöflufélaginu á eyjunni Guernsey vaknar forvitni hennar og hún kynnist fleirum í því merkilega félagi og fræðist um ástir og sorg- ir á eyjunni undir þýsku hernámi. Þýðandi bók- arinnar er Ingunn Ásdísardóttir og það er Bjartur sem gefur hana út. Bókmenntir Bókmennta- og kartöflubökufélagið Ingunn Eyþórsdóttir ingunn@mbl.is Út er komin ljóðabókin Síðdegi eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur, rithöf- und, ljóðskáld og þýðanda. „Í þess- ari bók er að finna hvort tveggja, tönkur og hækur, líkt og í fyrri verk- um mínum,“ segir Vilborg um nýju ljóðabókina en í henni yrkir hún af „skáldlegum einfaldleik“ eins og fram kemur á baksíðu bókarinnar. „Helgi Hálfdánarson, sálmaskáld, færði okkur þetta ævaforna jap- anska ljóðform á íslensku. Munurinn á mér og hækuskáldunum fornu grundvallast á kyni okkar. Þetta voru eintómir karlmenn sem söðluðu um á milli mustera og fagurra staða. Ég er hins vegar íslensk kona sem sit heima hjá mér og yrki hækur um árstíðirnar fjórar,“ segir hún og kveðst hafa gaman af. Heillaðist mjög af ljóðagerð atómskáldanna Upphafsljóð bókarinnar, Fjall- konan, samdi Vilborg fyrir þjóðhá- tíðardaginn árið 2005. Að hennar sögn er efniviður ljóðsins sóttur austur á firði þar sem fornminja- gröftur fór fram. Fundust þar m.a. tennur og skartgripir sem tilheyrðu konu frá landnámsöld. Konan fékk samstundis viðurnefnið Fjallkonan og voru Austfirðingar afar hrifnir af þessum merka fundi. Fyrsta ljóðabók Vilborgar, Laufin á trjánum, kom út árið 1960 en hún var ein af fáum konum hérlendis sem ortu atómljóð. „Atómskáldin í nýstárlegri nálgun sinni hófu að yrkja órímuð ljóð. Almenningur reis upp, gömlu bragarháttunum til varnar.“ Vilborg segist ekki hafa mætt miklu andstreymi í kjölfar at- ómljóðanna en hún heillaðist mjög af ljóðagerð skáldanna, þá sérstaklega af verkum Steins Steinars. Skemmtilegast að skrifa fyrir yngstu börnin Í 46 ár starfaði Vilborg við kennslu, lengst af í Austurbæjar- skóla. Á kennsluárunum skrifaði hún og þýddi fjölda bóka fyrir börn og unglinga og árið 2000 fékk hún bókmenntaverðlaun alþjóðlegu sam- takanna IBBY fyrir störf sín í þágu barna og framlag sitt til barnamenn- ingar. „Ég hafði mest gaman af að skrifa fyrir yngstu börnin. Galdur- inn í því er fólginn í að finna jafn- vægi á milli þess að hafa texta ofur- einfaldan en samt með stílbragð.“ Jafnréttismál eru Vilborgu hjart- fólgin en hún var ein af stofnendum Rauðsokkahreyfingarinnar. „Veg- urinn að jafnréttinu er löng ganga. Jafnrétti allra þegna, ekki síst barna, er mér mikilvægt. Ég þýddi Barnasáttmála Sam- einuðu þjóðanna og hef alltaf haldið dag sam- takanna hátíðlegan.“ Vilborg fagnaði átt- ræðisafmælinu í gær en hún er fædd 18. júlí 1930. Skáldlegur einfaldleiki  Vilborg Dagbjartsdóttir sendir frá sér sína níundu ljóðabók, Síðdegi  Fyrsta ljóðabók hennar, Laufin á trjánum, kom út fyrir hálfri öld  Varð áttræð í gær Morgunblaðið/Árni Sæberg Afmæli Vilborg fagnaði áttræðisafmælinu í gær. Haldið var útgáfu- og afmælisboð í Bókabúð M&M á Laugavegi. Sumarið er komið! Í morgun heilsaði mér sjálf býdrottningin. Stundvís að vanda komin úr búi sínu tekin til starfa. Örvæntingarfull eigrar æskan um krárnar á menningarnótt. Sumar ÚR LJÓÐABÓKINNI SÍÐDEGI Gestum Gallerís Ágústsbýðst nú að gerast hluti aflistaverki er þeir gangainn um dyrnar. Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir hefur komið þar fyrir innsetningu sem samanstendur af máluðum spónaplötum er mynda vísi að völundarhúsi í samspili við gallerírýmið. Til að meðtaka verkið – og virkja merkingu þess – þarf sem sagt að hreyfa sig um rýmið. Sýningin ber heitið „Painting Site“ sem mætti útleggjast sem „vett- vangur málverks“ enda má þarna sjá hressilega málaða litafleti; form og mynstur í skærari enda litaskal- ans. Rifur, gluggar og veggir skapa ýmis sjónarhorn og málverkið sem um ræðir er því síbreytilegt eftir af- stöðu þess er horfir. Myndlist sem gengur langt í að virkja skynjun áhorfenda og krefj- ast þátttöku þeirra hefur verið áber- andi nú um nokkurt skeið. Í vel heppnuðum innsetningum af slíku tagi gerist það gjarnan að sýning- argestir sjá sjálfa sig sjá, ef svo má segja, þ.e. athyglin beinist einnig að eigin viðbrögðum og þeir verða þannig virkur hluti af merkingu verksins. Ingunni Fjólu tekst nokk- uð vel að grípa athyglina með líflegu, óhlutbundnu samspili lita og forma. Stundum skapar hún sjónræn áhrif í anda op-listar eða hreyfilistar og nýtir til þess þekkingu á virkni lita og á myndbyggingu. Innsetningin ber því nafn með réttu þar eð hún leggur aðaláherslu á eigindir mál- verksins og skynjun áhorfandans af- markast af sjónrænum þáttum verksins, líkt og hún sé „römmuð inn“. Hugmyndin um fagurfræðilegt sjálfstæði, eða sjálfræði hins tvívíða myndflatar – hugmynd sem byggist á athafnasemi áhorfandans inn í verkið – teygir því anga sína hér út í þriðju víddina. Það er kannski fátt sem kemur á óvart á þessari sýningu, en hún er sem fyrr segir fjörmikil og býr yfir talsverðri leikgleði sem einnig getur gripið sýningargestinn á stað og stund. Innrömmuð skynjun Morgunblaðið/Ómar Litir Frá sýningu Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur í Gallerí Ágúst. Gallerí Ágúst Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir – Painting Site bbbmn Til 24. júlí 2010. Opið mi.-lau. kl. 12-17 og eftir samkomulagi. Aðgangur ókeypis. ANNA JÓA MYNDLIST

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.