Morgunblaðið - 19.07.2010, Qupperneq 32
MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ 200. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Íslensk stúlka leiðir heims…
2. Ómar Ragnarsson fær milljónir
3. „Orðlaus, hrærður og þakklátur“
4. Akureyrarflugvöllur gæti lokast…
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Margt var um manninn á Austur-
velli á sumargleði sem Jafningja-
fræðsla Hins hússins stóð fyrir. Pyls-
ur, tónleikar og margt fleira var á
boðstólum í frábæru sumarveðri þar
sem ungir og aldnir nutu sín. »28
Sumargleði Jafn-
ingjafræðslunnar
Margt bar fyrir
augu flugunnar
síðastliðinn
fimmtudag en
hún kynntist
mörgum sem
lögðu leið sína í
sumarblíðunni að
sjá gjörninginn
Domains of Joyful
Degradation sem var á dagskrá Villa
Reykjavík. Inni tók myrkrið við og
margt forvitnilegt, skrítið og furðu-
legt bar fyrir augu gesta. »25
Flugan fór á gjörning
í sumarblíðunni
Hjálmar spiluðu á föstudags-
kvöldið síðastliðið á efri hæð Faktorý
en að vanda náðu þeir að virkja reggí-
stemninguna til hins ýtrasta. Þá létu
þeir hugann
sveima til gam-
alla tíma þegar
þeir spiluðu
„heit og sveitt
gigg“ á Grand
Rokk á upp-
hafsárunum.
»29
Hjálmar voru á opn-
unarkvöldi Faktorý
Á þriðjudag Hæg vestlæg eða breytileg átt og víða bjart í veðri, en skýjað með köflum á
Suðurlandi og þurrt að kalla. Hiti 11 til 19 stig, hlýjast norðanlands.
Á miðvikudag Hæg suðvestlæg átt og dálítil súld með köflum við vesturströndina en
annars léttskýjað að mestu. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast norðan til.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg norðlæg eða breytileg átt. Víða léttskýjað en skýjað og hætt
við þokulofti við N- og A-ströndina. Hiti 14 til 22 stig á S- og V-landi, annars 8 til 15 stig.
VEÐUR
Gunnar Heiðar Þorvaldsson,
knattspyrnumaður frá Vest-
mannaeyjum, heldur að öll-
um líkindum til Englands
síðar í vikunni þar sem hann
verður til skoðunar hjá
Charlton Athletic. Hann var
í herbúðum félagsins fyrir
skömmu en meiddist í æf-
ingaleik. Nú vilja for-
ráðamenn Charlton líta á
Gunnar Heiðar á nýjan
leik. »1
Gunnar Heiðar
aftur til Charlton
„Það er náttúrlega ótrúlegt að þetta
skuli gerast,“ sagði hinn þraut-
reyndi kylfingur Björgvin Þor-
steinsson eftir að hann fór
holu í höggi tvo daga í röð á
Jaðarsvelli á Akureyri. Björgvin
hefur alls tíu sinnum farið
holu í höggi á ferl-
inum. »1
Daglegt brauð hjá
Björgvini
Breiðablik og ÍBV eru áfram jöfn á
toppi Pepsi-deildar karla í knatt-
spyrnu eftir leiki 12. umferðar í gær.
Liðin hafa skorið sig aðeins frá öðr-
um í deildinni. Breiðablik lagði Kefla-
vík og Eyjamenn lögðu Fram, 1:0, á
laugardaginn. Enn einu sinni gekk
sigur nýliðum Hauka úr greipum. Nú
misstu þeir tveggja marka forskot
gegn KR niður í jafntefli. »2-5
Áfram berjast ÍBV og
Breiðablik á toppnum
ÍÞRÓTTIR
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Þær Alissa R. Vilmundardóttir,
læknanemi, og Íris Mýrdal Krist-
insdóttir, líffræðinemi, hafa sett sér
það markmið að hjóla hringinn í
kringum landið á tíu dögum til
styrktar Rannsóknarstofu í krabba-
meinsfræðum. Þær leggja í hann
þann níunda ágúst næstkomandi en
slagorð ferðarinnar er Okkar leið -
allra málefni og er Vigdís Finn-
bogadóttir sérstakur verndari ferð-
arinnar. Rannsóknarstofan hefur
fyrir löngu unnið sér sess í alþjóð-
legum heimi krabbameinsfræða en
Alissa segir að almennt séð hafi þær
valið þetta málefni þar sem krabba-
mein sé sjúkdómur sem fólk heyri
um í eiginlega öllum fjölskyldum og
að með þessu átaki vonist þær því
til að ná til sem flestra.
Þrotlausar æfingar
„Það hefur löngum verið draumur
hjá mér að takast á við svona stórt
verkefni til styrktar verðugu mál-
efni og ætli ég hafi ekki bara fengið
innblástur frá fólki sem ég hef
fylgst með gera eitthvað álíka. Líkt
og ég er Íris mikill hjólreiðagarpur
og samþykkti strax hugmyndina en
síðastliðið hálft ár höfum við æft
okkur og undirbúið með því að
hjóla, hlaupa og lyfta. Ég var
reyndar á þessum tíma úti í París
og Íris hér heima en við vorum í
stöðugu tölvusambandi til að skipu-
leggja allt saman. Undirbúning-
urinn hefur gengið vel og upp á síð-
kastið hef ég hjólað nærri daglega.
Ég lengi ferðirnar í hvert skipti en
ég náði að hjóla 80 km úti í París og
er einmitt á leiðinni núna á eftir að
hjóla fram og til baka á Þingvöll, en
það eru á milli 80 til 90 km. Mark-
mið okkar er að hjóla hringinn á tíu
dögum eftir þjóðvegi 1 sem eru 134
km á dag en við ætlum okkur þó allt
upp í 14 daga í ferðina þar sem veð-
ur og óvæntar uppákomur geta allt-
af sett strik í reikninginn,“ segir Al-
issa en þeim mun fylgja bíll með
öllum nauðsynlegum farangri, svo
sem orkuríkum mat og nægum
skammti af vatni.
Vilja ná til sem flestra
Þegar nær dregur ferðinni verður
hægt að fylgjast með framvindu
hennar á vefsíðunni facebook.com/
#!/pages/Okkar-leid-allra-malefni.
Þar munu þær Alissa og Íris skrifa
dagbók á hverjum degi með upplýs-
ingum um hvernig gangi og setja
inn myndir.
Fyrir þá sem vilja styrkja fram-
takið má leggja frjáls framlög inn á
reikninginn 0115-15-630829, kenni-
tala 020887-2069.
Hjóla hringinn á tíu dögum
Til styrktar
krabbameins-
rannsóknum
Morgunblaðið/Ómar
Hjólagarpur Alissa R. Vilmundardóttir hjólar hringinn í kringum landið á tíu dögum ásamt Írisi Mýrdal Kristins-
dóttur til styrktar Rannsóknarstofu í krabbameinsfræðum, en þær undirbúa sig nú á hverjum degi.
Hversu langur er vegurinn?
Lokið var við gerð hringvegarins ár-
ið 1974 þegar Skeiðarárbrú var opn-
uð, en hann er tæplega 1.400 km
og liggur um alla landshluta nema
Vestfirði og miðhálendið. Kíló-
metrafjöldinn er því allnokkur og
mikilvægt að undirbúa sig vel.
Hafa aðrir hjólað hringveginn?
Síðastliðin ár hefur verið vinsælt
meðal hjólagarpa að hjóla hringinn í
kringum landið til styrktar góðu
málefni. Ótal garpar hafa hjólað en
meðal þeirra má nefna Eggert
Skúlason sem hjólaði til styrktar
Hjartaheill, Landssamtökum hjarta-
sjúklinga, sumarið 2005 og fjóra
hjólreiðamenn frá Brunavörnum
Suðurnesja og lögreglunni í Kefla-
vík og á Keflavíkurflugvelli sem
hjóluðu hringinn árið 2006 til
styrktar langveikum börnum.
Er hringvegurinn vinsæll?
Margir ferðamenn, íslenskir og
erlendir, kjósa að keyra hringveginn
og mælti blaðamaður breska blaðs-
ins Sunday Telegraph meðal annars
með því að keyra hringveginn í
kringum landið að vetri til.
Spurt & svarað