Fréttablaðið - 24.12.2011, Síða 4
24. desember 2011 LAUGARDAGUR4
Miðasala á gamlabio.is eða á midi.is | S: 563 4000
Janúar sýningarnar komnar í sölu!
„Edda og Laddi slá í gegn“
- DV
GenGið 23.12.2011
Gjaldmiðlar kaup sala
Heimild: seðlabanki Íslands
218,7178
GenGisvísitala krónunnar
122,20 122,78
191,60 192,54
159,64 160,54
21,474 21,600
20,536 20,656
17,81 17,914
1,5650 1,5742
188,31 189,43
Bandaríkjadalur
sterlingspund
evra
dönsk króna
Norsk króna
sænsk króna
japanskt jen
sdr
AUGLÝSinGADeiLDiR FRÉTTABLAðSinS – AUGLÝSinGASTJÓRi: jón laufdal jonl@frettabladid.is ALMennAR SÍMi 512-5401: einar davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur steingrímsson hlynurs@365.is, laila awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMi 512-5402: jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, snorri snorrason snorris@365.is SÉRBLÖð SÍMi 512-5016: Benedikt jónsson benediktj@365.is, sigríður sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAðAUGLÝSinGAR /FASTeiGniR SÍMi 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar pétursson vip@365.is ÞJÓnUSTUAUGLÝSinGAR SÍMi 512-5407: sigurlaug aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, arna kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYnninGARSTJÓRi: einar skúlason einar.skulason@365.is
SAmGönGUR Strætó mun skerða
þjónustu yfir hátíðarnar. Ekið
verður eins og á laugardegi til
klukkan 14 í dag, þegar vagn-
arnir hætta akstri. Enginn akstur
verður á jóladag og á annan í
jólum verður ekið samkvæmt
sunnudagsáætlun, að því er fram
kemur á vef Reykjavíkurborgar.
Akstur verður með hefðbundn-
um hætti milli jóla og nýárs. - bj
akstur strætó yfir hátíðarnar:
Engir vagnar
aka á jóladag
enGinn STRæTÓ ekki verður ekið á
jóladag né eftir klukkan 14 í dag.
tækni Vefmyndavél fjarskipta
fyrirtækisins Mílu við Jökulsárlón
hefur verið valin ein af 25 merki
legustu vefmyndavélunum árið 2011
af EarthCam, langstærsta fyrir
tæki heims sem helgar sig beinum
útsendingum á netinu. Á hverju
ári „heimsækja“ hundruð þúsunda
manna Ísland í gegnum mynda
vélarnar, sem eru tólf talsins.
Þetta er í þrettánda skipti sem
EarthCam gefur út listann og eru
sigurvegarar valdir úr þúsundum
tilnefninga. Áþekkar vefmynda
vélar skipta milljónum. Tilnefning
arnar grundvallast á þremur þátt
um; gæðum mynda, sérstöðu og
alhliða tæknilegri getu.
Sigurrós Jónsdóttir, deildarstjóri
markaðsstýringar Mílu, segir verð
launin skemmtilega viðurkenningu
og sýna vel hversu mikla athygli
vélarnar hafi vakið bæði á Íslandi
og ekki síst erlendis. Vefmynda
vélarnar eru nú tólf talsins og þær
tvær nýjustu eru á Akureyri og vél
sem sýnir gamlárskvöld frá Vatns
enda í Reykjavík. „Við verðum með
beina útsendingu frá áramótunum
og flugeldunum í Reykjavík eins og
í fyrra og það gæti því orðið ansi
mikil traffík á síðuna þegar nýtt ár
gengur í garð.“
Á venjulegum degi sýna tölur að
heimsóknir á heimasíðu Mílu eru
á bilinu 14 til 20 þúsund og yfir
mánuð inn eru heimsóknirnar því
um 350 þúsund alls.
Að sögn Sigurrósar hófst vef
myndavélaverkefnið með eldgos
inu á Fimmvörðuhálsi. „Þá fóru
okkar menn af stað og settu upp vél
á Hvolsvelli strax í upphafi goss.
Svo erum við með vélar sem bein
ast bæði að Heklu og Kötlu, ef ske
kynni að einhverjar hræringar
hæfust þar. Aðrir staðir eru helstu
ferðamannastaðir landsins sem
falla í góðan jarðveg hjá útlending
um.“
Míla er í fríðum flokki verð
launahafa hjá EarthCam. Þeirra á
meðal eru vélar sem sýna eldinn
í kyndli frelsisstyttunnar í New
York, Everest, hæsta fjall heims,
Fukushimakjarnorkuverið í Japan
sem fór illa í flóðbylgju eftir jarð
skjálfta fyrr á árinu. Eins er vef
myndavélin í alþjóðlegu geimrann
sóknastöðinni meðal vinningshafa.
Sigurrós segir að daglega berist
tölvupóstur frá notendum vélanna.
Margir eru að þakka fyrir sig en
aðrir að benda á ef sendingar liggja
niðri. Sjá: live.mila.is
svavar@frettabladid.is
140.000 manns kíkja
í „heimsókn“ á viku
Fjarskiptafyrirtækið Míla hefur hlotið eftirsótt verðlaun fyrir vefmyndavél sína
við Jökulsárlón. Fjórar milljónir manna „heimsækja“ Ísland á ári í gegnum
veggátt Mílu. Frelsisstyttan í New York og Everest-fjall eru meðal vinningshafa.
GLUGGi úT Í heiM Hér er unnið að uppsetningu vefmyndavélar á Fimmvörðuhálsi.
Vélinni var beint að gígum sem seinna fengu nöfnin magni og móði. eyjafjallajökull
hamast í baksýn. Ólafur sveinsson, starfsmaður mílu, er við vinnu sína.
myNd/jÓHaNNes k. sÓlmuNdssoN
við verðum með
beina útsendingu frá
áramótunum og flugeldunum
í reykjavík eins og í fyrra og
það gæti því orðið ansi mikil
traffík...
SiGURRÓS JÓnSDÓTTiR
deildarstjÓri Hjá mÍlu
nýjA-SjáLAnD, AP Harðir jarð-
skjálftar riðu yfir í Christchurch
í gær, tæplega fjórum mánuðum
eftir að stóri skjálftinn reið þar
yfir í haust.
Íbúar fylltust skelfingu og hlupu
út á götur, að minnsta kosti einn
meiddist og bjarga þurfti fjórum
úr sjálfheldu. Fyrsti skjálftinn
mældist 5,8 stig stuttu síðar kom
annar upp á 5,3 og loks sá þriðji
sem mældist 5,8 stig.
Skjálftinn í september mældist
7 stig og kostaði nærri 200 manns
lífið. - gb
Jarðskjálftar í Christchurch:
Íbúar fylltust
skelfingu á ný
AFLeiðinGAR SKJáLFTAnS reynt að ná
bifreið upp úr eðju sem myndaðist í
einum skjálftanna. FréttaBlaðið/ap
DAnmöRk Amagermaðurinn,
Marcel Lychau Hansen, var í gær
dæmdur í lífstíðarfangelsi. Á
23ja ára tímabili myrti hann tvær
konur og nauðgaði sex öðrum,
síðast táningsstúlku á síðasta ári.
Það mál varð til þess að tengja
saman nokkur óleyst mál og bár
ust böndin að Hansen, sem var
fljótlega handtekinn.
Í réttarhöldunum neitaði hann
sök, þrátt fyrir að lífssýni tengdu
hann við mörg brotanna. Sagði
hann ljóst að annar maður, með
sama DNA og hann sjálfur, hefði
greinilega framið afbrotin. - þj
Dómsmálinu lokið:
Amagermaður í
lífstíðarfangelsi
HjáLPARStARf Einmana fólk sem
sumt á engan að hringir mikið í
Hjálparsíma Rauða krossins 1717
yfir hátíðarnar, að því er fram
kemur á vef Rauða krossins.
„Svarað er í símann allan sólar
hringinn, allan ársins hring.“
Þá verður Konukot, athvarf
fyrir heimilislausar konur, í Eski
hlíð 4, opið allan sólarhringinn
yfir hátíðarnar, en á milli jóla
og nýárs verður opið frá 17 til
hádegis daginn eftir.
Vin, athvarf fyrr fólk með geð
raskanir, býður upp á jólakaffi á
annan í jólum og Dvöl, athvarf
fyrir geðfatlaða, verður opin frá
9.30 til 15.30 virka daga á milli
jóla og nýárs. - óká
Mikið hringt í hjálparsíma:
Rauði krossinn
til taks um jólin
tékkLAnD AP Útför Vaclavs Havel
var gerð í Prag í gær að viðstödd
um fjölda erlendra þjóðhöfðingja.
Þar á meðal mátti greina David
Cameron frá Bretlandi, Nico
las Sarkozy frá Frakklandi og
Angelu Merkel frá Þýskalandi,
ásamt Hillary Clinton, utanríkis
ráðherra Bandaríkjanna, og
eigin mann hennar, Bill Clinton,
fyrrverandi Bandaríkjaforseta.
„Hann var mikill baráttu
maður fyrir frelsi þjóðanna
og fyrir lýðræði,“ sagði Lech
Walesa, fyrrverandi forseti Pól
lands, sem eins og Havel varð
forseti lands síns eftir að sigur
hafði unnist.
Havel sat lengi í fangelsi á
tímum kommúnistastjórnar
innar og varð þekktasti andófs
maður Tékklands, ásamt því að
vera þekktur leikritahöfundur.
Hann varð svo forseti Tékk
lands árið 1989, þegar flauels
byltingin svonefnda hafði steypt
stjórninni af stóli. Forseta
embættinu gegndi hann til árs
ins 2003.
Havel lést á sunnudaginn var,
75 ára að aldri.
- gb
Útför vaclavs Havel gerð í Prag að viðstöddum fjölda þjóðhöfðingja:
Lýðræðishetja syrgð í Tékklandi
FReLSiSheTJA KvÖDD Fjöldi manns
mætti til að kveðja fyrrverandi forseta
og andófsmann. FréttaBlaðið/ap
Svíþjóð Svíum sem selja jóla gjafir
á netinu hefur fjölgað undan farin
ár. Fyrstu jólagjafirnar eru aug
lýstar til sölu þegar á aðfangadag.
Annar hver Svíi getur hugsað
sér að selja jólagjöf á þennan hátt
samkvæmt könnun auglýsinga
síðunnar Blocket þar sem 400
þúsund manns hafa boðið gjafirn
ar sínar til sölu. Helsta ástæðan
fyrir sölunni er sögð vera sú að
viðkomandi eigi fyrir eins hlut.
Tölvuleikir, myndavélar og far
símar eru oftast auglýst.
ibs
Á netið strax á aðfangadag:
Selja gjafirnar
sem þeir fá
vEðURSPá
alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
kaupmannahöfn
las palmas
london
mallorca
New york
orlando
Ósló
parís
san Francisco
stokkhólmur
heiMURinn
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
17°
8°
7°
6°
7°
2°
7°
7°
20°
7°
18°
4°
24°
0°
7°
14°
4°á MoRGUn
5-10 m/s, stífari
-til síðdegis.
AnnAR Í JÓLUM
5-10 m/s en 8-15 sV-til.
1
0
-2
-2
-2
-7
-2
0
4
2
1
23
12
10
10
14
14
15
18
18
23
15
-6
-6
-2
-2
0
-2
-2
-3
-7
-7
SToRMASAMUR
AðFAnGADAGUR
Þegar hátíð gengur
í garð verður veður
farið að ganga
niður á vesturhluta
landsins en um
sama leyti verður
vonskuveður um
allt austanvert
landið sem mun
mögulega vara
fram á jólanótt.
Þá má gera ráð
fyrir snjókomu og
skafrenningi víðast
hvar.
elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður