Fréttablaðið - 24.12.2011, Qupperneq 24
24. desember 2011 LAUGARDAGUR24
GLEÐILEGA HÁTÍÐ
Starfsfólk Vísis óskar landsmönnum
öllum gleðilegrar hátíðar.
Krossgáta
Lárétt
1. Átt skilið máltíð sem þú færð lánaða (11)
6. Klórar þegar tölvan hrynur (7)
10. Mjúkar og meinlausar völskur undir sófa
og úti í hornum (9)
11. „Tals tíska er mælikvarðans mót“ (10)
12. Skjalið er ekki þurrt lengur (9)
13. Nóareipi fylgdi draugur inn
með látum (10)
16. Huslar ákveðinn Felix sem drepur með
augnaráðinu (12)
18. Aur fyrir síðustu glópana gefur
leiðtogana (14)
21. Rán og óvinur í einni bendu (4)
23. Brjáluð partí kosta á við kind (7)
24. Klof þráir stórstígar (11)
27. Geymir hinar vegna fullkominnar (8)
28. Massa innborgun gerir kássukaup
ódýrari (11)
30. Fell guma við heiðarbrún (9)
32. Lætur hirðis þraut ekki trufla
jarðarför og skírn (10)
34. Er Kláramýri gata í Reykjavík? (7)
36. Málblóm í beitarlandi fyrir hnyttna (7)
39. Rausnarlegt á ofn, klaka og kennitölur (6)
40. Kem við blett þar sem eitt
mætir öðru (10)
41. Reið heyra rætinn orðróminn (11)
Lóðrétt
1. Vargur í nótt sem leið en ekki í dag (8)
2. Hífuð fór með vísur þegar dimmt var (7)
3. Snöggur að finna halaklukku enda
stutt að fara (7)
4. Alveg óvitlaus matur fyrir grænmetisætu (10)
5. Lofaðan fyrir frægt flan (7)
6. Vinnur KA bikarleik? (6)
7. Þau eru minni nú en þá (8)
8. Fagni nekt, það er ruglað afnám (9)
9. Jurt lækni leiða (9)
14. Hunsar mót sem miðar áfram (10)
15. Yfirheyrslur bera vott um rör (12)
17. Leita leiða til að einfaldlega reyna innakstur
á stofnbraut (7)
18. Fékk sendinguna fyrir pakkann (12)
19. Tínið hafsjó af skepnum og sýnið hér (12)
20. Arður frá mæta (6)
22. Gerum stans núna erfiðastan (9)
25. Dama í sekki, segir sá háskólagengni (10)
26. Finn garp í höfuðborginni (4)
29. Ekki koffortið, heldur land (8)
31. Holdið er veikt, þau vilja leggjast á náinn (6)
33. Ítali hreyki sér af forsætisráðherranum (5)
35. Ferskt ryk sýnt í listasafni (4)
37. Jón þessi er grafinn norður-suður
enda fantur (4)
38. Nái gervitönnum (4)
1 2 3 4 5 6 7 8
9
10 11
12
13 14 15
16 17
18 19 20 21
22
23 24 25
26
27 28 29
30 31 32
33
34 35 36 37 38
39
40
41
M A S K A R A S I N N I S V E I K H
E K R K Á S A I R
R O S F R Ó T S T E R K U R Ú
L Í R U K A S S I T A S K O T
Í P Ó Ö Ð A N J J A
N A U M H Y G G J A Á B L Á S T U R S
L O N Ö K Ú R S K
H I R I K Y L Í B Í S K A R
N Ý F U N D N A L A N D A I Á
A U Á A D S A N N S P Á R
K Ú R E N N U R U K D Y R
K Y A L A G E R M A N N I N N
R O T V Ö R N Í A A L D A
Í I F N R U A A G
F O R N F R Ó Ð U R Ú T I G Æ S L A N
U D E B L H E R
M Ú S A R G R E Y Ú R V A L S L I Ð I
S R N S F Ö E I I
T I S Ó F A R N N
35 Ó L Ö G R Á Ð A A F Á S I N N I Ð
H E I M I L I S -
S T Ö R F
Vegleg verðlaun
Lausnarorð
Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman birtist
fyrirbæri sem gerir lífið léttara hér á landi (12). Sendið lausnarorðið
fyrir 28. desember næstkomandi á krossgata@frettabladid.is
merkt „24. desember“.
Lausnarorð síðustu viku var
heimilisstörf.
Vikulega er dregið er úr
innsendum lausnar-
orðum og fær vinnings-
hafi gjafakörfu frá Te og
kaffi að verðmæti 5.000
kr.. Vinningshafi síðustu
viku var Sigurður Briem,
Garðabæ.
Á þessum degi fyrir réttum 145 árum, hinn 24. desember árið 1866, voru öfgasamtökin Ku Klux Klan stofnuð í Tennessee-ríki í
Bandaríkjunum.
Í upphafi var um að ræða félagsskap hermanna úr liði Suðurríkjanna í
borgarastríðinu sem lauk árinu áður. Samtökin tóku sér nafn sem vísar í
gríska orðið kyklos, eða hringur.
Meðlimum gramdist þjóðfélagsumbæturnar sem stjórnvöld hleyptu af
stokkunum, meðal annars afnám þrælahalds og aukin réttindi þeldökkra.
Næstu árin fóru þeir kufl- og hettuklæddir um Suðurríkin með ofbeldi og
ógnunum gegn nýfrelsuðum þrælum og stuðningsfólki þeirra.
Framganga þeirra var með þeim ósköpum að fyrsta leiðtoga Klansins,
Nathan Bedford Forrest, fannst nóg um og leysti félagsskapinn formlega
upp.
Næstu misseri héldu þó staðbundnir hópar áfram ódæðum sínum áður
en Bandaríkjaþing bannaði starfsemi Ku Klux Klan með lögum árin 1870
og 1871.
Árið 1882 úrskurðaði hæstiréttur að starfsemi Klansins stangaðist á
við stjórnarskrá, en þegar þar var komið við sögu hafði félagsskapurinn
hér um bil horfið, enda hafði þeim tekist ætlunarverk sitt að hluta þar
sem samfélagsleg kúgun svartra var óumdeild staðreynd þrátt fyrir lög
og reglur.
Klanið reis aftur upp á öðrum áratug tuttugustu aldar, aðallega á
grunni ofsafenginnar þjóðernishyggju og fortíðarþrá eftir tíma „gömlu
Suðurríkjanna“. Hins vegar var uppgangur bolsévika í Rússlandi og fjölg-
un innflytjenda á árunum í kringum aldamótin einnig undirrót óánægju
hvítra mótmælenda sem fannst ógn steðja að „bandarískum“ gildum.
Rúmlega fjórar milljónir manna voru félagar í Ku Klux Klan þegar
mest lét og kuflklæddir spellvirkjar riðu um héruð á ný, brennandi
krossa.
Undan þeim fjaraði í Kreppunni miklu en síðasti stóri fjörkippur
Klansins var í tengslum við mannréttindabaráttu þeldökkra á sjötta og
sjöunda áratug síðustu aldar.
Ku Klux Klan telur enn nokkur þúsund meðlimi, en starfsemin er
bundin við útjaðar stjórnmálanna ásamt öðrum öfgasamtökum. - þj
Heimildir: History.com og Britannica.
Í ÞÁ TÍÐ: Árið 1866
Haturssamtök stofnuð
á aðfangadag
Ku Klux Klan börðust gegn samfélagsumbótum og réttindum svartra í
Bandaríkjunum.