Morgunblaðið - 23.08.2010, Side 1
M Á N U D A G U R 2 3. Á G Ú S T 2 0 1 0
Stofnað 1913 195. tölublað 98. árgangur
BÍLAR, ÞYRLUR
OG VÉLMENNI
VINSÆLUST
EIÐUR SMÁRI
EKKI Í
LANDSLIÐINU
TILLÖGUR AÐ
ARFTÖKUM
SPAUGSTOFUNNAR
HÓPURINN KYNNTUR Í DAG HELGA BRAGA Í POTTINUM 33LÆRT MEÐ LEGÓKUBBUM 10
Haraldur Flosi Tryggvason, stjórn-
arformaður Orkuveitu Reykjavíkur,
reiknar með því að hlutfall fyrirhug-
aðrar gjaldskrárhækkunar fyrir-
tækisins verði „tveggja stafa tala“.
Hann vonast til þess að hægt verði að
leggja fram tillögur
að breyttri gjald-
skrárstefnu á
stjórnarfundi Orku-
veitunnar nú á
föstudaginn. Fyrir-
tækið, sem skuldar
um 240 milljarða
króna, er einungis
fjármagnað út árið.
Því er nauðsynlegt
að endurskipu-
leggja reksturinn í
því skyni að sann-
færa lánardrottna,
og ekki síður mats-
fyrirtækin, um að verið sé að taka á
vandanum. Markmið stjórnenda er
að samþætta tekjuaukningu og lækk-
un rekstrarkostnaðar þannig að
traustur rekstrargrundvöllur skapist
og hægt sé að hugsa til lengri tíma
hvað varðar fjármögnun fyrirtæk-
isins.
Haraldur segir að gjaldskráin
muni hækka töluvert, en það sé
stjórnar Orkuveitunnar að útfæra ná-
kvæmlega hvernig sú hækkun muni
líta út. Ákvörðun borgarstjórnar, í
kjölfar bankahrunsins 2008, um að
gjaldskrár borgarinnar skyldu ekki
hækkaðar á árinu 2009, gerði það að
verkum að Orkuveitan gat ekki
brugðist við stökkbreytingu erlendra
lána sinna með stækkun tekjustofna.
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins og stjórn-
armaður í Orkuveitunni, segir að hag-
ræðingin í rekstri fyrirtækisins hafi í
raun hafist árið 2008, þegar byrjað
hafi verið að vinda ofan af fjárfest-
ingum. Fjölmiðlaumfjöllun nú virðist
hins vegar gefa það til kynna að nú
fyrst sé hugað að hagræðingu. » 9
Tveggja
stafa
hækkun
Töluvert svigrúm til
hækkana hjá OR
„Við erum að
tala um veru-
legar hækk-
anir, tveggja
stafa tölu.“
Haraldur Flosi
Tryggvason
Unnið hefur
verið sleitulaust
úr makríl og
norsk-íslenskri
síld í nýju upp-
sjávarfrystihúsi
og fiskimjöls-
verksmiðju HB
Granda á Vopna-
firði í sumar. Það
sem af er vertíð-
inni hafa 4.200
tonn af makríl
verið fryst fyrir markað í Austur-
Evrópu. Unnið hefur verið á vökt-
um allan sólarhringinn, alla daga
vikunnar frá því í vor fyrir utan frí
um verslunarmannahelgina. »12
Uppgrip hjá HB
Granda á Vopnafirði
Uppgrip Frá
vinnslu HB Granda
á Vopnafirði.
Í tölvupósti sem ráðuneytisstjóri
forsætisráðuneytisins, Ragnhildur
Arnljótsdóttir, sendi frá sér kemur
m.a. fram að framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins ákveði „hvaða
verkefni verði fyrir valinu“ í um-
fangsmikilli aðlögun íslensks
þjóðfélags að stofnanakerfi
og regluverki sambandsins
sem stendur fyrir dyrum.
Evrópusambandið mun
leggja fram fjóra milljarða
króna til þessa verkefnis og
á móti leggja íslensk stjórn-
völd fram einn milljarð króna
til þess. Frá þessu var greint
á vefnum Evrópuvaktin.is
um helgina.
Ríkisstjórn Íslands vinnur nú að
því að koma á fót umfangsmiklu
kerfi samkvæmt forskrift Evrópu-
sambandsins sem mun sjá um að
ráðstafa þessum fjármunum.
Hlutverk íslenskra stjórnvalda
mun einkum felast í því að semja
áætlanir um aðlögun íslensks
þjóðfélags að sambandinu sem
síðan verði lagðar fyrir fram-
kvæmdastjórn þess til sam-
þykktar.
Stjórnvöldum er síðan
ætlað í framhaldi af því
að sjá um að koma
þessum áætlunum í
framkvæmd hér á
landi. » 2
Ragnhildur
Arnljótsdóttir
Evrópusambandið leggur milljarða í aðlög-
un Íslands að stofnana- og regluverki þess
„Þetta eru slæm tíðindi – við sem erum búin að grobba
okkur af þessum lögum út um allan heim. En þetta kem-
ur ekki á óvart,“ segir Kristín Ástgeirsdóttir, fram-
kvæmdastýra Jafnréttisstofu. „Við óttuðumst að þetta
myndi gerast í kjölfar þessara skerðinga.“ Hún segir at-
vinnuöryggi einnig hafa áhrif. „Maður getur ímyndað
sér að karlar þori varla að fara í fæðingarorlof því það
hefur verið meira atvinnuleysi meðal karla en kvenna.
Launamunurinn spilar líka inn í en tekjutapið verður
meira hjá körlum en konum. Þetta er auðvitað bakslag
en sjálft kerfið er til staðar eftir sem áður. Við verðum
að vona að þetta sé bara tímabundið.“
Bakslag sem búast mátti við
Kristín
Ástgeirsdóttir
Anna Sigríður Einarsdóttir og
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir
Sterkar vísbendingar eru um að
karlar hafi dregið úr töku fæðing-
arorlofs eftir bankahrun og má
leiða líkur að því að skertar há-
marksgreiðslur úr fæðingarorlofs-
sjóði hafi haft áhrif þar á.
Þá hefur dregið úr því að feður
taki hluta af þriggja mánaða sam-
eiginlegum rétti foreldra til fæð-
ingarorlofs, en slíkt hafði aukist í
aðdraganda hrunsins. Konum sem
nýta sér fæðingarorlofsrétt hefur
hins vegar fjölgað í takt við fjölgun
barnsfæðinga árin 2008 og 2009.
Árið 2008 nýttu 10.362 feður rétt
til fæðingarorlofs og í fyrra voru
þeir 10.640 talsins. Í ár stefnir hins
vegar í að einungis 9.795 karlar
taki fæðingarorlof. Á sama tíma
fjölgaði konum í fæðingarorlofi úr
18.365 árið 2008 í 19.467 í fyrra og í
ár er útlit fyrir að fjöldinn verði
19.425.
Á þessum tíma hafa hámarks-
greiðslur úr fæðingarorlofssjóði
verið skertar í þrígang, auk þess
sem útgreiðsluprósentu var breytt.
Þannig var hámarksgreiðslan
535.700 á mánuði í lok ársins 2008
en er nú 300.000 krónur.
Telur Leó Örn Þorleifsson, for-
stöðumaður fæðingarorlofssjóðs,
þetta gefa vísbendingu um að nýt-
ing feðra á fæðingarorlofsréttinum
hafi sterka tengingu við fjárhag
heimilisins.
Færri karlar
taka fæðingar-
orlof eftir hrun
Skertar hámarksgreiðslur úr fæðing-
arorlofssjóði virðast hafa sitt að segja
Fæðingarorlofssjóður
» Fjárlög ársins 2010 gera ráð
fyrir að útgjöld fæðingarorlofs-
sjóðs verði 9.531 m.kr.
» Útgjöld fyrstu sjö mánuði
ársins eru 5.535 m.kr. og hefur
meirihluti þeirrar upphæðar
verið greiddur til mæðra.
» Endanleg útgjöld sjóðsins
verða 9.475 m.kr. skv. út-
gjaldaspá hans.
MTaka nú síður »6
Ríflega 4.200 sex ára börn setjast í fyrsta skipti á skólabekk í dag og næstu
daga og er það svipaður fjöldi og undanfarin ár. Alls eru rúmlega 43.000
börn á grunnskólaaldri hér á landi, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Í
skólabyrjun þurfa nemendur að hyggja að mörgu. Þeir fá innkaupalista í
skólunum en auk þess þurfa þeir að eiga tösku undir skólavörurnar og þá
getur verið úr vöndu að ráða, því úrvalið er mikið.
Morgunblaðið/Eggert
Úr vöndu að ráða við kaup
á skólatösku fyrir veturinn