Morgunblaðið - 23.08.2010, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 23.08.2010, Blaðsíða 30
30 Velvakandi MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2010 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand Æ, NEI... ÞETTA LÍTUR EKKI MJÖG VEL ÚT HVERNIG KASTARI ERTU? ÉG MISSTI HANN REYNDU AÐ PASSA ÞIG! ÞÚ KASTAÐIR Í MÖMMU MÍNA! ÞÚ KASTAÐIR FYRSTA BOLTA TÍMABILSINS BEINT YFIR GIRÐINGUNA PABBI ÞINN SAMÞYKKTI AÐ FARA MEÐ MÉR ÚT AÐ VERSLAHVAÐ ER EIGINLEGA Í GANGI, MAMMA? ÞANNIG AÐ KONAN ÞÍN ER FÚL ÚT Í ÞIG? LÝGUR ÞÚ OFT AÐ KONUNNI ÞINNI? EKKERT MEIRA EN FLESTIR. FÓLK LÝGUR HVORT AÐ ÖÐRU ENDALAUST HELDUR ÞÚ ÞAÐ Í ALVÖR- UNNI? ERTU AÐ SEGJA AÐ ÞAÐ SÉ EKKI SATT? JÁ, ÉG SAGÐI HENNI AÐ ÉG VÆRI AÐ VINNA FRAM EFTIR ÞEGAR ÉG FÓR Á BARINN MEÐ STRÁKUNUM ÉG ER SVO ÁNÆGÐ AÐ ÞÚ SKULIR HAFA HRINGT JÁ, ÞESSI MYND Á VÍST AÐ VERA ALVEG FRÁBÆR ÞAÐ ER EKKI ÁSTÆÐAN FYRIR ÞVÍ AÐ ÉG ER ÁNÆGÐ ÉG VEIT... ÉG VILDI BARA HEYRA ÞIG SEGJA ÞAÐ ÉG HEF VERIÐ AUMINGI ALLT MITT LÍF NÚ ER TÍMI FYRIR BREYTINGAR EKKI LANGT FRÁ... ÞETTA ER VINKONA MÍN, HÚN EMBLA. HÚN ER MIKIL KATTAMANNESKJA ÁTTU VIÐ AÐ HÚN SÉ SJÁLFSELSK OG MUNI KLÓRA ÚR ÞÉR AUGUN VIÐ FYRSTA TÆKIFÆRI? Útvarp og sjónvarp Útvarp og sjónvarp er ekki skemmtilegt að mínu mati. Þátturinn Orð skulu standa verður víst ekki í vetur í úrvarpinu og finnst mér það miður, Spaugstofan, sem mér finnst skemmtileg, hættir líka. Mér finnst synd að þessir þættir hætti. Gömul kona. Nýyrðið punthús Eins og allir vita, eru sífellt að aukast erlendar slettur í okkar ástkæra yl- hýra máli. Sem betur fer fjölgar líka ágætum nýyrðum. Mig langar að út- rýma einni enskuslettu. Það er orðið penthouse, sem fasteignasalar nota óspart í auglýsingum um þessar fínu íbúðir á efstu hæðum háhýsa. Mér finnst, að nýyrðið punthús passi vel fyrir þessi flottu hý- býli. Þórir S. Gröndal. Gagnrýni Ég vil fá meiri umfjöll- un um landbúnað, sjáv- arútveg, iðnað og versl- un í útvarps- og sjónvarpsfréttir, stríðs- fréttir mega hverfa fyr- ir mér, menn opna ekki tækin fyrir slíkar frétt- ir. Þulir verða að vera skýrmæltir og röddin þarf að hljóma vel. Mér finnst of lítið lagt upp úr fréttatímum. Einar Vilhjálmsson. Ást er… … að hjálpa meira til heima við. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9-16. Dalbraut 18-20 | Félagsmiðstöðin opin kl. 9-16.45, brids kl. 13. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13, spjall/kaffi kl. 13.30. Félagsheimilið Gjábakki | Handa- vinnustofan opin; leiðbeinandi við til há- degis og lomber kl. 13. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Gönguhópur kl. 11, skráning í tóm- stunda- og íþróttanámskeið haustsins fer fram í Jónshúsi þessa viku. Opið í Jónshúsi kl. 9.30-16 alla virka daga. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur opnar kl. 9, m.a. tréútskurður og fjöl- breytt handavinna. Frá hádegi er spila- salur opinn. Lagt af stað í fræðslu- og kynnisferð um borgina kl. 13.30, leið- sögn Magnús Sædal byggingafulltrúi, kaffiveitingar í Hámu á Háskólatorgi. Uppl. um starfsemi og þjónustu á staðn- um og s. 575-7720. Háteigskirkja – starf eldri borgara | Félagsvistin kl. 13 í Setrinu, kaffi á eftir. Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, ganga kl. 10, frá Haukahúsinu Völlum, félagsvist kl. 13.30. Haustdagskráin kemur út í september. Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl. 8.50. Stefánsganga kl. 9, félagsvist kl. 13.30. Skráningu í starf og námskeið lýk- ur 30. ágúst, 53 atriði um að velja. Hausthátíð 3. sept. kl. 14. Kynning- arheimsókn í World Class 7. sept. Rúta kl. 9.20. Uppl. s. 411-2790. Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaað- gerðir kl. 9-16, handavinna kl. 9.15, há- degisverður kl. 11.45, kaffiveitingar kl. 14.30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Morgun- stund, handavinnustofan opin, Erla les framh.söguna kl. 12.30, boccia kl. 10, stóladans kl. 13.15, frjáls spilamennska. Byrjað er að skrá í námskeið vetrarins, bútasaum, tréútskurð, bókband, postu- línsmálun, glerbræðslu og leirlist. Skrán- ing í síma 411-9450. Námskeiðin opin öllum óháð aldri. Pétur Jónsson á Gautlöndum,þingmaður Suður-Þingeyinga, notaði oft orðið „prinsip“ í ræðum sínum. Andrés Björnsson orti á aukaþinginu 1914: Allt var gott, sem gerði Drottinn forðum, prinsip þetta þó hann braut þegar hann bjó til Pétur Gaut. Pétur var atvinnumálaráðherra í ráðuneyti Jóns Magnússonar, en lést í því embætti 20 janúar 1922. Urðu nú hörð átök um, hver skyldi verða eftirmaður hans. Bróðir hans, Steingrímur sýslumaður Jónsson, hafði setið á þingi sem konungkjörinn þingmaður og var heimastjórnarmaður eins og Pétur. Hann bauð sig nú fram, enda áttu þau hjón sterkan frændgarð í sýsl- unni, svo að hann átti stuðning margra, m.a. Björns Líndals, sem nú var fluttur á Svalbarð við Eyja- fjörð. Ingólfur Bjarnarson í Fjósa- tungu bauð sig fram fyrir Fram- sóknarflokkinn og beitti Jónas frá Hriflu sér mjög fyrir kosningu hans. Björn Líndal var í Íhalds- flokknum og þingmaður Akureyr- inga frá 1923-1927. Hann hafði mörg járn í eldinum, var málflutn- ingsmaður og sýslumaður um skeið, rak síldarútgerð og síldarverslun og auk þess myndarlegt sauðfjárbú á Kaðalstöðum í Fjörðum, en þau urðu endalok þess, að fjárhúsin sóp- uðust burt í snjóflóði. Á þessum ár- um var veldi Jónasar mikið um hin- ar þingeysku byggðir, Menn hentu því gaman að því þegar hestur Björns hnaut svo að hann féll af baki og lærbrotnaði skammt frá Hriflu. Varð það mörgum að yrk- isefni. Konráð Erlendsson, kennari á Laugum, orti af því tilefni: Ræningjanna brutu bein brúnaþungir stríðsmenn forðum; Líndal fæti stakk við stein stendur lögmál enn í skorðum. Aðrir hafa vísuna svona: Ræningjanna brutu bein byrstir stríðsmenn forðum; Líndal steytti legg við stein lögmál standa í skorðum. Og Björn svaraði um hæl: Þér er vorkunn aðeins ein er það gömul saga að hundar jafnan brotin bein bryðja, tyggja, naga. Enn var ort af sama tilefni en höf- undur ókunnur: Hriflu draugur harðsnúinn heldur Inga á floti en Líndal greyið lærbrotinn liggur í Holtakoti Holtakot er næsti bær við Hriflu. Hér kemur síðan þingeysk vísa gömul: Þó að góð sé þagmælskan, þarf að opna vindhanann, ef að djöfuls uppþemban ætlar hreint að drepa mann,. Vísnahorn pebl@mbl.is Af drottni og „prinsipi“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.