Morgunblaðið - 23.08.2010, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 23.08.2010, Blaðsíða 7
Fréttir 7INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2010 Íslenskir ostar – hreinasta afbragð H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 0 -1 3 0 1 „Við förum að sjá unga fólkið meira heimavið og menntun- arstigið eykst. Samvirkni milli menntastofnunar og samfélagsins skiptir máli,“ segir Lára Stef- ánsdóttir, skóla- meistari Menntaskólans á Trölla- skaga, sem settur var í fyrsta skipti sl. föstudag. Unnið hefur verið að undirbún- ingi skólans undanfarna mánuði og ár. Hann er til húsa í húsnæði sem áður hýsti gagnfræðaskólann á Ólafsfirði. Fæstir beint úr grunnskóla Kennsla hefst samkvæmt stunda- skrá í dag en 73 nemendur eru skráðir í skólann og er það mun fleira en reiknað var með. Aðeins um tuttugu nemendur koma beint úr grunnskóla. Aðrir hafa byrjað í framhaldsskóla annars staðar eða eru að láta rætast gamlan draum um að fara í framhaldsskóla. Flestir eru nemendurnir frá Ólafsfirði og Siglufirði. Héðins- fjarðargöng, sem eru á lokastigi, eru forsendan fyrir stofnun skólans og sameiningu sveitarfélaganna sem nú mynda Fjallabyggð. Láta gaml- an draum rætast Nýr menntaskóli tekur til starfa í dag Frá Siglufirði. Gæsaveiðitímabilið hófst síðastliðinn fimmtudag og fer vel af stað, að sögn skotveiðimanna. Í fyrstu er það eink- um heiðagæs sem veidd er, en grá- gæsin fer síðar af stað. Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Íslands, segir stofn- ana virðast sterka og hafa komið vel undan sumri, enda hafi árferði verið gott. Grágæsin sé enn ekki komin í tún, hún liggi enn í móum þar sem mikill gróður sé og æti. Því einbeiti veiðimenn sér að heiðagæs, og þær veiðar hafi farið vel af stað nú um helgina. Hann gerir ráð fyrir því að hægja muni á veiðunum fram í sept- ember, þegar þær fari síðan af stað fyrir alvöru. Davíð Ingason fór á gæsaveiðar nú fyrir helgi og skaut fimmtán gæs- ir við annan mann. Hann segir veiði- tímabilið fara af stað á svipaðan hátt og í fyrra. Mikið sé af gæsum, og margar fjölskyldur þegar búnar að slá sér saman, oft 50-60 saman í hóp- um. einarorn@mbl.is Veiðar byrja vel Morgunblaðið/Ingó Gæsaveiði Skotveiðimenn munda skotvopn sín á gæsaveiðum.  Skotveiðimenn hófu gæsaveiðar fyrir helgi  Stofnar komið vel undan sumri Góð þátttaka var í Reykjavík- urmaraþoni Íslandsbanka á laug- ardag og söfnuðust rúmlega 28 milljónir króna til góðgerðarmála á áheitavefnum hlaupastyrkur.is í tengslum hlaupið. Hátt í 11 þúsund hlauparar hlupu ýmist maraþon, hálfmaraþon, 10 km eða 3 km vegalengdir en þátttökumet var í 10 km hlaupinu þar sem um 3700 tóku þátt. Áheitasíðan er hlaupastyrkur.is og verður hægt að heita á hlaupara í Reykjavíkurmaraþoni Íslands- banka til loka dagsins í dag. Tæpar 30 milljónir í hlaupaáheit Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010. Ráðstefna, sem Flugakademía Keil- is stendur fyrir hér á landi í sept- ember um eldgosið í Eyjafjallajökli og áhrif öskufalls á flugrekstur, er farin að vekja athygli víða. Sam- kvæmt frétt Reuters er von á yfir 300 sérfræðingum í jarðvísindum og flugmálum víðs vegar að úr heiminum. Ekki hefur á seinni árum orðið jafn mikil röskun á alþjóðaflugi og vegna öskunnar frá Eyjafjallajökli. Talið er að flugfélögin hafi tapað yfir 200 milljörðum króna. Loka þurfti flestum flugvöllum í Evrópu um tíma og áhrif gossins teygðu sig til nær allra heimsálfa. Meðal þess sem rætt verður á ráðstefnunni hvernig beri að meta hættu á ösku- dreifingu í háloftunum en fram hef- ur komið gagnrýni um að það mat sé of strangt. Ráðstefnan fer fram 15.-16. sept- ember nk. á Ásbrú, gamla varn- arsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Augu heimsins bein- ast að gosráðstefnu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.