Morgunblaðið - 23.08.2010, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.08.2010, Blaðsíða 12
en í fyrra auk þess sem almenn verðlækkun hefur orðið. Sá afli sem flokkast frá og af- skurður úr vinnslunni fer beint í fiskimjölsverksmiðjuna sem malar stöðugt og framleiðir hágæðamjöl úr hráefninu. Góð áhrif á hagkerfið Unnið er á vöktum allan sólar- hringinn, alla daga vikunnar. Gefið var frí í eina viku um verslunar- mannahelgina en annars hefur verið unnið án verulegra stoppa frá því í vor. Um fimmtíu fastráðnir starfs- menn eru við vinnslu og bræðslu uppsjávarfisks hjá HB Granda á Vopnafirði og á makríl- og síld- arvertíðinni í sumar hafa verið átta- tíu starfsmenn. Vinnslan er að mestu mönnuð af heimafólki. Ekki hefur þurft að fá vinnuafl að utan. „Það hefur gengið vel að manna þetta í sumar, framar öllum vonum, meðal annars með skólafólki. Svo er stemningin á Vopnafirði þannig að fólk vill koma og hjálpa til enda eru góðar tekjur í þessu,“ segir Magnús Þór. „Það hefur góð áhrif á hagkerfið hér þegar nóg er að gera. Fram- leiðslan skapar mikinn gjaldeyri fyrir þjóðarbúið – ekki mun af veita,“ segir Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri á Vopnafirði, og vekur á því athygli að reynslan sýni að ekki sé sjálfgefið að næg atvinna sé í sjávarþorpi eins og Vopnafirði. Sveitarfélagið keypti sig inn í Tanga til að halda kvótanum á staðnum og tryggja atvinnu og veðj- aði síðan á samstarf við HB Granda. Sveitarfélagið lagði sitt af mörkum með uppbyggingu dýrra hafn- armannvirkja. „Hér er heppilegt að vera með fiskvinnslu, meðal annars vegna þess að hér er fólk sem vill vinna þessi störf. Fyrirtækið hefur byggt upp af myndarskap vinnslu og frystihús og það skiptir sköpum fyrir vinnslu sjávarfangs á Vopna- firði til framtíðar,“ segir Þorsteinn og vonast eftir góðu samstarfi við HB Granda hér eftir sem hingað til. Þurfum meira svigrúm Makríllinn verður verðmætari þegar líður á haustið. Verulega hef- ur gengið á makrílkvótann hjá HB Granda og reynt er að treina kvót- ann með því að leggja áherslu á að veiða norsk-íslensku síldina á með- an. „Það skiptir miklu máli fyrir okkur að fá svigrúm, fá að fara að- eins yfir kvóta eða geyma kvóta til næsta árs, líkt og í norsk-íslensku síldinni. Ef við fáum ekki þetta svig- rúm munum við frekar vera í örugga kantinum og veiða það sem eftir er af kvótanum fyrr en seinna, þótt verðmætin verði ekki eins mikil og annars hefði getað orðið,“ segir Vilhjálmur. Eitt verkefni tekur við af öðru hjá fyrirtækjum sem sérhæfa sig í upp- sjávarfiski. Venjulega tekur ís- lenska síldin við af þeirri norsk- íslensku á haustin og síðan kemur loðnuvertíð. Mikil óvissa er hins vegar með báðar þessar tegundir. „Við höfum verkefni fram í sept- ember eða október en vitum ekkert hvað þá tekur við,“ segir Vilhjálmur. Eingöngu knúin raforku HB Grandi hefur fjárfest fyrir rúma fjóra milljarða í uppbygging- unni á Vopnafirði, þegar allt er talið. Enn er unnið. Verið er að tengja loftþurrkara fiskimjölsverksmiðj- unnar við rafmagn. Verður hún væntanlega fyrsta verksmiðjan þar sem loftþurrkari er knúinn raf- magni. Þá er verið að vinna við frá- gang á húsum og lóð og taka til á lóðum fyrirtækisins og hafnarsvæð- inu. Þótt vel hafi gengið að koma nýju verksmiðjunum í gang hafa orðið byrjunarörðugleikar, meðal annars við útrásarkerfi verksmiðjunnar. Fita hefur sloppið út í sjó og valdið grútarmengun. „Við erum að vinna okkur út úr því vandamáli. Við vilj- um sjá þessa fitu sem lýsi í tönkum en ekki grút á fjörum. Við erum búnir að bæta núverandi útrásar- kerfi og látum síðan gera úttekt á því til að sjá hvort það er nógu öfl- ugt til framtíðar,“ segir Vilhjálmur Vilhjálmsson. Uppgrip í makríl og síld  Ný verksmiðja og uppsjávarfrystihús HB Granda mikil lyftistöng fyrir Vopnafjörð  Allir sem vett- lingi geta valdið vinna vaktir sjö daga vikunnar  Lítið verið stoppað síðan fyrir sjómannadag Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Síldarflökun Starfsmenn tína út flök sem sér á eftir að síldin hefur farið í gegn um flökunarvélina. Eitt tekur við af öðru » Veiðar og vinnsla á norsk- íslensku síldinni tekur við af makrílnum. Íslenska síldin verður veidd í haust ef heilsa hennar skánar og síðan loðnan og ekki má gleyma kolmunn- anum. » Makríll hefur komið í vax- andi mæli inn í íslenska fisk- veiðilögsögu og er góð búbót. Í ár er íslenskum skipum heimilt að veiða 130 þúsund tonn. » Sjávarútvegsfyrirtækin hafa fjárfest mikið í búnaði til að að nýta stærri hluta aflans til manneldis. BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Nýtt uppsjávarfrystihús og fiski- mjölsverksmiðja sem HB Grandi hefur byggt upp á Vopnafirði er mikil lyftistöng fyrir þorpið. Í sum- ar hefur verið unnið þar sleitulaust úr makríl og norsk-íslenskri síld. Allir sem geta unnið þessa vinnu hafa verkefni. Törnin er orðin löng og lítið um frí í sumar en uppgripin skila starfsfólkinu einnig góðum tekjum. HB Grandi hefur byggt upp nýja fiskimjölsverksmiðju á Vopnafirði ásamt tilheyrandi aðstöðu. Þá var uppsjávarfrystihúsið stækkað og af- köst þess aukin verulega. Meðal annars var það útbúið fyrir makríl- vinnslu. Allt fryst sem mögulegt er Makrílafli skipa HB Granda var bræddur í fiskimjölsverksmiðjunni á síðasta ári. Það sem af er þessari vertíð hafa 4.200 tonn verið fryst. „Við höfum unnið eins mikinn hluta makrílaflans og mögulegt er og höfðum búið okkur undir það. Það hefur hins vegar valdið vonbrigðum að makríllinn er smærri en á síðustu vertíð. Framan af vertíð var erfitt að flokka hann frá síldinni og það dró aðeins úr því sem hægt var að vinna,“ segir Vilhjálmur Vilhjálms- son, deildarstjóri uppsjávarfisks hjá HB Granda. Magnús Þór Róbertsson, vinnslu- stjóri á Vopnafirði, segir að vel hafi gengið að vinna makríl og norsk- íslenska síld í sumar. Þótt skipin hafi oft komið með tiltölulega hrein- an afla af makríl eða síld er hægt að vinna báðar tegundirnar í einu þeg- ar aflinn er blandaður. Þá eru not- aðir tveir flokkarar fyrir síld og tveir fyrir makríl. „Það er stutt á miðin og lögð áhersla á að kæla fiskinn vel um leið og hann er kominn um borð. Það er forsenda þess að hægt sé að gera gott úr hráefninu. Makríllinn þarf mikla kælingu,“ segir Magnús Þór. Makríllinn er aðallega hausskor- inn og slógdreginn fyrir frystingu en hluti aflans hefur verið heil- frystur. Síldin er flökuð og fryst. Makrílafurðirnar fara á markað í Austur-Evrópu. Vilhjálmur segir að ágætis afkoma sé í vinnslunni þótt verðið sé lægra en menn gerðu sér vonir um við upphaf vertíðar. Það stafar af því að makríllinn er minni 12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2010 Makríl- og síldarvertíðin hefur sett strik í reikninginn hjá mörg- um fjölskyldum á Vopnafirði. Starfsfólkið hefur ekki tekið mik- ið frí en á móti nýtur það tekn- anna sem „vaktirnar“ gefa. „Ég tel að fólk hafi ekki séð það fyrir að það yrði nánast óslit- in törn frá því fyrir sjómanna- dag. Menn hafa ekki tekið frí, ekki einu sinni vikulega frídag- inn, því flestir héldu að það yrðu einhver hlé á vinnslunni. Það hef- ur ekki orðið,“ segir Kristján Guðjónsson, trúnaðarmaður starfsfólks hjá HB Granda. Í fyrrasumar var makríllinn ekki frystur og frystihúsinu lokað. „Við viljum sem mesta vinnu og erum ánægðir með vertíðina. Svo kemur dauður tími inn á milli,“ segir Agnar Karl Árnason fisk- vinnslumaður þegar hann er truflaður við spilamennsku með félögum sínum í kaffistofunni. Það var þrifadagur vegna þess að ekki náðist að veiða síld og vinnslan stöðvaðist í tvo daga. „Það má vera miklu meira að gera,“ bætir Sigurbjörn Reynir Björgvinsson við. Þeir félagarnir hafa lítil frí tekið sér, fyrir utan vikustoppið í kringum verslunarmannahelg- ina en taka fram að fólk eigi rétt á sínum sumarleyfum og geti fengið frí ef það kjósi. „Það er kannski ekki vinsælt enda hefur það gerst að tækin hafa stoppað þegar óvant fólk er að leysa af. En krakkarnir eru fljótir að læra og hafa stað- ið sig vel í sumar,“ tekur Agnar fram. Kristján segir að makríl- vinnslan sé góð viðbót og skili góðum tekjum en bendir jafn- framt á að vertíðirnar hafi allt- „Vaktirnar“ gefa starfsfólkinu góðar tek Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Þrifadagur Ekki gefst tækifæri til að taka í spil þegar vinnslan er á fullu. Þrifadaginn geta Sigurbjörn Reynir Björg- vinsson, Eyvindur Vopni Hauksson, Kristján Óli Sigurðsson og Agnar Karl Árnason notað til að prófa leikni sína í Kana.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.