Morgunblaðið - 23.08.2010, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.08.2010, Blaðsíða 24
24 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2010 Ungi tollvörðurinn hafði aðeins starfað í fáeina daga, horft á þúsund vegabréf og eftirlitspappíra sem voru allir eins útfylltir. Hall- grímur var á undan mér í röðinni og tollvörðurinn leit á pappírana hans. Skyndilega fölnaði hann, stóð upp hissa og benti Hallgrími með skjálfandi hendi að koma afsíðis, ég fylgdi á eftir. „Þetta er allt í lagi, Eiríkur, ég er með þetta allt á hreinu,“ sagði Hallgrímur. Skömmu síðar tók Boston fagnandi á móti okkur í allri sinni dýrð með fallegu veðri og góðum mat, það var mikið hlegið og spjallað. Annað slagið týndum við Hallgrími en þá var bara að fara í næstu sjáanlegu bókabúð, hvar annars staðar gat hann verið? Bækur voru jú hans líf og yndi. Ferð okkar Hallgríms, Herdísar Benediktsdóttur og Auðar, konunn- ar minnar, var heitið til Wisdom House í Connecticut, á fjögurra daga ráðstefnu sem Mind Freedom stóð fyrir. Þar var fjallað var um nýja nálgun í geðheilbrigðismálum og Hugarafli hafði verið boðið að vera með vinnusmiðju á ráðstefn- unni. Það leið ekki langur tími þar til allir ráðstefnugestir voru búnir að kynnast Hallgrími. Hann var ið- inn við að tala við þátttakendur og fljótur að eignast vini. Mér er minnisstætt þegar hann spurði einn gestanna hvaðan hann væri og við- komandi kvaðst vera frá Lemoríu. „Bíddu, áttu við borgríkið sem var uppi 3.000 árum fyrir tíma Atlant- is“. „Já, þekkir þú til þess?“ sagði viðmælandinn undrandi. Hallgrími fannst maðurinn kannski ekki alveg vera með fæturna á jörðinni en það kom ekki veg fyrir að þeir ættu langt spjall saman um mannlífið í Lemoríu og hvernig æðstu prestar störfuðu þar í landi. Vinnusmiðja Hugarafls gekk vel og Hallgrímur vakti mikla athygli með erindi sínu. Seinna um kvöldið fór hann á kostum á skemmtun sem haldin var þegar hann snaraði ljóði eftir Egil Skallagrímsson yfir á ensku og söng síðar íslenskt þjóð- lag við mikinn fögnuð viðstaddra. Wisdom House er yndislegur stað- ur. Í fallegri náttúrunni fyrir utan húsið er stórt táknrænt völundar- Hallgrímur Björgvinsson ✝ HallgrímurBjörgvinsson fæddist á Akranesi 31. desember 1975. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu 10. ágúst 2010. Útför Hallgríms fer fram frá Grafarvogs- kirkju í dag, 20. ágúst 2010, og hefst athöfn- in kl. 13. hús, gönguspírall sem reyndist kjörin til íhugunar fyrir Hall- grím og minnti á gáruna í merki Hug- arafls. Þar fann Hall- grímur sig, hugsaði um lífið og tilveruna. Eftir ráðstefnuna sagði Hallgrímur við mig: „Veistu það, Ei- ríkur, að það voru all- ir að tala um hluti sem við í Hugarafli erum með í farvatn- inu eða erum búin að framkvæma“. Nú hefur ungi tollvörðurinn sem starfar á Boston-flugvelli verið þar í fjögur ár og vonandi hefur reynsl- an kennt honum að meta fjölbreyti- leika mannlífsins. Að hann verði ekki lengur fyrir áfalli þótt einhver merki samviskusamlega við reiti sem flestir forðast eins og heitan eldinn. Eðlislægur heiðarleiki og sannsögli Hallgríms gerði það að verkum að honum kom ekki annað til hugar en að merkja samvisku- samlega við það sem beðið var um. Þannig var Hallgrímur. Hreinn og beinn og heiðarlegur maður sem þráði að eyða fordómum og opna augu fólks fyrir því að allir eru ekki eins. Elsku Bóel, Björgvin, Kristinn, Loftur og fjölskyldur, ættingjar, Hugarafl og vinir. Hugur minn og samúð er hjá ykkur. Eiríkur Guðmundsson. Halli er dáinn. Mig setti hljóða við fréttirnar. Af hverju var þessi ljúfi drengur tekinn frá okkur svona alltof snemma? Þegar fyrst áfallið var liðið hjá fóru minning- arnar að streyma fram. Við kynnt- umst þegar Hallgrímur kom í skól- ann á Króknum. Þessi flotti strákur heillaði alla með lífsgleði sinni og fallega brosi og þar á meðal mig. Það var bara svo gaman að vera þar sem hann var. Ég gleymi aldrei kvöldinu í Drekahlíðinni þegar hon- um gekk eitthvað illa að ná athygli minni og greip á það ráð að setjast í fangið á mér til að ræða málin. Hann átti athygli mína óskipta eftir það. Hann var fróður og víðlesinn og það var ótrúlega gaman að sitja og ræða við hann um allt milli him- ins og jarðar. Og oftar en ekki opn- aði hann augu mín fyrir vinklum sem ég kom ekki auga á sjálf. Ekki vorum við alltaf sammála og eftir rökræður sem við áttum á Hörpu- götunni vorum við sammála um að vera ósammála og virtum afstöðu hvort annars. En mikið óskaplega fannst mér sárt að horfa upp á neysluna. Ég bara gat ekki skilið af hverju þeir félagarnir völdu þessa leið og geri það ekki enn. En svona er lífið og vegna minnar afstöðu dró ég mig oft í hlé um skeið og frétti því ekki af veikindum hans strax. Ljúft þótti mér því að ná tengslum á ný og fylgjast með hon- um núna síðustu árin í starfi sínu fyrir Hugarafl og Hlutverkasetrið. Hvernig hann gat nýtt sér reynslu sína til hjálpar öðrum. Það var frá- bært og ég veit að það gaf honum mikið. Hann átti svo auðvelt með að tala við fólk og miðla þekkingu sinni. Hann bauð mér að koma með í eina draugagönguna sína um þetta leyti í fyrra. Það var farið að rökkva svo það þurfti að draga upp vasaljósin í garðinum og jók það á dulúð frásagnarinnar. Það var mjög gaman að sjá hann að störfum og sjá hvað hann hélt athygli gestanna óskiptri. Oft hittumst við ekki í langan tíma en það skipti engu máli hvað leið langt á milli, alltaf var eins og við hefðum hist síðast í gær. Nú þarf ég að sætta mig við að hafa ekki hlustað á innri röddina sem að sagði mér að ég yrði að fara að hitta Halla, ég bar við annríki en ætlaði samt að hitta á hann áður en ég flytti. Nú er það of seint. Minn- ing um góðan dreng situr eftir. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Elsku Halli minn, takk fyrir sam- fylgdina í gegnum árin. Þú munt alltaf eiga þinn sérstaka sess í hjarta mínu. Ég votta fjölskyldu og vinum Halla mína dýpstu samúð. Missir okkar allra er mikill. Heiða. Þær voru þungbærar fréttirnar sem bárust mér síðdegis þriðjudag- inn 10. ágúst síðastliðinn, Hallgrím- ur Björgvinsson, vinur og starfs- félagi til síðustu ára var látinn. Í fyrstu vildi ég ekki trúa þessum fréttum og í raun og veru þá held ég að ég sé ekki enn búinn að átta mig á þessu og ég á vafalaust eftir að hugsa til hans öðru hverju næstu ár. Ég kynntist Hallgrími fyrir um sex árum í kjallara Drápuhlíðarinn- ar þar sem höfuðstöðvar Hugarafls voru á þeim tíma, en þá vorum við báðir notendur í Hugarafli og tók- um þátt í fundarhöldum og NsN- vinnu. Það var alltaf hlegið mikið í vinnu með Hallgrími því hann hafði einstaklega góðan húmor sem ég kunni vel að meta. En í mínum huga var hann ekki bara fyndinn, hann var hjartahreinn og góður maður, sagði skemmtilega frá og var alltaf boðinn og búinn að að- stoða aðra. Eftir að ég fór að starfa á geðsv- iði Landspítalans voru samskipti okkar Hallgríms töluvert mikil og þau voru ófá símtölin á þann veg að ég spurði hvort hann væri til í að ræða við og aðstoða einhvern með sömu sjúkdómsgreiningu og hann og það stóð aldrei á svarinu: „Já minnsta mál, ég get hitt viðkom- andi og hann má líka hringja í mig ef hann vill.“ Þeir eru líka ófáir fræðslufundirnir með sjúklingum, nemum eða heilbrigðisstarfsfólki þar sem Hallgrímur fræddi fólk um veikindi sín og bataferlið síðustu árin. Ég veit að mörgu þessu fólki þótti gaman og lærdómsríkt að hlusta á hann og það er alveg ljóst að Hallgrímur hjálpaði mörgum með því einu að segja sína sögu, en á sinn einstaklega skemmtilega hátt. Síðast hitti ég Hallgrím í Hlut- verkasetri föstudaginn fyrir andlát hans, það var gaman að hitta hann þarna því ég hafði verið í sumarfríi og ekki séð hann í langan tíma. Við heilsuðumst vel og innilega og göntuðumst eins og við gerðum jafnan þegar við hittumst. Eftir vinnu okkar beggja þarna kom til mín aðstandandi sem á barn með sömu greiningu og Hallgrímur var með og úr varð að við töluðum báð- ir við hana. Þetta var síðasta við- talið sem ég sat með honum og það var unun að sjá hvernig hann talaði raunsætt en skemmtilega um jafn erfiðan sjúkdóm og hann getur ver- ið. Ég á Hallgrími Björgvinssyni mikið að þakka og ég þakka guði fyrir að hafa fengið að kynnast hon- um. Elsku Hallgrímur, takk fyrir góðan vinskap og ómetanlega að- stoð í gegnum tíðina. Aðstandendum Hallgríms sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur. Megi trú, von og kærleikur styrkja ykkur og efla á þessari sorgar- stundu. Bergþór G. Böðvarsson. Í dag kveð ég hann Halla. Það voru forréttindi að vera honum samferða í smástund í lífinu og sjá hvernig hann reif sig lausan úr viðj- um erfiðs sjúkdóms; sjúkdóms sem fyrir stuttu var álitinn ólæknandi og vonlaus. Og Halli dafnaði og óx frá því ég kynntist honum í árs- byrjun 2004. Þá var hann þessi sem svaf voða-mikið, meðan við lögðum á ráðin um byltingu og heimsyfir- ráð geðsjúkra. Draumarnir voru stórir og Halli átti sinn þátt í þeim. Hann var alltaf tilbúinn með tillögu eða brandara eða bara knús ef svo bar undir. Við vorum þrjú sem unn- um mikið saman, því við ákváðum að sækja um fjármagn í sjóði ESB. Þetta var mikil vinna, og þegar svefnleysi og geðveikin voru við það að taka völdin hafði Halli ótrúlegt lag á að ná okkur niður á jörðina aftur. Við fórum gegnum þetta ferli tvisvar, og Halli átti stóran þátt í að við komumst í gegnum það í bæði skiptin. Það voru líka forréttindi að heyra Halla segja frá sjálfum sér og baráttunni við geðið og lífið. Alltaf svo æðrulaus og fullur af húmor og kímni. Stereótýpan sem hann teiknaði upp fyrir okkur af geðklofanum er enn jafn fyndin, og ég brosi alltaf þegar ég sé rósótta kjóla! Við brölluðum margt og áttum stóra drauma. Og þó draumarnir hafi ekki allir ræst, þá sáum við suma þeirra verða að veruleika. Ég kveð í dag góðan dreng með sorg, en líka svo miklu þakklæti. Og minni mig á að draga ekki á langinn að hitta fólkið mitt þegar tækifæri gefst, því allt í einu er það orðið of seint. Ég er líka þakklát fyrir að baráttu hans sé lokið, þó við hefð- um viljað hafa hann lengur meðal okkar. Og ég veit að hann átti stóra drauma og svo margt ógert, en við fáum fæst ráðið því hvenær tími okkar er kominn. Fjölskyldu Halla votta ég mína dýpstu samúð á þessari stundu og einnig öllum þeim fjölmörgu vinum og samferðafólki sem syrgja góðan dreng. Dreng sem var tekinn frá okkur svo alltof fljótt. Geðheilbrigðismál voru Halla nærkomin, og við fráfall hans er mikið skarð fyrir skildi í þeim mála- flokki. En hann skilur líka mikið eftir sig, sem komandi kynslóðir geta vonandi nýtt sér í þessum mál- um. Ég er viss um að Halli heldur áfram að fylgjast með okkur að handan, er við fetum í fótspor hans við að tryggja geðsjúkum sömu réttindi og virðingu og öðrum í þjóðfélaginu. Takk fyrir samferðina. Ég kveð í dag, ríkari fyrir að hafa þekkt þennan gæðadreng með stóra hjartað. Berglind Nanna. Kveðja frá Hugarafli Í dag kveðjum við félaga okkar og vin, Hallgrím Björgvinsson. Hallgrímur var einn af stofnendum Hugarafls og dýrmætur félagi allt frá stofnun þess fyrir 7 árum. Sök- um mannkosta kom hann víða við í félagsskap okkar og áhrif hans voru mikil. Á síðustu misserum var hann máttarstólpi í Geðfræðslunni sem Hugarafl stofnaði. Hann miðl- aði af reynslu sinni til ungs fólks í skólum landsins. Þar naut sín, sá sögumaður sem hann var, fullur af persónutöfrum. Hallgrímur hafði ræktað með sér djúpstæðan innri frið samhliða veikindum sínum. Hann var að mörgu leyti orðinn eins og landið sem fóstraði hann, æðrulaus. Þegar hugsað er þannig til hans kemur manni til hugar eftirfarandi orð úr Fjallkirkju Gunnars Gunnarssonar: Og kyrrðin drottnaði yfir okkur þessi kyrrð sem er í rauninni sál fjallanna. Hugarafl mun sárt sakna Hall- gríms og skarð hans verður vand- fyllt. Við sendum fjölskyldu hans, ætt- Nú er hann Jón smiður eins og hann var kallaður á mínu heimili farinn í ferðina miklu. Okkar kynni hófust árið 1985 þegar hann tók að sér að smíða einbýlishús fyrir fjöl- skylduna. Verkið þótti það snúið að arkitektinn hafði ekki mikla trú á að Jón gæti leyst það vel af hendi enda þekktust þeir ekki. Ekki leið langur tími þar til Jón var kominn í guða tölu á þeim bæ. Ótrúlegt þótti hvað hann var fljótur að læra allar teikn- Jón Helgason ✝ Jón Helgasonfæddist í Hraun- túni í Biskupstungum 12. nóvember 1921. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 8. ágúst 2010. Útför Jóns fór fram frá Lágafellskirkju 19. ágúst 2010. ingar og málsetningar utan að. Hann var listasmið- ur af guðs náð, ná- kvæmur, úrræðagóð- ur og leysti mörg verk af hendi sem enginn annar hefði betur gert. Hann var hamleypa til verka, afkastaði á við þrjá menn og vann oft einn en hafði með sér aukamenn þegar mik- ið lá við. Fyrir átta árum urðu okkar kynni enn nánari þegar undirritaður ákvað að reisa sumarhús norður á Ströndum. Arkitektinn sem áður er getið teikn- aði húsið og treysti nú engum betur en Jóni sem þá var orðinn 82 ára en vel á sig kominn líkamlega og and- lega. Með hálfum hug bað ég Jón að vera mér innan handar en úr varð að hann tók að sér verkið. Unnið var við erfiðar aðstæður, siglt á sjó til og frá byggingarstað í ýmsum veðrum. Þarna vorum við Jón og Viðar sonur hans í þrjár vikur við smíðar, ég með mikið samvisku- bit að fara svona með gamlan mann- inn. Margar ferðir fórum við Jón síð- ustu árin norður bæði til smíða og okkur til skemmtunar. Þá kynntist ég nýjum hliðum á Jóni sem gerir hann í mínum huga merkilegasta og besta mann sem ég hef kynnst. Hann elskaði ljóð og fór með heilu bálkana eftir hin ýmsu ljóðskáld ut- anbókar. Hann kunni Passíusálmana alla frá orði til orðs. Jón var mjög trúaður og hafði lesið Bibíuna mörg- um sinnum og var meiri fræðimaður á því sviði en margur guðsmaðurinn. Hann var vel að sér í heimspeki og stjörnuspeki og hugsaði hann mikið um óravíddir alheimsins og hversu smá við værum í okkar sólkerfi. Jón var meðalmaður á hæð, blá- eygður með leiftrandi augnaráð, frekar stórgerður með stórar og hlýjar hendur. Frásagnargáfa og kímni ein- kenndu hann og ógleymanlegar eru lýsingar hans á æskunni og lífs- hlaupinu almennt og þeim erfiðleik- um sem sem hans kynslóð stóð frammi fyrir. Aldrei heyrðist Jón kvarta hann var aldrei þreyttur, svangur eða syfjaður og ekki kenndi hann sér meins í skrokknum. Hann tjáði mér fyrir nokkrum árum að hann hlakkaði til að deyja. Þá biði skemmtilegasta og dásamlegasta ferðalag sem mannskepnunni stæði til boða Nú er Jón að ferðast og veit ég að hann á góða heimkomu. Fjölskyldunni sendum við okkar hlýjustu samúðarkveðjur. Tómas Á. Einarsson. Kynni mín af Jóni Helgasyni eða Jóni smið, eins og hann var alltaf kallaður á æskuheimili mínu, hófust á frekar dramatískan hátt. Við bjuggum þá í Skeiðarvoginum og eins og venja var í þá daga var ávallt eldaður hádegismatur, í minning- unni yfirleitt ýsa með hömsum og læri um helgar. Móðir mín skaust inn í stofu og „datt“ í dönsku blöðin, sem þá voru alls ráðandi á hverju Morgunblaðið birtir minningar- greinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upp- lýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einn- ig koma fram upplýsingar um for- eldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður. Undirskrift | Minningargreinahöf- undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinun- um. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynn- ingu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendi- kerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.