Morgunblaðið - 23.08.2010, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 23.08.2010, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2010 Sala áskriftarkorta í fullumgangi! Fjórar sýningar að eigin vali á besta verðinu 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Gleðilegt nýtt leikár Gauragangur (Stóra svið) Fös 3/9 kl. 20:00 Fös 10/9 kl. 20:00 Lau 4/9 kl. 20:00 Lau 11/9 kl. 20:00 Eftir Ólaf Hauk Símonarson - tónlist Nýdönsk Rómeó og Júlía Vesturports (Stóra svið ) Þri 24/8 kl. 20:00 aukas Harry og Heimir (Litla sviðið) Fim 9/9 kl. 20:00 Fim 16/9 kl. 20:00 Fös 24/9 kl. 20:00 Sun 12/9 kl. 20:00 Sun 19/9 kl. 20:00 Einnig sýnt á Akureyri í nóvember Enron (Stóra svið) Mið 22/9 kl. 20:00 Fors Fös 24/9 kl. 20:00 Fim 30/9 kl. 20:00 Fim 23/9 kl. 20:00 Frums Lau 25/9 kl. 20:00 Fös 1/10 kl. 20:00 Stórsýning um brjálæðislegt dramb og fall Horn á höfði (Litla svið) Lau 18/9 kl. 14:00 Lau 25/9 kl. 14:00 Sun 19/9 kl. 14:00 Sun 26/9 kl. 14:00 Gríman: Barnasýning ársins 2010! Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Margir ráku upp kvein en aðrir hrópuðu húrra þegar í ljós kom að Sjónvarpið ætlaði að slá af Spaug- stofuna, enda þátturinn búinn að vera á dagskrá í ein 20 ár. En Spaugstofumenn eru ekki einu fyndnu Íslendingarnir sem geta búið til sjónvarpsþætti. Blaðamaður lagði höfuð í bleyti og kokkaði upp nokkr- ar tillögur að mögulegum arftökum Spaugstofumanna. Áramótaskaupshópurinn Ari Eldjárn, Anna Svava Knúts- dóttir, Halldór E. Högurður, Ottó Geir Borg og Sævar Sigurgeirsson sömdu Áramótaskaupið 2009 auk leikstjórans Gunnars B. Guðmunds- sonar. Gunnar er önnum kafinn við að leikstýra og ganga frá kvikmynd- inni Gauragangi þannig að ólíklegt þykir að hann geti verið með. En í ljósi þess hversu vel heppnað skaup- ið var gæti þessi hópur varla klikk- að. Þá kemur ekki að sök að Ari Eld- járn er einhver besta Bubba-eftirherma landsins og gæti leikið hann í hverjum þætti jafnvel. Eða þá hlaupið í skarðið fyrir hann í Færibandinu ef Bubbi fær háls- bólgu. Uppistöðufélagið Konur eru líka fyndnar! Þó karlar hafi verið ráðandi í gríninu þá hafa konur stimplað sig rækilega inn, m.a. leikkonurnar sem sáu um Stelp- urnar á Stöð 2. Uppistöðufélagið skipa ungar konur sem gert hafa það gott með uppistandi, m.a. þær Mar- grét Erla Maack, Þórdís Nadia Se- michat, Ragnheiður Maísól Sturlu- dóttir, Helga Tryggvadóttir, Íris Ellenberger og Katrín Björgvins- dóttir. Því ekki að bjóða þeim að prófa sjónvarpsþáttagerð? Það væri skemmtileg tilbreyting að sjá unga konu leika Davíð Oddsson, taka við hárkollunni af Erni Árnasyni. Ilmur, Helga og félagar Leikkonurnar Ilmur Kristjáns- dóttir og Helga Braga Jónsdóttir eru miklir grínmeistarar og ein- hverjar fyndnustu konur landsins, hafa túlkað eftirminnilegar persónur á borð við Gyðu Sól (í Fóstbræðrum) og Draumakonuna (í Stelpunum). Ilmur og Helga gætu boðið til sín vinum eða félögum, fyndnum leik- urum, og fengið þjóðina til að veltast um af hlátri einu sinni í viku. Steindi Jr Steindi hefur gert út þáttinn Steindinn okkar á Stöð 2 en það þýð- ir þó ekki að Sjónvarpið geti ekki boðið betur (kannski erfitt þó í nið- urskurðinum). Steindi hefur slegið í gegn með grínþáttum sínum og tón- listarinnslögum, m.a. „Geðveikt fínn gaur“ og „Djöfull er mér heitt“. Færi Steindi yfir til Sjónvarpsins kvæði við algjörlega nýjan tón í framleiðslu gamanefnis þar á bæ og það er svo sannarlega nokkuð sem vantar í Sjónvarpið. Steinda á Rúv! Laddi Ef Sjónvarpið vill hins vegar vera íhaldssamt og bjóða upp á eitthvað sem stór hluti þjóðarinnar hefur hlegið að frá því Ómar hafði hár þá er Laddi borðleggjandi. Hann gæti þá boðið upp á Eirík Fjalar, Saxa lækni, Elsu Lund og allar hinar per- sónurnar. Baggalútur Grínmeistarar af Guðs náð. Baggalútur hefur haldið úti einni fyndnustu, ef ekki allra fyndnustu, vefsíðu landsins, um langt skeið. Baggalútar hafa einnig gert bráðgóð fréttamyndbönd með yfirskriftinni Heimsljós sem finna má á YouTube og eru sprenghlægileg. Þá var Baggalútur einnig með vel heppnaða fréttaþætti á Rúv í bullstíl. Er ekki hægt að leyfa Baggalúti að spreyta sig á sjónvarps- þáttagerð fyrir Sjónvarpið? Hér kemur dæmi um Bagga- lúts-grín, fengið af vefsíðu hópsins: „Icesave deilan svo- kallaða hefur verið leidd til lykta. Var skrifað undir sam- komulag þar að lútandi snemma í morgun og ganga allir samn- ingsaðilar sáttir frá borði og líta svo á að málinu sé lok- ið, fyrir fullt og fast. Því miður gerðist þetta á öðru tilvist- arstigi en okkar og í annarri vídd, töluvert ólíkri þeirri sem við eig- um að venjast. Það er engu að síður full ástæða til að óska hlutaðeigandi til hamingju.“ Radíusbræður Steinn Ármann og Davíð Þór voru óborganlegir sem Radíusbræður í Sjón- varpinu fyrir margt löngu og má nefna sígildar perlur á borð við „Mench um trefch“ og sumarhúsið sem ekki var hægt að komast inn í. Nú eða afgreiðslumanninn sem vildi ekki láta viðskiptavininn hafa þorrabakka án súrsaðra hrúts- punga. Hjálmar Hjálmarsson tók þátt í síðastnefnda innslaginu og fengi hann að vera með væri komið hið fullkomna grínþríeyki. Mið-Ísland Ekki má gleyma grínurunum í Mið-Íslandi sem gert hafa fín inn- slög fyrir Monitor á mbl.is. Mið- Ísland hefur staðið fyrir uppistandi undanfarin misseri en hópinn skipa fyrrnefndur Ari Eldjárn, Dóri DNA, Bergur Ebbi, Árni Vilhjálmsson og Jóhann Alfreð Kristinsson. Bergur Ebbi er mikil Ladda-eftirherma og fengist því úr hópn- um bæði Bubba- og Ladda-eftirherma. Ekki amalegt það. Mögulegir arftakar Spaugstofunnar Morgunblaðið/RAX Sjónvarpið Þeir sem komu að gerð Áramótaskaupsins í fyrra yrðu verðugir arftakar Spaugstofunnar. Davíð Þór og Steinn Ármann Margrét Erla Maack og Þórdís Nadia Semichat Ilmur Kristjánsdóttir Baggalútur Helga Braga Jónsdóttir Steindi Jr. Laddi Ari Eldjárn  Það hefur vart farið framhjá nokkrum Íslendingi að Spaugstofan verður ekki á dagskrá Sjónvarpsins í vetur.  En hverjir eða hverjar gætu tekið við keflinu?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.