Morgunblaðið - 23.08.2010, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 23.08.2010, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2010 HHH -M.M., Bíófilman HHH „Óhætt að mæla með Salt sem ofbeldisglaðari sumarafþreyingu“ S.V., MBL SÝND Í SMÁRA-, HÁSKÓLA- OG BORGARBÍÓI HHHH „Salt er blautur draumur hasarmyndafíkla“ -Þ.Þ., FBL HHH „Jolie stendur sig vel sem kvenkyns útgáfan af Jason Bourne og myndin er hugsanlega ein sú hraðskreiðasta sem ég hef séð í allt sumar.” T.V. - Kvikmyndir.is HHH „Salt er þrælgóð... Unnendur hasarmynda fá hér eftirlætisverk“ -Ó.H.T., Rás 2 SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI Sýnd kl. 6, 8 og 10 POWE RSÝN ING Á STÆ RSTA DIGIT AL TJALD I LAN DSINS KL. 10 HHHH -Þ.Þ., FBL HHH -M.M., Bíófilman Expendables kl. 6:40 - 9 - 11:20 B.i. 16 ára Salt kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 14 ára Vampires Sucks kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára Karate Kid kl. 8 - 10:50 LEYFÐ Babies kl. 6 LEYFÐ Þú færð 5 % endurgreitt í Smárabíó, Háskólabíó og Borgarbíó SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓ -H.G., MBL Sýnd kl. 4, 6 og 8 HHH S.V., MBL Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 (POWERSÝNING) HHHHH Fyrir alla KARLMENN í heiminum þá er þessi mynd mesta veisla sem hægt er að fara á. Það er einfaldlega upplifun að sjá þessa mynd. Gillz - DV HHH T.V - Kvikmyndir.is HHH „James Bond í G-Streng” -E.E., DV HH E.E., DV HHHH „Magnad madur, magnad” ÞÞ-FBL FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA! HHH The Expendables uppfyllir það sem hún lofar... S.V. - MBL Sýnd kl. 4 Sýnd kl. 10 Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum www.laugarasbio.is 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á -bara lúxus Sími 553 2075 Kreditkorti tengdu Aukakrónum! Hugrún Halldórsdóttir hugrun@mbl.is Nú líður að árstíðaskiptum; sólin og sumarið kveðja senn og haustið er á næsta leiti með sínum fjúkandi lauf- blöðum og kalda andvara. Eflaust kvíða nokkrir þessum tímamótum en vert að minnast huggulegheitanna sem kalda veðrið getur skapað. Það er nefnilega fátt betra en að sitja inni í hlýjunni undir teppi með kakó- eða kaffibolla og góða bók. Þá vaknar spurningin: Hvaða bók á að lesa? Það kannast eflaust flestir við að hafa tekið upp bók af handa- hófi, hafið lesturinn en hætt í miðjum klíðum þar sem bókin hafði í rauninni ekkert til brunns að bera nema ef til vill heillandi kápu. Þeir sem hafa yndi af fyrrnefndu afslapp- elsi og vilja koma í veg fyrir að lesa óáhugavert rusl ættu að kíkja inn á bókmenntavefinn goodreads.com. Á síðunni er auðvelt að finna góð- ar bækur enda sameinar hún lestr- arhesta víðsvegar að úr heiminum. Hvert er markmið þeirra? Að deila skoðunum sínum á hinum og þessum bókum sem þeir hafa lesið. Notend- urnir eru jafnólíkir og þeir eru margir og því eru til taks umfjallanir um bækur allt frá Harry Potter til Sölku Völku. Þá er síðan góð til þess að halda skipulagi yfir lesturinn en þar er hægt að skrá þær bækur sem maður hefur lesið, er að lesa eða jafnvel langar til að lesa. Þá býður síðan einnig upp á alls kyns bókmenntatengda afþreyingu. Til að mynda geta notendur stofnað bókaklúbba, gleymt sér í spurninga- leikjum, haldið úti bloggi, flett upp frægum ummælum, séð hvað er á dagskrá í bókmenntaheiminum og svo mætti lengi telja. Svo er það rúsínan í pylsuend- anum: Notendur eru iðnir við að skiptast á bókum og spara sér þar með ferð í bókabúðina eða bókasafn- ið. Þessi valkostur er þó einungis í boði fyrir Bandaríkjamenn enn sem komið er, en neyðin kennir naktri konu að spinna og því ættu áhuga- samir einfaldlega að setja sig í beint samband við samlanda sína á síðunni og viðra hugmyndina um íslensk bókaskipti. Gleðilegt bókahaust! Vefsíðan: www.http://www.goodreads.com Lestrarhestar takið eftir! Fyrri hátíð Emmy verðlaunanna fórfram í Los Angeles um helgina en aðalhátíðin fer fram um næstu helgi. Að þessu sinni voru verðlaun veitt fyrir listræna stjórnun sjónvarps- þátta, raunveruleikaþætti, teikni- myndir, auglýsingar, förðun, tónlist, hárgreiðslu, hljóðblöndun, klippingu og ýmsa aðra tæknivinnslu auk leik- araverðlauna í fjórum flokkum. Sá sjónvarpsþáttur sem fékk flest verðlaun var The Pacific sem fram- leiddur er af Tom Hanks og Steven Spielberg og sýndur á HBO- sjónvarpstöðinni. Meðal þeirra sem fóru heim með styttu um helgina voru John Lithgow, Ryan Seacrest, Ann-Margret, Betty White og Neil Patrick Harris. Reuters Sigurvegarinn Neil Patrick Harris. Fyrri Emmy-verðlaunin Síðan ökuþórinn Stig birtist fyrst í þættinum Top Gear hafa menn velt því fyrir sér hver sé í raun og vera dul- arfulli maðurinn í hvíta keppnisgallanum. En sam- kvæmt The Sunday Times, er Stig fyrrvefandi Formúlu 3 ökuþórinn Ben Collins. Blaðið segir Collins hafa fengið mikið fé fyrir að taka að sér akstursverkefni fyrir BBC árið 2003 og að stuttu seinna hafi Stig svo birst í Top Gear. Er Ben Collins Stig? The Stig Hver er maðurinn?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.