Morgunblaðið - 23.08.2010, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.08.2010, Blaðsíða 28
28 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2010 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Gisting AKUREYRI Höfum til leigu 50, 85 og 140 m² sumarhús 5 km frá Akureyri, öll með heitum potti og flottu útsýni yfir Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir á Akureyri. www.orlofshus.is, Leó, s: 897- 5300. Sumarhús Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Eignarlóðir undir sumarhús til sölu Í landi Kílhrauns á Skeiðum. 50 mín- útna akstur frá Reykjavík. Landið er einkar hentugt til skógræktar og útivistar. Falleg fjallasýn. Upplýsingar í símum 824-3040 og 893-4609 Festu þér þinn sælureit í dag. Námskeið Leirkrúsin - Spennandi námskeið á haustönn Námskeið í leirmótun, rakú- og tunnubrennsla, leiðsögn á Opinni vinnustofu og tekið á móti hópum. Allar nánari uppl. á www.leir.is og í s. 661 2179 / 555 1809. Til sölu Ódýr blekhylki og tónerar í HP, Dell, Brother, Canon og Epson. Send samdægurs beint heim að dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150. Sjá nánar á blekhylki.is Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum gull til að smíða úr. Spörum gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL ! Ég, Magnús Steinþórsson gull- smíðameistari, kaupi gull, gull- peninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Þjónusta MÓÐUHREINSUN GLERJA Er komin móða eða raki á milli glerja? Móðuhreinsun ÓÞ. Sími 897-9809. Ýmislegt ...þegar þú vilt þægindi Kr. 8.900,- Dömu leður sandalar með frönskum rennilás. Litir: Svart - Hvítt. Stærðir 36-42. Bonito ehf. Praxis Faxafeni 10, 108 Reykjavík Sími: 568 2878 Opnunartimi: mánud- föstud. kl. 11.00 - 17.00 www.praxis.is ...þegar þú vilt þægindi Softshell fyrir dömur og herra Kr. 11.900.- St.S-3XL. Margir litir. Bonito ehf. Praxis Faxafeni 10, 108 Reykjavík Sími: 568 2878 Opnunartimi: mánud- föstud kl. 11.00 - 17.00 www.praxis.is Flottir og vandaðir dömuskór úr leðri í úrvali. Teg: 910, Litir: Rautt og svart. Stærðir: 37 - 41. Verð: 13.450,- Teg: 1014, Litur: Beige. Stærðir: 37 - 41. Verð: 13.450,- Teg: 471, Litir: Svart og blátt. Stærðir: 36 - 41. Verð: 13.885,- Sími: 551 2070, opið: mán.- fös. 10 - 18. Lokað á laugardögum. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Teg. LILA - Push up, nettur og mjög fallegur í A, B, C, D, DD skálum á kr. 7.680,- Teg. LILA - Push fyrir þær stærri en ekki síðri í C, D, DD, E, F, FF, G, GG, H skálum á kr. 7.680,- Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10-18. Lokað á laugardögum. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is - vertu vinur Verkfæri 39.900 ALHLIÐASÖG - VELTISÖG VIÐ FELLSMÚLA Sími: 585 2888 Bílar Bón & þvottur Vatnagörðum 16, sími 445-9090 Þvoum, bónum, djúphreinsum, þrífum að innan alla bíla, eins sendibíla, húsbíla og hjólhýsi, eins vélmössum við matt lakk svo það verði sem nýtt. Einnig bjóðum við hrað-gæðaþvott. Öll vinna er handunnin. Opnum kl. 9.00 virka daga og 10.00 laugardaga. Bonogtvottur.is Range Rover Vogue 2004 Á 22” felgum og með öllum búnaði. Ekinn 64 þ.m. Bíllinn er sem nýr. Hvort vilt þú þremur árum nýrri Kia jeppling eða þennan glæsivagn á svipuðu verði? Verð aðeins 4.250 þús. www.sparibill.is Fiskislóð 16 - sími 577 3344. Bílaþjónusta Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, 4WD. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 8637493/5572493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '08. 6960042/5666442. Snorri Bjarnason BMW 116i. Bifhjólakennsla. 8921451/5574975. Visa/Euro. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '08. 8924449/5572940. Tjaldvagnar CAMPLET CONCORD TIL SÖLU, árg 93. Frábær vagn í alla staði. Motta fylgir með í fortjaldið. Innbyggt eldhús. Léttur og auðvelt að tjalda. Verð 350.000. Upplýsingar í síma 863 3318. Til sölu góður tjaldvagn Combi Camp, árg. ‘91 m/nýlegu for- tjaldi. Upphækkaður, á fjöðrum og 13” dekkjum. Tilbúinn í ferðalagið. Upplýsingar í síma 618 2126. Húsviðhald Þak og utanhússklæðningar og allt húsaviðhald Ragnar V Sigurðsson ehf Sími 892 8647. ÁSKRIFTASÍMI 569 1100 Góður maður er genginn. Ottó var sannkallað sjarmatröll og í kring- um hann var mikil gleði, húmor og kát- ína. Hann var afi hennar Svövu stóru systur minnar og gekk henni einnig í föðurstað. Þeirra feðginasamband var einstakt og eitt það fegursta sem ég veit. Engin orð geta lýst þeim mikla missi sem hún og hennar fjölskylda standa nú frammi fyrir. Við mig og systur mínar var hann alltaf yndislegur og þó svo að blóð- bönd tengdu okkur ekki, kom aldrei neitt annað til greina en að við köll- uðum hann Ottó afa líka. Enda kom hann fram við okkur eins og hann væri afi okkar líka. Í huga mínum verður hann alltaf Ottó afi. Helgi Ottó Carlsen ✝ Helgi Ottó Carl-sen fæddist í Reykjavík 5. júlí 1933. Hann lést á Garðv- angi 25. júlí 2010. Útför Helga Ottós fór fram frá Keflavík- urkirkju 5. ágúst 2010. Ein af þeim minn- ingarperlum sem ég á í hjarta mér, og mun seint renna mér úr minni, var þegar ég eignaðist dóttur mína fyrir níu árum. Þá var hann mættur fyrstur manna á heimilið okk- ar með barnabílstól af bestu gerð að gjöf. Og stuttu síðar mætti hann með verkfæra- kassann sinn til að dytta að íbúðinni okk- ar algjörlega óumbeð- inn og eins og ekkert væri sjálfsagð- ara. Minningar um Ottó eru ljós í lífi okkar sem þekktum hann og þær verma hjartarætur og munu færa bros á okkar varir um ókomna tíð. Ég þakka Guði fyrir að hafa feng- ið að njóta svo gjöfullar og ánægju- legrar samveru með Ottó afa, og bið allar góðar vættir að umlykja hann um alla tíð. Ég vil votta fjölskyldu og vinum mína innilegustu samúð við fráfall hans. Blessuð sé minning Ottós Carl- sen. Júlía Björgvinsdóttir. Látinn er í hárri elli Gunnar Már Péturs- son, fyrrum deildar- stjóri. Gunnar starfaði við vátryggingar í meira en hálfa öld og var einn hinna traustu og reyndu ís- lensku vátryggingamanna, sem um- gengust fag sitt af virðingu og þekk- ingu. Hann réðst til Almennra Trygginga hf. árið 1947, þá nýkom- inn til landsins frá Danmörku þar sem hann var fæddur og gekk í skóla. Gunnar var menntaður í við- skiptagreinum og var kærkomin við- bót við fámennt starfslið félagsins sem var stofnað fjórum árum áður. Lengst af starfaði Gunnar við bruna- tryggingar eða það sem í dag nefnist eignatryggingar. Hann varð deildar- stjóri brunatryggingadeildar árið 1954 og gegndi því starfi til ársins 1975. Um það leyti voru erlendar Gunnar Már Pétursson ✝ Gunnar Már Pét-ursson fæddist í Danmörku 16. októ- ber 1919. Hann lést á líknardeild Landspít- alans 5. ágúst 2010. Útför Gunnars fór fram frá Neskirkju 11. ágúst 2010. endurtryggingar orðnar fyrirferðar- miklar í reikningum íslensku vátrygginga- félaganna. Vegna mik- ils taprekstrar inn- lendra vátrygginga, einkum bílatrygginga sem háðar voru verð- lagseftirliti freistuðust félögin til þess að leita viðskipta erlendis, enda litu þau viðskipti vel út í upphafi. En það breyttist fljótt og þessi viðskipti reynd- ust félögunum ákaflega erfið og gengu jafnvel af sumum þeirra dauð- um. Erfiðleikar Almennra Trygg- inga voru síst minni en annarra og því var ákveðið að fá til þess að greiða úr málum einn reyndasta starfsmann félagsins. Það var Gunn- ar Már. Enda þótt starfsvið hans hefði fram að því verið allt annað var hann fljótur að kynna sér þessi við- skipti og vann þar frábært starf. Gunnar var afar talnaglöggur og átti auðvelt með að greina kjarnann í hverju máli. Úrlausn mála krafðist góðs samstarfs við fjölda útlendinga og Gunnar átti auðvelt með að eign- ast kunningja og jafnvel vini í þeim hópi. Þótt Gunnar væri kominn af léttasta skeiði þegar þessi kafli á starfsferli hans hófst virtist það ekki há honum á nokkurn hátt. Hann var deildarstjóri endurtryggingadeildar félagsins frá 1978 til 1989. Það ár varð hann sjötugur og Almennar Tryggingar höfðu sameinast Sjóva ári fyrr. Hann hélt áfram að starfa fyrir hið nýja félag næstu árin og ég veit raunar ekki hvenær formlegum afskiptum hans af erlendum endur- tryggingum félagsins lauk því svo oft var hann kallaður til skrafs og ráða- gerða um einstök mál eftir að venju- legum starfsdegi lauk. Gunnar Már átti ríkan þátt í því að mál á þessum vettvangi leystust á farsælan hátt. Við Gunnar kynntumst árið 1963 þegar ég hóf störf hjá Almennum Tryggingum. Samstarf okkar var alltaf mjög gott en aldrei betra og nánara en á þeim árum sem hann sinnti endurtryggingum. Á þeim ár- um þurftum við oft að ferðast saman og sinna saman erlendum viðskipta- mönnum. Gunnar naut sín þá vel og einkum ef hans góða kona Anna sem lést í byrjun síðasta árs var með í för. Við Jóhanna eigum margar góðar minningar frá þeim tíma. Gunnar var hreinskilinn og hreinskiptinn maður í umgengni við annað fólk og ætíð var stutt í kímni þegar slíkt átti við. Við gamlir samstarfsmenn Gunnars Más kveðjum hann nú með þakklæti og virðingu og minnumst góðs félaga. Ólafur B. Thors.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.