Morgunblaðið - 23.08.2010, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.08.2010, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2010 Jeppadekk í miklu úrvali Bílabúð Benna er umboðsaðili BFGoodrich og TOYO TIRES á Íslandi. Komdu við á nýju fullkomnu hjólbarðaverkstæði að Tangarhöfða 8. Stofnað 1975 Hjólbarðaverkstæði Bílabúðar Benna - Tangarhöfða 8 - S: 590 2000 / Nesdekk - Fiskislóð - sími 561 4110 / Nesdekk - Reykjanesbæ - sími 420 3333 Reykjanesb æ Rey kjavík „Þessi var alveg margfalt stærri en allt það sem ég hef séð og var greini- legur eldhnöttur neðst sem hvarf á nokkrum sekúndum og rákin eftir hann var einnig stór,“ segir Daníel Freyr Jónsson á Selfossi, sem á leið sinni yfir Hellisheiði um hálfeitt að- faranótt sunnudags varð vitni að loftsteinahrapi. Hann segist hafa verið akandi á heimleið af Menningarnótt ásamt unnustu sinni. Er þau komu upp brekkuna við Skíðaskálann í Hvera- dölum „birtist þessi stóri loftsteinn á himninum í austri,“ eins og Daníel orðar það. „Út úr þessum blossa kom svo löng gulgrá lína sem varð mjög löng og þráðbein niður og hvarf svo á nokkrum sekúndum.“ Hann segist oft hafa séð stjörnuhrap, þar sem lít- il rák birtist á himni og hverfi um leið, en þetta hafi verið margfalt stærra en allt sem hann hefur áður séð. „Við hrukkum bæði við, enda ekki beint eitthvað sem gerist á hverju kvöldi,“ segir Daníel Freyr við mbl.is. Samkvæmt upplýsingum frá Veð- urstofunni hafa fleiri tilkynningar ekki borist um stjörnuhrap á þessum tíma. Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur hefur rætt við Daníel og telur að samkvæmt lýs- ingu hans hafi verið um vígahnött að ræða. Greinilegur eldhnöttur á himni Sá vígahnött á leið yfir Hellisheiði Reuters Loftsteinahrap yfir Mexíkó Rákin sem Daníel Freyr sá var minni. FRÉTTASKÝRING Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og stjórnar- maður í Orkuveitu Reykjavíkur, seg- ir að skilja megi fréttaflutning und- anfarið þannig að nú fyrst sé verið að hefja hagræðingu í rekstri Orkuveit- unnar. Hið rétta sé að hagræðingin hafi hafist þegar árið 2008, og auk þess hafi verið undið ofan af fjárfest- ingum. Kjartan segir að hina slæmu skuldastöðu Orkuveitunnar nú megi fyrst og fremst rekja til fjárskuld- bindinga sem gerðar voru á árunum 2003 til 2006. Á meðal þess sem gert hafi verið árið 2008 var að fresta áformum um Bitruvirkjun um óákveðinn tíma, hún hefði falið í sér mikla fjárfestingarþörf. Þessar að- gerðir hafi verið gagnrýndar á sínum tíma, en það sýni sig nú að þær hafi í raun verið skynsamlegar. Í kjölfar bankahrunsins náðist samstaða um það innan borgar- stjórnar Reykjavíkur að hækka ekki gjaldskrár borgarinnar á árinu 2009. Ekki var farið í hækkanir á fyrri hluta þessa árs, enda gjaldskrár- hækkanir ekki vinsælar í aðdrag- anda kosninga. Með þessu var komið í veg fyrir að Orkuveitan gæti aukið tekjur sínar, þó stökkbreyting lána félagsins, sem að mestu eru í er- lendri mynt, hafi beinlínis kallað á gjaldskrárhækkun samhliða um- fangsmikilli rekstrarhagræðingu. Á aðalfundi Orkuveitunnar í júní sagði Guðlaugur G. Sverrisson, sem þá var stjórnarformaður, í bókun að „lág arðsemi og óbreytt gjaldskrá stæði fyrirtækinu fyrir þrifum þegar leitað hafi verið eftir nýju lánsfé.“ Ákvörðun borgarstjórnar setti Orkuveitunni stólinn fyrir dyrnar, og nú er svo komið að félagið er ein- ungis fjármagnað út árið. Kjartan óttast að borgarstjórnarskipti fyrr á árinu, sem og forstjóraskipti í Orku- veitunni, muni tefja þá endurskipu- lagningarvinnu sem hófst á síðasta kjörtímabili. Töluvert svigrúm til hækkana „Auðvitað er þetta flókinn rekst- ur, en þegar allt kemur til alls er þetta einfalt – það þarf að hækka tekjur og lækka kostnað. Síðan er það framtíðarverkefni að tryggja langtímastöðugleika með réttri fjár- mögnun,“ segir Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitunnar. Hann segir spurn- inguna nú ekki vera þá hvort hækka eigi gjaldskrána, heldur hversu mik- ið og með hvaða hætti. Hann vonast til þess að á stjórnarfundi næstkom- andi föstudag verði hægt að leggja fram tillögur um gjaldskrárbreyt- ingar sem síðan verði tekin afstaða til. „Það sem við höfum verið að leit- ast við að gera er að finna almenni- legt samhengi rekstrar og gjald- skrár þannig að við getum sýnt fram á hversu mikið minna við þurfum að hækka með því að skera niður,“ segir Haraldur. Hann segir að nú sé búið að kafa ofan í reksturinn og það liggi fyrir að nauðsynlegt sé að taka ábyrgt á málunum. Fyrir vikið muni Reykvíkingar fá töluverða gjald- skrárhækkun. Það sé síðan stjórn- arinnar að ákveða hvernig hún leggst út. Haraldur segist reikna með að hækkunin verði „tveggja stafa tala“. Gjaldskráin hafi lítið breyst á fimm árum, en á sama tíma hafi vísitöluhækkunin verið um 50%. Það sé því töluvert svigrúm til gjald- skrárhækkana. Hagræðing í rekstri engin stefnubreyting  Gjaldskrárhækkun „tveggja stafa tala“ 41,9 milljarða afborganir af lang- tímalánum til 31. mars 2011 244 er andvirði vaxtaberandi skulda Orkuveitunnar í milljörðum 90% er hlutfall vaxtaberandi skulda sem eru í annarri mynt en krónum 1199 milljónir í laun og launatengd gjöld fyrstu þrjá mánuði ársins ‹ ERFIÐ SKULDASTAÐA › »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.