Morgunblaðið - 23.08.2010, Side 6

Morgunblaðið - 23.08.2010, Side 6
Nýting fæðingarorlofs 20.000 18.000 16.000 14.000 12.000 10.000 8.000 6.000 4.000 2.000 0 Feður Mæður Orlofsgreiðslur til foreldra 2008 2009 2010 Mæður MæðurFeður Feður Styrkur til námsmanna Styrkur utan vinnumarkaðar 10 .3 62 10 .6 0 4 9. 79 5 18 .3 65 19 .4 67 19 .4 25 1. 57 3 1. 42 5 1. 59 6 1. 12 9 1. 0 401. 17 1 18 7 16 3 10 7 41 2 50 9 45 0 Anna Sigríður Einarsdóttir annaei@mbl.is Karlar taka nú síður fæðingarorlof en þeir gerðu fyrir bankahrun og má ætla að lækkun hámarksgreiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eigi þar þátt að máli. Samskonar þróun hefur ekki orðið hjá konum, en árin 2008 og 2009 voru metár í fæðingum á Íslandi. Nokkurt jafnvægi virðist nú komið þar á og er útlit fyrir að fæðingum fækki um 5% milli áranna 2009-2010. 10.362 feður nýttu sér réttinn til fæðingarorlofs árið 2008. Í fyrra voru þeir 10.640 en í ár lítur út fyrir að þeir verði 9.795. 18.365 konur nýttu rétt- inn 2008. Í fyrra voru þær 19. 467 og í ár stefnir í að fjöldinn verði 19.425. „Það hafa verið sterkar vísbending- ar um að karlar séu að draga úr töku fæðingaorlofs ef þeir eru í vinnu,“ segir Leó Örn Þorleifsson, forstöðu- maður Fæðingarorlofssjóðs. Hann bendir þó á að endanlegar tölur liggi ekki fyrir þar sem foreldrar hafi þrjú ár til að nýta fæðingarorlofið. Orlof- staka karla hafi þó tekið að breytast með hruninu og hafi breyttar út- greiðslureglur þar eflaust sitt að segja. „Hámarksgreiðslur voru lækk- aðar nokkuð skarpt í þrígang, auk þess sem útgreiðsluprósentu var breytt. Við sjáum ákveðnar vísbend- ingar, væntanlega í bland við efna- hagsaðstæður, um að þá hafi karlar farið að draga úr töku sinni.“ Nýta síður sameiginlega réttinn Hámarksgreiðslan var 535.700 í lok árs 2008 en er nú 300.000. Við síðustu lækkun, sem tók gildi um áramótin 2009-2010 var útgreiðsluprósentunni einnig breytt. Var hún áður 80% af heildarlaunum, en er nú 80% af fyrstu 200.000 kr. og 75% eftir það. Feðrum sem nýta fæðingarorlofið hefur hins vegar fjölgað meðal þeirra sem ekki eru á vinnumarkaði og segir Leó Örn þá þróun eðlilega í takt við aukið atvinnuleysi. Hvort foreldri á þriggja mánaða rétt til fæðingarorlofs og þrír mán- uðir til viðbótar eru í sameiginlegum rétti. Leó Örn segir mæður jafnan hafa tekið stærstan hluta þess orlofs. „Feðurnir voru hins vegar farnir að auka þá töku og hún jókst jafnt og þétt í takt við það að hámarksgreiðsl- urnar fóru hækkandi. En um leið og þær fóru að lækka árið 2009 þá dró úr töku feðra á þessum sameiginlega rétti.“ Segir hann þetta gefa ákveðna vísbendingu um það að nýting feðra á orlofsréttinum virðist hafa sterka tengingu við fjárhag heimilisins. Taka síður fæðingarorlof núna  Tengsl virðast vera milli töku fæðingarorlofs hjá körlum og hámarksupphæðar greiðslna en önnur þróun er hjá konum 6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2010 www.noatun.is FLJÓTLEGT OG GOTT Hafðu það gott með Nóatúni ÝSA Í KONÍAKS- HUMARSÓSU KR./KG 1498 1798 F ÚRFISKBOR ÐI ÚR FISKBORÐI FERSKIR Í FISKI 17% afsláttur Myndlistaskólinn í Reykjavík hélt átta vikunám- skeið í sumar, þar sem sex til 12 ára gömul börn fengu innsýn í frumbyggjaarkitektúr. Verkefn- inu lauk fyrir helgi, en börnin lærðu að byggja úr efni úr nánasta umhverfi með hliðsjón af mis- munandi aðstæðum og veðurfari. Krakkarnir nýttu sér efni á Lýsislóðinni í vesturbæ Reykja- víkur, hálm, njóla, steina og fleira, til þess að byggja kofa, en fengu auk þess trjágreinar ann- ars staðar til þess að styrkja grindina. Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir kennari segir að vel hafi til tekist, en hún býr í Finnlandi og var stuðst við sambærilega kennslu þar í landi. „Við kenndum þeim aðferðirnar og leyfðum þeim svo að byggja eftir eigin höfði,“ segir hún. Börn og unglingar byggja kofa að hætti frumbyggja á Lýsislóðinni í Reykjavík Morgunblaðið/Jakob Fannar Lærðu aðferðirnar og byggðu síðan eftir eigin höfði Óhætt er að segja að mikið hafi ver- ið um að vera í höfninni á Neskaup- stað um helgina. Stærsta skip ís- lenska fiskiskipaflotans, frystitogar- inn Kristína EA, landaði þar um tvö þúsund tonnum af makríl. Kristína, sem sést bundin við bryggju á myndinni hér til hliðar er 105 metra löng, og 20 metrar á breidd og er í eigu Samherja á Akureyri. Vilhelm Þorsteinsson EA, sem einnig er frystitogari í eigu Samherja, lá við bryggju á sama tíma. Hákon EA landaði frosinni síld auk þess sem Beitir NK landaði til vinnslu í höfn- inni um helgina. Til viðbótar við þessi skip var hlaðið á flutningaskip sem er síðan á leið til Afríku. Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunn- ar á Neskaupstað segir að þó alltaf sé líf í höfninni á Neskaupstað hafi þetta verið stór helgi. „Það var dá- lítið af skipum, já. Þetta eru miklar tölur sem flæða, mikil verðmæti sem flæða fram og til baka,“ sagði Gunnþór. einarorn@mbl.is Miklu landað í Neskaup- staðarhöfn um helgina  Kristína EA landaði tvö þúsund tonnum af makríl Stærðarmunur Stærsta skip íslenska fiskiskipaflotans sést hér bundið bryggju. Skipið við hliðina virðist agnarsmátt í samanburði. Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir „Mér sýnist á öllu að það geti náðst sátt um samningaleiðina í þessari nefnd. Það er allavega alveg ljóst að það er enginn áhugi á fyrning- arleiðinni, því það hefur ekki verið talað fyrir henni núna upp á síðkastið,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson, þingmað- ur Framsóknarflokksins og fulltrúi í starfshópi um endur- skoðun á fyrirkomulagi um fisk- veiðistjórnun. Gunnar segir að um tíma hafi a.m.k. annar ríkisstjórnarflokk- urinn viljað koma tillögu um fyrn- ingarleið í gegn en eftir að farið hafi verið að skoða málið ofan í kjölinn hafi menn séð að sú leið væri „gjörsamlega ófær.“ Gunnar segir að ef horft sé til þess starfs sem farið hefur fram innan hópsins sé ljóst að fyrning- arleiðin sé algerlega út af borðinu. „Það er vilji til þess að fara samningaleiðina í einhverri út- færslu og að tala um nýtingarrétt. Síðan er eftir að ræða hvernig greiða eigi fyrir afnot af auðlind- inni. Það er auðvitað þegar verið að því í dag í gegnum veiðigjald,“ segir Gunnar. hjorturjg@mbl.is Fyrningarleið í sjávarútvegi „gjörsamlega ófær“ Gunnar Bragi Sveinsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.