Morgunblaðið - 23.08.2010, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2010
Þriðjudagskvöldið
24. ágúst verður
gengið um Öskju-
hlíðina undir leiðsögn
Einars Gunnlaugssonar, jarðfræðings, og Stefáns Pálssonar, sagn-
fræðings. Öskjuhlíðin er forvitnilegt, bæði út frá náttúrufræðilegu og
sögulegu sjónarhorni, auk þess sem starfsemi Orkuveitunnar tengist
svæðinu á ýmsan hátt. Lagt verður af stað frá Perlunni kl. 19:30.
Gönguferð um
Öskjuhlíðina
• Orkuveita Reykjavíkur rekur
stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
50
28
1
08
/1
0
Athugið að efni dagsins getur riðlast af
ýmsum ástæðum og er því bent á að nánari
upplýsingar er að finna á vef Orkuveitunnar.
Ríkisstjórnin og Evrópusam-bandið segjast vilja upplýsta
umræðu um Evrópusambandið hér
á landi vegna aðildarumsóknar Ís-
lands. Þetta hljómar ágætlega en er
því miður ekki mjög trúverðugt.
Bent hefur verið á að þegar rík-isstjórnin og Evrópusambandið
fyndu að málið hefði ekki hljóm-
grunn hér á landi yrði gripið til ör-
væntingarfullra aðgerða til að
sannfæra Íslendinga.
Nú hefur þettagerst.
Össur Skarp-héðinsson
utanríkisráð-
herra fór fyrir
helgi í viðtal til
Heimis Más Pét-
urssonar á Stöð 2
og fullyrti þar að ávinningur ís-
lensku þjóðarinnar af því að ganga
í ESB væri á annað hundrað millj-
arðar króna. Rökstuðningurinn var
vitaskuld enginn og Heimir Már
spurði einskis.
Svo hélt Össur áfram og fullyrtiað Ísland væri ekki í aðlög-
unarviðræðum þó að sýnt hafi verið
fram á að svo sé.
Hann fullyrti líka að samning-urinn sem kæmi út úr viðræð-
unum yrði töluvert betri en haldið
væri fram núna og að „bábiljur“
andstæðinga aðildar um sjávar-
útvegsmál væru vitleysa.
Þetta og fleira lét utanríkisráð-herra út úr sér þrátt fyrir að
stækkunarstjóri sambandsins hafi
sett ofan í við hann fyrir einmitt
svona tal.
Gefur þetta góðar vonir um upp-lýsta umræðu?
Össur
Skarphéðinsson
Upplýst umræða um ESB
Veður víða um heim 22.8., kl. 18.00
Reykjavík 9 skýjað
Bolungarvík 7 rigning
Akureyri 6 rigning
Egilsstaðir 11 skýjað
Kirkjubæjarkl. 13 skýjað
Nuuk 12 léttskýjað
Þórshöfn 10 skýjað
Ósló 20 heiðskírt
Kaupmannahöfn 18 skýjað
Stokkhólmur 20 skýjað
Helsinki 18 léttskýjað
Lúxemborg 23 heiðskírt
Brussel 22 skýjað
Dublin 20 léttskýjað
Glasgow 13 skýjað
London 21 skýjað
París 27 skýjað
Amsterdam 20 léttskýjað
Hamborg 22 skýjað
Berlín 27 heiðskírt
Vín 28 heiðskírt
Moskva 21 skýjað
Algarve 28 heiðskírt
Madríd 33 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 28 heiðskírt
Róm 32 léttskýjað
Aþena 27 heiðskírt
Winnipeg 23 léttskýjað
Montreal 17 skúrir
New York 25 alskýjað
Chicago 24 léttskýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR KL. 12 Í DAG
23. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:44 21:18
ÍSAFJÖRÐUR 5:38 21:33
SIGLUFJÖRÐUR 5:21 21:17
DJÚPIVOGUR 5:11 20:50
Töluvert margir ökumenn þurfa að
greiða sektir sem þeir hlutu fyrir að
leggja bílum sínum ólöglega á Menn-
ingarnótt.
Að sögn Kristjáns Ó. Guðnasonar
aðstoðaryfirlögregluþjóns var sú ný-
breytni tekin upp að loka fyrir um-
ferð um Þingholtin til að koma í veg
fyrir að götur þar myndu stíflast líkt
og aðrar Menningarnætur, en það
skapar hættu vegna aðkomu neyð-
arbíla. „Að því leytinu til tókst þetta
mjög vel því ástandið var mun betra
en áður. Hins vegar héldu lokanir
ekki í einhverjum tilvikum og það er
auðvitað áhyggjuefni því það skapar
hættu fyrir fólk sem á ekki von á um-
ferð.“ Undir þetta tekur Kolbrún
Jónatansdóttir, framkvæmdastjóri
bílastæðasjóðs, sem segir ljóst að
margir hafi kosið að fara í bæinn
með strætó. „Það voru klárlega mun
færri á bílum en fyrri ár.“ Þau segja
þó töluvert hafa verið um ólöglegar
bílstöður við lokanirnar og voru
skrifaðar sektir á ökumenn þeirra
bifreiða. Í gær lá ekki fyrir hversu
miklum upphæðum sektirnar námu.
Að öðru leyti gekk umferð þokka-
lega fyrir sig; sex voru teknir fyrir
ölvunarakstur og nokkuð var um
minniháttar umferðaróhöpp auk
þess sem sigling skemmtibáts var
stöðvuð vegna ölvunar skipstjórans.
Þá fylltust fangageymslur en
greiðlega gekk að leysa flest mál.
M.a. var ölvuð kona um þrítugt
handtekin fyrir að iðka „ósiðlegan
dans“ í miðborginni en „ekki er talið
að atriði hennar hafi verið hluti af
dagskrá Menningarnætur“, eins og
segir í tilkynningu lögreglu. Skipu-
lega var unnið gegn áfengisdrykkju
og ólöglegri útivist barna og ung-
linga. Var nokkru magni af áfengi
hellt niður en ástandið þó ekki verra
en oft áður. Nokkur fíkniefnamál
komu sömuleiðis til kasta lögreglu.
Margir sektaðir
á Menningarnótt
Morgunblaðið/Eggert
Gleði Ungir sem aldnir skemmtu
sér konunglega á Menningarnótt.
Ölvuð kona handtekin fyrir „ósiðlegan dans“
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
„Við hefðum að sjálfsögðu óskað
þess að þetta hefði farið öðruvísi og
við hefðum getað valið úr þessum
hópi umsækjenda. Hins vegar er
þetta enginn stóridómur og við mun-
um fara í það að leita á ný. Við erum
komin með nokkur nöfn sem við er-
um að skoða og ég er mjög bjartsýnn
á að það muni ganga upp,“ segir
Stefán Vagn Stefánsson, formaður
byggðaráðs Skagafjarðar.
Öllum umsóknum hafnað
Tilkynnt var fyrir helgi að enginn
af 17 umsækjendum um starf sveit-
arstjóra Skagafjarðar yrði ráðinn og
að hafin yrði leit að einstaklingi í
starfið án auglýsingar. Stefán segir
að ekki hafi náðst sátt í meirihlut-
anum í sveitarstjórn um neinn af
þeim sem sóttu um og ekki verið
taldar forsendur til þess að kalla
neinn þeirra í viðtal.
Áður en starfið var auglýst var
einnig gerð tilraun til þess að ráða í
starfið án auglýsingar en án þess að
það skilaði tilætluðum árangri.
„Ég var sveitarstjóri í 14 ár og rak
ráðgjafarþjónustu í tíu ár og veit vel
hvernig svona umsóknir eru með-
höndlaðar. Ef einhverjir koma til
greina eru þeir kallaðir í viðtal. Það
er afskaplega ófagmannlega staðið
að þessu,“ segir Jón Baldvinsson,
einn umsækjandanna.
Aðspurður sagði Stefán Vagn að
faglega yrði staðið að ráðningunni.
Þriðja tilraunin gerð til ráðningar
Öllum umsóknum um starf sveitarstjóra sveitarfélagsins Skagafjarðar hafnað
„Afskaplega ófagmannlega staðið að þessu,“ segir umsækjandi um starfið