Morgunblaðið - 23.08.2010, Síða 15
Fréttir 15ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2010
Dæmdur til
að lamast
fyrir lífstíð
Dómstóll í Sádi-Arabíu íhugar að
lama karlmann vísvitandi en hann
hefur verið fundinn sekur um að
vera valdur að lömun annars eftir
slagsmál þar sem hnífi var beitt.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu
mannréttindasamtakanna Amnesty
International. Segja samtökin að
starfsmenn dómstólsins hafi leitað
til nokkurra sjúkrahúsa um að skera
mænu mannsins í sundur en fórn-
arlamb mannsins óskaði honum
slíkrar refsingar.
Amnesty segir að eitt sjúkrahús
hafi svarað játandi, að slíka aðgerð
væri hægt að framkvæma. Hafa
samtökin nú leitað til dómsmála-
ráðherra landsins vegna málsins.
Í Sádi-Arabíu er það viðurkennd
refsing, samkvæmt íslömskum lög-
um, að aflima fólk fyrir þjófnaði og
afhöfða morðingja, nauðgara og
smyglara. Talsmaður Amnesty Int-
ernational segir að í stað slíkra refs-
inga væri hægt að koma á sáttum
milli fjölskyldna fórnarlamba og
gerenda, sem m.a. gætu falið í sér fé-
bætur.
„Þetta stendur í Kóraninum; auga
fyrir auga og tönn fyrir tönn,“ segir
Ahmed Almobi, sérfræðingur í ísl-
ömskum fræðum. „Í íslam er leitað
fyrirgefingar en ef fórnarlambið
krefst einhvers er það réttur þess.“
Dómstólinn hefur sagt að til
greina komi að hýða manninn frekar
opinberlega eða fangelsa.
Lamaði annan mann
og skal sjálfur lamast
BAKSVIÐ
Sunna Ósk Logadóttir
sunna@mbl.is
Yngstu fórnarlömb mansals í Bretlandi sam-
kvæmt opinberum gögnum eru fjórtán ára stúlk-
ur. Þær eru flestar af erlendum uppruna, fluttar
til Bretlands til að svara aukinni eftirspurn eftir
vændiskonum, á markaði sem virðast alls engin
takmörk sett. Talið er að a.m.k. 2.600 konur séu
nú starfandi á vændishúsum landsins eftir að
hafa verið fluttar þangað mansali, um helmingur
þeirra frá Kína. Samkvæmt rannsókn lögregl-
unnar, sem gerð var opinber í síðustu viku, eru
um 10 þúsund konur til viðbótar á „gráu svæði“,
þ.e. hugsanlega fórnarlömb mansals. Niðurstaða
rannsóknarinnar er umdeild m.a. vegna þess að
talið er að um 2.300 vændishús séu í höfuðborg-
inni London einni saman. Þá kemur einnig á
óvart að engin kona frá Afríku virðist hafa verið
flutt mansali til Bretlands en á sama tíma dvelja
þó 56 konur frá álfunni í athvarfi fyrir fórn-
arlömb mansals í London. Þá stangast þessar töl-
ur á við niðurstöður umfangsmestu rannsóknar
sem gerð hefur verið á mansali í Bretlandi frá
árinu 2008 en hún sýndi fram á að um 18 þúsund
konur væru hnepptar í þrældóm kynlífsiðnaðar-
ins í landinu.
Enginn ákærður vegna
verslunar með breskar konur
Nú er einnig nýr flötur á mansali til umræðu í
Bretlandi: Verslun með breskar stúlkur í eigin
landi. Samkvæmt tölum frá Bresku mansalsmið-
stöðinni (UK Human Trafficking Centre) voru 38
Bretar skráðir fórnarlömb mansals í heimalandi
sínu á tímabilinu apríl 2009 til mars 2010. Í úttekt
breska dagblaðsins The Independent segir að ein
leiðin sem þrælahaldararnir noti sé að lokka til
sín ungar stúlkur, jafnvel 12 ára gamlar, vinna
traust þeirra, kynna þær fyrir næturlífinu og
skuggakimum þess, selja þær svo í vændi og losa
sig að lokum við þær átján ára gamlar, þegar
þær eru orðnar eiturlyfjafíklar og eiga ekki í nein
hús að venda.
Enginn hefur enn sem komið er verið ákærður
fyrir verslun með breskar konur í sínu heima-
landi. Sheila Taylor, forseti samtaka sem berjast
fyrir ungmenni og börn sem orðið hafa fórn-
arlömb kynlífsiðnaðarins, segir mansal breskra
stúlkna eiga sér stað í öllum borgum og mörgum
bæjum landsins. Opinberar tölur sýni aðeins
toppinn á ísjakanum.
Fórnarlömb mansals í eigin landi
38 Bretar sem skráðir eru fórnarlömb mansals í eigin landi eru aðeins toppurinn
á ísjakanum Þúsundir kvenna af erlendum uppruna á vændishúsum í landinu
Morgunblaðið/Kristinn
Fangin Flest fórnarlömb mansals í
Bretlandi koma frá Kína en töl-
urnar um fjöldann eru á reiki.
Hjúkrunarkonan Sunita Laxman
Jadhav er einn fjölda „sölumanna“
sem ganga milli húsa í þorpum á
Indlandi með tilboð sem mörgum
finnst ekki hægt að hafna: Bíddu í
tvö ár með að eignast barn og rík-
isstjórnin mun greiða þér fyrir.
Meðal þeirra sem eru heimsóttir
eru nýgift pör og þeim boðnar sem
nemur um 12 þúsund krónum með
því skilyrði að þau bíði með barn-
eignir.
Er þetta m.a. gert í þeim tilgangi
að hvetja ungt, nýgift fólk til að
ljúka menntun sinni en einnig til að
sporna við mjög örri fólksfjölgun í
landinu. Indverjar eru ung þjóð, um
helmingur þeirra er yngri en 25
ára.
Nýgift pör geta
valið um að fá
bónus í stað barna
INDLAND
Ungir sem aldnir tóku í gær þátt í trúarathöfn í ítalska
bænum Guardia Sanframondi sem m.a. felur í sér písl-
argöngu þar sem þátttakendur sýna iðrun sína og yf-
irbót með því að slá sig varlega með keðjum á brjóstið.
Allir klæðast píslarvottarnir hettum, flestir eru hvít-
klæddir en aðrir í rauðu og þeir yngstu í svörtu. Hátíð-
in er haldin á sjö ára fresti til að minnast þess er stytta
af Maríu mey og syninum fannst á akri við bæinn fyrir
mörg hundruð árum. Þátttakendur biðla til guðsmóð-
urinnar um að forða því að hamfarir á borð við þurrka
og jarðskjálfta verði en einnig er beðið fyrir almennri
vellíðan og hamingju. Guardia Sanframondi er smábær
a Suður-Ítalíu sem fyllist af kristnum mönnum meðan á
athöfninni stendur. Ekki alls fyrir löngu voru það að-
eins íbúarnir sem tóku þátt og þekktu söguna um stytt-
una á akrinum. En nú safnast saman í bænum brott-
fluttir og afkomendur þeirra sem vilja njóta góðs af
þeim trúarlega innblæstri sem skapast í kringum at-
höfnina.
Eftir að píslarvottarnir hafa gengið í gegnum bæinn
er styttan fræga, sem alla jafna er geymd í kirkjunni,
afhjúpuð, þátttakendur krjúpa í mínútu og halda svo
áfram göngunni, annað hvort á hnjánum eða ganga aft-
urábak framan við styttuna.
Reuters
Ungir og forvitnir píslarvottar
Talið er að ítalska mafían noti
vinsælan fótboltaþátt til að koma
boðum sín á milli. Í þættinum
býðst áhorfendum að senda sms-
skilaboð sem renna svo yfir skjá-
inn. Er talið að með þessum hætti
komi mafían skilaboðum til fé-
laga sem eru bak við lás og slá.
Skilaboðin virðast saklaus, seg-
ir ítalskur saksóknari, en eru í
raun mjög mikilvæg. Ein þeirra
voru t.d. „Allt er í lagi, Paolo“.
Áður fyrr var notast við frum-
stæðari aðferð til að koma skila-
boðum inn og út úr fangelsum.
Þá voru skilaboð rituð á mjög
þunnan pappír sem sendiboðar
rúlluðu upp og settu á milli
tánna.
„Allt er í lagi, Paulo“
ÍTALÍA