Morgunblaðið - 02.09.2010, Blaðsíða 30
30 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
3
2
9 8
3 4 9
1 4 7
7 9 2 1 8
6 2 4 3
3 8 6
7 1 8
6 1 8 5 3
2 8 6
7 3
8 6 7 2
5 7
4 1 3 6
2 1
5 4
6 5
3 9
9 4 7 1
5 2 4
5 6
2 7
4 1
8 3 2
2 3 6 7
2 5 1 3 9 4 7 8 6
4 8 3 6 5 7 2 1 9
7 9 6 1 2 8 4 3 5
8 3 9 5 7 1 6 2 4
1 6 2 4 3 9 5 7 8
5 7 4 2 8 6 3 9 1
6 1 7 8 4 3 9 5 2
9 4 5 7 1 2 8 6 3
3 2 8 9 6 5 1 4 7
6 1 4 5 2 7 3 8 9
7 5 2 8 3 9 6 4 1
8 9 3 4 1 6 5 7 2
4 2 1 6 8 5 9 3 7
9 6 8 2 7 3 4 1 5
5 3 7 1 9 4 2 6 8
2 4 9 7 6 1 8 5 3
1 8 5 3 4 2 7 9 6
3 7 6 9 5 8 1 2 4
2 4 1 8 9 6 3 7 5
8 3 9 7 2 5 4 6 1
6 7 5 1 4 3 2 8 9
7 8 6 2 5 1 9 4 3
3 1 4 9 7 8 5 2 6
5 9 2 3 6 4 7 1 8
4 6 7 5 1 9 8 3 2
9 2 8 6 3 7 1 5 4
1 5 3 4 8 2 6 9 7
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 2. september,
245. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu
þjáningar þessa tíma neitt í saman-
burði við þá dýrð, sem oss mun opin-
berast. (Rm. 8, 18.)
Gylfi Sigurðsson er á leið til liðs-ins, sem nú trónir á toppi þýska
fótboltans, Hoffenheim. Gylfi hefur
staðið sig frábærlega með enska lið-
inu Reading, skorað í næstum því
öðrum hverjum leik með liðinu (16
mörk í 38 leikjum) og verið nokkurs
konar redding fyrir það. Nú reddar
hann liðinu hins vegar um peninga –
hann er kominn í hóp þeirra íslensku
leikmanna, sem keyptir hafa verið
hvað dýrustu verði – og sjálfum sér
um ný og krefjandi verkefni.
x x x
Ef eitthvað er að marka þýskafjölmiðla gerði frammistaða
Gylfa á Englandi ekki útslagið, held-
ur framganga hans með U-21 árs
landsliðinu gegn Þýskalandi í riðla-
keppninni fyrir Evrópumeist-
aramótið á dögunum þar sem hann
lagði upp eitt mark og skoraði annað.
Íslenska liðið sigraði það þýska, sem
á Evrópumeistaratitil að verja, 4-1.
TSG 1899 Hoffenheim vann sig á
tæpum áratug úr áttundu deild í þá
efstu í þýska boltanum. Fyrsta tíma-
bilið í búndeslígunni var liðið lengi
vel í efsta sæti, en gaf eftir á loka-
sprettinum. Næsta tímabil gekk ekki
vel, en nú er liðið í efsta sæti með sex
stig og sömu markatölu og Kais-
erslautern eftir tvo sigra í tveimur
umferðum. Ralf Rangnick, þjálfari
Hoffenheim, leggur upp úr hraða og
beittum sóknum. Velgengni liðsins
byggist á djúpum vösum auðkýfings-
ins Dietmars Hopps, en peningar
hans hafa ekki verið notaðir til að
kaupa gamlar stjörnur, heldur unga
leikmenn og fríska. „Gylfi Sigurðsson
er þrátt fyrir að vera aðeins 20 ára
ógnandi við markið og sókndjarfur
miðvallarleikmaður og við teljum að
hann eigi mikið inni,“ sagði Ernst
Tanner, framkvæmdastjóri Hoffen-
heim, um kaupin.
x x x
Gylfi verður númer 11 hjá Hoffen-heim, en íslenskir knattspyrnu-
áhugamenn munu ekki fá mörg tæki-
færi til að fylgjast með honum í
treyju þýska liðsins. Langt er síðan
þýska knattspyrnan hefur verið sýnd
í sjónvarpi hér á landi og er það mið-
ur. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 flækingar, 8
flaska, 9 les, 10 drepsótt, 11
bik, 13 peningar, 15 sokk-
urinn, 18 varpa hlutkesti,
21 fæða, 22 smjaðurs, 23
slæmt hey, 24 liggur í mak-
indum.
Lóðrétt | 2 hamingja, 3
heimting, 4 hindra, 5 ann-
ríki, 6 viðbót, 7 skjótur, 12
sefa, 14 reyfi, 15 bryggju-
svæði, 16 ís, 17 bátaskýli, 18
harðneskja, 19 furða, 20
fædd.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 skafl, 4 Hekla, 7 kollu, 8 álman, 9 Týr, 11 rann, 13
hríð, 14 Iðunn, 15 fátt, 17 étur, 20 gat, 22 rifna, 23 rúðan, 24 af-
ræð, 25 rímur.
Lóðrétt: 1 sekur, 2 allan, 3 laut, 4 hrár, 5 kamar, 6 annað, 10 ýs-
una, 12 nit, 13 hné, 15 farga, 16 tófur, 18 tíðum, 19 Ránar, 20
garð, 21 trúr.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rf3 Bg7 4. g3 0-0 5.
Bg2 d6 6. 0-0 Rbd7 7. b3 e5 8. e3 He8 9.
Bb2 h5 10. Rc3 c6 11. d5 e4 12. Rg5 Rc5
13. Hb1 Rd3 14. Ba1 Bf5 15. Rgxe4
Rxe4 16. Bxe4 Rxf2 17. Hxf2 Bxe4 18.
Rxe4 Bxa1 19. Df3 f5 20. Rxd6 Dxd6
21. Hxa1 He4 22. dxc6 Dxc6 23. Hd1
Hae8 24. Hd3 Dc5 25. He2 H8e7 26.
Kf2 Dc7 27. h4 De5 28. Hed2 De6 29.
Hd6 Df7 30. H2d3 Kh7 31. Dd1 f4 32.
exf4 Df5 33. H3d5 Dh3
Staðan kom upp á Politiken Cup, al-
þjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í
Helsingjaeyri í Danmörku. Bjarni Jens
Kristinsson (2.044) hafði hvítt gegn
Henrik Willumsen (2.127). 34. Hxh5+!
Kg7 35. Da1+! H7e5 36. Dxe5+! Hxe5
37. Hxe5 Dh2+ 38. Kf3 og svartur
gafst upp. Bjarni fékk 5½ vinning á
mótinu og mun hann hækka um 19 stig
vegna frammistöðu sinnar.
Hvítur á leik
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Tvöfaldur dobbelskvís.
Norður
♠2
♥Á1075
♦KD10762
♣76
Vestur Austur
♠ÁK873 ♠G954
♥D432 ♥6
♦4 ♦95
♣D109 ♣KG8542
Suður
♠D106
♥KG98
♦ÁG83
♣Á3
Suður spilar 6♦.
Yfirleitt koma þrír litir við sögu í
tvöfaldri þvingun. Nafnið er hugsað út
frá því að báðir andstæðingarnir
þvingast, hvor um sig í sjálfstæðum lit
og síðan í einum sameiginlega. En til
eru afbrigði þar sem báðir þvingast í
sömu tveimur litum.
Vestur spilar svo út ♠K gegn
slemmunni og skiptir yfir í tromp í öðr-
um slag. Hvar er tólfti slagurinn?
(Vestur sýndi hálitina yfir grandopnun
suðurs, svo að ♥D er auðfundin.)
Gerum langa sögu stutta og komum
til leiks þegar þrjú spil eru eftir.
Heima á suður ♠D10 og ♣Á, en í borði
♣76 og eitt tromp. Annar mótherjinn
verður að halda eftir tveimur laufum
og fara niður á einn spaða. Sagnhafi
fríar þá spaðaslag, eftir atvikum með
því að trompa niður kónginn eða
gleypa gosann.
2. september 1625
Gos hófst í Kötlu í Mýrdals-
jökli með ógnarlegu vatns-
flóði og ísreki. Eldgangurinn
var svo mikill að líkt var og
„allt loftið og himnarnir
mundu í sundur springa“,
eins og segir í Skarðsárannál.
Þegar öskufallið var mest „sá
enginn annan þó í hendur
héldist þá hæstur dagur var“.
Kyrrð komst á 14. september.
2. september 1845
Heklugos
hófst eftir 77
ára hlé og
stóð til næsta
vors. „Hrygg-
ur Heklu rifn-
aði að endi-
löngu og á
sprungunni
mynduðust fimm gígir,“ segir
í ritinu Landskjálftar á Ís-
landi. Næsta gos varð rúmri
öld síðar.
2. september 1932
Fossvogskirkjugarður í
Reykjavík var vígður þegar
öldungur og ungur drengur
voru jarðsettir. „Einkennileg
og hrífandi jarðarför,“ sagði í
Morgunblaðinu. „Var þar
saman kominn múgur
manna.“
2. september 1958
Freigátan Eastbourne tók níu
varðskipsmenn af Þór og
Maríu Júlíu sem höfðu staðið
breska togarann Northern
Foam að ólöglegum veiðum.
Eastbourne hafði Íslend-
ingana í haldi í ellefu sólar-
hringa.
2. september 1967
Brúin yfir Jökulsá á Breiða-
merkursandi var vígð. Þetta
var önnur lengsta hengibrú
landsins, 110 metra löng. Þar
með komust Öræfingar í ak-
vegasamband við aðra lands-
hluta þótt enn væru nokkrar
ár óbrúaðar á leiðinni frá
Höfn.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
Torfi Dan Sævarsson, rafmagnsverkfræðingur
hjá Norðuráli, er fimmtugur í dag, en hann ætlar
að halda upp á það með fjölskyldunni, vinum og
kunningjum á morgun.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég held svona fjöl-
mennt boð í tilefni afmælis míns,“ segir hann en
bætir við að reyndar hafi hann haldið upp á þrí-
tugsafmælið með pomp og prakt. Þegar hann hafi
tilkynnt fullorðnum nágranna sínum hvað stæði til
og búast mætti við hávaða hafi nágranninn sagt að
menn héldu ekki almennilega upp á afmæli sitt
fyrr en þeir yrðu að minnsta kosti fimmtugir.
Veislan hafi samt orðið að veruleika og tekist vel. 10 árum síðar hafi
veislan verið heldur lágstemmdari og aðeins með nánustu fjölskyldu
en nú væri komið að þeirri stóru. „Maður verður bara einu sinni 50
ára á ævinni,“ segir Torfi, sem í tilefni tímamótanna býður fjölmenni
á öllum aldri frá fjögurra ára og upp úr til afmælisfagnaðar með
diskói og dansi.
Torfi er mikill áhugamaður um hatta og hefur unnið ötullega að því
að endurvekja hattatísku hjá karlmönnum. „Þess vegna óska ég eftir
því að sem flestir sem mæta séu með höfuðfat.“ steinthor@mbl.is
Torfi Dan Sævarsson 50 ára
Allir með höfuðfat
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
2. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 5.31 1,4 12.04 3,0 18.28 1,6 6.14 20.42
Ísafjörður 0.58 1,5 7.36 0,7 14.04 1,7 20.39 0,9 6.12 20.54
Siglufjörður 4.08 1,1 9.50 0,6 16.13 1,2 22.50 0,6 5.54 20.37
Djúpivogur 2.18 0,7 8.47 1,7 15.14 0,9 21.02 1,5 5.41 20.13
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Leyfðu velgengni annarra að vera þér
innblástur í stað þess að láta hana fara í
taugarnar á þér. Að klæða sig upp á, elda eða
deila einhverju með ástvinum gefur lífinu lit.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú nýtur loks uppörvunar og fjárhags-
legs stuðnings til að gera það sem þig langar
til. Einhver sýnir þér áhuga úr fjarlægð.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Láttu hjólin snúast. Ef efasemdir
um eigið ágæti sækja á þig ýttu þeim þá frá
þér.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þig langar til að taka rækilega til í
sambandi, umhverfi eða vandamáli. Vertu
umfram allt sáttfús og heiðarleg/ur og þá
mun allt fara vel.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þar sem þú ert á endalausum þeytingi
fyrir vinnuna skaltu huga að þeim sem heima
sitja. Haltu fram á við og þú hittir réttu
manneskjuna til að fara með þér alla leið.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Styrkur þinn gæti falist í því að sætta
þig við veikleika þína ef einhverjir eru. Taktu
þér tíma til þess að kanna málin betur.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Alveg upp úr þurru færð þú óvenjulega
hugmynd um hvernig þú getir skemmt þér og
öðrum. Einhver er að reyna að gera þér lífið
leitt en þú átt auðveldlega að geta séð við
því.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Vinstra heilahvel þitt er í yfir-
vinnu. Búðu þig undir það versta, þá kemur
ekkert þér á óvart.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Stórar og sterkar tilfinningar
gerjast nú vegna sambands sem gæti orðið,
því báðir aðilar hafa mikinn áhuga. Frá og
með deginum í dag máttu eiga von á stöðu-
hækkun.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Nú er lag að kaupa fallega hluti, til
dæmis fyrir sjálfa/n þig eða ástvini. Áhugi á
ferðalögum og fróðleiksþorsti knýja þig
áfram.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú finnur fyrir viðkvæmni þessa
dagana. Þú vilt ekki spyrja óþægilegra spurn-
inga, en það er engin undankoma.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú ert í þrumustuði. Farðu varlega í
fjárfestingum.
Stjörnuspá