Morgunblaðið - 02.09.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.09.2010, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2010 samgöngu-, dóms- og mannúðar- málum, en ljóst er að Gylfi Magn- ússon, Ragna Árnadóttir og Álf- heiður Ingadóttir hverfa úr ríkisstjórn í dag. Óánægja með að Kristján víki Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er mikil óánægja með það hjá ákveðnu samfylkingarfólki að Kristján Möller víki úr ríkisstjórn. Bent er á það að hann sé sá eini sem eftir sé í ríkisstjórninni sem hafi átt pólitísk bakland í Alþýðu- flokknum gamla, þ.e. sé krati. Jó- hanna eigi vitanlega sama kratíska bakgrunninn en enn eru margir sem minnast þess þegar hún klauf Alþýðuflokkinn og stofnaði Þjóð- vaka. Aðrir í ríkisstjórn, eftir að Gylfi og Ragna hætta, séu allir upp- aldir í gamla Alþýðubandalaginu. „Það er bara búið að þurrka út krata og kvennalistakonur. Það eru bara gamlir kommar eftir,“ sagði einn viðmælandi í gær. Þá er megn óánægja með það í Samfylkingunni að Jón Bjarnason sitji áfram sem ráðherra, eftir að Ögmundur Jónasson kemur inn, því ekki eiga þingmenn Samfylkingar- innar von á því að friðvænlegra verði við ríkisstjórnarborðið eftir að fjölgar við það úr áánægjuarmi VG. Þau Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir munu telja að ríkisstjórninni takist að afgreiða frumvarpið um stjórnarráðið fyrir áramót, en stjórnarandstöðuþing- menn, sem rætt var við í gær, voru ekki sömu skoðunar. Jón og Katrín út fyrir áramót? Ríkisstjórnin mun miða við það að Jón Bjarnason hætti sem sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra fyrir áramót og til verði eitt at- vinnuvegaráðuneyti, þ.e. ráðuneyti iðnaðar, sjávarútvegs og landbún- aðar. Því eru áform um það innan ríkisstjórnarinnar að bæði Jón Bjarnason og Katrín Júlíusdóttir hætti fyrir áramót sem ráðherrar og að hið nýja atvinnuvegaráðu- neyti verði eftir það á forræði VG. Þannig er áformað að ráðherrar í ríkisstjórninni verði níu og ráðu- neytin tólf. Það mun ekki síst vera vegna þessa sem kynjahlutfallið er að þvælast fyrir Samfylkingunni og hugmyndin um Oddnýju Harðar- dóttur nýtur nú nokkurs fylgis þar sem við blasir að á næstu mán- uðum hverfi Katrín Júlíusdóttir einnig úr ráðherrastól. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fundað Þingflokkur Samfylkingarinnar fundaði um ýmis mál í gær en Alþingi verður sett klukkan hálf tvö í dag. Kynjahlutfallið þvælist fyrir Samfylkingunni  Áform um að Jón Bjarnason og Katrín Júlíusdóttir hætti Ráðherraskipti í ríkisstjórn Íslands Álfheiður Ingadóttir Tók við embætti heilbrigðis- ráðherra 1. október 2009 Gylfi Magnússon Tók við embætti efnahags- og viðskipta- ráðherra 1. febrúar 2009 Kristján L. Möller Tók við embætti samgönguráðherra 24.maí 2007 Ragna Árnadóttir Tók við embætti dómsmála- og mann- réttindaráðherra 1. febrúar 2009. Guðbjartur Hannesson Er formaður fjárlaganefndar Breytingar á ríkisstjórninni sem væntanlega verður gengið frá í dag samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Ögmundur Jónasson Var ráðherra frá 1. febrúar 2009 til 1. október 2009 Árni Páll Árnason Tók við embætti félagsmálaráðherra 10.maí 2009 INN INN ÚT ÚT ÚT ÚT Fær nýtt embætti FRÉTTASKÝRING Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Ekki reyndist það jafnauðvelt og búist hafði verið við í fyrradag fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur, formann Samfylkingarinnar og forsætisráð- herra, að gera tillögur um breyt- ingar á ráðaherraskipan Samfylk- ingarinnar í gær. Eins og kom fram í Morgunblaðinu í gær var talið fullvíst að forsætisráðherra myndi gera tillögu um að Guðbjart- ur Hannesson kæmi nýr inn í rík- isstjórnina og að hann yrði velferð- arráðherra, ráðherra yfir heilbrigðis- og félagsmálaráðuneyt- um. Talið kom til álita að Oddný komi inn en ekki Guðbjartur Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins er málið ekki talið svo einfalt í Samfylkingunni þar sem þá yrði kynjahlutfallið ekki lengur jafnt í ráðherraliðinu. Því mun það koma til álita að það verði Oddný Harðardóttir en ekki Guðbjartur sem komi ný inn í rík- isstjórn ásamt Ögmundi Jónassyni sem verður innanríkisráðherra yfir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Biðlaunaréttur ráðherra sem lætur af störfum er ýmist þrír eða sex mán- uðir, eftir því hversu lengi þeir hafa verið í embætti. Hafi ráðherra verið skemur en eitt ár í starfi fær hann þriggja mánaða biðlaun en hafi hann verið ráðherra í eitt ár eða lengur er biðlaunarétturinn sex mánuðir, sam- kvæmt upplýsingum frá forsætis- ráðuneytinu. Biðlaun eru jafnhá ráðherra- launum. Byrjar strax að líða Réttur til biðlauna reiknast frá þeim degi sem ráðherrar láta af emb- ætti, að sögn Óðins H. Jónssonar, skrifstofustjóra í forsætisráðuneyt- inu. Miðað við þessar upplýsingar þá fær ráðherra, sem lætur af embætti 2. september, ráðherralaun fyrir fyrstu tvo dagana í september en bið- laun eftir það. Biðlaunagreiðslum þessa ráðherra yrði lokið frá og með 1. mars 2011. Taki ráðherra við öðru starfi í þjónustu ríkisins eða annars aðila áð- ur en þriggja eða sex mánaða tíminn er liðinn falla biðlaunagreiðslur niður ef launin í nýja starfinu eru jöfn eða hærri en þau sem hann hafði áður. Ef launin í nýja starfinu eru lægri skal hann fá launamismuninn greiddan þar til þriggja eða sex mánaða tíma- bilinu er náð, s.s. ef um þingstörf er að ræða, þá greiðist aðeins mis- munur. Þegar aðstoðarmaður ráðherra lætur af störfum um leið og ráðherra á hann rétt á ígildi biðlauna í þrjá mánuði frá þeim degi sem hann lætur af störfum. Fari hann í annað starf hjá ríkinu á hann ekki rétt á biðlaun- um. Laun ráðherra eru 855.000 krón- ur á mánuði, að meðtöldu þingfar- arkaupi sem er 520.000 krónur á mánuði skv. úrskurði kjararáðs. Heildarlaun forsætisráðherra eru 935.000 krónur á mánuði. Ráðherrar sem hætta fá biðlaun í sex mánuði  Falla niður ef nýtt starf er betur launað er byrjuð ÚTSALAN 20-50% afsláttur Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir urðu ráðherrar þegar ríkisstjórn Samfylk- ingar og Vinstri grænna tók við völdum 1. febrúar 2009. Sú ríkisstjórn sat í rúmlega þrjá mánuði, með stuðningi Framsóknarflokksins. Í aðdraganda kosninga 2009 og í stjórnarmynd- unarviðræðum sögðu for- menn ríkisstjórnarflokkanna ítrekað að þau Gylfi og Ragna hefðu staðið sig vel og svo fór að þau voru áfram ráðherrar í meiri- hlutastjórn þessara flokka. Þegar sú stjórn tók við völdum, 10. maí 2009, fjölgaði ráðherrum úr 10 í 12. Ragna og Gylfi eru ekki alþingismenn og hafa bæði verið fagráðherrarnir í ríkisstjórninni. Skoðanakannanir hafa jafnan sýnt mikinn stuðning við störf þeirra. Í Þjóðarpúlsi Gallup frá því í apríl á þessu ári kom fram að mest ánægja var með þeirra störf, um 65% sögðust ánægð með störf Rögnu og 49% sögðust ánægð með störf Gylfa. Einnig má nefna að í Þjóðarpúlsinum í júní mældist 75% stuðningur við fækkun ráðuneyta og var stuðningurinn sérstaklega mikill meðal kjósenda Samfylkingar og Vinstri grænna. Gylfi var dósent í hagfræði við Háskóla Íslands og Ragna var skrif- stofustjóri í dómsmálaráðuneytinu. Afar sjaldgæft er að ráðherrar séu ekki þingmenn. Frá árinu 1919 hafa verið 19 ráðherrar sem ekki eru jafnframt þingmenn. Síðastliðna hálfa öld hafa verið skipaðir fimm utanþings- ráðherrar. Í 51. grein stjórnarskrárinnar er sérstaklega gert ráð fyrir því að ráðherrar séu ekki jafnframt þingmenn. Úr háskóla og ráðuneyti VINSÆLIR RÁÐHERRAR SÓTTIR ÚT FYRIR ALÞINGI Ragna Árnadóttir og Gylfi Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.