Morgunblaðið - 02.09.2010, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2010
Þrautseigja Steingríms J. Sigfús-sonar formanns VG og Jóhönnu
Sigurðardóttur formanns Samfylk-
ingarinnar hefur orðið til þess að nú
eru fulltrúar þeirra „sestir að samn-
ingaborði“ í Hollandi til að reyna að
knýja fram „samning“ við Hollend-
inga og Breta um greiðslu íslenskra
skattgreiðenda á annarra manna
skuld.
Það þurfti mik-inn og ein-
beittan brotavilja
af hálfu Stein-
gríms og Jóhönnu
til að ná þessum
fundi enda hafa
rökin gegn þeim
alltaf verið skýr.
Aldrei þó jafn
skýr og nú.
Nú er svo komið að svo að segjaallir sem til þekkja og allar
stofnanir sem máli skipta, innlendar
og erlendar, telja að engin ríkis-
ábyrgð hafi verið á Icesave-
reikningunum.
Steingrímur sjálfur hefur viður-kennt að íslenska ríkinu beri
engin lagaleg skylda til að greiða
þessa reikninga.
Þegar nánast óumdeilt er orðið aðÍsland ber ekki ábyrgð á
greiðslum vegna Icesave, hvernig
má þá vera að ríkið haldi áfram við-
ræðum við óbilgjarna kröfuhafana
um að greiða engu að síður?
Er það virkilega svo að Stein-grímur lætur sig ekki aðeins
hafa það að samþykkja umsókn að
ESB og aðlögunarviðræður við sam-
bandið fyrir ráðherrastól, heldur er
einnig tilbúinn að láta skattgreið-
endur bera skuldaklafa um langt
árabil í sama tilgangi?
Hversu dýr telur Steingrímur aðráðherrastóll hans megi verða?
Steingrímur J.
Sigfússon
Ólögmætar viðræður hafnar á ný
Veður víða um heim 1.9., kl. 18.00
Reykjavík 15 skýjað
Bolungarvík 16 alskýjað
Akureyri 15 skýjað
Egilsstaðir 17 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 13 alskýjað
Nuuk 12 skýjað
Þórshöfn 11 skýjað
Ósló 17 léttskýjað
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Stokkhólmur 13 skýjað
Helsinki 15 skýjað
Lúxemborg 17 heiðskírt
Brussel 17 léttskýjað
Dublin 17 skýjað
Glasgow 18 heiðskírt
London 18 heiðskírt
París 22 heiðskírt
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 17 léttskýjað
Berlín 17 léttskýjað
Vín 17 léttskýjað
Moskva 7 skýjað
Algarve 27 léttskýjað
Madríd 26 skýjað
Barcelona 26 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 26 léttskýjað
Aþena 26 léttskýjað
Winnipeg 15 skýjað
Montreal 28 heiðskírt
New York 33 heiðskírt
Chicago 23 alskýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR KL. 12 Í DAG
2. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:14 20:42
ÍSAFJÖRÐUR 6:12 20:54
SIGLUFJÖRÐUR 5:54 20:37
DJÚPIVOGUR 5:41 20:13
Björn Ingvarsson, fyrr-
verandi yfirborgardóm-
ari í Reykjavík og lög-
reglustjóri á Kefla-
víkurflugvelli, lést á
Hrafnistu í Hafnarfirði
laugardaginn 28. ágúst
sl., 93 ára að aldri.
Björn fæddist í
Reykjavík 20. maí 1917,
sonur Ingvars Guðjóns-
sonar, skipstjóra og út-
gerðarmanns í Kaup-
angi í Eyjafirði, og
Jónínu Björnsdóttur,
húsfreyju og prestsfrú-
ar á Laugalandi í Eyja-
firði. Stjúpfaðir Björns var Benja-
mín Kristjánsson, prestur og
prófastur á Syðra-Laugalandi.
Björn varð stúdent frá MA 1938
og lauk embættisprófi í lögfræði frá
Háskóla Íslands 1944. Héraðsdóms-
lögmaður varð Björn í júlí 1946.
Björn sótti námskeið hjá Sameinuðu
þjóðunum í New York 1949 og
dvaldi við nám í Genf og London ár-
in 1953-54 þar sem hann kynnti sér
meðferð afbrotaunglinga. Björn var
í Nato Defence College í Róm 1973.
Að loknu lagaprófi bjó Björn í
Kaupangi í Eyjafirði og fékkst við
lögfræðistörf, útgerð og búskap árin
1944-47. Björn flutti síðan ásamt
konu sinni til Hafnarfjarðar og tók
við starfi fulltrúa hjá
bæjarfógetanum í
Gullbringu- og Kjós-
arsýslu. Árið 1954 var
Björn settur lög-
reglustjóri á Keflavík-
urflugvelli og sinnti
því starfi til ársloka
1973. Björn var skip-
aður yfirborgardóm-
ari í Reykjavík 1974
og starfaði þar til árs-
ins 1987 er hann lét af
störfum sökum ald-
urs.
Björn var mikill
hestamaður meðan
honum entist heilsa, hann gegndi
formennsku í hestamannafélaginu
Sörla í Hafnarfirði árið 1964 og fyrir
störf sín í þágu félagsins var hann
gerður að heiðursfélaga.
Björn var gerður að heiðursfélaga
í American Judge’s Association árið
1979 og var sæmdur heiðursskildi af
varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli er
hann lét af störfum lögreglustjóra.
Eiginkona Björns var Margrét
Þorsteinsdóttir húsfreyja. hún lést
árið 2009. Börn þeirra eru Ingvar
lögfræðingur, fæddur 1944, látinn
1997, Þorsteinn prentari, fæddur
1945, og Björn kaupmaður, fæddur
1947, látinn 2009. Barnabörnin eru
níu.
Andlát
Björn Ingvarsson
Neskaupstaður | Hjallaskógur í
Neskaupstað nýtur sívaxandi vin-
sælda sem útivistarsvæði. Mörg
leynifélög hafa aðsetur í skóg-
inum og fullorðnir bisa við að
halda sér í formi með því að
hlaupa og ganga skógarstígana.
Þessa dagana keppast menn svo
við að lesa ber. Skólarnir eru líka
duglegir að nýta skóginn til hvers
konar fræðslu- og skemmtiferða.
Fyrir tveimur árum fékk Nes-
skóli úthlutað svæði í skóginum
til afnota og hafa kennarar síðan
þá notað tækifærið og aflað sér
þekkingar um útikennslu. Um
liðna helgi lærðu kennarar í
Fjarðabyggð og aðrir áhugamenn
listina að elda úti við opinn eld í
Hjallaskógi. Það var Guðmundur
Finnbogason frá Útieldhúsi sem
sá um kennsluna, en námskeið
hans hafa notið mikilla vinsælda
undanfarið. Fullbókað var á nám-
skeiðið og komust færri að en
vildu.
Leynifélög halda
til í Hjallaskógi
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Eldað utandyra Í Hjallaskógi er ágætis útieldhús sem margir sýna áhuga.
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Síminn kynnti í dag verðbreyt-
ingar á þjónustu sinni sem taka
gildi frá og með 1. október næst-
komandi.
Síminn segir áhrif breyting-
anna vera 4,5% hækkun á með-
alreikningi heimils.
Tafla með verðbreytingunum
hefur verið birt á vefsíðu Símans.
Með verðbreytingunni sem tekur
gildi 1. október hefur þjónusta
Símans hækkað 13,8% síðastliðna
24 mánuði.
Rukka fyrir netreikninga
Síminn byrjar þá að rukka
fyrir netreikninga en við-
skiptavinum hefur hingað til boðist
að fá reikning sinn birtan í heima-
banka sínum í stað þess að fá hann
sendan heim til sín. Seðilgjaldið er
250 kr. og helst óbreytt en net-
reikningurinn, sem áður var gjald-
frjáls þjónusta, kostar nú 60 kr.
Margrét Stefánsdóttir, for-
stöðumaður samskiptasviðs Sím-
ans, segir óhjákvæmilegt að inn-
heimta seðilgjald á netreikninga.
„Við sáum fyrir okkur fyrst að
þetta gæti verið ókeypis en svo er
það bara þannig að það er kostn-
aður í þessu fyrir okkur. Verðið er
ekki jafn hátt og kostnaðurinn er
fyrir okkur en við sáum bara, því
miður, að við þurfum að setja þetta
gjald á en það er miklu lægra en
það sem er sett á seðlana. Þetta er
bara svona, það kemur þarna
kostnaður frá bankanum.“
Þá lækkar verð á símtölum úr
heimasíma í alla farsíma og einnig
úr farsíma í farsíma í öðrum kerf-
um. Sú verðlækkun tók gildi í gær.
Símreikningar
hækka um 4,5%
Ný verðskrá tekur gildi 1. október
Síminn Hækkar verðskrá sína.