Morgunblaðið - 17.09.2010, Page 1
F Ö S T U D A G U R 1 7. S E P T E M B E R 2 0 1 0
Stofnað 1913 217. tölublað 98. árgangur
KENNDU MÉR
AÐ KYSSA RÉTT
OG FESTA TÖLU
ALLT UM
HEIMILI OG
HÖNNUN
HAMINGJAN
ÞARF ELDSNEYTI
OG VIÐHALD
LIFUN 32 SÍÐUR HEIMUR REBEKKU LÍFAR 11SVONA Á AÐ....HANDBÓK 10
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Einungis um helmingur þingflokks
Samfylkingarinnar mætti til fundar í
húsakynnum Samfylkingarinnar í
gærkvöldi, með Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur, fyrrverandi formanni
Samfylkingarinnar og utanríkisráð-
herra. Athygli vakti að Össur Skarp-
héðinsson gekk af fundi löngu áður
en honum lauk, eða á tíunda tím-
anum.
Ingibjörgu Sólrúnu var sl.
sunnudag gefinn kostur á að mæta
til slíks fundar til að útskýra sín
sjónarmið í ljósi skýrslu þingmanna-
nefndar um viðbrögð við rannsókn-
arskýrslunni um bankahrunið.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins átti sér stað hreinskiptin
og opinská umræða á fundinum í
gærkvöldi, án þess að einhver hrein
niðurstaða fengist.
Heimildir Morgunblaðsins
herma að flestir fundarmanna hafi
verið fyrrverandi formanni afar hlið-
hollir, en ekkert liggur þó fyrir hver
verður afstaða sumra þeirra sem
sátu fundinn. » 16
Aðeins helmingur
mætti til fundarins
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Ríkisstjórnin hyggst beita sér fyrir
lagasetningu sem gerir það að verk-
um að allir þeir sem tekið hafa bíla-
eða húsnæðislán með tengingu við
erlenda gjaldmiðla sitji við sama
borð. Árni Páll Árnason, efnahags-
og viðskiptaráðherra, tilkynnti þessa
fyrirætlan á blaðamannafundi í kjöl-
far úrskurðar Hæstaréttar í gær.
Með úrskurði sínum staðfesti
Hæstiréttur dóm héraðsdóms, frá
því fyrr á árinu, um vaxtakjör bíla-
lánasamnings sem Lýsing gerði við
viðskiptavin sinn. Báðir aðilar
áfrýjuðu úrskurði héraðsdóms. Að-
alkrafa Lýsingar fyrir Hæstarétti
var að miða skyldi við breytingar á
vísitölu neysluverðs, við endurreikn-
ing lánsins. Á þetta var ekki fallist.
Samkvæmt úrskurðinum nú skal
miða við lægstu óverðtryggðu vexti
Seðlabankans, en ekki samnings-
vexti, líkt og lántaki gerði kröfu um.
Niðurstaða Hæstaréttar verður lögð
til grundvallar lagasetningunni.
Eyða langvarandi óvissu
„Við höfum lengi vitað að skulda-
staða í erlendum gjaldmiðlum hefur
verið útblásin og það hefur blasað við
að það þyrfti að lækka þá skulda-
stöðu. Þessi dómur gefur okkur færi
á að horfast í augu við staðreyndir,
og greiða fyrir því að heimilin komi
fjármálum sínum í horf,“ sagði Árni.
Hann lagði á það áherslu að annað
gilti um lán til fyrirtækja. „Það er að
mínu mati mikilvægt að ekki ríki vafi
um lögmæti þeirra,“ sagði Árni, ein-
staklingar séu ekki í sömu aðstöðu til
að meta þá fjármögnunarkosti sem
þeim bjóðist. Eftirgjöf til fyrirtækja
með gengisbundin lán þýddi gríðar-
legt högg á fjármálakerfið. Afleið-
ingar fyrirhugaðrar lagasetningar
munu leiða til 43 milljarða króna
kostnaðar fyrir fjármálakerfið.
Lagasetning í kjölfar dóms
Morgunblaðið/Golli
Samræmi Már Guðmundsson, Árni Páll Árnason og Gunnar Andersen á blaðamannafundinum í gær.
Hæstiréttur úrskurðar að notast skuli við óverðtryggða vexti Seðlabankans
Ráðherra boðar lagasetningu um vaxtakjör gengisbundinna lána einstaklinga
MDómur Hæstaréttar »6, 14
Uppgjöri og endurútreikningi bíla-
lána og kaupleigusamninga verður
hraðað í fjármálastofnunum í kjölfar
dómsins. Í frétt Landsbanka segir að
dómurinn hafi „nokkur áhrif á SP-
Fjármögnun hf., dótturfélag bank-
ans. Landsbankinn mun hins vegar
styðja SP-Fjármögnun hf. þannig að
staða viðskiptavina fyrirtækisins
verði trygg.“
Halldór Jörgensson, forstjóri Lýs-
ingar, segir að framundan sé mikil
vinna við úrvinnslu mála.
Hann segir að enn eigi eftir að
skera úr um ýmis álitamál, til dæmis
þegar eigendaskipti hafa orðið á bíl-
um. Vonast hann til að frumvarp
efnahags- og viðskiptaráðherra taki
á sem flestum vafamálum. „Þetta er
þungt högg en viðráðanlegt,“ segir
Halldór.
„Þetta er að mínu viti sú leið sem
mesta sáttin getur orðið um í sam-
félaginu. Niðurstaðan er jákvæð fyr-
ir fjármálakerfið og landsmenn
alla,“ segir Magnús Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Avant.
„Þungt högg
en viðráðanlegt“
„Sú niðurstaða að vextir skuli á
hverjum tíma vera jafnháir lægstu
óverðtryggðu vöxtum Seðlabanka
Íslands getur reynst skuldurum
þungur baggi,“ segir Ásta S. Helga-
dóttir, umboðsmaður skuldara.
„Þetta er sú niðurstaða sem ég
átti síst von á,“ segir Gísli Tryggva-
son, talsmaður neytenda, um dóm
Hæstaréttar. „Það var langt bil
milli ýtrustu krafna og mér fannst
vanta millikröfur sem hefðu verið
sanngjarnari málamiðlun.“
„Forsendur Hæstaréttar eru allt
aðrar en Héraðsdóms og taka ekk-
ert á forsendubresti lántaka. Því er
ljóst að höfða verður nýtt mál ef fá
á úr því skorið hvort lántaki hafi
orðið fyrir forsendubresti,“ segir
Marinó G. Njálsson stjórnarmaður í
Hagsmunasamtökum heimilanna.
Vextirnir geta
orðið þungur baggi
Fjórir karlmenn og tvær konur sem
nú sitja í gæsluvarðhaldi eru í sam-
einingu talin hafa svikið út um 270
milljónir króna með því að fá end-
urgreiddan virðisaukaskatt af upp-
lognum framkvæmdum. Látið var
líta út fyrir að um milljarði hefði ver-
ið varið til að endurbæta tvö hús á
höfuðborgarsvæðinu en þær fram-
kvæmdir áttu sér aldrei stað, fólkið
sem er í haldi átti ekki umrædd hús
og eigendur húsanna voru grunlaus-
ir um svikin, að sögn lögreglu.
Meðal þeirra sem eru í gæsluvarð-
haldi er starfsmaður ríkisskatt-
stjóra. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins hefur hluti þeirra sem
eru í haldi tengst fíkniefnamálum.
Lagt hefur verið hald á einhverja
fjármuni í tengslum við rannsókn
málsins.
Gert ráð fyrir endurgreiðslu
Reglur um virðisaukaskatt gera
m.a. ráð fyrir að þeir sem standa í
endurbótum á atvinnuhúsnæði fái
endurgreiddan virðisaukaskatt.
Skatturinn er síðan innheimtur þeg-
ar húsnæðið er selt eða það sett í út-
leigu. Í þessu tilviki virðist sem um
hreinræktaða svikamyllu hafi verið
að ræða því engar framkvæmdir
voru að baki reikningum fyrir um
milljarð króna sem voru grundvöllur
fyrir endurgreiðslu virðisauka-
skattsins.
Auðgunarbrotadeild lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu rannsakar
málið. Hún komst á sporið þegar
fjármálastofnun tilkynnti henni um
grunsamlegar millifærslur. Upp-
hæðirnar sem gengu á milli reikn-
inga sakborninga voru óeðlilegar og
hærri en áður höfðu sést hjá viðkom-
andi. »2
Eigendur vissu ekkert
Talin hafa svikið út 270 milljónir vegna falsframkvæmda
„Þó að einhverjir verði ekki alveg ánægðir af því að
þeir fengu ekki jafn mikið og þeir vildu þá er það
bara lífsins gangur. En ég held að þegar frá líði
muni þetta létta okkur róðurinn,“ sagði Már Guð-
mundsson seðlabankastjóri á blaðamannafundi í
gær. Ekki voru allir á eitt sáttir í kjölfar úrskurðar
Hæstaréttar um vaxtakjör á gengisbundnu bíláláni.
Már segir að lamað bankakerfi hjálpi engum og nið-
urstaðan sé góð að því leyti að horfur hvað fjár-
málastöðugleika varði séu góðar. Lausafjárstaða
bankanna sé til dæmis almennt góð. Þeir séu auk-
inheldur enn á bak við höft, og því engin hætta á
því að áhlaup verði gert á þá erlendis frá, líkt og
gerðist síðla árs 2008. Með því að aflétta hinni
miklu óvissu sem ríkt hefur um fjárhagsstöðu og
styrk bankakerfisins sé hins vegar verið að skapa
skilyrði til þess að hefja vinnu við afnám þeirra
hafta sem verið hafa á fjármagnshreyfingum.
„Svona er bara lífsins gangur“