Morgunblaðið - 17.09.2010, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 17.09.2010, Blaðsíða 38
38 MENNINGFólk MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2010 Fólk Blússveitin með skemmtilega nafnið, Lame Du- des, ætlar í kvöld að blúsa á tónleikum á Dillon Rock Bar, Laugavegi 20, kl. 22 og bera þeir yf- irskriftina „Blues for far“. Fyrst á svið verður hljómsveitin Brimlar sem leikur „surf“ tónlist, þ.e. brimbrettatónlist. Ókeypis er á tónleikana og því engin fyrirstaða nema hugsanlega hús- rúm. Lame Dudes ætlar að flytja lög af nýlegri plötu sinni Hversdagsbláminn en á henni er blús- að um margt forvitnilegt, m.a. um hugarástand einkaþjálfara sem þjálfar endalausan fjölda kvenna daginn út og inn, ferðir í Sorpu, „mædda mathákinn“ og þriðjudagsbíóferðir. Í Lame Dudes eru þeir Hannes Birgir Hjálm- arsson (söngur og gítar), Snorri Björn Arnarson (gítar), Jakob Viðar Guðmundsson (bassi), Kol- beinn Reginsson (bakraddir og gítar) og Niels Peter Scharff Johansen (trommur). Sveitin hefur verið að í ein fjögur ár. Blaðamaður sló á þráð- inn til Hannesar sem semur texta við lög sveit- arinnar og spurði fyrst hvort Lame Dudes væri grínblússveit? „Það er smá kaldhæðni alla veg- ana, smá kaldhæðni líka,“ svaraði Hannes. – Þú hefur greinilega upplifað ýmislegt? „Upplifað eða heyrt,“ svarar Hannes og hlær. – Ert þú „mæddi mathákurinn“? „Eigum við ekki að segja að í huga manns gæti maður verið svona, ef maður fengi að borða allt sem mann langar að borða,“ svarar Hannes en sá texti segir af matháki sem er mæddur yfir því hvað honum finnst gott að borða. Hvað einka- þjálfarann varðar segir Hannes skyggnst inn í hugarheim kroppatemjarans. En fylgir því tregi að þjálfa konur? „Kannski er treginn falinn í því að þú getur ekki leyft þér allt sem þér dettur í hug,“ svarar Hannes og hlær að þeim vangavelt- um. En að tónlistinni. Hvernig blús spilar Lame Dudes? „Ætli það myndi ekki kallast blúsrokk, áhrifavaldarnir JJ Cale og Clapton, dálítið í þeim stílnum.“ helgisnaer@mbl.is Þriðjudagsbíóblús og einkaþjálfarablámi Tregi Skyldi þessi þjálfari vera fullur trega?  Fyrsti erlendi gestur Alþjóð- legrar kvikmyndahátíðar í Reykja- vík, RIFF, er kominn til landsins, franski tónlistarkvikmyndagerð- armaðurinn Vincent Moon. Moon hefur unnið með ekki ómerkari hljómsveitum og tónlistarmönnum en R.E.M., Sigur Rós, Tom Jones og Arcade Fire m.a. Hann er þekkt- astur fyrir sérstæðar tónleika- upptökur sínar sem hann kallar Take Away Shows, hittir hljóm- sveitir og tónlistarmenn á óvenju- legum stöðum, t.d. salernum, og tekur þar upp flutninginn með einni kvikmyndatökuvél. „Nokkrar af helstu upptökum Moon verða sýndar á RIFF, og í tengslum við sýninguna mun hann segja frá aðferðum sínum og hvern- ig hann nálgast tónlistarmennina á þennan óhefðbundna hátt. Þá ætlar hann að safna saman nokkrum ís- lenskum tónlistarmönnum og hljómsveitum og taka upp tónlistar- flutning þeirra á óhefðbundnum stöðum hér á landi,“ segir um Moon á vef RIFF. Áhugasömum er bent á heimasíðu hans, vincentmoon.com. Vill vinna með íslensk- um tónlistarmönnum  Hljómsveitin Greifarnir og út- varpsmaðurinn Siggi Hlö ætla að skemmta gestum á Sjallanum á Ak- ureyri annað kvöld og hefst gleðin kl. 11.30, að því er fram kemur á Fésbókarsíðu. Það má því segja að þeir sem kunna að meta tónlist ní- unda áratugar síðustu aldar fái góðan skammt þegar þessir menn koma saman. Greifana þekkja flest- ir sem komnir eru yfir þrítugt og Siggi hefur þeytt „eitís“ skífum á Bylgjunni lengi vel. Níundi áratugurinn rifj- aður upp á Sjallanum  Kvikmyndin Reykjavik Whale Watching Massacre hlaut Uni- com verðlaunin fyrir bestu mynda- töku á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Estepona á Spáni, Fantastic Costa del sol International Film Fest. Hátíðin hófst 6. september og lauk 12. september sl. Á spænsku nefnist hátíðin XI Sem- ana internacional de cine fantas- tico de la Costa del sol og er hald- in við strandlengjuna sólríku sem Íslendingum er að góðu kunn. RWWM hlaut verðlaun fyrir kvikmyndatöku Hugrún Halldórsdóttir hugrun@mbl.is Stelpurnar úr alþjóðlega dans- og tónlistarhópnum Raven bjóða til sýningar í stúdíói Klassíska list- dansskólans dagana 17., 18. og 19. september kl. 20. Á sunnudeginum verður hópurinn einnig með opið hús á milli kl. 14 og 18 þar sem sýnd verða minni verk og mynd- bandsverk af því sem þær hafa gert í gegnum tíðina. Innblástur úr þjóðsögum „Sýningin er samansett af 40 mínútna verki sem ber nafnið Hulda, og síðan er styttra verk sýnt eftir það sem heitir Hrefna. Í fyrsta verkinu hafa stelp- urnar fengið inn- blástur úr þjóðsög- um og ís- lenskum huldusög- um. Þær reyna að og tveimur sænskum stelpum og svo einni frá Ungverjalandi. Seinna bættist við stelpa frá Englandi og svo önnur frá Ítalíu, en þær voru flestallar að læra saman í Bret- landi.“ Hópurinn kemur nú saman í fyrsta skiptið til Íslands en hann vonast til að finna sér aðsetur hér á landi. „Þetta er sjálfstætt starfandi listdanshópur sem hefur verið að vinna að ólíkum verkum síðan hann var stofnaður. Þær segja sjálfar að hópurinn noti mismunandi aðferðir til að skapa verk sín og vinni mikið með spuna og rannsóknarvinnu innan og utan stúdíósins. Það að vinna með ólík form hefur einnig áhrif á verk þeirra. Markmið hóps- ins er að halda áfram að þróa verk- in og ferðast um með þau innan- lands sem erlendis. Þannig vilji þær mynda tengsl við listamenn hvaðanæva úr heiminum.“ Að sögn Bryndísar er miðaverð á sýningu 1.000 kr, og innifalinn í því sé aðgangur að opna deginum. „Það kostar svo eitthvað aðeins minna að koma bara á sunnudeg- inum en það er miklu skemmtilegra að koma líka á kvöldsýningarnar,“ segir Bryndís að lokum. Dansinn dunar um helgina  6 stúlkur dansa í myrkum sal  Kynntust í Bretlandi  Eru saman- komnar á Íslandi í fyrsta sinn  Alþjóðleg djass-hljómsveit með í för Myrkur Dansinn mun fara fram í myrkvuðum sal svo það er eins gott að vera búin að æfa öll skrefin vel og vandlega. Klassíski listdansskólinn lét ekki sitt eftir liggja fyrir sýninguna og breytti rúmu 300 fermetra dans- stúdíói í blackbox-sýningarsal til að hún yrði sem mikilfenglegust. „Við erum búin að gera gólf og veggi svarta til þess að búa til það myrkur sem þarf inn í salnum. Síð- an erum við með lýsingu og tækni- menn sem gera salinn alveg æði- slega flottan. Þetta var rosalega mikið verk en æðislega skemmti- legt og gefandi,“ segir Bryndís glöð í bragði. „Í salnum eru bekkir alveg upp við dansgólfið og það er engin upphækkun þannig að það verður mikil nánd. Við erum með pláss fyrir upp í 90 manns.“ Bryndís segir skólann ekki hafa ráðist í jafn miklar breytingar á salnum áður en það sé nú gert með þarfir nemenda og annarra dansara að leiðarljósi. „Við erum að reyna að gera að- stöðuna frábæra fyrir okkar nem- endur niðri í skóla. Það er rosaleg aukning í dansi og alltaf gott að hafa framboð á góðu húsnæði. Hugsunin er að aðrir sem eru fyrir utan skólann geti komið og nýtt aðstöðuna hjá okkur og þannig fáum við góða nýtingu á húsnæð- inu. Íslensku stelpurnar úr hópn- um, Hrafnhildur og Ellen, eru út- skrifaðar úr skólanum okkar en þær hringdu í okkur og báðu um að fá að sýna hér. Það er alltaf gaman að styðja við gamla nem- endur og unga listamenn,“ segir Bryndís að lokum. Dansað í Myrkraveröld BREYTTU HEILU DANSSTÚDÍÓI Í BLACKBOX SÝNINGARSAL Bryndís St. Friðgeirsdóttir Nánari upplýsingar má finna á www.raven.is því stelpurnar njóta liðstyrks djasshljómsveitarinnar ATOS sem spilar lifandi tónlist meðan á sýn- ingu stendur. Vinna mikið með spuna „Hópurinn var myndaður í Lond- on árið 2008 af tveimur íslenskum gera þetta svolítið mystískt og velta fyrir sér hvað býr í náttúr- unni og hvernig maður upplifir hlutina, hvað er hulið, hvað maður sér og finnur,“ segir Bryndís St. Friðgeirsdóttir framkvæmdastjóri Klassíska listdansskólans. Það verður engin lognmolla í skólanum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.