Morgunblaðið - 17.09.2010, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 17.09.2010, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2010 Hann var fróður um alla tónlist og hafði sínar skoðanir á hlutunum. Margar voru ferðirnar austur fyrir fjall að líta eftir Skerplu, hestinum hans. Þá glaðnaði yfirleitt yfir Baldri, hann var kominn í annan heim og þá sá maður svo vel sveitastrákinn í hon- um. Hann naut sín í náttúrunni innan um dýrin og það var unun að sjá hvað hann naut þess að vera í sveitinni. Þetta gaf honum svo mikinn sálar- kraft á meðan hann gat ferðast þetta á milli, einnig sá maður hvað hrossið tók iðulega vel á móti honum. Þetta voru fagnaðarfundir. Hefðin fyrir skötu byrjaði þegar Baldur kom í fjölskylduna. Það var alltaf tilhlökkun hjá Baldri að fá skötuveislu á Þorláksmessu. Þá kom fjölskyldan saman og var þetta byrjun jólahátíðarinnar. Með hverju ári komu alltaf fleiri og fleiri í hópinn og í dag er þetta orðin ómissandi hefð hjá okkur, ekki síst vegna áhrifa Baldurs. Á aðfangadagskvöld var fastur liður að Gunna og Baldur væru hjá okkur, þegar þau voru á landinu. Á gamlárs- kvöld borðuðum við alltaf saman og nutum flugeldanna í Garðabænum. Þetta var skemmtilegur tími og eigum við margar góðar minningar frá þess- um tíma. Ávallt var gaman að koma til þeirra Gunnu og Baldurs á Vesturbrún þar sem þau tóku vel á móti okkur og við fundum þeirra hlýhug til okkar. Við þökkum Baldri fyrir allt það sem hann hefur kennt okkur og var það okkur dýrmæt gjöf. Þar sem Baldur var mikið skáld og ljóðaunnandi, skrifaði hann ljóð sem við höfum notað í okkar námi og er okkur kært: Hausti fylgir vetur með vályndi og snjó. Síðan lifnar vorið með söngfugl í mó. Seint kemur sumar en kemur þó. (Baldur Pálmason) Biðjum algóðan guð að varðveita hann. Ingólfur, Guðrún Sigríður og Páll Ólaf. Í dag er kvaddur mætur maður, Baldur Pálmason, og hugurinn hvarflar aftur til löngu liðins tíma. Baldur og Þórhallur, faðir minn heitinn, voru skólabræður og góðir vinir. Leiðir þeirra lágu saman í Verslunarskóla Íslands og útskrif- uðust báðir þaðan vorið 1938. Þeir félagarnir voru um margt ólíkir menn enda bentu hæfileikar þeirra hvorum um sig inn á ólíkar brautir. Að námi loknu fyrir margt löngu, enn ungir og ólofaðir, lögðu þeir vin- irnir saman upp í langferð um Vest- firði. Frá þeirri ferð áttu báðir góðar minningar. Í afmælisgrein til föður míns í janúar 1980 segir Baldur frá gönguferðinni á sinn hljómþýða og ljóðræna frásagnarmáta. „Betra miklu þykir mér en ekki að hafa þó farið eina langferð um ævina fót- gangandi með bakpoka um heiðar- vegi og hálsa, firði og dali vors fagra lands“. Í leiðarlýsingu Baldurs hefur ferðin legið frá Kollabúðum yfir Þorskafjarðarheiðina til Arngerð- areyrar, þaðan yfir í Dýrafjörð og loks yfir heiðarhálsana til Patreks- fjarðar. Hygg ég að fræknustu göngugörpum í dag þyki þetta bara dágóður spotti. Segir hann það ekki hafa brugðist að heimamenn segðu þann og þann hálsinn eða heiðina vera farna á u.þ.b. helmingi skemmri tíma en reyndist vera og gengu þeir félagarnir þó fullum fetum. Góðar viðtökur fengu þeir hjá frændfólki beggja bæði á Þingeyri og Sveins- eyri. Sá vinskapur sem grunnur hafði verið lagður að á unglingsárun- um hélst eftir að Guðný Sesselja og móðir mín, Guðríður Ingibjörg, komu til sögunnar og var glatt á hjalla þegar komið var saman. Báðir höfðu þeir Baldur og faðir minn mikið yndi af taflmennsku og voru klúbbfélagar í áratugi og hafa án efa báðir oft orðið fyrir barðinu á harðskeyttum leikjum hvor annars. En báðir voru þeir bjartsýnismenn í skákinni sem og í lífinu og gengu ódeigir og sigurreifir að næstu skák. Ég var svo lánsöm að sækja píanó- tíma í sama húsi og Baldur og Sissa bjuggu í á Egilsgötunni. Alltaf var jafn gott að koma til þeirra hvort sem var fyrir eða eftir tímana. Sissa fylgdist vel með því hvernig námið sóttist og hvatti mig til dáða og veit ég að ég bý að því í dag. Blessuð sé minning þeirra hjónanna Baldurs og Sissu. Þórunn Þórhallsdóttir. Hrifning er fyrirbæri sem ekki er alltaf auðvelt að skilgreina, enda oft og tíðum fremur huglægt fyrirbæri en hlutlægt. Baldur Pálmason var hrifnilykill minn að Ríkisútvarpinu upp úr miðri síðustu öld. Barnatím- arnir hans höfðu forgang í þéttskip- aðri leikjadagskrá drenghnokka í Reykholtsdalnum, og þegar þættirn- ir voru sendir út var öllu öðru slegið á frest. Slíkur var máttur þessa raddfagra manns. Með hálfum huga var bréf sent í barnatímann, ferðasaga nokkurra stráka úr dalnum sem hjólriðu í Surtshelli. Mér var lengi strítt á því að aðalatriði frásagnarinnar var hve oft við hituðum kakó á leiðinni. Bald- ur las þetta eins og allt annað með sinni hljómþýðu rödd, og var ekkert að fækka kakófrásögnunum. Ég og bræður mínir hlustuðum af athygli, Ríkisútvarpið hafði eignast einlæg- an aðdáanda. Löngu síðar hitti ég goðsögnina Baldur Pálmason. Með lotningu heilsaði ég honum á námskeiði í dag- skrárgerð í útvarpinu árið 1977, og hann uppfyllti svo sannarlega vænt- ingar mínar. Prúðmenni og raungóð- ur vinur. Upp frá þessu leitaði ég oft til hans, m.a. til þess að fá álit hans á einhverjum skringilegum hugmynd- um mínum um heiti á þáttum sem ég stjórnaði. Ég man að „Fjölþing“ fannst honum dálítið framandi, en leyfði þó, en Stiklunafnið féll honum vel í geð. Í þeim þætti, sem var með blönduðu efni, voru hlustendur beðnir um að botna fyrripart sem Borgfirðingurinn Páll Bergþórsson lét mér í té, og með okkur í dóm- nefnd fékk ég engan annan en átrún- aðargoð mitt frá fyrri tíð, Baldur Pálmason. Samstarf okkar þriggja var með miklum ágætum, ekki síst vegna ljúfmennsku þeirra félaga og vandaðra vinnubragða við val á botnum til flutnings í þættinum. Fyrir það er ég þakklátur, það er ég og fyrir þau góðu ár sem ég átti samstarf við Baldur í Ríkisútvarp- inu. Blessuð sé minning góðs drengs. Óli H. Þórðarson. Við fráfall Baldurs Pálmasonar kemur margt upp í hugann. Í fyrsta lagi rödd hans í barnatímanum forð- um, og síðar ýmislegt efni bók- menntakyns, ætlað fullorðnum. Svo gerðist það að ég kynntist honum persónulega þegar ég kornungur varð þulur við Ríkisútvarpið. Baldur starfaði á dagskrárdeildinni og var ritstjóri dagskrár, sá um að búa dag- skrána í hendur þulum. Þá urðu samskipti okkar náin, og enn frekar síðar þegar ég fór að vinna við dag- skrárstjórn. Þá annaðist Baldur um kvöldvökurnar, tók saman dagskrár- þætti og las ýmislegt efni. Baldur Pálmason var einhver gagnvandaðasti maður sem ég hef kynnst. Enginn þurfti að draga heil- indi hans í efa. Hitt er annað mál að ekki féll öllum viðhorf hans í geð, fremur en gerist um skapfestumenn. Hann var þannig býsna ósveigjan- legur þegar kom að meðferð íslensks máls í útvarpi. Hann var málvönd- unarmaður í gömlum og góðum stíl. Menningarhlutverk útvarpsins var alveg skýrt fyrir honum. Einn þátt- ur þess, og ekki sá veigaminnsti, var sá að allir sem komu fram í dag- skránni vönduðu jafnt málfar sitt sem flutning. Virðingin fyrir starf- inu, stofnuninni og umfram allt hlustendum var það mið sem við skyldum ætíð hafa fyrir augum. Mér fannst afstaða Baldurs afar heil- brigð þótt hún væri nokkuð ströng, og hefur það mat styrkst eftir því sem tímar líða, svo mjög sem hefur slaknað á þeim málfarskröfum sem áður tíðkuðust í fjölmiðlum. Baldur vildi hlynna að íslenskri alþýðumenningu, ræktaði samband við skáld og fræðimenn og sá til þess að þeirra framlag væri ekki fyrir borð borið. Hann bar líka kirkju og kristni fyrir brjósti og lét ekki á sig fá þótt ýmsir ömuðust við boðskap af því tagi í dagskrá út- varpsins. Baldur var ekki þess hátt- ar maður að hann sveigðist eins og strá í vindsveipum tísku og tíðar- anda. Hann var trúr sjálfum sér. Baldur átti ýmis áhugamál sem ég bar lítt skyn á, eins og skák og hestamennsku. Það sem tengdi okkur saman voru fyrst og fremst bókmenntirnar. Hann unni skáld- skap, ekki síst ljóðum, og eru til í safni útvarpsins ýmsir góðir ljóða- þættir sem hann tók saman. Hann orti líka sjálfur, gaf út tvær bækur frumortra ljóða og eina með ljóða- þýðingum. Meðal þýðinganna eru söngtextar eins og Alparós (Edel- weiss) úr Sound of Music sem flestir þekkja. Frumortu ljóðin sýna manninn að baki ljóðanna, þar má kynnast heillyndi hans og mann- eskjulegum viðbrögðum við lífinu og tíðindum heimsins. Baldur Pálmason hætti störfum hjá Ríkisútvarpinu fyrir tæplega þrem áratugum og kom sjaldan í húsakynni stofnunarinnar eftir það. Fyrir nokkrum árum bauð ég hon- um að gleðjast með mér á afmæl- isdegi. Hann var þá orðinn lasburða og kom ekki en sendi fallega kveðju. – Við leiðarlok kveð ég vin og starfs- félaga með heilli þökk fyrir okkar löngu og góðu kynni. Það er í anda hans að láta fylgja þá ósk að Rík- isútvarpið megi alltaf leggja rækt við þau menningarverðmæti sem honum voru hugleikin. Hann hvíli í friði. Gunnar Stefánsson. hennar opnaðist fyrir foreldralausri bróðurdóttur. Á miðjum aldri fann hún sér svo lífsförunaut í rósabóndanum Birni og settist að í Hveragerði. Þar hélt hún áfram að mennta ungar stúlkur í heimilisfræðum. Og fólkið við beðinn hennar Ben- nýjar signir yfir og gengur hljóðlega brott. Falleg og sjálfstæð kona hefur kvatt þennan heim í fullvissu þess að hún væri lögð í för til móts við foreldra sína og frændfólk. Sterk kona, sem gaf líf sitt til þjón- ustu fyrir aðra. Kona, sem þekkti fá- tækt og veikindi samferðafólks síns, kona, sem lét sér annt um náungann og mælti sín síðustu orð til prestsins. Ég trúi. Dröfn og Arthur Farestveit. Móðursystir mín Jóhanna Benný Sigurðardóttir er fallin frá á áttugasta og þriðja aldursári. Benný frænka, einsog hún var alltaf kölluð, var aðeins tveimur árum eldri en móðir mín en þær voru yngstu börn ömmu Stein- varar og afa Sigurðar og var töluverð- ur aldursmunur á þeim systkinum. Þetta gerði það að verkum að þær systur voru alltaf samrýmdar og fylgdust mikið að. Benný frænka eignaðist ekki börn sjálf en ættleiddi frænku okkar hana Sigríði Pálma- dóttur þegar foreldrar hennar féllu frá en hún var bróðurdóttir hennar. Þó Benný hafi ekki fætt börn þá má segja að hún hafi átt stóran hlut í öll- um systkinabörnum sínum en þau eru 15 talsins. Ég veit af afspurn að með- ganga og fæðing mín gekk töluvert nærri móður minni en þar studdi Benný frænka hana mikið og kom t.d. á hverjum degi eftir fæðingu mína til að hjálpa til við strákinn sem þótti í of- análag dálítið veiklulegur. Það er lík- lega á þessum tímapunkti sem hún hefur ákveðið að ofan í þennan strák skyldi hollur matur og næring fara. Benný frænka lærði hússtjórnar- fræði og vann lengst af ævi sinni við að kenna verðandi hússtjórnarkennur- um og seinna meir æsku Hveragerðis helstu leyndardóma matseldar og ekki síst borð- og mannasiði sem voru af mjög takmörkuðum skammti hjá þessu unga fólki að hennar sögn. Ég hef alltaf sagt að það hafi fjórir aðilar komið að uppeldi mínu og kannski ekki veitt af. Það voru auðvitað for- eldrar mínar og svo Benný frænka og hennar maður Björn Sigurðsson, en hjá þeim dvaldi ég mjög oft alveg frá því að ég man eftir mér. Ég var hænd- ur að Benný frænku og þótti mjög vænt um hana. Ég sótti alltaf í það að vera hjá Benný frænku og þannig var ég flest sumur í einhvern tíma hjá þeim hjónum sem og í jóla- og páskafríum. Ég vil leyfa mér að halda það að þau skötuhjú Benný og Björn hafi einnig haft einhverja ánægju af þessum stöðuga ágangi mínum. Það er deginum ljósara að ég hafði gott af samneyti mínu við þau og braggaðist vel hjá Benný. Benný frænka var falleg og glæsileg kona. Hún valdi sér mann við hæfi sem hún elskaði þó svo að þau hjón væru ekki alltaf sammála en mér fannst ástin alltaf skína í gegn öll þessi ár. Hún sagði líka að hún hefði aldrei tekið Björn sem sinn eiginmann hefði hann ekki verið þessi myndarlegi sjarmör. Björn andaðist nú á vormánuðum á nítugasta aldursári og Benný sagði mér að hún saknaði hans töluvert. Nú eru þessi heiðurshjón sameinuð á ný og ég veit að það eru gleðilegir sam- fundir hjá þeim. Ég þakka þér alla velvild í minn garð og barna minna en þú varst alltaf höfðingleg og stórtæk þegar við áttum í hlut. Með bestu kveðju, þinn, Jóhann. Elskuleg vinkona, Benný Sigurðar- dóttir, lést á Landspítalanum 4. sept. sl. Hún var fædd og uppalin á Hvammstanga og gekk þar í barna- og unglingaskóla. Seinna stundaði hún nám við Kvennaskólann á Blönduósi og Hússtjórnarskólann í Reykjavík og kenndi síðan í mörg ár við þá skóla og víðar. Hún giftist Birni Sigurðssyni, garðyrkjumanni í Hveragerði, og þar stóð glæsilegt heimili þeirra uns þau fluttu til Reykjavíkur og bjuggu um sig á Skúlagötu 40. Ekki löngu eftir að Benný flutti til Hveragerðis leitaði ég til hennar og bað hana um að taka að sér kennslu í heimilisfræðum við Barna- og gagn- fræðaskólann. Hún lét til leiðast og var eftir það fastur kennari við skól- ann í ein 20 ár, eða til vorsins 1995 að hún fór á eftirlaun. Síðustu árin var hún við grunnskólann. Í starfi sínu stóð hún sig afbragðs vel. Hún lét skoðanir sínar óhikað í ljós og krafðist þess að kennsluaðstaðan í heimilis- fræðunum yrði stórbætt. Enda leið ekki á löngu að yfirvöldin sæju að sér. Útikennslustofa var keypt og flutt á skólalóðina þar sem Benný undi sér vel næstu árin. Nemendurnir kunnu líka vel að meta þægilega framkomu hennar og þeir komust ekki hjá því að læra hjá henni, bæði bóklega og verk- lega matreiðslu, þrif og hreinlæti og umgengni við fólk, dauða hluti og lif- andi náttúru. Því Benný var góður kennari sem hreif börnin með sér við að leysa hin margvíslegustu verkefni heimilisfræðinnar. Samgangur á milli heimila okkar var allmikill á Hveragerðisárunum. Við Björn vorum Lionsfélagar og Benný og Ásdís, kona mín, voru fljót- ar að stofna saumaklúbb með vinkon- um sínum, þeim Hildi Blöndal, konu Stebba Magg í Trésmiðjunni, Jónu hans Jóns Helga, Guðrúnu læknisins (konu Hannesar), Ragnhildi, konu Þráins (bróður Björns) og Öldu, konu Péturs Þórðar, en hún rak Gistiheim- ilið Sólbakka í mörg ár. Saumaklúbbs- fundirnir voru einu sinni í mánuði og haldnir til skiptis á heimilum kvennanna. Í hvert skipti var veislu- matur á borðum og þegar eitthvað stóð til, t.d. afmæli eða einhver önnur hátíðabrigði, var eiginmönnunum, þessum elskum, boðið inn í restina. Hópurinn var samheldinn og fylgdist að á Listamannaböll, árshátíðir Lions og annan gleðskap og þá buðu þau Björn og Benný hópnum gjarnan heim til sín á undan til að ræða málin. Benný var glæsileg á velli hvar sem hún fór. Hún klæddist fallegum fötum og viðmót hennar og öll framkoma lýsti góðmennsku og glaðlyndi. Gest- risni var henni í blóð borin. Hvenær sem hús voru tekin á þeim hjónum var tekið á móti gestunum opnum örmum, þeir leiddir til stofu og Benný bar fram góðar veitingar á svipstundu. Hún var alltaf viðbúin hinu óvænta. Því hafði hún vanist á bernskuárunum á Hvammstanga, að heimamenn og aðkomufólk þurfti á þjónustu kaupmannsins, föður henn- ar, að halda og það á stundinni, hvort sem heimsóknin var gerð á nóttu eða degi. Við Ragnhildur sendum Sigríði og Sigrúnu, fjölskyldum þeirra og öðrum ættingjum og vinum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Valgarð Runólfsson.  Fleiri minningargreinar um Benný Sigurðardóttur bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Okkar elskulegi eiginmaður, faðir, tengdafaðir, sonur, bróðir, mágur og frændi, HERBERT JÓN HJÖRLEIFSSON, Teigarhorni, lést af veikindum sínum mánudaginn 30. ágúst. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Færum við þakkir til starfsfólks Sjúkrahússins á Selfossi og einnig til líknardeildarinnar í Kópavogi. Jónína Ingvarsdóttir, Hrafna Hanna E. Herbertsdóttir, Soffía Anna H. Herbertsdóttir, Björn Hafsteinsson, Hjörleifur Yngi Herbertsson, Nikulás Úlfur K. Herbertsson, Helena Hilmisdóttir, Hjörleifur Herbertsson, Katrín Hjörleifsdóttir, Sigurður Benediktsson, Róbert Hjörleifsson, Katla Sigurbjörnsdóttir og frændsystkini. ✝ Okkar ástkæra, SIGRÚN PÁLÍNA VIKTORSDÓTTIR verslunarmaður, Sóltúni 16, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þriðjudaginn 14. september. Útförin verður auglýst síðar. Viktoría Bryndís Viktorsdóttir, Haukur A. Viktorsson, Gyða Jóhannsdóttir, Jóhann Árni Helgason, Þóra Einarsdóttir og fjölskylda, Jón Ari Helgason, Ingibjörg Þóra Sæmundsdóttir og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.