Morgunblaðið - 17.09.2010, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2010
Motivo Selfossi - Sósuskál á
tilboðsverði kr. 4.990
Afmælisgjafir, brúðargjafir og gjafir
handa þér. Motivo, Austurvegi 9,
Selfossi, s. 482-1700, www.motivo.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi. Kaupi
allt gull, nýlegt, gamalt og illa
farið. Leitið til fagmanns og fáið
góð ráð. Upp. á demantar.is, í
síma 699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13 (við Austurvöll).
Verið velkomin.
Þjónusta
Smíða- og parketlagnaþjónusta
Fagmenn að verki.
Uppl. í síma 897 1961
Dýrahald
Einstakir Labrador hvolpar
Ættb. HRFÍ. Örm. Heilsufsk.
Uppl. í s. 695 9597.
Gisting
AKUREYRI
Höfum til leigu 50, 85 og 140 m²
sumarhús 5 km frá Akureyri, öll
með heitum potti og flottu útsýni yfir
Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir
á Akureyri. www.orlofshus.is,
Leó, s: 897- 5300.
Veiði
HAGLASKOT - Haglaskot fyrir
leirdúfur, sjófugl, rjúpu, önd og gæs.
Topp gæði - botn verð.
Sportvörugerðin sími 660-8383.
www.sportveidi.is
Bílar
FORD EDGE SEL PLUS 4X4
4/2007 ekinn 70 þús. km. Lúxus
millistærðar jeppi með öllum búnaði.
Mjög vel með farinn.
Verð aðeins 4.900 þús.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 - sími 577 3344.
Atvinnuhúsnæði
120 m² ferðaþjónustuh. til sölu
eða LEIGU Til sölu eða leigu 120 m²
hús á 4000 m² lóð, áður Kaffi Grinda-
vík, gæti einnig hentað sem sumar-
hús, verslun, aðstöðuh. eða m.fl. Við
húsið er 300 m² sólpallur. Hús sem er
auðvelt að flytja. Gott verð.
Uppl. í s. 897 6302
Fellihýsi
Ferðavagnageymsla Borgarfirði
Geymum tjaldvagna, fellihýsi,
hjólhýsi og fleira í upphituðu rými.
Gott verð. S: 899 7012.
E-mail solbakki.311@gmail.com. Geymslur
Vetrargeymslur:
,,Geymdu gullin þín í Gónhól”.
Pöntun í s. 771 1936 - gonholl.is
Verslun
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
HONDA CBR 900 FIREBLADE '93
Nýlega uppgerð Honda Fireblade '93
til sölu. Ekin 8.300 mílur, lokafrá-
gangur eftir. Verð 400 þ.
Uppl. 659-2805.
OPEL ASTRA ÁRG. '99 EK. 203
ÞÚS. KM. Opel Astra ´99, sjálf-
skiptur, nýskoðaður, vetrard.
Fallegur og góður bíll, ný tímareim.
Verð 370 þúsund staðgreitt.
Upplýsingar í síma 820 4640.
Mótorhjól
✝ Ívar Örn Guð-mundsson
fæddist í Reykjavík
25. mars 1976.
Hann lést á Land-
spítalanum í Foss-
vogi 12. september
2010.
Foreldrar hans
eru Guðmundur
Gíslason fv. kaup-
félagsstjóri, f. 21.
september 1950, og
Nína Björnsdóttir
hjúkrunarfræð-
ingur, f. 4. júní
1949.
Systkini hans eru 1) Ingvar Mar
f. 29. mars 1972, d. 1. apríl 1972,
2) Gunnar Freyr f. 11. mars 1974,
kvæntur Helmu Rut Ein-
arsdóttur, þeirra börn eru María
Nína og Aron Atli, 3) Björn Óli f.
Ívar Örn greindist með vöðva-
rýrnun 6 ára en fór í hjólastól 12
ára gamall.
Hann vann nokkur sumur í
Vinnuskóla Kópavogs þar sem
hann dró sérsmíðaða kerru á raf-
magnshjólastólnum. Síðar vann
hann í Örva, seinna á Hæfing-
arstöðinni í Fannborg við tölvu-
vinnslu og nú síðast á Hæfing-
arstöðinni að Dalvegi sem
ritstjóri fréttablaðs. Ívar var mik-
ill áhugamaður um íþróttir. Hann
æfði boccia í meira en 20 ár hjá
ÍFR og vann marga titla bæði inn-
an- og utanlands, einnig stundaði
hann skáklistina af krafti og
keppti í þeirri grein. Lengi fram-
an af var hann á sumrin í Reykja-
dal í sumardvöl fyrir fötluð börn
og unglinga. Hann stundaði söng
af kappi og ferðaðist mikið bæði
innan- og utanlands.
Jarðarför Ívars Arnar fer fram
frá Digraneskirkju í dag, 17. sept-
ember 2010, og hefst athöfnin kl.
13.
4. júní 1980, kvænt-
ur Ingibjörgu Ösp
Sigurjónsdóttur,
synir þeirra eru
Sigurjón Elmar og
Jörundur Elí, 4)
Hildur Inga Rós f. 6.
ágúst 1982, gift Jak-
ob Rós Raffnsøe.
Ívar ólst upp á
Stöðvarfirði fyrstu
8 árin en þá flutti
fjölskyldan í Kópa-
vog. Síðar flutti Ív-
ar á sambýlið við
Marbakka sem er í
sömu götu og æskuheimili hans.
Hann var fyrst í barnaskól-
anum á Stöðvarfirði, fór síðan í
Hlíðaskóla og eftir það í tölvu-
fræði við Iðnskólann í Reykjavík.
Síðar stundaði hann nám við Fjöl-
mennt.
Elsku Ívar minn.
Mér finnst það svo ótrúlegt að þú
sért horfinn á braut, en hugga mig við
að þið bræður, þú og Ingvar, séuð
saman. Ég trúi því að hann hafi tekið á
móti þér.
Það hefur alltaf verið mikill kraftur
í þér, allt vildir þú prófa. Þú klifraðir
upp á vinnupalla tveggja ára, hjólaðir
út í sjó sjö ára, keyrðir einn niður á
strönd og festir stólinn tólf ára og
skaust upp á Snæfellsjökul sautján
ára.
Þú varst svo oft týndur og ég var
alltaf að leita að þér, enda ævintýra-
gjarn með eindæmum.
Þú varst svo góður og ástríkur son-
ur, svo einstakur og jákvæður þó erf-
iður sjúkdómur væri að hrjá þig. Þú
þorðir að lifa lífinu lifandi hvern ein-
asta dag.
Þú vildir vera frjáls og gera það sem
þig langaði til.
Ég sakna þín svo mikið, elsku
drengurinn minn.
Þín
mamma.
Elsku Ívar, við viljum þakka þér
innilega fyrir allt sem þú hefur kennt
okkur.
Þú naust ávallt frelsis sem var þér
svo mikilvægt og nú hefurðu flogið til
himins á vit nýrra ævintýra. Líklega
ertu í fótbolta sem þú naust svo að
horfa á, pæla í og þig langaði svo mikið
til að spila. Þitt himnaríki skilgreind-
irðu að hluta til sem iðjagrænan fót-
boltavöll. Það kom því ekki á óvart að
þitt fyrsta verk eftir að þú kvaddir
þennan heim var að taka þátt í kveðju-
leik þínum þegar Blikarnir heiðruðu
þig sérstaklega og náðu toppsætinu.
Þú hefur með þinni fallegu lífssýn
kennt okkur að njóta hvers dags til
hins ýtrasta. Bjartsýni, gleði og ham-
ingja var þér svo eðlislæg að eftir var
tekið. Enda geislaðir þú af öllum þeim
eiginleikum þegar þú einbeittir þér að
jákvæðu hliðum lífsins og settir erf-
iðleikana til hliðar.
Þú naust þess að taka þátt í ýmiss
konar félagsstarfi og varst einmitt fyr-
ir stuttu að ákveða að í vetur ætlaðirðu
að leggja stunda á boccia, skák, keilu
og söng fyrir utan þína daglegu vinnu.
Einnig hafðir þú sett markið á að fara
á Ólympíuleikana og taka þar þátt í
boccia sem þú hefur stundað svo far-
sællega. Þú hafðir unnið fleiri mót og
titla en við getum talið, þar á meðal Ís-
lands- og Norðurlandameistaratitla og
örugglega unnið fleiri verðlaunapen-
inga og bikara en við hin systkinin til
samans.
Þú hafðir óendanlegan áhuga á fót-
bolta og gast alls ekki misst af leik með
Blikunum á sumrin jafnvel þó leikið
væri fjarri Kópavogi. Einnig mættirðu
á flesta landsleiki í fótbolta og hand-
bolta. Þú varst jafnframt mikill áhuga-
maður um enska boltann og fylgdist
með leikjum Liverpool sem var þitt lið.
Saman fórum við á Anfield fyrir
nokkrum árum en það var toppurinn á
tilverunni, sem skín svo greinilega í
gegn á myndinni hér að ofan. Að sjálf-
sögðu fór leikurinn eins og þú spáðir,
Liverpool vann og Owen skoraði bæði
mörkin. Síðar fórstu á Stanford Bridge
og sást Eið Smára spila með Chelsea
og saman fórum við bræðurnir svo á
Upton Park og sáum West Ham. Þú
varst staðráðinn í því að fara aftur á
Anfield og það hefði þér án efa tekist,
slík var þín ákveðni og bjartsýni.
Við minnumst þess hversu vel þú
naust þess að vera í góðra vina hópi
þar sem skemmtanagildið var í háveg-
um haft. Þú varst einnig mikill for-
sprakki í skipulagningu ýmissa
mannamóta og ferða. Þar gilti einu
hvort það voru jólaboð, bíó-, fótbolta-,
bústaða- eða tónleikaferðir, þú mættir
ávallt fyrstur og fórst síðastur. Fyrir
allar þessar ferðir viljum við þakka þér
og höfum þess vegna ákveðið að halda
þeim áfram í þinni minningu. Einnig
höfum við stofnað minningarsjóð um
þig til styrktar öðrum íbúum á sam-
býlinu við Marbakka, til skemmtiferða
í þínum anda. Þitt síðasta verk var ein-
mitt að skipuleggja skemmtilegan
laugardag fyrir alla íbúa sambýlisins.
Farið var í bíó, út að borða og í kjölfar-
ið á dansgólfið á uppáhalds skemmti-
staðnum þínum, með hljómsveit sem
fyllti húsið. Þar varstu á toppi tilver-
unnar. Þú hefur snert hjörtu svo
margra sem verður arfleið þín hin
mesta.
Gunnar Freyr.
Elsku Ívar, við viljum þakka þér
innilega fyrir allt sem þú hefur kennt
okkur.
Söngáhugi þinn var mikill og þú
nýttir hvert tækifæri sem gafst til að
syngja fyrir okkur og einnig fyrir alla
þjóðina þegar þú tókst þátt í Idolinu.
Það gerðirðu í tvígang og söngst uppá-
halds lögin þín Draum um Nínu og
Vegbúann í áheyrnarprufum. Þegar
þú sagðir svo með bros á vör að þú ætl-
aðir að syngja Fatlafól datt andlitið af
dómnefndinni og Bubbi sagði „Garg-
andi snilld – þú ert maður með húmor“
og að laginu loknu bætti hann við „Þú
ert búinn að sýna að þú ert ekki bara
húmoristi heldur hefur líka mikinn
karakter, kraft og dugnað og ef ég
væri með hatt og hárkollu mundi ég
taka hvort tveggja ofan fyrir þér,
þakka þér innilega fyrir mig“. Þessi
orð Bubba voru þér mjög hjartfólgin
og þú varst stoltur yfir því að koma
fram í sjónvarpi. Þar slóst þú í gegn og
snertir alla þjóðina með þinni óþrjót-
andi jákvæðni, húmor og áræði.
Í kjölfarið var tekið viðtal við þig í
Séð og Heyrt þar sem þú varst nefnd-
ur Húmoristi í hjólastól og spurður út í
lífið og tilveruna. Þar kom m.a. fram
þegar þú varst spurður um heimilið
þitt: „Hér er gott að vera, friðsælt og
gott starfsfólk sem er annt um mann“
og varðandi veikindin sagðirðu: „Það
þýðir samt ekki að gefast upp. Ég hef
það ágætt og kvarta ekki. Ég er lífs-
glaður og bjartsýnn að eðlisfari og það
hjálpar auðvitað mikið. Það þýðir ekk-
ert annað en að líta á björtu hliðarnar í
lífinu. Ég get alla vega talað og það
finnst mér mikilvægast. Ég væri ansi
illa haldinn ef ég gæti ekki opnað
munninn og tjáð mig. Ég hef lært að
lifa í eins mikilli sátt við þennan sjúk-
dóm og hægt er. Það þýðir ekkert ann-
að.“ Þú sagðir einnig að draumurinn
væri að verða íþróttafréttamaður og fá
að lýsa leikjum í ljósvakamiðlum. „Það
væri toppurinn á tilverunni“, eflaust
ertu að upplifa þann draum núna.
Réttindamál voru þér einnig hug-
leikin eins og kemur m.a. fram í fyrr-
nefndri grein: „Ég fer talsvert út að
skemmta mér en eini gallinn er að að-
gengi fyrir fatlaða er slæmt á flestum
veitingastöðum og næturklúbbum í
miðborginni. Það þyrfti að laga því
fatlaðir hafa líka gaman af því að fara
út að borða og skemmta sér. Minn
uppáhalds skemmtistaður er Players í
Kópavogi. Þar eru aðstæður fyrir fatl-
aða til fyrirmyndar og starfsfólkið sér-
staklega vingjarnlegt. Það eru oft
dúndurgóð böll á Players og mikið
stuð. Ég drekk ekki, nema jú kók og
það er svo sem ekkert hollt heldur en
vínið læt ég eiga sig. Ég skemmti mér
vel án þess.“
Þú varst einnig mikill tónlistarunn-
andi en Bubbi og Sálin Hans Jóns
míns voru þar í miklu uppáhaldi. Þú
misstir varla af tónleikum hjá Sálinni
og fórum við saman á fjölmarga tón-
leika með þeim og fór vel á því að síð-
ustu tónleikarnir sem við fórum á voru
Sálartónleikar. Þú varst í skýjunum
með þá.
Þín er sárt saknað hérna megin en
við erum þess fullviss að þér líði vel
þar sem þú ert núna í fótbolta með
elsta bróður okkar, honum Ingvari
Mar.
Þú hefur snert hjörtu svo margra
sem verður arfleifð þín hin mesta.
Þín systkini,
Björn Óli og Hildur Inga.
Elsku Ívar.
Ég kynntist þér fyrst þegar ég byrj-
aði að vinna á Marbakkabrautinni í
byrjun árs 2002. Ég man hvað þú
komst mér á óvart, þrátt fyrir að sjúk-
dómur þinn hafi sett stein í götu þína
léstu það ekki stoppa þig í að gera það
sem þig langaði til. Þú hafðir mjög
gaman af því að djamma og ég man að
þegar ég var á næturvöktum fannst
mér ég oft þurfa að bíða ansi lengi eftir
að þú kæmir heim, sem var oftar en
ekki fyrr en undir morgun.
Þegar ég var nýbyrjuð að vinna á
Marbakkanum sagði þú mér að þú
ættir bróðir sem væri jafngamall mér
og væri í læknisfræði. Ég spurðu þig,
nú meira í gríni en í alvöru, hvort þú
vildir ekki kynna mig fyrir honum og
svaraðir þú því neitandi. Þér fannst ég
greinilega ekki nógu góð handa hon-
um bróður þínum. En þegar við Björn
Óli fórum að stinga saman nefjum ári
síðar varst þú bara ánægður með sam-
band okkar, enda vorum ég og þú þá
búin að kynnast betur og orðnir góðir
vinir.
Við vorum alltaf góðir vinir þó svo
að við værum mjög oft ósammála um
hlutina. Við áttum það nú alveg til að
þræta svolítið og man ég nú eftir
nokkrum skiptum þar sem ég þurfti að
láta í minni pokann fyrir þér því þú
varst nú frekar ákveðinn í að ná þínu
fram þegar þú varst búinn að bíta eitt-
hvað í þig.
Ég er búin að vera að hugsa síðast-
liðna daga hvað ég er heppin að hafa
þekkt þig. Í öll þau ár sem ég hef
þekkt þig, fyrst sem starfsmaður á
Marbakkanum og síðar sem mágkona
þín hef ég aldrei heyrt þig kvarta und-
an örlögum þínum. Þú einbeittir þér
að því sem þú áttir en varst lítið að
velta þér upp úr því sem þú hafðir
misst. Þú varst svo ótrúlega jákvæður,
lífsglaður og skemmtilegur einstak-
lingur, það er eiginlega ekki hægt að
lýsa því með orðum hversu ótrúlegur
þú varst en ég veit að allir sem þekkja
þig vita um hvað ég er að tala. Þú
kunnir svo sannarlega að lifa lífinu og
ég veit að margir í kringum þig hafa
lært mikið af þér um hvernig á að
njóta lífsins. Þú lifðir alltaf í núinu og
reyndir að njóta hvers augnabliks til
hins ýtrasta. Þú lagðir mikið á þig til
að taka þátt í því sem þér þótti
skemmtilegt og varst lítið að pæla í
hvað öðrum fannst.
Elsku Ívar minn, ég er svo þakklát
fyrir að hafa kynnst þér. Mér finnst
leiðinlegt að synir okkar Björns Óla fái
ekki að kynnst þér betur þar sem þeir
eru svo ungir ennþá. Þú hefðir getað
kennt þeim svo margt en ég veit að ég
og bróðir þinn eigum eftir að segja
börnunum okkar frá frænda þeirra
sem var fyrirmynd annarra um hvern-
ig á að lífa lífinu og taka á erfiðleikum.
Ég man eftir einu skipti þegar þú
varst lasinn, þá ræddum saman um
dauðann og hvað myndi taka við þegar
maður dæi. Við vorum sammála því að
þegar maður dæi færi maður á ein-
hvern annan stað þar sem manni liði
vel. Ívar minn, ég veit að þú ert kom-
inn á stað þar sem veikindi þín hrjá þig
ekki lengur og ert eflaust spriklandi í
einhverjum íþróttum. Ég veit að þér
líður vel núna en þín verður sárt sakn-
að.
Hvíl í friði, elsku Ívar minn.
Ingibjörg Ösp.
Ívar Örn Guðmundsson HINSTA KVEÐJA
Við Ívar vorum einu sinni
saman í boccia. Hann bjó með
Svenna.
Ég bið Guð að taka á móti
honum Ívari.
Birna Rós Snorradóttir.
Fleiri minningargreinar um Ívar
Örn Guðmundsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.