Morgunblaðið - 17.09.2010, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2010
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Birgir Rafn Þráinsson, fram-
kvæmdastjóri Gagnaveitu Reykja-
víkur, segir að Gagnaveitan hafi
greitt vexti af láni sem fyrirtækið
tók hjá Orkuveitu Reykjavíkur í
samræmi við úrskurð Póst- og fjar-
skiptastofnunar. Fyrirtækið muni í
framtíðinni leita eftir lánsfé á al-
mennum markaði.
Gagnaveitan var skilin frá Orku-
veitunni árið 2007, en Póst- og fjar-
skiptastofnun hefur síðan fylgst vel
með því að fyrirtækið standi við
skuldbindingar sínar um að blanda
ekki saman rekstri Gagnaveitunnar
og rekstri Orkuveitunnar. Gagna-
veitan skuldaði Orkuveitunni 6,9
milljarða um síðustu áramót. Lánið
er í erlendri mynt og hækkaði mikið
við fall krónunnar. Póst- og fjar-
skiptastofnun samþykkti þá vexti
sem Gagnaveitan greiðir af láninu.
Tóku lán í fyrra
„Þetta er lán sem við tókum upp-
haflega hjá Orkuveitunni þegar
Gagnaveitan var stofnuð og við höf-
um greitt vexti af því láni samkvæmt
skilmálum lánsins. Síðan fjármögn-
uðum við okkur á almennum láns-
fjármarkaði á síðasta ári og hluti af
skilmálum þess láns var að meðan
við værum með það lán værum við
ekki að greiða vexti af láni Orkuveit-
unnar. Við höfum hins vegar reiknað
vexti af láninu.“
Birgir sagði að Póst- og fjar-
skiptastofnun hefði í sínu reglulega
eftirliti gert athugasemd við þetta.
„Við tókum tillit til þeirra athuga-
semda og höfum greitt vexti af lán-
inu og munum gera það í framtíðinni
í samræmi við þennan úrskurð.“
Birgir sagði að Gagnaveitan hefði
þurft að semja við lánardrottin fyr-
irtækisins um að breyta skilmálum
lánsins til þess að geta orðið við
kröfu stofnunarinnar.
Birgir sagði að eftir að Gagnaveit-
an tók þetta lán í fyrra hefði fyr-
irtækið eftir sem áður reiknað vexti
af láninu hjá OR. Gjalddagar af lán-
inu væru tvisvar á ári og málið væri
nýlega tilkomið og því hefði aðeins
einn gjalddagi verið ógreiddur.
Birgir sagði að Gagnaveitan
áformaði að ráðast í fjárfestingar
næstu árin og þeim fylgdu áfram-
haldandi lántökur og endurfjár-
mögnun þegar þar að kæmi.
Hann sagði að vegna úrskurðar
Póst- og fjarskiptastofnunar hefði
Gagnaveitan engan hag af því að
taka lán hjá Orkuveitunni. „Við njót-
um engra kjara hjá Orkuveitunni
umfram það sem býðst á almennum
markaði. Það er hins vegar mjög já-
kvætt að í miðju efnahagshruninu
náðum við að fjármagna okkur og
halda úti mannaflsfrekum fram-
kvæmdum. Það er stór áfangi að við
skulum hafa getað þetta á eigin for-
sendum og án baktryggingar Orku-
veitunnar.“
Greiðir vexti af láni hjá
Orkuveitu Reykjavíkur
Morgunblaðið/Ómar
Ljósleiðari Hlutverk Gagnaveitu Reykjavíkur er að bjóða heimilum og fyr-
irtækjum aðgang að háhraða gagnaflutningskerfi.
Gagnaveitan
skuldar Orkuveit-
unni 6,9 milljarða
Í eigu Orkuveitunnar
» Gagnaveita Reykjavíkur er
fyrirtæki í eigu Orkuveitu
Reykjavíkur.
» Rekstur fyrirtækjanna var
aðskilinn með formlegum
hætti árið 2007.
„Þetta gerðist á mjög stuttum tíma,
ég skráði mig bara þremur dögum
fyrir hlaupið og setti tvisvar inn
auglýsingu á Facebook,“ segir
Signý Gunnarsdóttir sem fékk flest
áheit allra þeirra sem hlupu í
Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst.
Uppskeruhátíð áheitasöfnunar
Reykjavíkurmaraþonsins var hald-
in í Ráðhúsi Reykjavíkur á miðviku-
dag. Sem fyrr gat almenningur
heitið á hlaupara í gegnum vefinn
www.hlaupastyrkur.is og í ár söfn-
uðust tæpar 30 milljónir til góðra
málefna sem er þrefalt meira en í
fyrra þegar 9 milljónir söfnuðust.
Samtals tóku 96 góðgerðarfélög
þátt í söfnuninni og eins og í fyrra
safnaðist mest fyrir Styrktarfélag
krabbameinssjúkra barna, rúmar
2,2 milljónir. Signý Gunnarsdóttir
safnaði einmitt fyrir krabbameins-
sjúk börn, en sonur hennar berst nú
við krabbamein. „Þetta var líka
hálfgerð meðferð fyrir mig,“ segir
Signý sem segist snortin af þeim
anda sem endurspeglist í ummæl-
um á styrkjasíðunni. Alls hétu 160
manns á Signýju og safnaði hún
þannig 353.500 kr. fyrir félagið.
Það var hinsvegar S. Hafsteinn
Jóhannesson sem safnaði hæstri
upphæð í hlaupinu, en hann safnaði
604 þúsund krónum fyrir Park-
insonsamtökin á Íslandi. Oddur
Kristjánsson safnaði næstmestu,
eða 453.019 kr. fyrir Félag CP á Ís-
landi og Rakel Steinarsdóttir safn-
aði þriðja mest, en hún hljóp fyrir
sumarbúðir fatlaðra barna í
Reykjadal og safnaði 446.500 kr.
Liðið „Stig 7“ safnaði mestu í
boðhlaupinu, 183.000 kr., fyrir
munaðarlaus börn á Haítí.
Morgunblaðið/Ernir
Uppskeruhátíð Afhentar voru viðurkenningar til hlauparanna í Ráðhúsinu.
Þrefalt meira safn-
aðist í maraþoninu
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
Núverandi Reykjavíkurbiskup kaþ-
ólsku kirkjunnar á Íslandi, Pétri
Bürcher, var ókunnugt um allt í þá
veru að Jóhannes Gijsen, sem var
biskup kaþólsku kirkjunnar á Ís-
landi á árunum 1995 til 2007, hefði
sýnt piltum í Hollandi kynferðislega
áreitni fyrir áratugum.
Að minnsta kosti tveir karlmenn
hafa lagt fram kærur vegna Gijsen.
Hollenskir fjölmiðlar hafa fjallað um
mál þetta í vikunni og þar kemur
fram að að 63 ára karlmaður hafi
kært kynferðislegt ofbeldi sem hann
hafi sætt í skóla í Rolduc á árunum
1959 til 1961. Hafi annar prestur
nauðgað sér þrívegis og einnig hafi
Gijsen sýnt honum og fleiri drengj-
um kynferðislega áreitni.
„Kaþólska kirkjan lítur þessa
ásakanir alvarlegum augum,“ segir
Bürcher Reykjavíkurbiskup. Hann
segir von kirkjunnar þá að málið
verði til lykta leitt og að öllu réttlæti
verði fullnægt, eins og komist er að
orði í yfirlýsingu. sbs@mbl.is
Þekkti ekki
fortíð bisk-
upsins
Stórfréttir
í tölvupósti
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
FER KÓLNANDI!!
Ný sending af peysum
Peysa á mynd
Verð 13.900 kr.
www.rannis.is
Stefnumót
við vísindamenn
Allir velkomnir. Láttu sjá þig!
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið yfirhafnir á laxdal.is
HAUST YFIRHAFNIR
HAUSTDRAGTIR
Gamaldags myndaalbúm
gesta- og dagbækur
Opið: má-fö. 12:30 -18:00,
Dalvegi 16a, Rauðu múrsteinshúsunum Kóp.201
S: 517 7727 www.nora.is og á Facebook.
!"#" %&'()*#++ ,- ./#0#1#*