Morgunblaðið - 17.09.2010, Side 2
Það var heldur betur galsi í hinum landskunna skemmtikrafti Ómari Ragn-
arssyni í gær þar sem hann liðkaði sig baksviðs áður en hann kom fram á
afmælisskemmtun og tónleikum í Salnum í Kópavogi í tilefni af sjötíu ára
afmæli sínu. Einnig fagnaði hann því að fimmtíu ár eru síðan hann kom
Ómar fagnar sjötugsafmæli eldsprækur og kattliðugur
Morgunblaðið/Eggert
fyrst fram. Margir vina hans úr skemmtanabransanum stigu á svið og sam-
fögnuðu, m.a. Ragnar Bjarnason, Þuríður Sigurðardóttir og félagar úr
Sumargleðinni. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra lýsti í dag vilja
til að gera 16. september að degi íslenskrar náttúru til heiðurs Ómari.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Hluti þeirra sem eru í gæsluvarðhaldi vegna
gruns um aðild að umfangsmiklu fjársvikamáli,
sem teygir anga sína inn fyrir veggi ríkisskatt-
stjóra, hefur komið við sögu í fíkniefnamálum.
Samtals nema hin ætluðu svik um 270 millj-
ónum króna. Lagt hefur verið hald á einhverja
fjármuni vegna rannsóknarinnar og verið er að
rannsaka bankaviðskipti þeirra sem eru í haldi.
Rannsókn málsins er nýhafin og er á við-
kvæmu stigi en miðað við umfang málsins
bendir allt til að það falli undir skilgreiningu á
skipulagðri glæpastarfsemi.
Fjórir karlmenn og tvær konur
Níu manns voru handteknir vegna málsins á
þriðjudag og miðvikudag og sex þeirra úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald. Þetta eru fjórir
karlmenn og tvær konur, allt Íslendingar.
Tímalengd gæsluvarðhaldsins er á bilinu fimm
dagar og upp í tvær vikur. Einn þeirra sem er í
haldi er starfsmaður ríkisskattstjóra en starfs-
maðurinn er grunaður um að hafa aðstoðað við
svikin
Ekkert gert og eigendur grunlausir
Hin meinta svikastarfsemi snýst um að tvö
einkahlutafélög skiluðu inn reikningum fyrir
um milljarð króna. Látið var líta svo út að
reikningarnir væru vegna endurbóta á at-
vinnuhúsnæði, annars vegar í Reykjavík og
hins vegar í Mosfellsbæ. Í samræmi við reglu-
gerð fengu einkahlutafélögin endurgreiddan
virðisaukaskatt af tilteknum kostnaði, samtals
ríflega 270 milljónir. Þann virðisaukaskatt
hefði síðan átt að innheimta þegar húsnæðið
yrði selt eða leigt. Ekkert var hins vegar fram-
kvæmt.
Þá er húsnæðið sem um ræðir ekki í eigu
þeirra sem hafa verið handteknir vegna máls-
ins og að sögn Gríms Grímssonar, aðstoðaryf-
irlögregluþjóns í auðgunarbrotadeild lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu, liggja eigendur
húsanna ekki undir grun í málinu.
Grunsamlegar millifærslur
Í samtali við Morgunblaðið sagði Grímur að
tilkynning um grunsamlegar millifærslur hefði
borist lögreglu frá fjármálafyrirtæki. Tilkynn-
ingin hefði verið á grundvelli laga um aðgerðir
gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðju-
verka sem sett voru árið 2006. Tilkynningin
hefði borist nokkrum dögum áður en lögregla
lét til skarar skríða.
Jón H.B. Snorrason aðstoðarlögreglustjóri
sagði í samtali við Morgunblaðið að óeðlilegar
og háar millifærslur hefðu vakið athygli fjár-
málastofnunarinnar. Upphæðirnar hefðu ekki
verið í nokkru samræmi við fyrri viðskipti
þeirra sem um ræðir. Tilkynningin hefði leitt
lögreglu á sporið.
Svikin teygja anga sína til skattsins
Hluti þeirra sem eru í haldi hafa komið við sögu fíkniefnamála Fjórir karlar og tvær konur í haldi
Fengu endurgreiddan virðisaukaskatt vegna framkvæmda sem aldrei voru Eiga ekki húsin
„Fyrir mig er þetta sigur, því með þeirri niðurstöðu sem
fengin er lækkar lánsfjárhæðin úr 5,2 milljónum króna í
900 þúsund,“ segir Hafsteinn Egilsson, veitingamaður á
Rauða ljóninu á Seltjarnarnesi. Hafsteinn var hinn
stefndi í máli Lýsingar sem niðurstaða fékkst í fyrir
Hæstarétti í gær. Málið var reist vegna bílaláns sem Haf-
steinn tók vegna jeppakaupa árið 2007 en málið höfðaði
Lýsing til að eyða óvissu um vaxtakjör á ólögmætum
gengistryggðum lánum.
„Núna eru mín mál komin í mun viðráðanlegri stöðu,“
segir Hafsteinn. Hann kveðst sáttur með niðurstöðuna í
málinu – svo langt sem hún nær – enda þótt vörnum frá
sinni hlið hefði ekki að öllu leyti verið komið við.
„Ég hætti reyndar að borga af láninu fyrir nokkrum
misserum enda leit ég þá svo á að lánið og forsendur þess
væru orðnar allt aðrar en var í upphafi. Og svo geta fleiri
sagt, er ekki talað um að 40 þúsund heimili í landinu séu
með myntkörfulán? Nei, það er svo sem ekki talað mikið
um lánamál hér á barnum en meira um fótbolta og KR
þar sem margir hafa áhyggjur af stórveldinu.“ sbs@mbl.is
Mál eru viðráðanlegri og
sáttur með niðurstöðuna
Morgunblaðið/Eggert
Á vespunni Hafsteinn Egilsson, veitingamaður á Rauða
ljóninu, er ánægður enda minnkar skuldabyrðin mikið.
Talað á barnum um KR og
fótbolta en ekki myntkörfur
Tveir danskir lífeyrissjóðir, ATP
og PFA, hafa ásamt sænska trygg-
ingafélaginu Folksam keypt danska
bankann FIH Erhvervsbank af
skilanefnd Kaupþings. Þetta full-
yrðir danska sjónvarpsstöðin TV2
en sjóðirnir hafa staðfest fréttina.
PFA, ATP og Folksam stóðu
saman að tilboði í FIH og öttu kappi
við enska fjárfestingarsjóðinn Tri-
ton, sem átti samvinnu við nokkra
danska lífeyrissjóði um tilboð í
bankann. TV2 Finans segir að
gengið hafi verið frá samkomulag-
inu síðdegis í gær á Hilton-hótelinu
á Kastrup-flugvelli. Ekki náðist í
Steinar Guðgeirsson, formann
skilanefndarinnar, í gær.
Lífeyrissjóðir
keyptu FIH
Tortillur erumun girnilegri meðgeometrísku mynstriúr sýrðum rjóma
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
0
-1
2
0
4
BARA KREISTA!
Jón H. B. Snorrason aðstoðarlögreglustjóri
segir að aldrei áður hafi mál verið rann-
sakað sem snýst um meinta svika-
starfsemi starfsmanns ríkisskattstjóra.
Málið hlýtur að vera litið mjög alvar-
legum augum innan stjórnsýslunnar, bæði
vegna fjárhæðarinnar sem um ræðir en
ekki síður vegna meints þáttar starfs-
manns ríkisskattstjóra. Vænta má að
vinnuferlar þar verði grandskoðaðir í kjöl-
farið.
Fordæmalaust
og alvarlegt mál
MEINT SVIK STARFSMANNS RSK
Askan úr Eyjafjallajökli virðist hafa
góð áhrif á uppskeru korns undir
Eyjafjöllum og víðar í Rangárþingi.
Þórarinn Ólafsson, kornbóndi í
Drangshlíð, segir að uppskera af
akri heima við bæ sé ótrúlega góð,
þótt sáð hafi verið seint.
Sáð var í akurinn í Drangshlíð
þriðja árið í röð. Venjulega fer að
draga úr uppskeru á þriðja ári. Svo
er ekki nú, lengi var mikið grænt í
akrinum og útlit er nú fyrir upp-
skeru eins og á fyrsta ári eftir hvíld
akurs.
Askan bætir
uppskeru á korni