Morgunblaðið - 17.09.2010, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2010
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Dómur Hæstaréttar um vexti á er-
lendu bílaláni þýðir að lántakandinn
þarf að greiða 795.944 krónur með
dráttarvöxtum frá 11. ágúst í fyrra
þegar Lýsing, sem veitti lánið, yf-
irtók bílinn. Hæstiréttur komst að
sömu niðurstöðu og héraðsdómur
sem dæmdi Lýsingu í vil. Hæstirétt-
ur taldi óhjákvæmilegt að líta með
öllu framhjá ákvæðum bílasamn-
ingsins um vexti og að taka yrði mið
af almennum óverðtryggðum vöxt-
um Seðlabanka Íslands eins og þeir
voru á hverjum tíma.
Lýsing vildi upphaflega inn-
heimta 5,2 milljónir af láninu
Lántakandinn, Guðlaugur Haf-
steinn Egilsson, keypti Jeep Grand
Cherokee í nóvember 2007, en lána-
samningurinn átti að renna út í nóv-
ember 2013. Lánsupphæðin var
tæplega 3,6 milljónir. Greiða átti af
láninu mánaðarlega og fyrsta af-
borgun var 57.562 kr. Lánið var
gengistryggt. Eftir hrun hækkaði
höfuðstóll lánsins mikið og í ágúst
2009 yfirtók Lýsing bílinn, en þá var
lánið í vanskilum. Eftir að hafa met-
ið bílinn og dregið frá viðgerðar-
kostnað og sölukostnað setti Lýsing
fram kröfu um að Guðlaugur greiddi
fyrirtækinu rúmlega 5,2 milljónir.
Lýsing höfðaði mál í febrúar sl. og
krafðist þess að hann greiddi þessa
upphæð með dráttarvöxtum.
Eftir að Hæstiréttur dæmdi
gengistryggingu myntkörfulána
ólöglega felldi Lýsingin þetta mál
niður og höfðaði nýtt mál. Héraðs-
dómur féllst á varakröfu Lýsingar
sem felur í sér að miðað skuli við al-
menna skuldabréfavexti Seðlabanka
Íslands.
Þegar Guðlaugur tók lánið voru
þessir vextir Seðlabankans 16%.
Þeir hækkuðu eftir hrunið haustið
2008 og fóru hæst í 21% í stuttan
tíma í ársbyrjun 2009. Um mitt það
ár voru þessir vextir komnir niður í
10,5% en eru núna 7,75%.
Ekki hægt að miða
við Libor-vexti
Þeir vextir sem tilgreindir eru í
lánasamningnum eru Libor-vextir
með 2,9% álagi. Lögmaður Guðlaugs
krafðist þess að miðað yrði við þessa
vexti. Hæstiréttur segir í dómi sín-
um að „fullljóst [sé] að slík vaxta-
kjör af láninu gátu ekki komið til
álita nema í tengslum við gengis-
tryggingu þess, sem nú liggur fyrir
að óheimilt hafi verið að kveða á
um“.
Hæstiréttur segir að eftir að
ákvæði í samningnum um gengis-
tryggingu hefur verið metið ógilt,
með dómi Hæstaréttar frá 16. júní
sl., séu skuldbindingar Guðlaugs við
Lýsingu að öllu leyti í íslenskum
krónum og algerlega óháðar þeirri
tengingu við japönsk yen og sviss-
neska franka, sem gengið var út frá
við gerð samningsins.
„Þegar virt er að ákvæðið um
gengistryggingu í samningi aðilanna
er ógilt og bein og órjúfanleg tengsl
eru samkvæmt framansögðu milli
þess ákvæðis og fyrirmæla þar um
vexti er hvorki unnt að styðjast við
þau fyrirmæli óbreytt eftir orðanna
hljóðan né gefa þeim með skýringu
annað inntak, enda liggur fyrir í
málinu að á millibankamarkaði í
London hafa aldrei verið skráðir LI-
BOR-vextir af lánum í íslenskum
krónum. Vegna þessa er óhjá-
kvæmilegt að ógildi ákvæðisins um
gengistryggingu leiði til þess að líta
verði með öllu fram hjá ákvæðum
samningsins um vaxtahæð,“ segir í
dómnum.
Hæstiréttur segir síðan að miðað
við atvik sé ekki um annað að ræða
en líta svo á að samið hafi verið um
lánið án þess að tiltekið sé hverjir
vextirnir ættu að vera. Þegar þannig
hátti skuli peningakrafa taka mið af
lægstu almennu óverðtryggðu vöxt-
um Seðlabanka Íslands, sbr. ákvæði
laga um vexti og verðtryggingu frá
árinu 2001.
28. júlí 2009
Skilaði jeppanum sem var síðar
seldur fyrir 2,8 milljónir, að
frádregnum ýmsum kostnaði.
Gengistryggðu lánin féllu í dómskerfinu
Apríl 2009
Hætti að greiða
af jeppanum.
11. ágúst 2009
Samningnum rift að kröfu Lýsingar.
16. júní 2010
Hæstiréttur dæmir gengistryggð lán ólöglegmeð
tveimur dómum um bílalán frá Lýsingu annars
vegar og SP-fjármögnun hins vegar.
29. júní 2010
Lýsing stefnir Hafsteini. Málinu er ætlað að skera úr um hvaða vaxtakjör eigi
að miða við á gengistryggðum lánum sem hafa verið dæmd ólögmæt.
Aðalkrafan gerir ráð fyrir verðtryggðum vöxtum skv. gjaldskrá en einnig gerir
Lýsing fimm varakröfur. Hafsteinn vill að miðað sé við samningsvexti og
þá hafi hann þegar greitt alla fjárhæðina til baka.
23. júlí 2010
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmir að lánið skuli
reiknað líkt og Hafsteinn hefði tekið óverðtryggt lán,
skv. vöxtum Seðlabankans.Hafsteinn var dæmdur
til að greiða um 800.000 krónur, auk dráttarvaxta.
16. september 2010
Hæstiréttur staðfestir dóm um
að miða skuli við óverðtryggða
vexti Seðlabankans.Ríkis-
stjórnin tilkynnir aðgerðir
vegna gengistryggðra lána.
21. nóvember 2007
Guðlaugur Hafsteinn Egilsson gerir samning
við Lýsingu um að taka á leigu Jeep Cherokee
jeppa af árgerð 2006. Lánsupphæðin var
3.582.000 krónur, 50% voru bundin
japönsku jeni, 50% svissneskum franka.
Október 2008
Bankarnir hrynja.
Gengið hrynur.
„Fullljóst að slík vaxta-
kjör komu ekki til álita“
Hæstiréttur dæmir að miða skuli við vexti Seðlabanka við innheimtu bílalána
Morgunblaðið/Golli
Í Hæstarétti Lögmennirnir Sigurmar Albertsson og Gísli Baldur Garðarsson fara yfir niðurstöður dómsins.
„Sú niðurstaða
að vextir skuli á
hverjum tíma
vera jafnháir
lægstu óverð-
tryggðu vöxtum
Seðlabanka Ís-
lands, getur
reynst skuld-
urum þungur
baggi,“ segir
Ásta S. Helga-
dóttir, umboðsmaður skuldara, í yf-
irlýsingu í gær.
Hún telur niðurstöðu Hæsta-
réttar í bílalánamálinu ekki þá hag-
stæðustu fyrir skuldara.
Lægstu óverðtryggðu vextir
Seðlabanka Íslands eru nú 7,75%,
en frá september 2006 til júní 2009
voru lægstu óverðtryggðu vextir
frá 15% til 21%. Þessa vexti þurfa
sumir skuldara nú að borga. Eigi að
síður sé gott mál að óvissu í vaxta-
málum hafi verið aflétt, enda geti
fólk nú áttað sig betur á stöðu sinni
og gert ráðstafanir eftir því.
Vextirnir eru skuld-
urum þungur baggi
Ásta S.
Helgadóttir.
„Ég er feginn að það skuli vera
komin lausn í þetta. Þetta er gott
fyrir alla aðila, að búið sé að
leysa úr þessari þrætu,“ segir
Sigurmar K. Albertsson, lögmaður
Lýsingar, í kjölfar úrskurðar
Hæstaréttar í gengislánamálinu.
„Ég reikna með að þetta séu lykt-
ir í þessari deilu,“ segir hann enn-
fremur.
Sigurmar reiknar með að af-
leiðingar dómsins verði að önnur
bílafjármögnunarfyrirtæki, sem
séu með sambærileg lán og dóm-
ur Hæstaréttar fjallar um, muni
fara eftir þessum dómi.
„Mér virðist í fljótu bragði vera
um að ræða að héraðsdómur sé
staðfestur en það er önnur nálg-
un. Annar rökstuðningur heldur
en var í héraði,“ segir Gísli Baldur
Garðarsson, lögmaður skuldarans,
um niðurstöðu dómsins.
„Hann felst í því að það er ekki
verið að tala um brostnar for-
sendur lengur, heldur er talað um
að ákvæðið um samninga hafi
orðið ógilt með sama hætti og
ákvæðið um gengistrygginguna
var ógilt.
Þar af leiðir að samningurinn er
þannig ekki með neinum ákvæð-
um um vexti og þá grípa vaxtalög
beint inni í. Þá eru ákvarðaðir
vextir sem eru lægstu seðla-
bankavextir,“ segir Gísli Baldur.
Felur í sér lyktir í þessari deilu
VIÐBRÖG LÖGMANNA MÁLSAÐILA EFTIR DÓMINN
„Forsendur
Hæstaréttar eru
allt aðrar en
Héraðsdóms og
taka ekkert á
forsendubresti
lántaka. Því er
ljóst að höfða
verður nýtt mál
ef fá á úr því
skorið hvort lán-
taki hafi orðið
fyrir forsendubresti,“ segir Marinó
G. Njálsson stjórnarmaður í Hags-
munasamtökum heimilanna um
dóm Hæstaréttar í dag.
Marinó segir niðurstöðu Hæsta-
réttar í raun þá að vaxtaákvæði
gengistryggðra samninga sé svo
tengt gengistryggingu að ekki sé
hægt annað en að dæma það ógilt.
„Niðurstaðan leiðir til þess að
greiðslur sem lántakar inntu af
hendi fram að hruni og í samræmi
við greiðsluseðla hækka mikið,"
sbs@mbl.is
Ekkert tekið á for-
sendubrestinum
Marinó G.
Njálsson
„Þetta er sú nið-
urstaða sem ég
átti síst von á,“
segir Gísli
Tryggvason tals-
maður neytenda
um dóm Hæsta-
réttar. Hann
kveðst frekar
hafa átt von á því
að dómurinn yrði
ómerktur, honum vísað heim í hér-
að eða fyrri niðurstöðu breytt. „Það
var langt bil milli ýtrustu krafna og
mér fannst vanta millikröfur sem
hefðu verið sanngjarnari mála-
miðlun,“ segir Gísli sem telur nið-
urstöðu eiga við um öll bílalán í er-
lendri mynt.
„Niðurstaðan er vonbrigði. Og ef
þessu verður ekki skotið til EFTA-
dómstólsins er þetta endanlegt,“
segir talsmaður neytenda.
sbs@mbl.is
Sanngjarnar
millikröfur vantaði
Gísli Tryggvason
Dómur Hæstaréttar