Morgunblaðið - 17.09.2010, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2010
✝ Halldóra Gunn-arsdóttir sálfræð-
ingur fæddist á Siglu-
firði 19. janúar 1936.
Hún lést í Gautaborg
5. september sl.
Foreldrar hennar
voru Gunnar Jónsson
skipasmíðameistari, f.
1. apríl 1899 í Hlé-
skógum í Höfða-
hverfi, d. 27. október
1960, og Sólveig
Kristjana Þórð-
ardóttir, f. 19. júní
1902 í Eiðhúsum,
Miklaholtshreppi, d. 12. mars 1975.
Systkini Halldóru, samfeðra,
voru 1) Ólafur, f. 7.11. 1919, d.
13.11. 2004, 2) Tryggvi, f. 14.7.
1921, d. 6.2. 2009, 3) Bára, f. 14.10.
1925, d. 3.11. 1992. Alsystkini Hall-
dóru eru: 1) Anna Lísa, f. 20.11.
1934, 2) Gunnar, f. 17.6. 1940, 3)
Helga, f. 27.2. 1945.
Halldóra giftist 14. september
1960 Bjarna Arngrímssyni geð-
lækni, f. 2. ágúst 1936. Börn: 1)
Edda Sigríður, f. 3. maí 1955, Fjäll-
ann í Uppsala og lauk prófi árið
1979 frá háskólanum í Gautaborg
en fjölskyldan hafði þá flutt þang-
að. Að námi loknu vann Halldóra
fyrstu árin sem fjölskylduráðgjafi í
Kungsbacka og sálfræðingur í
Vestur-Gautaborg. Árið 1981 fékk
hún stöðu hjá sálfræðiþjónustinni á
Hisingen í Gautaborg og vann þar
til starfsloka. Halldóra bætti við sig
sérnámi í sálrænni samtalsmeðferð,
handleiðslufræðum, fjölskyldu-
meðferð og sálfræðilegri meðferð
með leikrænni tjáningu. Halldóra
vann brautryðjendastörf á vegum
sálfræðiþjónustunnar á Hisingen í
Gautaborg. Ber þar hæst verkefni
sem nefndist „Delta projektet“ þar
sem félagsþjónustan, sjúkrasam-
lagið, vinnumiðlunin og heilsugæsl-
an unnu sameiginlega að sálfræði-
legri endurhæfingu langtíma-
sjúklinga. Halldóra fór fyrir hópi
sálfræðinga í verkefninu sem lauk
um það leyti sem hún fór á eftir-
laun. Einnig unnu Halldóra og
Bjarni mikið saman á sviði fjöl-
skyldumeðferðar. Halldóra kom
m.a. til Íslands til þess að halda
námskeið og efla faghandleiðslu
fyrir fagfólk í Handleiðslufélagi Ís-
lands.
Útför Halldóru fer fram frá St.
Birgittas kapell í Gautaborg í dag,
17. september, og hefst athöfnin kl.
13.
backa, Svíþjóð, sam-
býlismaður: Ulf Karl-
quist. Börn Eddu: a)
Mikael Bjarni (Airik-
ainen) Lagerberg, b)
Jón Bjartur Moe,
börn hans: Livia og
Ika, c) Aron Lag-
erberg, sambýliskona
Ylfa Pálsdóttir. 2)
Friðrik, f. 19. ágúst
1962, Nol, Svíþjóð. 3)
Arngrímur, f. 14.
október 1967, maki:
Susanne Isaksson,
börn hennar: Amanda
Lindgren og Anton Lindgren.
Halldóra tók stúdentspróf frá
Menntaskólanum á Akureyri 1955.
Var ritari á lögmannsstofu hjá Ein-
ari Ásmundssyni sem síðar varð
einn ritstjóra Morgunblaðsins.
Fylgdi Halldóra Einari þangað og
varð einnig ritari annarra ritstjóra
blaðsins og síðar blaðamaður. Fjöl-
skyldan fluttist til Svíþjóðar 1969
vegna sérnáms Bjarna og settist
fyrst að í Västerås. Árið 1973 hóf
Halldóra nám í sálfræði við háskól-
Í dag verður kær frænka mín, Hall-
dóra Gunnarsdóttir, borin til hinstu
hvílu í Gautaborg.
Einstök öðlingskona er horfin á
braut og stórt skarð er höggvið í fjöl-
skyldu hennar.
Á þessari stundu hvarflar hugurinn
til bernsku- og æskuáranna.
Halldóra ólst upp á Akureyri ásamt
systkinum sínum, Önnu Lísu, Gunnari
og Helgu. Það var alltaf tilhlökkunar-
efni, þegar von var á fjölskyldunni að
norðan til Reykjavíkur. Henni fylgdi
hressandi norðlenskur blær.
Systurnar, mæður okkar, voru nán-
ar, við börnin á líkum aldri og ætt-
arböndin sterk. Það var spilað, leikið
og spjallað og fremst í flokki var Hall-
dóra, full af orku og lífsgleði.
Árin liðu, við börnin uxum úr grasi
en héldum þó alltaf sambandi. Hall-
dóra og Bjarni settust að í Svíþjóð
með börnum sínum þremur, Eddu,
Friðriki og Arngrími og hafa þau
lengst af búið í Gautaborg. Þar hefur
Bjarni unnið sem barnageðlæknir um
langt árabil. Halldóra lauk námi í sál-
fræði eftir að þau fluttu utan. Auk
starfa hjá hinu opinbera ráku þau
eigin meðferðarstofu í Gautaborg.
Halldóra og Bjarni voru mjög sam-
stillt hjón svo erfitt er að nefna annað
þeirra nema hins sé getið líka. Fal-
legt heimili þeirra í Gautaborg bar
vott um listfengi og smekkvísi. Þar
gaf að líta fagra gripi frá ýmsum
heimshornum í bland við íslensk
verk. Gestrisni þeirra var rómuð og
öllum tekið með ljúfmennsku og
hlýju.
Þau nutu þess mjög að ferðast,
komu oft til Íslands en fóru líka víða
um heim og kynntu sér menningu
framandi þjóða.
Ég minnist ferða með þeim hjón-
um og Helgu, systur Halldóru, um
töfraheim Ítalíu og til Suður-Afríku
til Önnu Lísu og Péturs manns henn-
ar.
Menning, listir og saga skipuðu
veglegan sess í ferðum þessum en
einnig að gleðjast saman og njóta
augnabliksins.
Fyrir nokkrum árum fór að bera á
heilsubresti hjá Halldóru. Veikindi
hennar ágerðust og kraftarnir dvín-
uðu smátt og smátt þar til ekki varð
lengur við ráðið og yfir lauk.
Blessuð sé minning hennar.
Bjarna og frændfólki mínu í Sví-
þjóð sendi ég innilegar samúðarkveðj-
ur.
Megi björt minning um Halldóru
vera huggun í sorg ykkar.
Ásta Anna Vigbergsdóttir.
Í dag kveðjum við kærleiksríka
konu. Konu sem gaf okkur styrk og
stuðning þegar eitthvað bjátaði á.
Hún hlúði að þeim sem sóttu hana að
og hlustaði með ró og spekt á það sem
henni var sagt. Hún var ráðgefandi og
íbyggin þegar kom að svörum og sá
oft leiðir sem aðrir ekki sáu.
Halldóra Gunnarsdóttir, móður-
systir mín, var einlæg, hlý og gjafmild.
Hún var staðföst og trú sinni sannfær-
ingu og alltaf til í að hlusta. Það sýndi
hún í verki með nærgætni.
Ég dvaldi oft hjá þeim heiðurshjón-
um, Halldóru og Bjarna, þegar ég var
yngri. Þá var farið í ferðalög, göngu-
túra eða siglingar. Arngrímur og
Friðrik tóku mér sem bróður. Edda
sem stóra systir okkar allra. Minning-
ar af þeim ferðalögum eru stór hluti af
æskuminningum mínum og hugsa ég
oft hlýlega til þeirra tíma. Það verður
undarlegt að kveðja í síðasta sinn.
Ég kveð með söknuði kæra frænku
og þakka henni hlýjan hug til mín og
fjölskyldu minnar. Væntumþykja
hennar var einlæg og góð ráð voru
alltaf vel þegin.
Eitt bros – getur dimmu í dagsljós
breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
(Einar Ben.)
Elsku Bjarni, Edda, Friðrik og
Arngrímur, ég votta ykkur mína sam-
úð. Megi minning Halldóru lifa í hjört-
um okkar.
Kristján Þór Árnason
og fjölskylda.
Góð vinkona okkar, Halldóra Gunn-
arsdóttir, er fallin frá. Við Freyjur, fé-
lagsskapur nokkurra íslenskra
kvenna í Gautaborg, áttum því láni að
fagna að hafa Halldóru í okkar hópi.
Þau tuttugu og fimm ár sem við höfum
haldið saman hefur Halldóra sett
sterkan svip á samveru okkar og verið
mikill gleðigjafi. Hún tók af einlægni
þátt í gleði og sorgum okkar allra.
Ógleymanlegar eru allar fyndnu og
mannbætandi frásagnir Halldóru af
ferðalögum þeirra Bjarna – stóru ást-
arinnar og lífsförunautar hennar.
Halldóra hafði nefnilega einstaka til-
hneigingu til að lenda alltaf í óvænt-
um og spaugilegum ævintýrum, enda
borin áfram af brennandi áhuga á líf-
inu og tilverunni allri. Þau hjónin
ferðuðust oft til framandi landa, jafn-
vel eftir að heilsu Halldóru fór að
hraka. Frumskógar Súmötru og
pýramídar Egyptalands voru meðal
annars kannaðir.
Halldóra og Bjarni voru gestrisin
og góð heim að sækja. Minnisstæð er
ítalska veislan sem þau héldu, þar
sem matur og vín voru flutt beint frá
Ítalíu og endalaust góðgæti borið á
borð. Á þennan hátt vildi Halldóra
leyfa okkur Freyjum að njóta alls
hins besta frá hennar elskuðu Róma-
borg, en þar dvöldu þau Bjarni lang-
tímum á sumrin. Þau voru sannkall-
aðir lífskúnstnerar, sem áttu
spennandi líf saman. Halldóra og
Bjarni eignuðust þrjú börn og stóran
hóp afkomenda sem hún fylgdist með
af lífi og sál. Við njótum þess að
Edda, dóttir þeirra, er ein af Freyj-
unum.
Halldóra var einstaklega hispurs-
laus og án fordóma. Það hefur án efa
nýst henni vel í farsælu starfi hennar
sem sálfræðingur en hún var sér-
fræðingur í klínískri sálarfræði og
fjölskyldumeðferð. Hún var frum-
kvöðull í að færa sálfræðiþjónustu
inn á heilsugæslustöðvar í Gauta-
borg.
Okkar líflegu, hláturmildu og lit-
ríku vinkonu, Halldóru, er sárt sakn-
að.
Við sendum Bjarna, Eddu, Friðriki
og Arngrími og fjölskyldum þeirra
innilegustu samúðarkveðjur.
Aldís Einarsdóttir, Auður Guð-
jónsdóttir, Hanna Níelsdóttir,
Hrafnhildur Soffía Guðbjörns-
dóttir, Jakobína Grétarsdóttir,
Kristín Gústavsdóttir, Sigríður
Gröndal, Sólveig Óskarsdóttir,
Vigdís Hansdóttir, Yrsa Sverr-
isdóttir, Þórunn Guðmunds-
dóttir, Þórdís Katrín Þorsteins-
dóttir.
Halldóra
Gunnarsdóttir
✝ Ásrún GuðríðurHéðinsdóttir
fæddist í Reykjavík
15. janúar 1969. Hún
lést á Skógarbæ í
Reykjavík laugardag-
inn 11. september
2010.
Foreldrar hennar
eru Héðinn Hjart-
arson f. 20. júlí 1928
og Hrefna Margrét
Hallgrímsdóttir f. 24.
apríl 1934, d. 17. júlí
1992. Systkini Ás-
rúnar eru Margrét
Héðinsdóttir f. 17. ágúst 1960. Hall-
dóra Jónsdóttir, sammæðra, f. 18.
febrúar 1956 og Símon Jónsson f.
26. mars 1953.
Ásrún ólst upp hjá foreldrum og
systrum í Reykjavík. 21 árs flutti
hún á sambýlið Grundarlandi 17.
Þar bjó hún í 9 ár, um
skamman tíma bjó
hún á sambýlinu
Fannafold 178, þaðan
flutti hún á sambýlið
Jöklaseli 2 þegar það
var tekið í notkun.
Vegna veikinda var
Ásrún flutt á hjúkr-
unarheimilið Skóg-
arbæ fyrir rúmu ári
síðan, þar sem hún
lést.
Á barnsaldri sótti
Ásrún dagþjónustu í
Lyngási og síðar
Lækjarási. Þar átti hún marga vini.
Við aðstandendur Ásrúnar þökkum
öllu því frábæra fólki sem annaðist
hana í gegnum tíðina.
Útför Ásrúnar fer fram frá
Breiðholtskirkju í dag, 17. ágúst
2010, og hefst athöfnin kl. 15.
Elsku, elsku litla systir, nú ertu
farin frá okkur.
Ég veit að ég á að finna fyrir létti
nú þegar þrautum þínum er lokið.
En ósköp er þetta erfitt. Það hefur
verið átakanlegt að horfa upp á
hvernig sjúkdómurinn fór með þig,
sérstaklega síðustu vikur. Þú hefur
ekkert skilið í því hvað væri að ger-
ast með líkama þinn. Þú gast ekki
lengur hreyft þig, áttir erfitt með að
borða sem var ein þín uppáhaldsiðja,
þú varst hætt að tjá þig með þeim
fáu orðum sem þú kunnir, varst
hætt að segja bæ og svo fór þitt
skínandi bros. Ég sá hvað það var
erfitt fyrir þig þegar þú þurftir að
fara nota hjólastól. Þú grést og kall-
aðir á mömmu. Elsku systir, það var
erfitt.
Nú ertu komin til mömmu og líður
betur og getur aftur farið að ganga
um allt.
Ég var 13 ára þegar þú fæddist.
Við vissum ekki betur en að þú vær-
ir hraust og heilbrigð stúlka, en þeg-
ar talið kom ekki hjá þér vissum við
að eitthvað var að. Þriggja ára
greindist þú með þroskahömlun og
seinna með einhverfu. Þú varst svo
fallegt barn að engan gat grunað að
eitthvað væri að. Tveggja ára varstu
komin með hár niður á axlir og vakt-
ir athygli hvar sem þú fórst. Ég var
svo stolt af þér. Þú varst litla systir
og um leið og ég fór að vinna í fiski á
unglingsárunum eyddi ég megninu
af laununum í föt á þig. Þú varst ljós
mitt og yndi, þú varst litla systir.
Þegar ég eignaðist fjölskyldu
flutti ég vestur á Flateyri og hitti
þig sjaldnar þau ár sem ég bjó þar.
Eftir að mamma dó var Magga syst-
ir okkar óþrjótandi dugleg að sinna
þér ásamt pabba sem fór daglega að
heimsækja þig. Það verður mikið
tómarúm hjá honum nú þegar þú ert
farin.
Elsku Ásrún, þakka þér fyrir allt
og hvíl í friði, dúllan mín.
Þín systir
Halldóra.
Mig langar með örfáum orðum að
minnast kærrar vinkonu með þakk-
læti fyrir þann tíma sem við áttum
saman.
Þrátt fyrir fötlun þína og áhrifin
sem hún hafði á líf þitt varstu litrík-
ur persónuleiki, ákveðin og vissir
hvað þú vildir. Þú hafðir gaman af
lífinu og heillaðir alla í kringum þig
með smitandi hlátri og undurfallegu
brúnu augunum þínum. Þannig man
ég þig, elsku Ásrún, og ég vil þakka
þér samfylgdina og allar góðu stund-
irnar. Þín verður sárt saknað en ég
trúi því að þú sért hvíldinni fegin,
þér líði loksins vel og sért aftur farin
að hlaupa um og hlæja.
Ég sendi Héðni föður þínum inni-
legar samúðarkveðjur. Hann var
stoð þín og stytta og missir hans er
mikill. Einnig votta ég systrum þín-
um og öðrum aðstandendum samúð.
Nú ertu leidd, mín ljúfa,
lystigarð Drottins í,
þar áttu hvíld að hafa
hörmunga og rauna frí,
við Guð þú mátt nú mæla,
miklu fegri en sól
unan og eilíf sæla
er þín hjá lambsins stól.
Dóttir, í dýrðar hendi
Drottins, mín, sofðu vært,
hann, sem þér huggun sendi,
hann elskar þig svo kært.
Þú lifðir góðum Guði,
í Guði sofnaðir þú,
í eilífum andarfriði
ætíð sæl lifðu nú.
(Hallgrímur Pétursson.)
Fyrir hönd okkar allra í Jöklaseli,
Margrét Steiney Guðnadóttir.
Ásrún Guðríður
Héðinsdóttir
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts ástkærs
eiginmanns og föður,
NORMAN JOHN EATOUGH,
Boca Raton,
Flórída,
Bandaríkjunum.
Svava Þórisdóttir Eatough,
Kathleen Eatough.
✝
KRISTÓFER BALDUR PÁLMASON
fv. dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins,
Vesturbrún 31,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag,
föstudaginn 17. september, kl. 15.00.
Aðstandendur.
✝
Innilegar þakkir til ykkar allra sem hafið auðsýnt
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar
yndislegu móður, tengdamóður, ömmu, langömmu
og langalangömmu,
SIGRÚNAR B. ÓLAFSDÓTTUR,
Árskógum 8
og minnst hennar af hlýju og vinsemd.
Dóra Sigrún Hilmarsdóttir, Helgi Pétursson,
Ólöf Heiða Hilmarsdóttir, Sigursteinn Jósefsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.