Morgunblaðið - 17.09.2010, Page 34
34 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
6 5
7 3 6
4 2 7 1
7 4 9 6
3 6 2
9 5 7 2 1
1 3 7
9 4
4 6 3
6 8 9
3 9 2
8 1 4
9 1
7 9 6
3 7 6
4
1 8 7
3 8 2
9 8
7 5
7 9 6
5
6 3
8 9 6 4
3 2 5
1 4
5 4 1 9 8 7 3 6 2
2 7 8 4 6 3 1 9 5
3 6 9 1 5 2 4 8 7
7 2 4 8 1 9 5 3 6
8 1 6 5 3 4 2 7 9
9 5 3 2 7 6 8 4 1
6 8 2 7 4 5 9 1 3
4 3 5 6 9 1 7 2 8
1 9 7 3 2 8 6 5 4
1 4 8 3 9 5 2 7 6
5 2 9 1 7 6 3 4 8
6 7 3 8 2 4 9 1 5
7 3 4 2 5 8 1 6 9
9 8 6 7 1 3 4 5 2
2 1 5 4 6 9 7 8 3
4 6 7 5 3 2 8 9 1
3 5 1 9 8 7 6 2 4
8 9 2 6 4 1 5 3 7
1 2 5 9 3 7 4 8 6
9 8 7 6 4 1 5 2 3
4 6 3 2 8 5 9 1 7
6 5 4 8 2 9 7 3 1
3 9 2 7 1 4 8 6 5
8 7 1 3 5 6 2 4 9
5 3 8 1 7 2 6 9 4
2 4 9 5 6 3 1 7 8
7 1 6 4 9 8 3 5 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 17. september,
260. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Varpið allri áhyggju yðar
á hann, því að hann ber umhyggju fyr-
ir yður. (1Pt. 5, 7.)
Í þjóðsögum Jóns Árnasonar segirmeðal annars frá svonefndum
Bakkabræðrum og einhverra hluta
vegna hafa þeir ítrekað komið upp í
huga Víkverja, þegar vandræði við
Bakkafjöru ber á góma.
x x x
Jón Árnason segir svo frá að fyrirlöngu hafi búið bóndi á bæ þeim
sem á Bakka heitir í Svarfaðardal.
Hann átti þrjá syni; Gísla, Eirík og
Helga, og voru þeir orðlagðir fyrir
heimsku. Mörg heimskupör þeirra
vöktu mikla athygli og voru færð í let-
ur.
Ein frásögnin greinir frá því þegar
þeir bræður keyptu stórkerald suður
í Borgarfirði. Þeir slógu það sundur
svo það væri því hægara í vöfunum að
flytja það norður.
Þegar heim kom var keraldið aftur
sett saman og farið að safna í það, en
það vildi leka. Fóru þá bræður að
skoða hvað til þess kæmi. Segir svo
einn þeirra: Gísli, Eiríkur, Helgi!
Ekki er kyn þó keraldið leki, því botn-
inn er suður í Borgarfirði.
x x x
Herjólfur hefur ekki getað siglt íLandeyjahöfn í nær tvær vikur
vegna þess að sandur hefur safnast
saman í innsiglingunni. Lengst af hef-
ur ölduhæð verið of mikil til þess að
dýpkunarskipið Perla gæti athafnað
sig og á meðan hefur bæst í hrygginn
í innsiglingunni. Fram kom í vikunni
að um 2.000 rúmmetrar af sandi
hefðu verið fjarlægðir eftir að verkið
hófst um helgina. Þegar vinna lá niðri
vegna veðurs í byrjun vikunnar hélt
sandurinn áfram að safnast fyrir í
innsiglingunni. Reyndar óttaðist
skipstjórinn á dýpkunarskipinu að
sandurinn, sem hafði verið fjar-
lægður, leitaði aftur á fyrri slóðir.
x x x
Bakkabræður höfðu reyndar ráðvið ámóta hindrun. Eftir að hafa
byggt sér hús án glugga tóku þeir eft-
ir því að inni var kolniðamyrkur. Um
hásumar brugðust þeir við með því að
bera myrkrið út í húfum sínum eða
trogum og báru síðan sólskinið inn á
sama hátt. Birtan jókst reyndar ekki
en það var aukaatriði. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 tilkynnir, 8 stafa-
gerð, 9 duglegar, 10 fljót, 11
híma, 13 deila, 15 heilnæmt,
18 heilbrigð, 21 bókstafur,
22 setjum, 23 hringl, 24 and-
látsstund.
Lóðrétt | 2 kæpur, 3 fersk-
ara, 4 í vafa, 5 út, 6 kjáni, 7
máttur, 12 skaut, 14 málm-
ur, 15 gat, 16 óverulega, 17
þjálfa, 18 næstum allt, 19
klakinn, 20 hnöttur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 doppa, 4 hófar, 7 gárum, 8 risum, 9 tám, 11 rósa, 13
bana, 14 notar, 15 munn, 17 álka, 20 snæ, 22 túnin, 23 ræðin, 24
rauða, 25 niður.
Lóðrétt: 1 dugur, 2 parts, 3 aumt, 4 harm, 5 fossa, 6 rimma, 10
ástin, 12 ann, 13 brá, 15 matur, 16 nunnu, 18 liðið, 19 Agnar, 20
snúa, 21 ærin.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 Rc6 6. Bg5 e6 7. Dd2 a6 8. O-
O-O Be7 9. f3 Rxd4 10. Dxd4 b5 11. h4
Bb7 12. Kb1 Dc7 13. Dd2 Hd8 14. Bd3
O-O 15. Re2 e5 16. Rc3 b4 17. Rd5
Rxd5 18. exd5 a5 19. g4 Bc8 20. Hdg1
Kh8 21. Be3 Hde8 22. g5 Bd8 23. Dg2
f5 24. gxf6 Hxf6 25. Bg5 Hf7 26. Bg6
Bf5 27. Bxf7 Dxf7 28. Bxd8 Hxd8 29.
Hh2 Hc8 30. Dg3 a4 31. Ka1 a3 32.
Hhg2 g6 33. Dg5 axb2+ 34. Kxb2 e4
35. fxe4 Dg7+ 36. Kb1
Staðan kom upp á franska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í
Belfort. Romain Edouard (2620) hafði
svart gegn Hicham Hamdouchi (2600).
36… b3! 37. axb3 Ha8 38. Kc1 Dd4! 39.
c3 Dxc3+ og hvítur gafst upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sviti og örvænting.
Norður
♠ÁD10
♥6
♦ÁD1074
♣K852
Vestur Austur
♠K64 ♠52
♥-- ♥G1098743
♦G95 ♦K83
♣DG109643 ♣7
Suður
♠G9873
♥ÁKD52
♦62
♣Á
Suður spilar 6♠.
Sumir segja að vörnin sé mestan
part örvænting og sviti. Sagnir hófust
með spaðaopnun suðurs og hindrun
vesturs í laufi. Stuttu síðar spilaði vest-
ur vongóður út ♣D gegn 6♠, en svitn-
aði þegar hann sá ♠ÁD10 í borði.
Sagnhafi lét ♠G rúlla hringinn í öðrum
slag, spilaði aftur spaða og … vestur
lét kónginn vaða í örvæntingu.
Vestur sá ekki fyrir endann á blekk-
ingu sinni – vissi bara að eitthvað yrði
að gera. Frá bæjardyrum sagnhafa
virtist nú öruggast að trompa eitt
hjarta. Hann geymdi því ♠D og spilaði
hjarta á ásinn. Úps. Vestur trompaði
og svo lá ♦K vitlaust. Einn niður í spili
sem örlögin höfðu gert ráð fyrir að
ynnist.
Allar varnarbækur hafa að geyma
svipað heilræði: Láttu spilið sem sagn-
hafi veit að þú átt.
17. september 1717
Gos hófst í Kverkfjöllum við
norðanverðan Vatnajökul.
„Varð svo mikið myrkur með
dunum og jarðskjálftum í
Þingeyjarsýslum að eigi sá á
hönd sér,“ segir í ritinu Land-
skjálftar á Íslandi. Mikið hlaup
kom í Jökulsá á Fjöllum og
„gjörði mikinn skaða í Keldu-
hverfi“.
17. september 1992
Landsbankinn ákvað að taka
eignir Sambands íslenskra
samvinnufélaga upp í skuldir.
Þar með mátti heita að lokið
væri starfsemi stærsta fyr-
irtækis landsins um áratuga-
skeið.
17. september 2001
José Carreras var vel fagnað í
Laugardalshöll þar sem stór-
tenórinn söng fyrir fullu húsi
ásamt Diddú, kór Íslensku óp-
erunnar og Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Carreras tók fjölda
aukalaga en alls stóðu tónleik-
arnir í tæpa þrjá tíma.
17. september 2001
Skífan gaf út myndgeisladisk
með tónleikum Sálarinnar
hans Jóns míns. Hann var aug-
lýstur sem fyrsti íslenski DVD
diskurinn.
17. september 2009
Íslenska kvennalandsliðið í
knattspyrnu sigraði Eista á
Laugardalsvelli með tólf
mörkum gegn engu. „Fá-
heyrðir yfirburðir,“ sagði
Morgunblaðið.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Ég ætla að bara að halda smáboð fyrir fjölskyld-
una á morgun,“ segir Eva Benediktsdóttir, dósent
í örverufræði við Háskóla Íslands en hún er sextug
í dag. „Þarna verða kannski um 30 manns, auðvit-
að maðurinn minn, Baldur Sigurðsson, sem er dós-
ent í íslensku, börnin þrjú, barnabörnin og frænd-
systkin en boðið verður haldið hjá dóttur minni.
Ég ætla að baka sjálf en að öðru leyti segir ég þér
ekkert frá matnum, hann verður að fá að koma á
óvart!“
Eva segist hafa haldið vel upp á fimmtugs-
afmælið á sínum tíma, haldið heilmikla veislu.
Sumir halda upp á stórafmæli með utanlandsferð. „Í sumar tók ég for-
skot á afmælið, fór með saumaklúbbnum til Toscana á Ítalíu, þar er
mjög fallegt. Við leigðum okkur hús saman, þetta hafa líklega verið í
allt um 12 manns af því að makarnir komu með.“
Eva er frá Siglufirði. Hún lauk námi við Menntaskólann á Akureyri
en lærði lífræði á Íslandi og í Svíþjóð en hefur kennt við Háskólann í
bráðum 20 ár. Eva vann um hríð á Tilraunastöð Háskólans á Keldum
og stundar auk kennslu rannsóknir á fisksjúkdóma- og sjávarbakter-
íum, m.a. við hitaveituúttök og hveri í flæðarmálinu. kjon@mbl.is
Eva Bendiktsdóttir dósent sextug
Tók forskot með Ítalíuferð
Hlutavelta
Ásta Rakel
Birgisdóttir og
Tinna Rut Haf-
steinsdóttir
héldu tombólu
við Samkaup í
Hafnarfirði í
júlí og færðu
Rauða kross-
inum ágóðann
sem var 5.801
króna.
Flóðogfjara
17. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 1.27 2,7 7.46 1,6 14.28 3,0 21.03 1,5 6.57 19.49
Ísafjörður 3.55 1,4 10.07 0,9 16.41 1,8 23.20 0,7 6.59 19.56
Siglufjörður 6.33 1,0 11.57 0,7 18.16 1,2 6.43 19.39
Djúpivogur 4.24 0,9 11.36 1,7 17.54 1,0 23.49 1,5 6.26 19.19
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú hefur heyrt nóg af brjáluðum vel-
gengnissögum, en engin hefur haft jafn mikil
áhrif á þig og sú sem þú heyrir í dag.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Öðrum finnst þú þurfa lítið að hafa fyrir
hlutunum af því að þú berð ekki utan á þér
hve vandlega þú vinnur þín störf.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú reiðir þig yfirleitt ekki á vingjarn-
leika ókunnugra – en stundum þó, og þú
verður sjaldan fyrir vonbrigðum. Reyndu að
líta sem best út. Gefðu þér því nægan tíma til
að undirbúa hlutina.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Dund er ekki málið fyrir þig! Þú ert í
banastuði og munt framleiða heil ósköp og
gefa góða þjónustu. Reyndu að halda hlut-
leysi þínu og sýna málsaðilum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Taktu frítímanum jafn alvarlega og ef
um vinnu væri að ræða. Hugsaðu til lengri
tíma, það færir þér aukna hamingju. Leggðu
þitt af mörkum til að bæta umhverfi þitt.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Láttu það eftir þér að sleppa fram af
þér beislinu og gerðu eitthvað sem þú hefur
ekki upplifað áður. Reyndu að grípa gæsina á
meðan hún gefst.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Hugur þinn fer úr einu í annað í dag og
sérhver ný tillaga beinir hugsuninni í nýja átt.
Með 10% meiri samúð fyrir öðrum skilurðu
áform þeirra og samþykkir.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú veist upp á hár hverju þú vilt
ná fram í viðskiptum í dag. Flýttu þér samt
hægt og gefðu öðrum möguleikum gaum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Láttu í þér heyra og framkvæmdu
af dirfsku, með því skaparðu stíganda og ger-
ir eitthvað gáfulegt án þess að fatta það.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú þarft að fara gætilega í ákvarð-
anatöku þinni því þú veist að ekki verður aft-
ur snúið. Sérhver ofurhetja þarfnast félaga.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Leyndarmál um þér náinn koma
þér á óvart. Nú eru þær blikur á lofti að þið
þurfið að standa saman og þá stendur allt og
fellur með þér.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Ekki er allt sem sýnist svo þú skalt
ganga varlega um gleðinnar dyr, þótt allt
virðist vera í fínasta lagi.
Stjörnuspá