Morgunblaðið - 17.09.2010, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2010
Queens Of The Stone Age munu
endurútgefa fyrstu plötu sína,
samnefnda sveitinni, í nóvember
komandi. Platan kom upp-
runalega út 1998. Endurútgáfan
mun bera með sér þrjú áður óút-
gefin lög. Í ágúst kom önnur
plata þeirra, Rated R, út með
svipuðu sniði. Josh Homme, leið-
togi, segir að sveitin sé að pæla í
því að spila allar plötur sínar á
tónleikum í heild sinni.
Rokk Josh Homme og félagar.
QOTSA
endurútgefa
Geturðu lýst þér í fimm orðum? Víðsýni, kær-
leikur, brjóstvit, barnsleg forvitni, hjálp-
semi... ahhh, ég þarf miklu fleiri orð!
Hversu hratt gengur meðalrúllustiginn skv.
hávísindalegri bandarískri mælingu? (spyr
síðasti aðalsmaður, Vilhelm Anton Jónsson)
Hvers lags vitleysisspurning er þetta? Það
er ekki nóg með að þessi drengur er með
neðanbeltishúmor með þessum kjánum
þarna sem pissa í sig og drekka einhvern við-
bjóð í þáttunum sínum, heldur getur hann
ekki einu sinni sett saman almennilega
spurningu!
Hver er mikilvægasti listamaður allra tíma?
Jahh, ætli ég verði ekki að segja Guð, því
hann skapaði alla aðra listamenn og því er
erfitt að toppa það.
Hvernig er best að slappa af? Skella La Bo-
heme á fóninn (helst með Callas), láta renna í
freyðibað og „tríta“ sjálfan sig með fótsnyrt-
ingu.
Hvað myndirðu gera við hundrað
milljónir? Láta þýða bækur mínar yfir á öll
tungumál heimsins og gefa þær svo sjálfur út
world-wide. Það er fjárfesting sem mun skila
arði.
Af hverju erum við fædd til að þjást og deyja?
Af því að lífið er ósanngjarnt og fólk kann
ekki gott að meta!
Íslendingar eru eins og... sauðfé, jarmandi út
í loftið í sauðalitunum, á jaðri hins byggilega
heims.
Hvert er fegursta tungumál í heimi? Vönduð
engilsaxneska (enska) getur hljómað eins og
hunang með rjóma ef hún er rétt borin fram.
Hvernig er best að elda humar og hvað á mað-
ur að drekka með? Það er best að láta aðra
elda fyrir sig og drekka með Montrachet
(1978) frá Domaine de la Romanée-Conti.
Hvernig getur ungur maður haldið vegi sínum
hreinum? Ég skil ekki einu sinni þessa! Er
þetta myndlíking? Ég ætla ekki að láta leiða
mig í neina gildru, svo ég segi pass!
Hvað er húmor? Eitthvað sem er hnyttið og
fræðandi um leið, en það má ekki vera sær-
andi, nema viðkomandi eigi það skilið.
Hvað fær þig til að skella upp úr? Annarra
manna fáfræði.
Hvers viltu spyrja næsta aðalsmann? Nú fæ
ég tækifæri til þess að sýna þessum Vilhelm
hvernig hann hefði getað notað þetta tæki-
færi: Hver af bókum Kafka (Franz) daðrar
mest við existensíalisma, þó ekki á póstmód-
ernískan hátt, að þínu mati?
Lætur ekki leiða sig í gildrur
Sjónvarpsmaðurinn Frímann Gunnarsson segist stoltur yfir að vera
loksins viðurkenndur aðalsmaður á Íslandi. Hann snyrtir á sér fæt-
urna og lætur aðra um að elda fyrir sig humar
F áb á
SPARBÍÓ 950 krkr á allar sýningar merktar með grænu
7
ROMAN POLANSKI HLAUT SILFUR-
BJÖRNINN SEM BESTI LEIKSTJÓRINN
Á KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI Í BERLÍN
HHHH
„HINN SÍUNGI POLANSKI SÝNIR Á SÉR
ÓVÆNTA HLIÐ Í HÖRKUGÓÐRI SPENNUMYND,
STÚTFULLRI AF PÓLITÍSKUM LAUNRÁÐUM OG
BULLANDI OFSÓKNARÆÐI.“
SÆBJÖRN VALDIMARSSON,
MORGUNBLAÐIÐ
HHHH
“LEIKSTJÓRN POLANSKIS GRÍPUR
ÁHORFANDANN ÁSAMT ATHYGLIS-
VERÐUM SÖGUÞRÆÐI.
THE GHOST WRITER ER AÐ MÍNU MATI
EIN BESTA MYND ÁRSINS HINGAÐ
TIL.”
T.V. – KVIKMYNDIR.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
SÝND ÍSÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
BESTA DANSMYND SEM GERÐ HEFUR
VERIÐ SÍÐAN DIRTY DANCING VAR OG HÉT...
7
Ef þú fílar So You Think You
Can Dance þá áttu eftir að
ELSKA STEP UP
Frábær mynd sem kemur
skemmtilega á óvart
Ein besta rómantíska
grínmynd ársins!
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
„FYRSTA FLOKKS.“
100/100 - SAN FRANCISCO CHRONICLE
„ÞAÐ ER SJALDGÆFT AÐ
RÓMANTÍSKAR GAMANMYNDIR
SÉU TRÚVERÐUGAR.“
85/100 - ENTERTAINMENT WEEKLY
„MEIRA HEILLANDI EN 90% AF
RÓMANTÍSKUM KVIKMYNDUM
SEM ERU FRAMLEIDDAR Í DAG.“
80/100 TIME
BESTA SKEMMTUNIN
GOINGTHEDISTANCE kl.5:50-8-10:20 L AULINN ÉG - 3D m. ísl. tali kl.4 -6 L
GOINGTHEDISTANCE kl.8 -10:20 VIP-LÚXUS STEP UP 3 - 3D kl. 10:303D 7
ALGJÖRSVEPPIOGDULARFULLAHÓTEL... kl.43D -4:303D -63D -6:303D -8:303D L HUNDAR OG KETTIR 2 m. ísl. tali kl.4 L
ALGJÖRSVEPPIOGDULARFULLAHÓTEL... kl.4 -6 L LETTERS TO JULIET kl.8 L
REMEMBER ME kl.8 -10:30 12 INCEPTION kl.10:20 12
THE GHOST WRITER kl.8 -10:30 12
THE GHOST WRITER kl.5:30 VIP-LÚXUS
/ ÁLFABAKKA /
GOINGTHEDISTANCE kl. 5:50-8-10:20 L
ALGJÖRSVEPPIOGDULARFULLAHÓTEL... kl. 43D -63D L
THE GHOST WRITER kl. 10:10 12
STEP UP 3 - 3D kl. 83D 7