Morgunblaðið - 07.12.2010, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2010
Andri Karl
andri@mbl.is
Engar eignir fundust í þrotabúi
eignarhaldsfélagsins Hafnarhóls
sem tekið var til gjaldþrotaskipta í
ágúst síðastliðnum. Skiptum lauk
því án þess að greiðsla fengist upp í
lýstar kröfur, rúma 9,4 milljarða
króna, auk áfallinna vaxta og kostn-
aðar eftir úrskurðardag gjaldþrota-
skipta. Eigandi félagsins segir það
hafa verið týpískt félag sem átti
hlutabréf.
Hafnarhóll var fjárfestingarfélag
í eigu Guðmundar Kristjánssonar,
forstjóra Brims. Í gegnum Lands-
bankann í Lúxemborg var gerður
lánasamningur til kaupa á hlutafé í
öðrum íslenskum banka og var eina
starfsemi félagsins að halda utan
um bréfin.
Guðmundur sagði í samtali við
Morgunblaðið að Hafnarhóll hefði
verið týpískt félag sem átti hluta-
bréf. Það líkt og önnur eins hafi far-
ið á hausinn. „Þetta voru bankabréf,
keypt í banka, fjármögnuð af banka
og geymd í banka,“ sagði Guðmund-
ur og bætir við: „Þetta var keypt
froða og lánuð froða, og svo bara
hvarf froðan.“
Skuldir ekki felldar niður
Hann sagðist einnig ósáttur með
umfjöllun fjölmiðla þegar kemur að
niðurfellingu skulda og tók sérstak-
lega fram að í þessu tilviki væri alls
ekki verið að fella niður skuldir „af
því að þetta var aldrei neitt“.
Guðmundur vildi aðspurður ekki
upplýsa í hvaða banka hlutabréfin
voru. Í umfjöllun Kastljóss RÚV
snemma á árinu sagði hins vegar að
Hafnarhóll hefði meðal annars átt
hlut í Straumi banka, en ekki væri
vitað um aðrar eignir enda hefði
ársreikningum aldrei verið skilað til
Ársreikningaskrár.
Í rannsóknarskýrslu Alþingis er
Hafnarhóll á lista yfir áhættuskuld-
bindingar með sýnilega áhættu hjá
Landsbankanum í Lúxemborg í
mars 2008. Skuldbinding var þá
tæpar 54 milljónir evra, jafnvirði 8,2
milljarða króna á núvirði.
„Svo hvarf bara froðan“
Lýstar kröfur í eignarhaldsfélagið Hafnarhól námu rúmum 9,4 milljörðum kr.
Eina starfsemi félagsins var að halda utan um hlutabréf í íslenskum banka
Þetta voru banka-
bréf, keypt í
banka, fjármögnuð
af banka og geymd
í banka.
Guðmundur Kristjánsson
Morgunblaðið/Golli
Bréfin Landsbankinn veitti lánið.
Ungum gestum Árbæjarsafns þótti sérdeilis
gaman að prófa gamla hestakerru, þegar árleg
jólasýning safnsins var opnuð. Hún er haldin síð-
ustu þrjá sunnudagana fyrir jól og þá geta gestir
rölt milli húsanna og fylgst með undirbúningi
jólanna eins og hann var í gamla daga. Í Árbæn-
um fær fólk t.d. að skera út laufabrauð með
vasahníf og í Kornhúsinu fá börn og fullorðnir
að föndra músastiga og jólapoka.
Gamli og nýi tíminn í Árbæ
Morgunblaðið/Eggert
Meðlagsskuldir námu yfir tuttugu
milljörðum króna í lok nóvember.
Þetta kemur fram í skriflegu svari
Ögmundar Jónassonar við fyr-
irspurn Birkis Jóns Jónssonar, þing-
manns Framsóknarflokksins. Alls
eru rúmlega 11 þúsund karlmenn
meðlagsgreiðendur á Íslandi en kon-
ur eru 558 talsins.
Í lok nóvember skulduðu karlkyns
meðlagsgreiðendur, sem eru 11.060
talsins, 20.080.626.063 kr. Kvenkyns
meðlagsgreiðendur eru 558 og
skulda þær 575.284.395 kr.
Til frádráttar þessum fjárhæðum
eiga svo eftir að koma innheimtur á
móti reiknuðum meðlögum frá 15.
nóvember 2010 til loka mánaðarins,
u.þ.b. 75-100.000.000 krónur.
20 millj-
arða með-
lagsskuld
11 þúsund karlkyns
meðlagsgreiðendur
Farmanna- og fiskimannasamband
Íslands, Landssamband íslenskra
útvegsmanna, Sjómannasamband
Íslands og VM - Félag vélstjóra og
málmtæknimanna mótmæla harð-
lega öllum hugmyndum um sölu rík-
isins á aflaheimildum. Þetta kemur
fram í yfirlýsingu sem birt er á vef-
síðu LÍÚ.
Þar segir að stjórn fiskveiða bygg-
ist á því að þeir sem nýta fiskistofn-
ana hafi hag af því að ganga vel um
fiskimiðin. Ætli ríkið að hirða afla-
heimildir þegar árangur næst grafi
það undan langtímasjónarmiðum.
Mótmæla
sölu heimilda
Kennarasamband Íslands, KÍ, hefur
ákveðið að taka ekki þátt í heildar-
samfloti um gerð kjarasamninga.
Slíkt samflot hafi verið reynt á síð-
asta samningatímabili og reynst fé-
lögum í KÍ afar illa. Í ályktun frá KÍ
segir að sambandið sé tilbúið til
samvinnu um afmarkaða þætti sem
miði að því að finna þær forsendur
sem kjarasamningar gætu byggst á.
KÍ telur miðað við þá miklu
óvissu sem ríki, m.a. um fjárlög
næsta árs og þróun verðlags, séu
engar forsendur fyrir því að gera
kjarasamninga til lengri tíma en
eins árs.
Kennarar
ekki með
ódýrt og gott
Grillaður kjúklingur og
Pepsi eða Pepsi Max, 2 l
998kr.pk.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, sagði á Al-
þingi í gærkvöld að enn vantaði upp á
að fjárþörf Íbúðalánasjóðs væri skýrð
með fullnægjandi hætti. Lengi hefði
legið fyrir að reynt gæti á ríkisábyrgð
sjóðsins, og því mikilvægt að fjárveit-
ingin væri ítarlega ígrunduð.
Þriðja umræða um frumvarp til
fjáraukalaga stóð yfir í allt gærkvöld
og snerist einkum um málefni Íbúða-
lánasjóðs. Fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins í fjárlaganefnd hafa gagn-
rýnt harðlega það sem þeir segja
„skort á yfirsýn“ yfir fjármál sjóðsins.
Fjárþörf hans hafi ýmist verið metin
18 eða 22 milljarðar. Þá segja fulltrú-
ar Sjálfstæðisflokksins í fjárlaga-
nefnd að vinnubrögð nefndarinnar
séu forkastanleg og ótæk. Meirihlut-
inn í nefndinni hafi ákveðið að skuld-
binda ríkissjóð um tugi milljarða
króna á örfáum mínútum án rök-
stuðnings og skýringa.
Kristján Þór Júlíusson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, sagði í umræðum
að lítið færi fyrir umræðu um „millj-
arðatugi“ á meðan mikið púður færi í
að ræða smáar fjárhæðir. Sagði
Kristján þingmenn láta ganga yfir sig
á skítugum skónum og ætlast væri til
þess að þeir „kokgleyptu“ þær tillög-
ur sem fram kæmu þrátt fyrir að allir
nefndarmenn fjárlaganefndar hefðu
efasemdir um vinnubrögðin.
Sjálfstæð rannsókn mikilvæg
Sigríður Ingibjörg tók undir með
sjálfstæðisþingmönnunum hvað það
varðaði að ekki hefði verið gerð nægi-
lega glögg grein fyrir fjárþörf sjóðs-
ins. Sagðist hún óttast að hún gæti
verið mun meiri en þeir 35-43 millj-
arðar sem félags- og tryggingamála-
nefnd fékk upplýsingar um.
Sigríður lagði mikla áherslu á það í
málflutningi sínum í gærkvöld að
væri ætlunin að samþykkja stóra
aukafjárveitingu til Íbúðalánasjóðs
væri mikilvægt að þingsályktunartil-
laga um sjálfstæða rannsókn á starf-
semi Íbúðalánasjóðs yrði samþykkt.
Óttast að fjárþörf
Íbúðalánasjóðs sé meiri
Vinnubrögð fjár-
laganefndar ótæk
Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir
Kristján Þór
Júlíusson