Morgunblaðið - 07.12.2010, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2010
FRANSA
buxurnar
eru komnar
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Háar í mittið
Beinar skálmar
Str. 34-46
SPARIBUXUR
í 3 síddum
Str. 36 - 52
Tekið er á móti framlögum á reikningi
Fjölskylduhjálpar:
Bnr. 101-26-66090 – Kt. 660903-2590.
Tökum á móti matvælum og fatnaði að
Eskihlíð. Upplýsingar í síma 551-3360
og 892-9603.
Athugið að við erum einu óháðu og
sjálfstætt starfandi hjálparsamtökin,
áttunda árið í röð.
Jólasöfnun Fjölskylduhjálpar Íslands
er hafin fyrir starfsstöðvar okkar í
Reykjavík, á Akureyri og í Reykjanesbæ.
Þúsundir einstaklinga eru nú án atvinnu, auk þeirra
fjölmörgu sem minna mega sín í þjóðfélaginu og eiga
um sárt að binda.Leggjum okkar af mörkum til að allir
geti haldið gleðileg jól.
ICELANDAIR GROUP
HLUTAFJÁRÚTBOÐ
Stjórn Icelandair Group hf. („félagið“), kt. 631205-1780, tilkynnti um hlutafjárútboð í félaginu
17. nóvember 2010.
Alls verða boðnar til kaups á bilinu 500 til 1.059 milljónir nýrra hluta í almennu hlutafjárútboði („útboðið“)
með útgáfu nýrra hlutabréfa („nýir hlutir“) í félaginu. Ef félaginu berast áskriftir í færri en 500 milljónir hluta
munu engir nýir hlutir verða boðnir til kaups. Útboðið hefst miðvikudaginn 8. desember 2010,
klukkan 10:00, og lýkur fimmtudaginn 23. desember 2010, klukkan 16:00.
Félagið mun birta lýsingu 7. desember vegna útboðsins. Lýsingin samanstendur af útgefandalýsingu,
dagsettri 28. október 2010, ásamt samantekt og verðbréfalýsingu, dagsettum 7. desember 2010. Hægt er
að nálgast lýsinguna á heimasíðu félagsins, www.icelandairgroup.is, en prentuð eintök verða einnig
aðgengileg á aðalskrifstofu félagsins á Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík, í 12 mánuði frá birtingardegi.
Stjórn félagsins hefur nú gengið frá skilmálum útboðsins. Útboðsgengið verður 2,5 kr. á hvern nýjan hlut.
Einungis er hægt að greiða fyrir nýja hluti með reiðufé í íslenskum krónum. Allir nýir hlutir eru í sama flokki.
Hlutirnir gefa allir sömu réttindi og eru sambærilegir við eldri hluti að öllu leyti. Nýjum hlutum í félaginu
verður úthlutað á eftirfarandi hátt:
1. Núverandi hluthafar félagsins úr hluthafaskrá 17. nóvember 2010 skv. Verðbréfaskráningu Íslands hafa
forkaupsrétt að 799 milljón nýjum hlutum í útboðinu. Hlutabréf sem voru keypt eftir 15. nóvember njóta
ekki forgangsréttar. Ef forgangsréttur hluthafa verður ekki nýttur að fullu verða hlutirnir boðnir
almennum fjárfestum.
Hluthafar skulu fylla út rafrænt skráningareyðublað á heimasíðu Íslandsbanka, www.isb.is. Öllum
hluthöfum verður sendur póstur 7. desember 2010 með upplýsingum um nafnverð og gengi þeirra hluta
er hluthafi á rétt til að kaupa, um frest til áskriftar og um greiðslukjör. Hluthöfum var jafnframt sent
notandanafn og lykilorð að rafrænu skráningareyðublaði á heimasíðu Íslandsbanka. Ef hluthafi sem
óskar eftir þátttöku hefur ekki fengið úthlutað notandanafni og lykilorði getur sá hinn sami haft samband
við Íslandsbanka í síma +354 440 4920.
Nýjum hlutum verður úthlutað samkvæmt lögum um hlutafélög nr. 2/1995 og samþykktum félagsins.
Ef hluthafi nýtir ekki forgangsrétt sinn til fullnustu verður öðrum forgangsréttarhöfum boðið að auka við
hlut sinn í útboðinu. Hluthafar sem vilja nýta sér forgangsrétt hluthafa, sem ekki taka þátt í útboðinu,
geta skráð sig fyrir fleiri hlutum en forgangsréttur viðkomandi hluthafa segir til um. Umframhlutum
verður svo úthlutað hlutfallslega eftir skráðri hlutafjáreign 17. nóvember 2010 hjá Verðbréfaskráningu
Íslands. Ef fjöldi nýrra hluta gengur ekki upp í heila tölu verður námundað niður á við.
2. Allir starfsmenn félagsins ásamt dótturfélögum þess, að undanskildum Bluebird Cargo ehf. og
SmartLynx AOC, sem voru starfandi hjá félaginu 31. október 2010 hafa forgang á 160 milljón nýjum
hlutum í útboðinu. Ef starfsmenn skrá sig ekki fyrir þeim hlutum verða þeir boðnir almennum fjárfestum.
Starfsmenn félagsins geta fundið tengil á rafrænt skráningareyðublað hjá Íslandsbanka á innraneti
félagsins (Mywork). Starfsmenn sem nýta sér tengil af innraneti félagsins fá sjálfkrafa auðkenni á
skráningareyðublaði.
3. Almennum fjárfestum á Íslandi verður boðið að kaupa 100 milljón nýja hluti í félaginu ásamt óseldum
hlutum frá forgangsréttarhöfum og starfsmönnum. Þátttaka í útboðinu er heimil öllum íslenskum
einstaklingum og lögaðilum sem lögum samkvæmt er heimil þátttaka í hlutafjárútboðum. Starfsmönnum
Íslandsbanka er heimilt að taka þátt í almenna hluta útboðsins en þátttaka þeirra takmarkast við fyrstu
þrjár klukkustundir skráningar 8. desember 2010.
Fjárfestar skulu skrá sig fyrir nýjum hlutum í félaginu á rafrænu skráningareyðublaði á heimasíðu
Íslandsbanka, www.isb.is/Icelandair.
Ákvörðum um úthlutun á nýjum hlutum til starfsmanna og almennra fjárfesta verður tekin af stjórn félagins
að útboðstímanum loknum. Stjórn félagins áskilur sér rétt til þess að hafna öllum áskriftum, að hluta eða
öllu leyti.
Niðurstaða útboðsins verður tilkynnt 30. desember 2010. Tilkynningin mun innihalda heildarfjölda nýrra
hluta, fjölda þátttakenda, fjölda áskrifta í einstökum liðum útboðsins ásamt ákvörðun stjórnar félagsins um
úthlutun nýrra hluta.
Greiðsluseðill verður sendur í heimabanka þátttakenda 30. desember 2010. Þátttakendur geta einnig valið
að fá sendan greiðsluseðil á heimilisfang sitt ef þeir merkja sérstaklega við þann valkost á skráningar-
eyðublaðinu. Þátttakendur sem ekki fá greiðsluseðil munu ekki fá úthlutað nýjum hlutum í félaginu.
Engar frekari tilkynningar verða sendar varðandi úthlutun nýrra hluta. Áætlað er að nýju hlutirnir verða teknir
til viðskipta á aðalmarkaði NASDAQ OMX Ísland í síðasta lagi 11. janúar 2011.
Gjalddagi útsendra greiðsluseðla er 6. janúar 2010. Stjórn félagins getur ákveðið að innheimta
greiðsluseðlana samkvæmt lögum um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 eða fellt niður áskrift ógreiddra
hluta og úthlutað þeim til þriðja aðila án tilkynningar til þátttakanda.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
52
67
3
12
/1
0
GROUP
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ríkisendurskoðun fer hörðum orð-
um um reikningsskil og fjármála-
stjórn ríkisins í nýrri skýrslu,
Endurskoðun ríkisreiknings 2009,
en þar er m.a. „gagnrýnt að ekki
skuli í ríkisreikningi getið um veru-
legar fjárhagslegar skuldbindingar
sem ríkissjóður tók á sig á síðasta
ári vegna yfirtöku banka á innstæð-
um í föllnum fjármálafyrirtækjum“.
Jafnframt er „gerð alvarleg at-
hugasemd við þá ákvörðun landbún-
aðarráðuneytisins árið 2005 að verja
fé sem fékkst við sölu á Lánasjóði
landbúnaðarins, rúmlega 214 millj.
króna, til kaupa á bankabréfum hjá
Kaupþingi“. „Við hrun bankans árið
2008 voru bréfin skilgreind sem al-
mennar viðskiptakröfur og benda
líkur til þess að féð sé nú að veru-
legu leyti glatað,“ segir í skýrslunni.
Ráðherra vill yfirfara gögn
Spurður um málið sagði Guðni
Ágústsson, þáverandi landbúnaðar-
ráðherra, að hann þyrfti að kynna
sér gögn áður en hann tjái sig um
málið á allra næstu dögum.
Í skýrslunni er einnig vikið að
þeirri ákvörðun stjórnvalda í fyrra
að leggja fram 11,6 milljarða í
tengslum við endurreisn Sjóvár.
Telur Ríkisendurskoðun ekki ljóst
„við hvaða lagaheimild fjármálaráð-
herra studdist“ og þykir málið því
gefa tilefni til að „endurskoða þann
lagagrunn sem þátttaka ríkissjóðs í
endurskipulagningu fjármálafyrir-
tækja hefur hingað til byggst á“.
Fóru ekki að tilmælum
Rifjað er upp að 14. ágúst 2009
hefi ríkisstjórnin gefið út tilmæli til
ráðuneyta og stofnana um að lækka
laun umfram 400 þúsund kr. á mán-
uði, með það að markmiði að ná
fram 3-10% sparnaði. Skýrslan leið-
ir hins vegar í ljós að „fjölmargar
stofnanir urðu ekki við tilmælum
ríkisstjórnarinnar“.
„Ríkisendurskoðun gagnrýnir
hvernig fjármálaráðuneytið og önn-
ur ráðuneyti stóðu að því að kynna
þau og leiðbeina um framkvæmd
þeirra. Nauðsynlegt er að tilmæli til
stjórnenda stofnana séu skýr og
valdi ekki misskilningi eða misræmi
í framkvæmd.“
Vekur þessi gagnrýni athygli,
ekki síst í ljósi þess að Skúli Helga-
son, þingmaður Samfylkingar og
einn nefndarmanna í vinnuhópi um
ríkisfjármál sem var m.a. að falið að
yfirfara launamálin, lýsti því yfir 15.
júní 2009 að þótt launalækkunin
væri ekki einföld aðgerð væru skila-
boðin til kjararáðs skýr. „Ég held
að þetta sé hluti af því að ná sátt í
þjóðfélaginu um aðgerðir sem verða
erfiðar og sársaukafullar.“
Óreiða í fjár-
málastjórn ríkis-
stjórnarinnar
Hörð gagnrýni Ríkisendurskoðunar
Loforð um lækkun launa ekki efnd
Laun vega þungt
» Fram kom í úttekt Morgun-
blaðsins 16. júní 2009 að laun
væru 51% af útgjöldum heil-
brigðisráðuneytisins.
» Hlutfallið var 68% í við-
skiptaráðuneytinu og dóms-
og kirkjumálaráðuneytinu,
46% í utanríkisráðuneytinu,
55% í fjármálaráðuneytinu og
51% í umhverfisráðuneytinu.