Morgunblaðið - 07.12.2010, Qupperneq 11
Þetta voru keppendur sem ég
er bæði með í fullri þjálfun og aðrir
sem ég sé um mataræðið hjá, er að
mæla reglulega og bý til prógramm
fyrir en er ekki með í fullri þjálfun.“
Spurður hver sé lykillinn að
þessum góða árangri svarar Konráð
því að hann leggi mikið upp úr góðu
aðhaldi. „Ég legg fyrst og fremst
áherslu á gríðarlega mikið aðhald
og fylgist mjög vel með þeim sem ég
þjálfa. Ég byrja mjög snemma í nið-
urskurði fyrir svona mót, þremur
mánuðum fyrir byrja ég að láta fólk
brenna og skera niður í mataræði.
Ég breyti matarprógramminu
reglulega og mæli þau oft. Þetta
snýst ekki bara um að skera niður,
það þarf að sjálfsögðu að byggja
upp og ná þessu fullkomna sam-
ræmi sem dómararnir leita eftir.
Fólk nær mjög góðum skurði hjá
mér, það skiptir miklu máli í rest-
ina. Svo er ég með fólkið í aðhaldi
allt árið, það er að fá prógramm til
að laga sína galla og hjálpa til við
að bæta líkam-
ann. Ég
sleppi ekki
höndunum
af þeim
strax eftir
mót heldur held ég áfram með þau
og vinn með þeim allt árið eins og
það á að vera. Ég hef sjálfur mikla
reynslu af svona mótum, hef keppt
sjö sinnum í vaxtarækt og fimm
sinnum verið Íslandsmeistari í mín-
um flokki, þetta er áhugamál mitt
númer eitt og ég ligg yfir þessu öll-
um stundum svo ég veit hvað þarf
til.“
Konráð segist aðallega vera
með stelpur í þjálfun. „Ég hef meira
gaman af því að þjálfa þær, þær eru
oft harðari en strákarnir og fylgja
leiðbeiningum vel eftir. Strákarnir
reyna að fara auðveldari leiðina að
þessu, eru kærulausari og ætla að
taka þetta bara í restina en stelp-
urnar eru frá fyrsta degi á fullu.“
Fjölbreytnin í fyrirrúmi
Konráð þjálfar ekki aðeins
keppnisfólk heldur er hann með
mikið af venjulegu fólki sem vill að-
eins koma sér í form. En hvað
græðir það á því að fara til einka-
þjálfara?
„Það fær réttar leiðbeiningar
strax og lærir hvernig á að gera
þetta rétt, hvernig á að haga sér í
mataræði og æfingum og hvernig á
að stunda þrekæfingar og hversu
ákaft. Það er alltaf hætt við því að
fólk festist í sömu rútínunni, geri
það sama mánuð eftir mánuð, en
með einkaþjálfara er fjölbreytnin í
fyrirrúmi, þú ert sífellt að koma lík-
amanum á óvart og hvetja hann til
að bæta sig og styrkja. Maður
sér fólk sem hefur verið í saln-
um árum saman og lítur alltaf
eins út, er alltaf tíu kílóum of
þungt, gerir alltaf sömu æfing-
arnar og er á sama hraðanum
á brettinu en þegar einkaþjálf-
ari kemur inn í breytir hann
öllu,“ segir Konráð sem hefur
nóg að gera. „Ég hef verið
með þétta dagskrá frá því ég
byrjaði að þjálfa. En þetta tók
kipp eftir hrunið, þá sótti fólk
meira í að eyða peningum í
sjálft sig og að leita meira
innávið og það er nú jákvætt. Ég
bjóst við að það yrði öfugt en í
mínu tilfelli hefur vinnan bara auk-
ist,“ segir Konráð sem er nánast
með sama fólkið í þjálfun árið um
kring. „Flestir eiga bara sinn tíma
og mæta nánast allt árið, það er
kannski mánuð frá þjálfun yfir sum-
artímann. Svo er keppnisfólkið að
koma inn kannski þremur mán-
uðum fyrir mót í fulla þjálfun og æf-
ir svo sjálft þar fyrir utan,“ segir
Konráð.
Meistari
Eva
María
Davíðs-
dóttir hefur
æft hjá Kon-
ráð og verið
sigursæl.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2010
n o a t u n . i s
250 ML
F
ÚRFISKBOR
ÐI
ÚR
FISKBORÐI
FERSKIR
Í FISKI
GUNNARS
MAJONES
189
KR./STK.
PHILADELPHIA
SMUROSTUR
4 TEGUNDIR
398
KR./STK.
MYLLU ENSK
JÓLAKAKA
KR./STK.
599
Ö
ll
ve
rð
er
u
bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
u
og
/e
ða
m
yn
da
br
en
gl
Úrval, gæði
og þjónusta
í Nóatúni
ÝSA Í KONÍAKS-
OG HUMARSÓSU
KR./KG
1598
INDVERSKIR
KJÚKLINGALEGGIR
KR./KG
898
Fjölmennt á Esjuna
Þorsteinn ætlar að ganga á síð-
asta toppinn, númer 365, næstkom-
andi laugardag, 11. desember. Er
það toppur Esjunnar og með hon-
um í för verður Björgunarsveitin
Kyndill og jafnvel fleiri björg-
unarsveitir og eru sem flestir
hvattir til að fjölmenna með þeim.
Þann dag kl. 14 verður mæting við
Esjustofu, en gangan hefst stund-
víslega kl. 14.30. Milli kl. 16-17 er
takmarkið að búa til ljósafoss frá
toppi Esjunnar og niður að rótum.
Þá verða allir göngumenn beðnir
að hafa meðferðis vasa/ennisljós
eða kyndla á leiðinni niður í rökkr-
inu. Þeir sem treysta sér ekki í
gönguna, eru hvattir til að koma að
rótum fjallsins eða aðeins upp í
brekkuna og sameinast göngu-
hópnum síðasta spölinn niður. Allur
ágóði af kaffisölu í Esjustofu renn-
ur til Ljóssins þennan dag.
„Ég ætla að ná sem flestum
með í þessa lokagöngu og gera
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Göngugarpurinn Þorsteinn Jak-
obsson er að ná því markmiði sínu
að ganga á 365 fjallstoppa á árinu.
Gönguna hóf hann 1. janúar í ár og
fer hana til að minna á og styrkja
fimm ára afmælisár Ljóssins, end-
urhæfingar- og stuðnings-
miðstöðvar fyrir fólk sem hefur
fengið krabbamein og aðstand-
endur þeirra.
Fyrsti toppurinn var á Helgar-
felli og síðan hefur Þorsteinn geng-
ið á fjallstinda að meðaltali sex
daga í viku um allt land. Hann hef-
ur haldið dagbók allan tímann og
einnig skrifað í bækur sem hafa
verið til staðar á toppum fjallanna.
„Þetta er búið að ganga gríð-
arlega vel og eiginlega vonum
framar, ég er búinn með 364 toppa
og þótt markmiðinu sé náð er þetta
fyrst og fremst búið að vera ævin-
týraríkt ár,“ segir Þorsteinn. Hann
hefur gengið á fjöll víða um land á
árinu. „Ég reyndi að fara yfir það
helsta í hverjum landshluta. Ég fór
á suma toppana oft og það gæti
verið að ég hafi gengið oftast á Esj-
una, enda það fjall sem er næst
mér. Annars er ég ekki búinn að
taka það saman.
Ég hafði það fyrst að mark-
miði að hafa þetta sjötíu og fimm
fjöll og fara nokkrum sinnum á
hvert, en ég endaði á að komast á
toppa á vel yfir hundrað fjöllum,“
segir Þorsteinn sem tók stundum
tvö fjöll á dag. Hann var sjaldnast
einn á ferð. „Ég gekk mikið með
Toppförum og fullt af öðrum
göngufélögum. Ég hef líka verið
það lánsamur að hitta fólk á fjöllum
sem hefur gengið með mér sem var
æðislegt.“
Spurður hvort hann eigi sér
uppáhalds fjallstopp svarar Þor-
steinn að hann eigi óskaplega erfitt
með að gera upp á milli því hver
toppur hafi sinn sjarma. „Mér
finnst rosalega gaman að standa
uppi á Hvannadalshnjúk. Það er
kannski einn og einn staður sem ég
hef enga sérstaka ástríðu til að fara
á aftur en þeir eru svo fáir að þeir
eru varla teljandi, hver staður hef-
ur sinn sjarma.“
þetta hátíðlegt með því að minna á
ljósið í myrkrinu. Ég skora á alla
gönguhópa að taka þátt, það verð-
ur gleði í þessu,“ segir Þorsteinn.
Þorsteinn hefur tvisvar áður
gengið til styrktar Ljósinu og ætlar
að gera það aftur, en hvers vegna?
„Mér finnst þetta svo góður mál-
staður og starfið er svo óeig-
ingjarnt og allt fallegt í kringum
þetta. Ljósið er svo mikil stoð og
stytta þeirra sem greinast með
krabbamein og aðstandenda. Það
gefur mér líka gríðarlega mikið að
geta tekið þátt í svona verkefnum,“
segir Þorsteinn sem fær aldrei nóg
af þessu labbi.
„Ég er með fullt af öðrum
markmiðum sem koma í ljós síðar.
Ég er ekki hættur þessu. Útivistin
nærir líkama og sál og maður er
hvergi eins nærri sjálfum sér eins
og á fjallstoppi.“
Þeim sem vilja styrkja göng-
una er bent á styrktarsjóð Ljóssins,
bankareikning 0130-26-410520, kt.
590406-0740.
Ganga og góðverk
364 Þorsteinn Jakobsson á toppi Trölladyngju á sunnudaginn var.
Mynda ljósafoss niður Esjuna
varandi skriftir með blýanti eða
penna. Við einhæfar hreyfingar í
langan tíma getur komið fram sina-
dráttur nánast hvar sem er í lík-
amanum. Allir fá sinadrátt en hjá
flestum eru það óþægindi sem koma
sjaldan og valda litlum vandræðum.
Ekki má rugla sinadrætti saman við
verki í fótleggjum eða lærum sem
koma við áreynslu vegna lélegrar
blóðrásar eða brjóskloss í hrygg. Þeir
sem fá oft verki í fótleggi við gang
eða aðra áreynslu ættu að leita
læknis.
Teygjur eru besta ráðið
Á þessum ágæta vef eru einnig
ágæt ráð til að koma í veg fyrir sina-
drátt. „Besta ráðið við sinadrætti er
að teygja á viðkomandi vöðva, var-
lega en ákveðið og þá hverfa óþæg-
indin venjulega fljótt. Oft er gott að
spenna vöðvana sem eru á móti þeim
sem sinadrátturinn er í, til dæmis er
gott ráð við sinadrætti í kálfa að
spenna fótinn upp á við og toga svo í
hann þar til sinadrátturinn hverfur.
Einnig getur verið gott að kreista og
nudda vöðvann og sumum finnst
gott að fara í heitt eða kalt bað. Til
að koma í veg fyrir sinadrátt er mik-
ilvægt að forðast vökvatap, gera
teygjuæfingar fyrir og eftir áreynslu
og gæta þess að ofreyna sig ekki.“
Á vefsíðunni heilsa.is segir að kalk
og magnesíum séu mikilvæg stein-
efni fyrir fólk sem er gjarnt á að fá
sinadrætti og sama er að segja um E-
vítamín. Eitt ráðið til að forðast sina-
drátt er því að passa vel upp á að
borða fæðutegundir sem innihalda
þetta þrennt.