Morgunblaðið - 07.12.2010, Síða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2010
Fjármálaráðherrar evruríkjanna 16
funduðu í gærkvöldi, til að leita
lausna á vandanum sem á rætur að
rekja til fjárlagahalla og skulda-
söfnunar aðildarríkja. Fyrr um
daginn höfnuðu Þjóðverjar tillögum
um að stækka neyðarsjóð ESB,
sem nú er 440 milljarðar evra, og
útgáfu evruskuldabréfs.
„Ég sé enga þörf á því að stækka
sjóðinn,“ sagði Angela Merkel,
kanslari Þýskalands, í gær. Hún
sagði einnig að lög Evrópusam-
bandsins leyfðu ekki að gefið yrði
út sameiginlegt evruskuldabréf.
Evrópubankinn jók kaup sín á
skuldabréfum verst stöddu evru-
ríkjanna í síðustu viku og lækkaði
ávöxtunarkrafa þeirra við það. Þar
með er Evrópubankinn á svipaðri
vegferð og seðlabanki Bandaríkj-
anna, sem kaupir ríkisskuldabréf af
krafti þessa dagana. Seðlabankarn-
ir prenta nýja peninga til að kaupa
skuldabréfin, til að lækka fjár-
mögnunarkostnað og í von um að
auka veltu og umsvif. Gagnrýnend-
ur vara þó við hættu á því að gjald-
miðlarnir þynnist út og verðbólga
myndist.
Átök um evruna
Reuters
Merkel Þýski kanslarinn hafnar útgáfu sameiginlegs evruskuldabréfs og
sömuleiðis tillögum um að stækka neyðarsjóð Evrópusambandsins.
Fjármálaráðherrar leita lausna
Evrópubankinn kaupir skuldabréf
● Fjárfesting og útlán munu ekki taka
við sér fyrr en fjárfestar hafa „losnað úr
faðmlögum við ríkið“ og bankarnir geta
fjármagnað sig til lengri tíma. Þetta
kemur fram í Markaðspunktum grein-
ingardeildar Arion banka, þar sem
fjallað er um áhrif bankaskatts.
Bankaskatturinn svokallaði felur það
í sér að fjármálafyrirtæki, sem upp-
fylla ákveðin skilyrði, greiða gjald af
heildarskuldum sínum, að frádregnum
tryggðum innlánum.
Greiningardeildin metur það svo að
hið hækkaða iðgjald vegna innstæðu-
tryggingar komi óhjákvæmilega til með
að auka vaxtamun. Lenging fjármögn-
unar muni verða dýrari, „þar sem bind-
ing innlána kostar auka vaxtapremíu og
sama á við um útgáfu skuldabréfa“.
Hefðbundin starfsemi banka, innlána-
og útlánastarfsemi, verði einfaldlega
dýrari.
Áhrif þessa verða aukinn kostnaður
þjóðfélagsins í heild, sem birtist í minni
fjárfestingu og sparnaði.
Vaxtamunur eykst
STUTTAR FRÉTTIR ...
● Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði
um 0,53 prósent í viðskiptum gær-
dagsins og endaði vísitalan í 200,66
stigum. Verðtryggði hluti vísitölunnar
hækkaði um 0,71 prósent og sá óverð-
tryggði um 0,13 prósent. Velta var í
minna lagi og nam um 4,4 milljörðum
króna.
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækk-
aði um 0,37 prósent í gær þrátt fyrir
9,7 prósenta lækkun bréfa Atlantic
Petroleum. BankNordik lækkaði um
rúmt eitt prósent, en bréf Össurar
hækkuðu um 1,92 prósent. Velta á
hlutabréfamarkaði nam 17,6 milljónum
króna. bjarni@mbl.is
Skuldabréf hækka
● Benedikt Árna-
son hefur verið
ráðinn til Sam-
keppniseftirlits-
ins sem ráðgjafi í
fullu starfi, en
hann mun taka
þátt í ýmsum
rannsóknum sem
varða endur-
skipulagningu fyr-
irtækja og yfirtökur banka á fyr-
irtækjum.
Benedikt er hagfræðingur að mennt,
með MA-gráðu í hagfræði og MBA-
gráðu í fjármálum frá University of To-
ronto í Kanada. Hann var forstjóri Ask-
ar Capital um tveggja ára skeið frá
haustinu 2008, aðstoðarframkvæmda-
stjóri og svæðisstjóri fyrir Ísland hjá
Norræna fjárfestingarbankanum í Hels-
inki um þriggja ára skeið og þar áður
skrifstofustjóri í iðnaðar- og viðskipta-
ráðuneytinu um árabil.
Benedikt ráðinn til
Samkeppniseftirlitsins
Benedikt Árnason
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Áætlaður rekstrarkostnaður Exista,
sem er um 400 milljónir króna á ári,
kemur að stærstum hluta til vegna
áætlaðs lögfræðikostnaðar, að sögn
stjórnarformanns félagsins, Péturs
J. Eiríkssonar.
Á hluthafafundi Exista í gær var
nýr maður kosinn í stjórn, Matt
Hinds, breskur lögmaður sem hefur
unnið með Exista að endurskipu-
lagningu félagsins. Hann kemur í
stað Úlfars Steindórssonar og er
fulltrúi erlendra kröfuhafa í stjórn-
inni.
Á fundinum voru einnig samþykkt
laun fyrir stjórnarsetu og eru þau
400.000 krónur fyrir formann stjórn-
ar og 300.000 krónur á mánuði fyrir
aðra stjórnarmenn. Þessu til viðbót-
ar fá stjórnarmennirnir 150.000
krónur fyrir hvern fund sem haldinn
er, upp að þremur fundum á mánuði.
Þýðir þetta að heildarlaun stjórnar-
manna geta orðið allt að 4,6 milljónir
á mánuði. Það sem af er mánuðinum
hefur stjórnin fundað fjórum sinn-
um.
Segir Pétur að þóknunin sé svo há
sem raun ber vitni vegna þess hve
mikil vinna fylgi stjórnarsetunni.
Þá samþykktu hluthafar tillögu
stjórnar Exista um að stjórnarmönn-
um Exista og stjórnarmönnum dótt-
urfélaga Exista væri veitt skaðleysi
fyrir störf þeirra í þágu félaganna.
Pétur segir að þetta ákvæði sé ekki
óvenjulegt fyrir fyrirtæki í þeirri
stöðu sem Exista sé í. „Áður en sitj-
andi stjórn tók við félaginu var búið
að taka fjölda ákvarðana sem við
fengum í hendurnar. Hafa hluthafar
nú samþykkt að stjórnarmönnum
verði ekki stefnt fyrir dóm fyrir störf
þeirra, nema ef þeir brjóta reglur
eða sýna af sér stórfellt gáleysi.“
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu áður er í nauðasamningi
fyrir Exista gert ráð fyrir því að
rekstrarkostnaður félagsins verði
um 400 milljónir króna á ári. Pétur
segir að starfsmenn félagsins séu níu
talsins, en langstærstur hluti kostn-
aðarins komi til vegna áætlaðs lög-
fræðikostnaðar á næstu árum. „Við
gerum ráð fyrir því að félagið muni
þurfa að eiga í fjölda dóms-
mála á næstu árum, bæði
sem sóknar- og varnaraðili
og það kemur til með að
kosta sitt,“ segir Pétur.
Hluthafafundurinn í gær
fór fram fyrir luktum dyr-
um og fengu fjölmiðlar ekki
aðgang að honum.
Stjórnarlaun 4,6 milljónir
Stjórnarmenn Exista fá 300.000 krónur á mánuði Fá greiddar 150.000 krónur
aukalega fyrir allt að þrjá fundi í mánuði Lögfræðikostnaður verður mikill
Morgunblaðið/Eggert
Hluthafar Kröfuhafar Exista eiga nú allt hlutafé félagsins og þar á meðal eru íslenskir lífeyrissjóðir.
!"# $% " &'( )* '$*
++,-./
+01-//
++.-.1
/2-.,,
+3-145
+5-5+3
++5-..
+-.3+
+04-14
+4+-5.
++,-41
+01-55
++.-0/
/2-,2,
+1-2+/
+5-550
++5-55
+-.34
+05-,0
+4/-24
/24-+021
++,-35
+32-+
++,-24
/2-,5,
+1-253
+5-0+5
++5-11
+-.31
+05-11
+4/-,0
Áætlanir um endurheimtur í grein-
argerð með nauðasamningum Ex-
ista eru of háar, að mati umsjón-
armanns með
nauðasamningunum.
Eins og Morgunblaðið
hefur áður greint frá seg-
ir í athugun umsjón-
armannsins að áætlanir
um 7-53 prósent séu of
bjartsýnar og geti ekki
orðið grundvöllur að
ákvörðun á virði eigna félagsins í
dag. Segir í athuguninni að Exista
sjálf meti virði Skipta, móð-
urfélags Símans, núll og sama á
við um eignarhluti í Lýsingu og
Bakkavör.
Þá gagnrýnir umsjónarmaðurinn
það að virði VÍS og LífÍs sé miðað
við árið 2020, en ekki núvirt. Telur
hann að núvirt virði VÍS sé um 11
milljarðar og LífÍs um 1,5 millj-
arðar króna.
Spár sagðar of bjartsýnar
ENDURHEIMTUR KRÖFUHAFA
Exista