Morgunblaðið - 07.12.2010, Page 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2010
Fredericia. AFP. | Börn leika sér á þaki mosku og fara í
feluleik í hindúahofi óvenjulegs leikvallar sem reistur
hefur verið í Danmörku með það að markmiði að stuðla
að umburðarlyndi í trúmálum.
Sjálfboðaliðar úr röðum kristinna manna, múslíma og
hindúa tóku þátt í því að reisa leikvöllinn, sem þeir lýsa
sem „leikbrú milli trúarhópa“, en hann var opnaður í
bænum Fredericia í ágúst. Þar eru moska með gylltu
hvolfþaki, rauð og hvít þorpskirkja og skærlitt hindúa-
hof.
„Það er gaman að sjá hvernig moska og hindúahof líta
út og leika við börn úr öðrum trúarhópum,“ sagði níu ára
stúlka, Caroline, sem klifraði í einu líkananna á vellinum.
Móðir eins barnanna, Hanne Ravn, sagði að leikvöllurinn
væri kjörinn staður til að koma börnunum í kynni við
önnur trúarbrögð og aðra menningarheima. „Það er
mikilvægt að foreldrar tali við börnin, kenni þeim að
vera umburðarlynd og opin fyrir öðrum, frá unga aldri.“
Caroline hefur aldrei komið inn í raunverulega mosku
og litlar líkur eru á því að það breytist á næstunni þar
sem áformum um að reisa mosku í Kaupmannahöfn hef-
ur verið frestað vegna fjárhagserfiðleika. Orðrómur er á
kreiki um að klerkastjórnin í Íran hafi lagt fé í verkefnið.
Spenna milli trúarhópa
Múslímar eru næstfjölmennasti trúarhópurinn í Dan-
mörku, yfir 200.000 og um 3,5% af íbúafjöldanum.
Gætt hefur aukinnar andúðar á múslímum í Dan-
mörku eftir að Jyllands-Posten birti tólf skopmyndir af
Múhameð spámanni árið 2005. Múslímar víða um heim
litu á myndirnar sem guðlast og birting þeirra leiddi til
mótmæla og í nokkrum tilvikum til mannskæðra óeirða.
Íslamskir öfgamenn hótuðu árásum á Dani og lögðu á
ráðin um hryðjuverk í Danmörku, m.a. árásir á skrif-
stofur Jyllands-Posten og einn skopteiknaranna. Stjórn-
völd í nokkrum landa múslíma hafa krafist þess að
danska ríkisstjórnin biðjist afsökunar á birtingu skop-
myndanna en hún hefur neitað því og lagt áherslu á
mikilvægi tjáningarfrelsins í Danmörku. Danski þjóðar-
flokkurinn, sem styður ríkisstjórnina, hefur varað við
auknum áhrifum íslams í Danmörku og skoðanakönnun,
sem birt var í ágúst, bendir til þess að 55% Dana telji að
íslam hindri samfélagssátt í landinu.
Mehdi Mozaffari, prófessor í íslam við Árósaháskóla,
telur að leikvöllurinn geti gegnt mikilvægu hlutverki í
því að draga úr fordómum gagnvart múslímum og öðrum
trúarhópum. „Með því að leika okkur hérna getum við
lært um önnur trúarbrögð,“ sagði Joydal Sritharan, tólf
ára Dani sem er ættaður af Srí Lanka og einn fárra
hindúa í Danmörku.
Hópur sjálfboðaliða reisir óvenjulegan leikvöll fyrir börn
til að stuðla að umburðarlyndi í trúmálum í Danmörku
Leikbrú milli trúarhópa
Á leikvellinum Börn að leik á þaki mosku leikvallarins.
Strendurnar voru nær mannlausar
í ferðamannaborginni Sharm el-
Sheikh í Egyptalandi í gær eftir
að þýskur ferðamaður beið bana í
árás hákarls. Nokkrum dögum áð-
ur höfðu fjórir ferðamenn særst í
árásum hákarla skammt frá
ströndinni. Árásirnar ollu mikilli
skelfingu meðal ferðamanna í
Sharm el-Sheikh og egypsk yf-
irvöld hafa beðið bandaríska sér-
fræðinga um að rannsaka málið.
Margir ferðamenn urðu vitni að
því þegar hákarlinn réðst á sjö-
tuga konu frá Þýskalandi í fyrra-
dag. Daginn áður hafði borg-
arstjóri Sharm el-Sheikh lýst því
yfir að óhætt væri að synda á
svæðinu þar sem tekist hefði að
drepa hákarla sem talið var að
hefðu ráðist á fjóra ferðamenn,
þrjá Rússa og Úkraínumann,
nokkrum dögum áður.
Egypsk yfirvöld sögðu að tveir
hákarlar, hvítuggi og mako-
hákarl, hefðu verið drepnir á
föstudaginn var og talið var að
ekki væri hætta á fleiri árásum.
Strandirnar voru opnaðar að nýju
þótt sérfræðingar umhverf-
isverndarsamtaka hefði sagt að
myndir af árásunum leiddu í ljós
að hvítugginn, sem náðist, hefði
ekki ráðist á ferðamennina, heldur
einhver annar hvítuggi.
Ströndinni var lokað að nýju
eftir árásina á þýsku konuna í
fyrradag og yfirvöld sögðust ekki
ætla að taka neina áhættu.
Eiga sér engin fordæmi
Fréttastofan AFP hefur eftir
bandarískum hákarlasérfræðingi,
Samuel Gruber, að slíkar árásir
eigi sér engin fordæmi svo nálægt
landi og hann líkir þeim við árásir
„Ókindarinnar“ í bandarísku kvik-
myndinni „Jaws“ frá 1975. „Há-
karlinn beit fleiri en einn mann á
einum degi. Öll árin sem ég hef
rannsakað hákarlaárásir hef ég
aldrei heyrt um hákarla sem ráð-
ast á fleiri en einn,“ sagði hann en
bætti við að hann undanskildi
árásir hákarla á skipbrotsmenn
úti á rúmsjó.Nokkrir sérfræðingar
telja að hákarlarnir haldi sig nær
ströndinni en áður vegna ofveiði í
Rauðahafi. Ennfremur hefur kom-
ið fram sú kenning að hákarlarnir
hafi laðast að svæðinu eftir að
lambaskrokkum hafi verið fleygt í
sjóinn úr flutningaskipi sem flutti
lifandi sauðfé frá Ástralíu til
arabalanda vegna fórnarhátíðar
múslíma. bogi@mbl.is
Árásir hákarla ollu
mikilli skelfingu
ÚTBREIÐSLA HVÍTUGGA
Kyrrahaf
Indlandshaf
Atlantshaf
Egyptaland
Miðjarðarhaf
Kaíró
ÍS
R
A
E
L
E G Y P T A L A N D
R
auðahafið
N
íl
100 km
HÁKARLAÁRÁSIR Í EGYPTALANDI
Heimildir: www.sharkattackfile.net, IUCN Teikning: Kinyen Pong/RNGS
Stærð: 2 m eða minni
Heimkynni: Er yfirleitt á hafsvæðum fjarri landi
Atferli: Er yfirleitt einn á ferð og syndir hægt nálægt
yfirborðinu með útrétta eyrugga
Sharm el-Sheikh
Sunnudag
Hákarl, af tegundinni hvítuggi,
drap þýskan ferðamann sem
synti nálægt ströndinni
30. nóv. - 1. des.
Fjórir kafarar særðust í árásum
hákarla - þrír Rússar og
Úkraínumaður
Hvítuggastofninn er álitinn á viðkvæmu
stigi en ekki í útrýmingarhættu
Breiður, ávalur
uggi með hvítan,
flekkóttan enda
Langir og
breiðir
eyruggar
Hvítur flekk-
óttur endi
Trjónan er stutt,
breið og ávöl
Maður
til við-
miðunar
HVÍTUGGINN
EKKI Í ÚTRÝMINGARHÆTTU
Þúsundir manna hafa verið fluttar frá heimkynnum sínum í Albaníu, Svart-
fjallalandi og Bosníu vegna mikilla flóða á síðustu dögum. Yfir 11.000
manns hafa verið flutt af flóðasvæðunum í Albaníu og stjórn landsins hefur
óskað eftir aðstoð Atlantshafsbandalagsins við flutningana.
Um 1.000 hermenn hafa verið kallaðir út til að aðstoða fólk á flóðasvæð-
um í grannríkinu Svartfjallalandi. Þarlend yfirvöld sögðu í gær að ástand-
ið væri enn alvarlegt við landamærin að Albaníu og í grennd við höfuð-
borgina Podgorica. Þessum tveggja tonna flóðhesti var sleppt úr
dýragarði nálægt Podgorica vegna flóðanna.
Reuters
Þúsundir manna á flótta
Flóð valda usla á Balkanskaga
Héraðsdómur í
Rússlandi hafn-
aði í gær kröfu
Valerís Kúb-
arevs, sem
kveðst vera af-
komandi Ívans
grimma, um að
hann fengi yfir-
ráð yfir hallar-
byggingum í
Kreml þar sem rússnesk stjórnvöld
hafa aðsetur.
Kubarev er eldflaugafræðingur
en hefur starfað við bankarekstur í
tvo áratugi. Hann hyggst áfrýja úr-
skurðinum til hæstaréttar.
Fær ekki yfirráð yfir
höllum Kremlar
Valerí Kúbarev
RÚSSLAND
Nær 1.200 manns hafa verið hneppt
í fangelsi í Norður-Kóreu fyrir að
horfa á vestræna sjónvarpsþætti og
kvikmyndir í suðurkóresku sjón-
varpi, að sögn norðurkóreskra
flóttamanna í Seúl.
Hreyfing norðurkóreskra flótta-
manna segir að fólkinu sé haldið í
fangelsi í bænum Kaechon og þetta
sé í fyrsta skipti sem svo mörgum
Norður-Kóreumönnum sé haldið í
fangelsi fyrir það eitt að horfa á
sjónvarp. Mikil eftirspurn sé í land-
inu eftir vestrænu sjónvarpsefni,
kvikmyndum og popptónlist.
1.200 í fangelsi fyrir
að horfa á sjónvarp
NORÐUR-KÓREA
Svissneskur póst-
banki lokaði í gær
reikningi Julians
Assange, stofn-
anda uppljóstrun-
arvefjarins Wiki-
Leaks, og skýrt
var frá því að
breska lögreglan
hefði tekið við al-
þjóðlegri hand-
tökuskipun á
hendur honum.
Héraðsdómur í Stokkhólmi gaf út
handtökuskipunina á hendur Ass-
ange vegna ásakana um að hann
hefði gerst sekur um nauðganir. Ass-
ange neitar sök og segir ákæruna lið
í ofsóknum á hendur honum vegna
bandarískra skjala sem WikiLeaks
hefur birt.
Talið er að Assange sé í felum í
Englandi, að sögn BBC.
Póstbankinn PostFinance kvaðst
hafa lokað reikningnum vegna þess
að Assange hefði gefið rangar upp-
lýsingar um dvalarstað sinn. Hann
hefði sagst vera búsettur í Genf, en
svo væri ekki. Hann gæti ekki fært
sönnur á búsetu í Sviss og því gæti
hann ekki átt reikning í bankanum.
Reikningi
Assange
lokað
Bresk yfirvöld taka
við handtökuskipun
Julian
Assange