Morgunblaðið - 07.12.2010, Page 19
UMRÆÐAN 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2010
Slökkvilið
höfuborgasvæðisins
Munið að slökkva
á kertunum
Vindsveipur eða gegnumtrekkur
getur kveikt eld á ný
Skýrslu um end-
urskipulagningu
sjúkrahúsþjónustu á
suðvesturhorninu,
svokallaða Kraga-
skýrslu er að finna á
vef heilbrigðisráðu-
neytisins undir út-
gefnu efni. Kraga-
skýrslan var unnin af
starfshópi skipuðum
af heilbrigðisráðu-
neytinu undir stjórn sviðsstjóra
hag- og upplýsingasviðs LSH.
Lestur Kragaskýrslu er torfær,
þar sem misræmi er í kaflaheitum,
tölum í töflum og skilgreiningum
hugtaka. Tilgangur minnisblaðs/
minnar vinnu var því að gera inni-
hald Kragaskýrslu skiljanlegt
þeim sem eiga hagsmuna að gæta.
Ég sannreyndi tölur, upplýsingar í
skýrslu og fór yfir forsendur og
reikniaðferðir sem gefnar eru í
Kragaskýrslu. Minnisblaðið má
nálgast á sass.is í frétt frá 29.6.10.
Kragasjúkrahúsin eru fjögur og
eru staðsett á Akranesi, Reykja-
nesi, Hafnarfirði og Selfossi og
veita íbúum landsins frá Kirkju-
bæjarklaustri að Hvammstanga
heilbrigðisþjónustu. Í Kraga-
skýrslu er bent á að lengsta leiðin
er milli Heilbrigðisstofnunar Suð-
urlands og Reykjavíkur, sú leið er
um 57 km (bls. 88). „Það er litið
svo á að aksturstími á sjúkrahús
gæti komið niður á þægindum‘
(bls. 19).
Tilgangur Kragaskýrslunnar
svokölluðu var að meta mögulegan
ávinning af endurskipulagningu
sjúkrahúsþjónustu á suðvest-
urhorninu. End-
urskipulagningin felst
í því að flytja alla
göngu- og dagdeild-
arþjónustu, allar fæð-
ingar og allar skurð-
aðgerðir á LSH, en
sængurlega og sjúkra-
húslega eftir aðgerð
verður á Kragasjúkra-
húsunum. Með þessu
má spara 1,1 milljarð
ef stuðst er við töflur í
1. kafla eða 1,2 millj-
arða ef stuðst er við
töflur í 5. kafla (und-
irkafla 1.1.4). Þessi þjónusta kost-
aði á Kragasjúkrahúsunum sam-
tals um 2,1 milljarð árið 2008.
Eftir endurskipulagningu kemur
hún s.s. til með að kosta tæpan
milljarð, sem skiptist milli legu-
deilda Kragasjúkrahúsanna og
LSH. Á LSH má því sinna 700
fæðingum, gera aðgerðir á 5.200
sjúklingum og taka á móti 17.700
sjúklingum á göngudeild og 3.300
á dagdeild og hafa ótilgreindan
fjölda legudaga á Kragasjúkrahús-
unum. LSH eykur því umfang
þjónustu sinnar um 17-40% fyrir
brot af milljarði, en fjárframlög til
LSH voru um 39 milljarðar kr.
það árið. Þessi niðurstaða fæst
með því beita aðferð sem lýst er í
aðsendri grein Björns Zoëga og
Önnu Lilju Gunnarsdóttur frá 18.
nóvember sl.
Í Kragaskýrslunni er þremur
reikniaðferðum til viðbótar lýst. Í
minnisblaðinu eru þær reiknaðar
og bent á að kostnaður LSH gæti
orðið 7,15 m.kr., 11 m.kr. eða 11+
m.kr. eftir því hvaða reikniaðferð
er notuð. Það er því mjög bjartsýn
niðurstaða sem fæst með því að
reikna ábata með þeirri aðferð að
framleiddar einingar eru vegnar
með legudagavog.
Ég óska hérmeð, fyrir hönd
þjóðarinnar, nánari skýringar á
þessum lokaorðum Kragaskýrsl-
unnar:
Ákvarðanataka um fjárfestingar
í heilbrigðisþjónustu: Það verkefni
sem hér hefur verið lýst er að öll-
um líkindum fyrsta dæmið um
kostnaðarábatagreiningu sem unn-
in er til undirbúnings stefnumót-
unar í heilbrigðisþjónustu á Ís-
landi. Greiningin var unnin í nánu
samráði við stjórnendur og á
grundvelli faglegrar klínískrar
vinnu sem skilaði sér í formi til-
lagna um skipulagsbreytingar er
ráðast mætti í út frá sjónarmiðum
öryggis og gæða. Greiningin bætti
við þriðju víddinni; hagrænu mati
á áhrifum skipulagsbreytinganna.
Aðferðafræðin eykur gegnsæi og
rekjanleika fjárfestingaákvarðana,
styður við faglega forgangsröðun
og ábyrgð í rekstri. Slík nálgun á
grunni heilsuhagfræðilegrar grein-
ingar stuðlar þannig að jafnræði
með tilliti til aðgengis, gæða og
öryggis heilbrigðisþjónustu, ekki
síst á tímum efnahagslegra þreng-
inga eins og nú ríkja á Íslandi.
Útsöluverð á LSH?
Eftir Guðrúnu
Bryndísi
Karlsdóttur
Guðrún Bryndís
Karlsdóttir
» Tilgangur Kraga-
skýrslunnar svoköll-
uðu var að meta mögu-
legan ávinning af
endurskipulagningu
sjúkrahúsþjónustu á
suðvesturhorninu.
Höfundur er sjúkraliði og verkfræð-
ingur.
Margir glíma við
þann slæma sið að slá
verkefnum á frest.
Afleiðing frestunar er
oft mikil og ónauð-
synleg tímasóun auk
þess sem hún kemur í
veg fyrir að draumar
rætist, markmið náist
og hugmyndum sé
komið í framkvæmd.
Fyrir marga er frest-
un slæm venja sem dregur úr
framleiðni og eykur streitu og
sektarkennd.
Frestun er einfaldlega að vinna
ekki mikilvægustu verkefnin strax.
Frestun er að taka til á borðinu
hjá þér þegar þú ættir að vera að
einbeita þér að mikilvægri skýrslu;
að horfa á sjónvarpið þegar þú
ættir að vera að læra undir próf;
að fá þér annan kaffibolla á kaffi-
húsi þegar þú ættir að vera komin
(n) á skrifstofuna; að svara létt-
vægum tölvupóstum þegar þú ætt-
ir að vera að undirbúa
sölukynningu fyrir mikilvægan við-
skiptavin; að fresta því að verja
tíma með börnunum af því að eitt-
hvað annað virðist vera meira
áríðandi, þangað til þau eru allt í
einu vaxin úr grasi og þú áttar þig
á því að það er of seint að gera
það sem þú hafðir alltaf ætlað að
gera.
Ástæður frestunar
Ástæður þess að við frestum
verkefnum eru margvíslegar. Til
eru þeir sem upplifa verkkvíða
gagnvart því að byrja á verk-
efnum. Viðbrögð við þess háttar
kvíða eru oft tilhneiging til að slá
hlutunum á frest og tína til alls-
konar réttlætingar. Sumir leggja á
skipulegan flótta og snúa sér að
öðrum verkefnum sem hugsanlega
eru auðveldari viðfangs eða
skemmtilegri. Við reynum að vera
upptekin svo við séum með afsök-
un fyrir að framkvæma ekki. Á
sama tíma er samviskan að naga
og innri samræður ganga út á það
að verið sé að slugsa. Afleiðingin
er enn meiri sektarkennd og pirr-
ingur sem vex eftir því sem hlut-
unum er lengur slegið á frest.
Verkefni nefnilega hverfa ekki með
því að horfa framhjá þeim, ýta
þeim burt úr huganum eða draga
þau á langinn. Frestun leiðir yf-
irleitt til þess að okkur líður verr.
Önnur ástæða frestunar er að
færast of mikið í fang, oft vegna
þess að það er okkur þvert um geð
að segja nei. Síðan eru margir sem
tala um að þeir vinni vel undir
álagi, sem er mikil blekking.
Álagsfíklar láta stjórnast af ytra
áreiti en koma síðan litlu í verk
þegar utanaðkomandi pressu
skortir.
Það er algengt að fresta verk-
efnum sem eru leiðinleg, ógeðfelld
eða óþægileg. Við frestum einnig
þegar við vitum ekki alveg hvernig
best væri að leysa verkefnið af
hendi eða þegar okkur skortur
nauðsynlegar upplýsingar eða
gögn. Skortur á markmiðum, tíma-
mörkum eða umbun getur leitt til
frestunar. Ótti af ýmsum toga get-
ur einnig verið lamandi afl. Má þar
t.d. nefna ótta við að mistakast,
ótta við höfnun eða gagnrýni, ótta
við ófullkomnun, ótta við vel-
gengni, ótta við breytingar eða hið
óþekkta, ótta við að standast ekki
væntingar og ótta við að taka
mögulega rangar ákvarðanir.
Leiðir til að takast
á við frestunaráráttu
Til eru nokkrar góðar aðferðir
til að sigrast á frestunaráráttu:
Ef þú átt það til að slá mál-
um á frest er best að viðurkenna
vandann, hætta að
réttlæta hegðunina og
byrja að framkvæma.
Greindu ástæð-
una fyrir því að þú
frestar til að þú getir
gert viðeigandi ráð-
stafanir. Er verkefnið
ekki sérlega mik-
ilvægt? Ljúktu því þá
af eða láttu einhvern
annað sjá um það.
Aðrir hafa oft gaman
af því sem við höfum
sjálf litla ánægju af. Er tímasetn-
ingin ekki rétt? Finndu þá hentuga
tímasetningu og settu verkefnið á
aðgerðalistann. Er verkefnið leið-
inlegt? Breyttu þá viðhorfi þínu til
verkefnisins og leggðu þig fram við
að ljúka því. Innsýn í ástæður
frestunar getur gefið þér mik-
ilvægt tækifæri til að bregðast við
á viðeigandi hátt. Ef þú hefur t.d.
mikla ánægju af því að vera innan
um fólk gæti verið betra að fara í
hóptíma á líkamsræktarstöð eða
stofna gönguhóp í stað þess að
kaupa hlaupabretti.
Fyrir suma virkar best að
framkvæma alltaf leiðinlegustu eða
erfiðustu verkefnin fyrst. Aðrir
gera skemmtilegasta hlutann fyrst
til að koma sér af stað.
Skiptu stærri verkefnum nið-
ur í smærri og viðráðanlega áfanga
og einbeittu þér svo að einu skrefi
í einu.
Gerðu aðgerðaáætlun í lok
dagsins og haltu þig við hana. Að-
gerðaáætlun er eins og vegakort
fyrir næsta dag.
skipuleggðu verkefni í kring-
um truflanir. Truflanir eiga sér oft
stað samkvæmt ákveðnum mynstr-
um og á ákveðnum tímum. Gerðu
ráð fyrir að vinna að stærri verk-
efnum á þeim tíma sem truflanir
eiga til að vera sem minnstar.
Lærðu að segja nei.
Hugsaðu um hversu vel þér
muni líða þegar verkefninu er lok-
ið.
Skapaðu heitbindingu til
framkvæmda með því að setja skýr
tímamörk á verkefnið. Tímamörk
hvetja til aðgerða.
Segðu öðrum frá áætlun
þinni.
Verðlaunaðu þig fyrir að
ljúka við verkefni með einhverju
sem þér þykir eftirsóknarvert.
Breyttu verkefninu í eitthvað
jákvætt, gerðu það skemmtilegra,
t.d. með því að hlusta á tónlist eða
hljóðbók á meðan þú framkvæmir
það eða fá aðra til liðs við þig.
Margar hendur vinna létt verk auk
þess sem tíminn líður hraðar.
Hættu ekki fyrr en verkefn-
inu er lokið. Sýndu sjálfsaga og
þrautseigju.
Með því að venja sig af því að
fresta hlutunum verður maður
ánægðari, stoltari og kemur meiru
í verk.
Eftir Ingrid
Kuhlman
Ingrid Kuhlman
» Afleiðing frestunar
er oft mikil og
ónauðsynleg tímasóun
auk þess sem hún kem-
ur í veg fyrir að
draumar rætist og
markmið náist.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Þekkingarmiðlunar.
Á meðan við
frestum þýtur
lífið framhjá
- nýr auglýsingamiðill
569-1100