Morgunblaðið - 07.12.2010, Qupperneq 30
Pétur Hallgrímsson eða Pétur Hallgríms hefur marga fjör-
una sopið á löngum ferli. Hann var í rokksveitinni E-X hér
í eldgamla daga og myndaði einnig dúettinn Lhooq
ásamt Jóhanni Jóhannssyni. Hann hefur leikið mikið
með Emilíönu Torrini og Lay Low að undanförnu og
hefur lagt til gítarleik á hinum og þessum plötum.
Pétur á t.d. hinar glæsilegu stálgítarstrokur sem
heyra má í Sigur Rósar-laginu „Viðrar vel til loftárása“.
Hver er Pétur Hallgríms?
SAMSTARFSMAÐURINN
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2010
SkjárEinn og Zeta film undirrit-
uðu á dögunum samning um fram-
hald á þáttaröðinni Hæ Gosi sem
sló í gegn í haust. Næsta þáttaröð
verður tekin upp á Akureyri og
hugsanlega í Færeyjum. Fyrsta
sería Hæ Gosa kemur út á mynd-
diski í næstu viku.
Hæ Gosi heldur
áfram á Skjá einum
Fólk
Búið er að taka upp þættina Mannasiðir sem byggð-
ir eru á samnefndri bók Gillz sem var metsölubók
fyrir síðustu jól. Þættirnir verða sýndir í febrúar á
Stöð 2. Leikstjórinn er Hannes Þór Halldórsson
sem gerði meðal annars þættina Atvinnumennirnir
okkar. Sá sem sá um að færa handritið yfir í sjón-
varpsþætti er Kristófer Dignus. Þetta eru fimm
þættir og er sannkallað landslið leikara sem birtist í
þeim. Þar á meðal eru Jóhannes Haukur, Víkingur
Kristjánsson, Egill Ólafsson, Gísli Örn Garðarsson
og fleiri. „Þættirnir eru byggðir nákvæmlega eins
upp og bókin,“ segir Gillz. „Það er alltaf einn leik-
ari sem leikur rasshaus í hverjum þætti. Rasshaus-
inn er sá sem kann ekki mannasiði og gerir allt vit-
laust. Síðan er sýnt hvernig á að haga sér þannig að
allt fari vel. Þannig eru sketsar í gegnum þættina
með réttri og rangri hegðun en ég er í stúdíóinu
að benda á hvað fer úrskeiðis og svo er oft þulur
yfir myndskeiðunum. Þarna er farið í gegnum
ansi marga þætti mannlegs samfélags og hvern-
ig menn eiga að haga sér, eins og hvernig menn
eiga að haga sér þegar þeir fara út á lífið, hvern-
ig á að haga sér á fótboltavelli, hvernig á að fara
í sund, hvernig á að taka þátt í karaókí, hvernig
á að losna við þynnku og hvernig á að sleikja
rassgatið á yfirmönnum sínum. Svo fer ég í mik-
ilvægar kynlífsstellingar eins og hvernig á að
taka standandi 69, en það getur beinlínis verið
hættulegt ef þú kannt það ekki. Ég geri það svo
vel að það kæmi mér ekki á óvart að öll þjóðin
verði í standandi 69 á næsta ári,“ segir Gillz.
borkur@mbl.is
Gillz kennir íslensku þjóðinni að haga sér
Auðmýkt Gillz kennir fólki að haga sér.
Hjálpin er næst er plata á vegum
Styrktarsveitarinnar, en ágóði af
sölu disksins fer til styrktar Mæðra-
styrksnefnd um land allt. Að flutn-
ingi laga á disknum koma um 20
tónlistarmenn og söngvarar ásamt
Lögreglukórnum. Platan er seld í
verslunum Hagkaups, Bónuss og á
stöðvum N1 um allt land en á meðal
listamanna eru Páll Rósinkranz,
Kjartan Valdemarsson, Kristján
Edelstein, Birgir Nielsen, Björgvin
Ploder, Sigurjón Brink, Snorri
Snorrason, Vignir Snær Vigfússon,
Vignir Stefánsson, Þórir Úlfarsson
og Hemmi Gunn.
Styrktarsveitin
gefur út geislaplötu
Á næstu tónleikum Jazzklúbbsins
Múlans, sem fram fara í kvöld, kem-
ur fram Ómar Guðjónsson gítar-
leikari ásamt hljómsveit. Hann mun
ásamt félögum flytja efni af nýút-
komnum hljómdiski sínum, Von í
Óvon. Tónlistin er blanda af rokki,
djass og poppi þar sem gítarinn er í
forgrunni.
Hljómsveit Ómars Guð-
jónssonar á Múlanum
Steinunn Ketilsdóttir og Brian
Gerke sýndu í lok síðustu viku á
danshátíðinni IceHot Nordic Dance
Platform í Stokkhólmi og höfðu þau
verið valin úr hópi 200 umsækjenda
til þessa verkefnis. En hátíðin er
samvinnuverkefni nokkurra dans-
stofnana á Norðurlöndunum og vett-
vangur fyrir norrænan samtíma-
dans. Verkið sem þau sýndu var
Crazy in love with MR. PERFECT
sem er þeirra fyrsta samvinnuverk
og var frumsýnt á Reykjavík Dance
Festival árið 2007.
„Stykkið er svona dans- og texta-
verk. Mætti kannski segja dansleik-
hús,“ segir Steinunn. „Það fjallar um
ástina, um fólk sem er að leita að Mr.
Perfect. Við erum að velta fyrir okk-
ur hvort þessi pæling um sönnu ást-
ina sé ævintýri sem er til eða ekki.
Áhorfandinn á að fá það á tilfinn-
inguna að hann sé að fylgjast með
tveimur einstaklingum sem eru að
setja eitthvað upp, að tala saman og
velta fyrir sér hlutunum. Sýningin
úti í Stokkhólmi tókst mjög vel. Við
fengum góðar viðtökur meðan á sýn-
ingunni stóð og á eftir. Það var verið
að kynna norrænan samtímadans
þannig að það var mjög mikið af
fulltrúum frá erlendum hátíðum,
framleiðendahúsum og aðilum sem
sjá um að framleiða eða kaupa sýn-
ingar. Það voru líka þarna fulltrúar
frá alþjóðlegum hátíðum einsog Du-
blin dance festival, Tanz im August
sem er stór hátíð í Berlín og fleiri
hátíðum. Það var fólk þarna frá
Kína, Kanada, Frakklandi, Spáni og
Ítalíu. Það kemur síðan í ljós á
næstu dögum hvort eitthvað meira
verði úr þessu,“ segir Steinunn.
Þau eru núna að þróa áfram sitt
nýjasta verk sem nefnist Steinunn
and Brian do Art and How to be
original en það var frumsýnt í októ-
ber. Þau hafa nýlega fengið æf-
ingaaðstöðu á Ítalíu þar sem þau
munu þróa dansverkið áfram.
borkur@mbl.is
Er herra Fullkominn til?
Tímaritalestur Úr verkinu Mr. Perfect, þótt ekki sé vitað hvort þeirra sé
fullkomið líta þau bæði út fyrir að vera það.
Verður fullkomni makinn fundinn með dansi? Ástar-
dansverk Steinunnar og Brian á sýningu í Stokkhólmi
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
„Við erum að bíða eftir plötunni,“
upplýsir Ellen blaðamann um og tjá-
ir honum ennfremur að hún og Pét-
ur séu orðin útgefendur.
„Þetta er ferlega gaman. Ég hef
aldrei staðið í þessu áður. Við dreif-
um henni líka sjálf (en platan nefnist
Let me be there). Það er svo mikið
af góðu fólki í kringum okkur að
þetta verður ekkert mál. Maður er
orðin svo gamall í hettunni (hlær) að
maður þekkir alla.“
Ellen segir þau ætla að fara dálít-
ið aðra leið í kynningu og sölu, en
auk þess að vera fáanleg í plötubúð-
um verður hægt að kaupa plötuna í
Te og kaffi, Heilsuhúsinu, Hemma
og Valda og litlum matvörubúðum.
„Svo mætum við á svæðið tvö og
spilum,“ segir Ellen og bætir við
brosandi. „Það þarf að koma þessu
út!“
Samstarf
En hvernig kom þetta samstarf
hennar og Péturs til?
„Við könnuðumst við hvort annað
og erum vinir á Facebook,“ segir
hún. „En við þekktumst ekkert
þannig. Svo kláraði Pétur túrinn
með Emilíönu Torrini og við fórum
bara að tala um að gera eitthvað
saman. Hann kom í kaffi til mín með
ótrúlega mikið af flottum lögum og
við fundum fljótlega að við áttum
mjög gott með að vinna saman.
Þetta var ekkert mál, ljúft og gott.“
Ellen segir að samstarfið hafi svo
þróast, hún hafi komið að því að
semja tvö lög og svo skrifaði hún
texta.
„Þannig að spurningin um plötu
kom fljótlega upp. Við höfðum sam-
band við Guðm. Kristin Jónsson,
Kidda Hjálm og hann tók þetta upp í
Hljóðrita.“
Finnur Hákonarsonar kom einnig
að þeim þætti en um spilamennsku,
auk höfundanna, sáu svo Jakob
Smári Magnússon (bassi) og Matt-
hías Hemstock (trommur). Dætur
Ellenar, Sigríður, Elísabet og Elín,
syngja bakraddir og Sigurður Guð-
mundsson raddar og spilar á orgel í
einu lagi.
Snurðulaust
Upptökur gengu snurðulaust fyrir
sig, segir Ellen, utan það að hún
þurfti að syngja nokkur lög inn aft-
ur, sökum kvefs.
„Við spiluðum efnið í fyrsta skipti
á djasshátíðinni í sumar,“ segir hún
og bætir svo snöggt við: „En þetta
er samt ekki djass! Þar var brass og
svona. Við verðum með hljómsveit á
útgáfutónleikunum í kvöld en svo
munum við líka kynna hana bara tvö
eins og ég sagði.“
Ellen vann plötu með Pétri Ben,
Draumey, í fyrra en hún segir ekk-
ert mynstur vera á þessu samstarfi
sínu.
„Þetta er bara tilviljunum háð.
Ég er alltaf til í að prófa eitthvað
nýtt. Ég verð líka að segja að ég
er afskaplega ánægð með þetta
samstarf við hann Pétur Hall-
gríms. Það féll allt saman strax
og mér líður eins og ég hafi allt-
af þekkt hann. Ég vissi ekkert
hverju ég mætti eiga von á
þannig að þetta lukkaðist alveg
afskaplega vel.“
Útgáfutónleikar plöt-
unnar fara fram í Rósen-
berg í kvöld.
Þegar allt
gengur upp
Ellen Kristjánsdóttir gefur út plötu í
samstarfi við Pétur Hallgrímsson
Morgunblaðið/Eggert
Ævintýragirni „Ég er alltaf til í að prófa eitthvað nýtt,“ segir Ellen.