Morgunblaðið - 07.12.2010, Qupperneq 36
ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 341. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318
1. Douglas í hjólastól
2. Kjósa að fara í þrot
3. Ný drykkjarverksmiðja
4. Hætta á að bjórinn seljist upp
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Apparat Organ Quartet heldur upp
á útgáfu Pólýfóníu með tónleikum á
Nasa, fimmtudaginn 9. desember.
Sérstakir gestir eru Sykur, D.J. Flug-
vél og geimskip og japanski orgel-
snillingurinn Junichi Matsumoto.
Útgáfutónleikar
Apparats
Queer-
farandklúbburinn
verður með sitt
fjórða tónlistar-
og listaveislu-
kvöld á fimmtu-
daginn nk. á Bar-
böru. „Það verða
sko engin Hvít jól,
heldur Queer jól!“
segir m.a. í fréttatilkynningu frá
klúbbnum. Húsið verður opnað kl. 20
og herlegheitin hefjast um kl. 21.
Queer-farandklúbbur
með kvöld á Barböru
Ný og betri aflátsbréf útgefin af
Snorra Ásmundssyni og hönnuð af
Munda eru að koma úr prentun.
Nýr flokkur bætist við
og er fyrir útrásarvík-
inga, bankafólk, fjár-
glæfrafólk og kúlu-
lánaþega sem sjá sér
ekki fært að
greiða skuldir
sínar að fullu
til baka. Kallast
þau bréf Viking-
bréf.
Ný og betri aflátsbréf
frá Snorra Ásmunds
Á miðvikudag Fremur hæg sunnan- og suðvestanátt. Skýjað eða hálfskýjað og yfirleitt
þurrt. Frost 0 til 8 stig, en hlýnar heldur við vesturströndina.
Á fimmtudag Suðvestan 5-10 m/s, slydda og síðar rigning á vestanverðu landinu, en
heldur hægari og úrkomulítið austan til. Hlýnandi veður.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan eða norðvestan 3-8 m/s. Dálítil él um landið norðaust-
anvert. Skýjað norðvestan til og úrkomulítið, en léttskýjað að mestu sunnan til á landinu.
VEÐUR
FH-ingar komust naumlega
áfram í undanúrslit Eim-
skipsbikarkeppninnar í
handknattleik karla þegar
þeir unnu 1. deildarlið ÍR
með aðeins einu marki,
24:23, á heimavelli ÍR í
Austurbergi. „Ætli við séum
ekki óskamótherjar liðanna
þriggja sem eftir eru,“ sagði
Kristján Arason, þjálfari FH.
Auk FH eru Fram, Akureyri
og Valur komin í undan-
úrslit. » 4
Naumur sigur FH-
inga í Austurbergi
Í kvöld klukkan 19.15 verður flautað
til mikilvægasta leiks íslensks
kvennalandsliðs í handbolta til
þessa. Ísland mætir þá Króatíu í
fyrstu umferðinni í úrslitakeppni
Evrópumótsins í Árósum. „Við gæt-
um komið á óvart og mér skilst að
þær króatísku reikni ekki með
miklu af okkur,“ sagði Júlíus Jón-
asson þjálfari við Morgunblaðið í
Árósum í gær. »2-3
Tilbúnar í slaginn gegn
Króötunum í kvöld
Þrír leikmenn Barcelona, Lionel
Messi, Xavi og Andrés Iniesta,
berjast um að verða fyrir valinu
sem knattspyrnumaður ársins en
Alþjóðaknattspyrnusambandið,
FIFA, gaf það út í gær hvaða þrír
leikmenn koma til greina í kjörinu.
Niðurstaða kjörsins verður kunn-
gerð á hófi í Zürich hinn 10. jan-
úar. »4
Sá besti er klárlega í
herbúðum Barcelona
ÍÞRÓTTIR
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Jólahátíð fatlaðra verður haldin í 28.
sinn á morgun og verður hún að
þessu sinni á Hilton Reykjavík Nor-
dica. Sem fyrr er það tónlistarmað-
urinn og strætisvagnstjórinn André
Bachmann sem stendur fyrir hátíð-
inni. Allir gefa vinnu sína, aðgangs-
eyrir er enginn. Sjálfur kemst
André sennilega ekki, var lagður inn
á sjúkrahús fyrir fáeinum dögum.
„Læknarnir segja mér að ég nái
mér og ég ætla ekkert að kvarta yfir
veikindum, nógu margir kvarta og
kveina núna. Karlarnir gera mikið af
því en yfirleitt ekki konurnar og svo
eru þær kallaðar veikara kynið!“
segir André. „En ég læt taka hátíð-
ina upp fyrir mig svo að ég missi
ekki alveg af þessu, ég er búinn að
vera að undirbúa hana síðustu tvo
mánuðina.“
André er 61 árs og hefur lengi
keyrt strætó í Reykjavík, núna er
hann á leið 3, Berg-Fell. En hann
hefur lengi verið landsþekktur
söngvari, hefur reyndar einnig spil-
að á trommur en er sjálflærður í tón-
list. En hvers vegna fór hann af stað
með Jólahátíðina?
„Það sem maður fær út úr þessu
eru bros og hlý augnatillit,“ svarar
André. „Sjálfur fæddist ég holgóma
og með skarð í vör, það er ákveðin
fötlun. Svo átti vinur minn þegar ég
var lítill fjölfatlaðan bróður, Ei-
rík Einarsson, sem ég
heimsótti oft. Ég varð
sjálfur fyrir miklu einelti
á árum áður og veit hvað
það er að vera fatlaður
og þurfa að berjast.“
André byrjaði að syngja
upp úr 1970 og hefur
ferðast mikið um land-
ið en einnig sungið er-
lendis.
„Ég var í San Franc-
isco í mars, var þar
fimmta árið í röð að syngja fyrir Ís-
lendingafélagið. Svo hef ég líka
sungið í Chicago og New York. Þetta
er alhliða músík, dægurtónlist, ís-
lensk og erlend, ég syng bæði á ís-
lensku og ensku.
Ferðast með Elly Vilhjálms
Ég syng mikið í afmælum og
brúðkaupum, svo hef ég sungið mik-
ið úti á landi. Síðustu sex árin sem
hún Elly Vilhjálms lifði söng hún
með minni hljómsveit, þetta var
snemma á tíunda áratugnum og það
voru mjög virtir tónlistarmenn sem
mæltu með mér við hana. Við Elly
fórum út um allar trissur hér heima,
til Vestmannaeyja, Akureyrar og
Ísafjarðar og líka til London. Þetta
var ægilega skemmtilegur tími.“
Bros og hlý augnatillit í laun
André stendur
fyrir Jólahátíð
fatlaðra í 28. sinn
Morgunblaðið/hag
Í ham André Bachmann og ungir vinir hans í sveitinni Hvar er Mjallhvít? Sveitin hefur leikið undir hjá honum í
fimm ár og reyndar einnig hjá Ragga Bjarna, Stefáni Hilmars, Ladda og fleiri skemmtikröftum.
Síðast voru um 1.200 manns á
Jólahátíðinni, fatlaðir og aðstand-
endur. André býst við enn fleiri
núna. Húsið verður opnað kl.
18:30, sjálf hátíðin er frá kl.
20-22, skólahljómsveit Ár-
bæjar og Breiðholts leikur í
anddyri frá kl. 19:15. Meðal
skemmtikrafta eru Bubbi,
Ingó veðurguð, Ari Eld-
járn, Raggi Bjarna,
Laddi, Lifun og The
Charlies. Kynnar eru Edda Andr-
ésdóttir sjónvarpskona og Sig-
mundur Ernir Rúnarsson alþing-
ismaður. Forsetahjónin verða
sérstakir gestir hátíðarinnar.
„Ég er svona jarðýtan í þessu,
fæ félaga mína til að koma og
gleðja þessa fötluðu einstaklinga.
Oftast eru þeir svo margir tónlist-
armennirnir sem vilja vera með
mér í þessu að ég kem ekki öllum
að!“ segir André.
Síðast mættu um 1.200 gestir
LANDSÞEKKTIR LISTAMENN VERÐA Á HÁTÍÐINNI