Morgunblaðið - 28.12.2010, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2010
Ylfa Kristín K. Árnadóttir
ylfa@mbl.is
Ingibjörg starfar á A3, göngu-deild lungna, á Landspít-alanum og sinnir þar reyk-leysismeðferð fyrir
inniliggjandi sjúklinga og sjúklinga á
göngudeild en margir nýta tækifær-
ið til að hætta að reykja við það að
leggjast inn á sjúkrahús. Að auki
vinnur hún hjá Krabbameinsfélagi
Reykjavíkur þar sem hún er með
einstaklingsráðgjöf og námskeið.
Reykleysismeðferðin fer þannig
fram að í upphafi fer Ingibjörg yfir
reykingarsögu einstaklingsins. Ef
fram kemur að mikið er reykt í hans
nánasta umhverfi, t.d. á heimili hans
er þeim fjölskyldumeðlimum eða vin-
um einnig boðin reykleysismeðferð.
Mikilvægt að læra
af reynslunni
„Það sem felst í að taka reyk-
ingasögu er m.a. að skoða nikótínfíkn
og birtingarmynd hennar hjá ein-
staklingnum, hversu mikið hann
reykir, hvort hann hafi reynt að
hætta áður, hvernig hann fór að því
og af hverju hann hafi byrjað aftur
o.s.frv.,“ segir Ingibjörg.
Mikilvægt sé að læra af reynsl-
unni. „Ef viðkomandi er tilbúinn að
gera tilraun til að hætta að reykja í
nánustu framtíð er farið að leggja
drög að aðgerðaáætlun og hægt er
að fara margar leiðir. Ég ráðlegg
flestum að nota lyf en einstakling-
urinn sjálfur ákveður að lokum
hvaða leið hann fer og ég styð hann í
því. Þegar lyf eru ráðlögð kemur oft
fyrri reynsla einstaklingsins að
gagni. Ef eitthvað hefur reynst vel
getur verið gott að nýta það aftur og
eins ef viðkomandi hefur slæma
reynslu af einhverju er betra að
sleppa því. Við förum yfir mögulegar
hindranir eða aðstæður sem kalla á
smók. Ég reyni að hjálpa viðkomandi
að sjá fyrir sér hvað geti orðið erfitt
og hvernig hægt verði að bregðast
við í staðinn fyrir að reykja.“
Hafa nóg fyrir stafni
Mælt er með að fólk sæki sér
stuðning og láti sem flesta vita að
stefnt sé að því að hætta að reykja.
Ákveða þarf daginn til að hætta, t.d.
þarf að finna út hvort það er betra að
hætta í miðri viku, um helgi eða í fríi.
„Ég mæli með að hafa nóg fyrir
stafni fyrst eftir að hætt er þó án
þess að hafa of mikið álag ef mögu-
leiki er á. Það er mikilvægt að átta
sig á að löngunin í smók stendur ekki
mjög lengi yfir í einu. En hún er hins
vegar alltaf að koma upp fyrstu dag-
ana og fólki finnst þetta oft eins og
ein stór löngun. Því oftar sem ein-
staklingur gengur í gegnum dag og
aðstæður reyklaus verður það auð-
veldara. Lyf hjálpa en það þarf líka
að finna aðrar leiðir til að dreifa at-
hyglinni, s.s. hafa nóg fyrir stafni, fá
Getur tekið nokkrar
tilraunir að hætta
Senn líður að áramótum og þá strengja margir heit sem yfirleitt tengjast bættum lifn-
aðarháttum. Eitt algengasta áramótaheitið er vafalaust að hætta að reykja en það
getur reynst fólki miserfitt. Ingibjörg K. Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur aðstoðar
lungnasjúklinga og aðra við að hætta að reykja en talið er að hægt væri að koma í
veg fyrir eitt af hverjum þremur krabbameinstilfellum ef reykingum yrði útrýmt.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hjálpar fólki Ingibjörg K. Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Jóga hefur átt sífellt meiri vin-
sældum að fagna hérlendis síðast-
liðin ár. Þá hefur hot-jóga orðið
með því vinsælasta og fjöldi fólks
sem flykkst hefur í tíma þar sem
jóga er stundað í upphituðu her-
bergi. Jóga er góð líkamsrækt,
mýkir, styrkir, er liðkandi og æfir
jafnvægið auk þess að vera al-
mennt nærandi fyrir líkama jafnt
sem sál. Nú í janúar hugsa margir
sér til hreyfings og hefja nýtt ár
með heilsusamlegri lífsstíl. Sumir
hafa hugsað sér að byrja í jóga og
þá getur reynst fróðlegt að forvitn-
ast dálítið um hvað maður er á
leiðinni út í. Á vefsíðunni http://
www.yogaweb.com/ má finna ým-
iss konar fróðleik um jóga. Meðal
annars útskýringar á hinum ýmsu
tegundum jóga eins og bikram-,
raja- og ashtanga-jóga. Einnig má
á síðunni finna fróðleik um sögu
jóga og ýmislegt sem getur
gagnast vel fyrir fyrsta tímann.
Eins og t.d. það í hverju sé best að
vera og þá má líka skoða ljós-
myndir af helstu jógaæfingunum.
Þessi síða er bæði fróðleg og
skemmtileg fyrir þá sem hafa
áhuga á að kynna sér jóga. Sama
hvort þeir ætla að skella sér í einn
tíma sjálfir eður ei.
maria@mbl.is
Vefsíðan www.yogaweb.com
Líkamsrækt Jóga er bæði liðkandi og styrkjandi fyrir líkamann.
Fróðleikur um jóga
Á jólunum eru margir latir við að
stunda líkamsrækt og kjósa frekar
að halda sig heima á náttfötunum
með konfektkassa og góða bók. Það
er því ekki skrýtið að mörgum þyki
sem fötin sín hafi á einhvern óút-
skýranlegan hátt þrengst yfir hátíð-
arnar. Þótt ekki sé mikill vilji fyrir að
halda að heiman í líkamsræktarsali
er auðvelt að stunda nokkrar lau-
fléttar æfingar heima í stofu, jafnvel
á meðan horft er á sjónvarpið, og
þannig stuðla að örlítið betri líðan
þegar hátíð ljóss og friðar er lokið
og gamla góða rútínan tekur við.
Ef þú átt sippuband er kjörið að
draga það fram. Sippaðu frekar
hratt í tvær mínútur í senn, alls fjór-
um sinnum. (111 hitaeiningar).
Hlauptu upp og niður stigann í
húsinu þínu, t.d. meðan auglýsingar
eru. (42 hitaeiningar).
Stattu fyrir framan sófann og
beygðu þig í hnjánum eins og þú
ætlir að setjast niður nema ekki láta
rassinn snerta sætið. Haltu stöðunni
í eina mínútu. Endurtaktu fjórum
sinnum. (80 hitaeiningar).
Leggstu á hliðina og lyftu fæt-
inum, sem snýr frá gólfinu, upp og
niður samfleytt í 5 mínútur. Skiptu
um hlið og endurtaktu. (50 hitaein-
ingar).
Réttu handleggina út til hliðanna
og hreyfðu þá eins og þú sért að
reyna að teikna frekar stóra hringi á
næsta vegg. Endurtaktu tvisvar. (20
hitaeiningar.)
Þegar þú þarft að pissa skaltu
spretta á klósettið. Í stað þess að
setjast alveg á setuna skaltu halda
þér rétt fyrir ofan hana. Sprettu til
baka. (30 hitaeiningar).
Náðu í 2-3 niðursuðudósir inn í
eldhús og settu í poka. Haltu á pok-
anum í annarri hendi, hafðu höndina
fyrir aftan höfuð svo olnbogi nemi
við eyrun og lyftu pokanum upp og
niður í eina mínútu til að æfa þrí-
höfða. Skiptu um hönd. Endurtaktu
þrisvar. (17 hitaeiningar).
Stattu tæpa tvo metra frá sjón-
varpinu og gerðu framstig í fimm
mínútur. (37 hitaeiningar).
Heimaæfingar
Æft heima
í stofu
Morgunblaðið/Kristinn
Sipp Það er góð líkamsrækt fyrir unga jafnt sem aldna að sippa.
398
1798
2896
4358
7944
9400
9816
11180
12720
13044
13045
13686
16641
17115
17774
18044
22789
23462
26877
27843
29200
30137
30271
30509
30587
30733
31386
31532
32993
34374
37400
37790
37974
39534
42486
42931
43338
44448
47536
47567
48170
49015
49905
50118
52096
52776
53090
53121
53166
54774
56367
56771
57051
58732
60692
61121
61387
62558
64095
66617
67384
68343
68393
68410
69235
70618
70723
72978
73691
74098
74475
74589
75243
75405
75604
76136
79179
79470
80442
80517
81994
82130
82543
83119
84370
87290
88866
89072
89158
89992
92568
94790
95652
96834
97359
99214
100908
101012
102272
102875
105345
107573
108831
112430
113641
114987
115768
116437
118201
118468
120121
120643
122668
123718
125095
128060
128239
128272
131291
133948
135625
136114
137215
137293
137674
138493
140398
141482
142430
143049
144400
145305
145312
145347
3077
10429
23437
24324
30381
49314
61597
61985
69112
70648
75430
78079
81606
89549
92735
97199
116756
117683
126669
130581
Vinningar
Krabbameinsfélagi› þakkar landsmönnum veittan stu›ning.
Handhafar vinningsmi›a framvísi þeim
á skrifstofu Krabbameinsfélagsins a›
Skógarhlí› 8, sími 540 1900.
Byrja› ver›ur a› grei›a út
vinninga þann 17. janúar nk.
Bi
rt
án
áb
yr
g›
ar
Citroën C3 SX 1,6 HDi, 2.990.000 kr.
38462 122429
Greiðsla upp í bifreið eða íbúð, 1.000.000 kr.
56109
Úttekt hjá ferðaskrifstofu eða verslun, 200.000 kr.
Jólahappdrætti
Krabbameins-
félagsinsÚtdráttur24. desember 2010
Úttekt hjá ferðaskrifstofu eða verslun, 100.000 kr.