Morgunblaðið - 28.12.2010, Side 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2010
n o a t u n . i s
MARGVERÐ
LAUNAÐUR20%
afsláttur
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
hefð
ir
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r J
óla
hefð
Jó
lah
efði
r J
óla
hefð
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r J
óla
hefð
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
NÓATÚNS
GRÍSAHAMBORGAR-
HRYGGUR
1598
1998 KR./KG
BBESTIR
Í KJÖTI
ÚRKJÖTBOR
ÐI
ÚR
KJÖTBORÐI
Ö
ll
ve
rð
er
u
bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
u
og
/e
ða
m
yn
da
br
en
gl
Úrval, gæði
og þjónusta
í Nóatúni
ÍSLENSKT
KJÖT
Milljónir manna komust ekki leiðar
sinnar á austurströnd Bandaríkj-
anna í gær vegna stórhríðar sem
varð til þess að loka þurfti flugvöll-
um í New York, vegir lokuðust og
lestasamgöngur lögðust víða niður.
Um 2.000 flugferðum var aflýst
vegna stórhríðarinnar á einum anna-
samasta degi ársins í flugsamgöng-
um. Loka þurfti John F. Kennedy-
flugvelli og La Guardia-flugvelli í
New York, svo og Newark-alþjóða-
flugvellinum í New Jersey. Aðrir
flugvellir, m.a. í Boston og
Fíladelfíu, voru opnir.
Lestasamgöngur milli New York
og Boston lögðust niður í þrettán
klukkustundir vegna óveðursins.
Lestir gengu ekki heldur milli New
York-borgar og Long Island og
margir komust því ekki til vinnu
sinnar. Óveðrið raskaði einnig ferð-
um jarðlesta í New York. Götur á
Manhattan voru nánast mannlausar.
Allt að 51 sentimetra jafnfallinn
snjór var á götum borgarinnar.
Samgöngur lömuðust vestra
Neyðarástand
» Lýst var yfir neyðarástandi á
svæðum í Massachusetts,
Maine, Maryland, New Jersey,
Norður-Karólínu og Virginíu.
» Tugir þúsunda heimila voru
án rafmagns í Massachusetts
og Rhode Island.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Míkhaíl Khodorkovskí var eitt sinn
auðugasti maður Rússlands, for-
stjóri rússneska olíurisans Júkos og
um tíma var hann jafnvel álitinn
hugsanlegur eftirmaður Vladímírs
Pútíns sem þjóðhöfðingi.
Þetta breyttist í október 2003
þegar Khodorkovskí varð þekktasti
fangi Rússlands. Tveimur árum síð-
ar var hann dæmdur í átta ára
fangelsi fyrir fjársvik og skattsvik.
Afplánun dómsins lýkur á næsta ári
en líklegt er að Khodorkovskí verði
lengur í fangelsi því dómstóll í
Moskvu dæmdi hann í gær sekan
um stórfelldan fjárdrátt og pen-
ingaþvætti.
Hefnd fyrir að storka Pútín?
Stuðningsmenn Khodorkovskís
líta á hann sem píslarvott og segja
að ráðamenn í Kreml hafi staðið
fyrir ákærunum til að hefna sín á
honum fyrir að storka Pútín með
því að styðja stjórnarandstöðu-
flokka fjárhagslega. Rússnesk
stjórnvöld líta hins vegar á hann
sem spilltan auðkýfing sem hafi
auðgast á lögbrotum þegar rúss-
nesk ríkisfyrirtæki voru einkavædd
og fáir útvaldir, svonefndir olígark-
ar, sölsuðu undir sig auðlindir þjóð-
arinnar.
Míkhaíl Khodorkovskí er 47 ára,
fæddist í Moskvu, nam fyrst efna-
verkfræði og síðan hagfræði. Hann
var atkvæðamikill í Komsomol, ung-
liðahreyfingu sovéska kommúnista-
flokksins, og stofnaði fyrsta fyrir-
tæki sitt um fjórum árum fyrir hrun
Sovétríkjanna. Hann stofnaði einn
af fyrstu einkabönkum Rússlands,
Menatep, sem keypti hlutabréf í
mörgum fyrirtækjum á mjög lágu
verði þegar ríkisfyrirtækin voru
einkavædd í forsetatíð Borís Jelts-
íns. Menatep og fleiri bankar í
Rússlandi eru einnig grunaðir um
að hafa komið miklum fjárfúlgum
undan og lagt þær inn á banka-
reikninga í Sviss og víðar.
Khodorkovskí og banki hans
keyptu meðal annars Júkos árið
1995 og hermt er að kaupverðið hafi
numið sem svarar 45 milljörðum
króna. Áður en hann var handtek-
inn var olíufyrirtækið metið á rúma
3.500 milljarða króna.
Khodorkovskí studdi nær alla
stjórnarandstöðuflokkana fjárhags-
lega, eignaðist útgáfurétt að dag-
blaðinu Moskovskíje Novostí og
gerði þekktan rannsóknarblaða-
mann, sem hafði gagnrýnt Pútín, að
ritstjóra blaðsins. Orðrómur komst
á kreik um að Khodorkovskí hygð-
ist nota auð sinn til að komast til
valda í Rússlandi og hefði augastað
á forsetaembættinu.
Píslarvottur eða
ótíndur þjófur?
Khodorkovskí dæmdur sekur um
stórfelldan fjárdrátt og peningaþvætti
Vladímír Pútín, forsætisráð-
herra Rússlands, hefur líkt
Míkhaíl Khodorkovskí við Bern-
ard Madoff, sem var dæmdur í
150 ára fangelsi í Bandaríkj-
unum fyrir fjársvik. „Þjófur á að
vera í fangelsi,“ sagði Pútín um
saksóknina gegn rússneska
auðkýfingnum fyrrverandi.
Khodorkovskí sagði að ákær-
urnar væru af pólitískum rótum
runnar og kvaðst ætla að áfrýja
sakfellingunni.
Hyggst áfrýja
Veifar Khodorkovskí fyrir rétti í gær.
„Á AÐ VERA Í FANGELSI“
3
6
1
4 5
2
1
2
3
4
5
6
21 3 4
Heimildir:
Munich Re, Reuters
Allar tölur eru skv.
nýjustu gögnum í gær
MESTU NÁTTÚRUHAMFARIR ÁRSINS
Ísland
Eldgos
mars–apríl
Bandaríkin
Óveður, flóð
13.-15. mars
Óveður,
skýstrókar, flóð
30. apríl–3. maí
Óveður, haglél
12.-16. maí
Frakkland
Flóð
15. júní
Ástralía
Haglél, óveður
22. mars–6. og 7. apríl
Nýja-
Sjáland
Jarðskjálfti
4. september
Vestur-Evrópa
Fárviðrið „Xynthia“,
stórsjór
26.-28. febr.
Rússland
Hitabylgja,
skógareldar
júlí-sept.
Kína
Jarðskjálfti
13. apríl
Skriður,
flóð
7. ágúst
Flóð,
skriður
13.-29. júníIndónesía
Jarðskjálfti,
flóðbylgja,
eldgos
25.-26. október
Pakistan
Flóð
júlí–september
Austur-Evrópa
Flóð
2.-12. júní
Mexíkó
Fellibylurinn Karl,
flóð
15.-21. september
Ísrael
Skógareldur
2. desember
Haítí
Jarðskjálfti
12. janúar
Síle
Jarðskjálfti,
flóðbylgja
27. febrúar
1,000
800
600
400
200
0
ALLAR NÁTTÚRU-
HAMFARIR
Fjöldi hamfara í
heiminum,
1980-2009
1980 1990 2000 2009
Haítí
Rússland
Kína
Pakistan
Kína
Síle
MANNSKÆÐUSTU
HAMFARIRNAR
Fjöldi látinna
222.570
56.000
2.700
1.980
1.470
520
Heildartjón
8 ma $
0,4
0,2
9,5
Uppl. vantar
30
Veðurfræði
Fellibyljir
Vatnafræði
Flóð, skriður
Loftslagsfræði
Hitaöfgar,
þurrkar
skógareldar
Jarðeðlisfræði
Jarðskjálftar,
flóðbylgjur,
eldgos
Hitabylgja og eldar í RússlandiJarðskjálfti á Haítí Jarðskjálfti í Kína Stórflóð í Pakistan
Lest, sem flytja átti afmælisgjafir til
Kims Jong-Un, væntanlegs leiðtoga
Norður-Kóreu, fór út af sporinu fyrr
í mánuðinum og talið er að andstæð-
ingar kommúnistastjórnar landsins
hafi valdið slysinu með því að
skemma lestateina.
Útvarpsstöð í Seúl hefur þetta eft-
ir leyniþjónustumanni í Norður-
Kóreu. „Járnbrautir Norður-Kóreu
eru mjög úreltar … en í þessu tilviki
voru teinarnir svo illa skemmdir að
svo virðist sem einhver hafi skemmt
þá af ásettu ráði skömmu áður en
lestin kom,“ sagði heimildarmaður-
inn. Lestin fór út af sporinu nálægt
landamærunum að Kína á leiðinni til
Pyongyang og í henni voru meðal
annars mörg dýr úr og sjónvarps-
tæki.
Hermt er að Kim Jong-Un eigi af-
mæli 8. janúar og verði 28 ára gam-
all. Hann er yngsti sonur Kims
Jong-Il, leiðtoga Norður-Kóreu, sem
valdi hann sem eftirmann sinn.
Gjafir Kims
skemmdar?
Mótmæli Suðurkóreskur mótmæl-
andi rífur mynd af Kim-feðgunum.