Morgunblaðið - 28.12.2010, Síða 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2010
✝ Jón Haukur Sig-urbjörnsson
fæddist á Akureyri
28. desember 1934.
Hann lést á heimili
sínu 12. desember
2010. Foreldrar hans
voru hjónin Sig-
urbjörn Þorvaldsson
bifreiðastjóri, f. 22.5.
1895 á Hlíðarenda,
Glæsibæjarhreppi, d.
12.12. 1976 á Ak-
ureyri, og Steinunn
Ingibjörg Jónsdóttir
húsmóðir, f. 10.10.
1902 á Nautabúi í Skagafirði, d.
23.4. 1992 á Akureyri. Systkini Jóns
Hauks eru: Jóhann Pétur, f. 1929,
Þórunn, f. 1932, og María Sigríður,
f. 1940.
Jón Haukur kvæntist hinn 2. des-
ember 1956 Halldóru Júlíönu Jóns-
dóttur iðnverkakonu, f. 21.8. 1932,
frá Samkomugerði í Saurbæj-
arhreppi. Foreldrar hennar voru
Jón Sigfússon bóndi, f. 1.2. 1902, d.
2.1. 1985 á Akureyri, og Rósfríður
Sigtryggsdóttir húsmóðir, f. 20.9.
1903, d. 3.12. 1990 í Eyjafirði. Börn
Jóns Hauks og Halldóru eru: 1)
Haukur, f. 1.7. 1956, maki Þóra
Kristín Óskarsdóttir, f. 1.10. 1959.
Börn þeirra eru Örn Kató, f. 29.1.
1982, og Arna Katrín, f. 1.3. 1990.
2) Sigurbjörn, f. 4.5.
1958. Börn hans eru
Sigurður Pálmi, f.
22.1. 1982, og Júlíana
Sól, f. 17.8. 1989. 3)
Rósa, f. 29.11. 1964.
Dætur hennar eru
Ásta Björk Birg-
isdóttir, f. 25.2. 1985,
maki Þorsteinn Gunn-
arsson, f. 29.2. 1980.
Sonur þeirra er Snæ-
björn Kári, f. 5.11.
2009. Berglind Rósa
Birgisdóttir, f. 16.4.
1988.
Jón Haukur varð gagnfræðingur
frá Gagnfræðaskólanum á Ak-
ureyri 1950. Hann hóf störf hjá
Vegagerð ríkisins á Akureyri í maí
1954 og starfaði þar óslitið til árs-
ins 2002, að undanskildum tveimur
árum hjá Olíuverslun Íslands. Hann
vann fyrst sem vélamaður og bíl-
stjóri í vélaflutningum til ársloka
1969, en hóf þá störf á skrifstofu
Vegagerðarinnar á Akureyri. Árið
1980 tók hann við starfi rekstr-
arstjóra Vegagerðarinnar á Ak-
ureyri og gegndi því starfi til ársins
2002 er hann fór á eftirlaun.
Útför Jóns Hauks fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag, 28. desem-
ber 2010, og hefst athöfnin kl.
13.30.
Það er svo óraunverulegt að
þurfa að kveðja hann afa Nonna því
það er svo stutt síðan hann var svo
hress og lífsglaður. Eftir sitja ynd-
islegar minningar um þennan frá-
bæra mann sem ylja okkur um
hjartarætur. Afi var maður sem
lifði lífinu lifandi. Hann var dugleg-
ur að sinna áhugamálum sínum eins
og að teikna og var alltaf svo opinn
fyrir nýjungum.
Okkur barnabörnunum fannst við
eiga svalasta afann á landinu þegar
hann um sjötugt keypti sér vespu
til að geta skutlast út í búð að
kaupa pott af mjólk eða ís handa
ömmu. Afi var mikill húmoristi og
við munum sakna þess að heyra
ekki smitandi hlátur hans. Afi og
amma voru alla tíð mjög dugleg að
ferðast, bæði innanlands og utan.
Ferðalag afa heldur áfram en nú
ferðast hann um á betri stað og á
vit ævintýranna.
Elsku afi, þín er sárt saknað en
minning þín lifir áfram í hjörtum
okkar.
Örn Kató, Arna Katrín,
Ásta Björk og Berglind
Rósa.
Aðdragandinn að því sem við
héldum að myndi aldrei gerast var
fljótur. Við héldum að afi Nonni
gæti ekki orðið svona veikur, því að
hann hafði aldrei verið veikur á æv-
inni. Og þótt svo að hann lægi í
raun banaleguna þá var ekkert sem
gaf það til kynna. Hann sagði
brandara og hafði áhyggjur af dag-
legum hlutum sem hann átti
kannski aðeins erfiðara með að
sinna síðustu dagana. En ekki
grunaði mann að hann ætti svona
stutt eftir.
Minningarnar eru margar og
skrýtið að maður hitti afa ekki aft-
ur. Keyra með honum um þjóðveg-
ina þegar hann var að vinna eða
fara með honum norður eða til
norðurs eins og það var stundum
kallað til að eyða sumrinu á Ak-
ureyri hjá honum og ömmu. Hann
var stríðinn og spurði um nunn-
urnar í Landakoti og þegar leið á
táningsaldurinn þá byrjaði maður
að þrasa við hann um pólitík fram
og til baka. Hann var fljótur að að-
laga sig, t.a.m. þegar amma fót-
brotnaði þá fór hann að færa sig
uppá skafið í matargerðinni, sem þá
þótti ekkert sérlega líklegt, tileink-
aði sér tölvutækni til að hafa sam-
band við fjölskyldu og vini og á átt-
ræðisaldri sást hann þeysast um
Stekkjargerðið á vespu. Hann var
síteiknandi og hvort sem það var
hvítur pappír eða dagblað þá teikn-
aði hann á það. Ekki aðeins var
hann flinkur að teikna, nánast allt
handverk var honum í blóð borið
hvort sem það voru penslar eða út-
skurðarhnífar, þeir léku í höndun-
um á honum. Og sama blóð rennur í
æðum pabba, það er ljóst hvaðan
hann fékk sína hæfileika.
Við ævilok staldrar maður við og
horfir yfir farinn veg. Afi var mað-
ur sem þótti vænt um fjölskylduna
sína og setti hana ávallt í fyrsta
sæti. Hann var sannkölluð alþýðu-
hetja sem vann alla ævi, byggði sér
hús og sá vel fyrir sér og fjölskyldu
sinni. Maður fann alltaf fyrir hlýju
og öryggi hjá honum og hann var
góð fyrirmynd. Við söknum afa
okkar óskaplega mikið og við erum
kannski ekki enn búin að átta okk-
ur á því að hann sé farinn. En lífið
heldur áfram og maður byggir sitt
eigið líf á gildum sem maður hefur
lært af sínum fyrirmyndum.
Sigurður Pálmi og Júlíana Sól.
Ég var ekki hár í loftinu þegar
Jón Haukur hóf störf hjá Vega-
gerðinni á Akureyri. Árið var 1954
og hann þá um tvítugt og ég 9 ára.
Vegagerðin var þá til húsa við Hjal-
teyrargötu í tveimur gömlum her-
bröggum, þar var skrifstofa sem
Karl heitinn Friðriksson réð ríkjum
og þar var gamla vélaverkstæðið
sem var svo dimmt að þar var ljós
allt sumarið. Þá var nýbúið að
byggja nýja verkstæðið sem gjör-
breytti aðstöðunni þarna á eyrinni.
Má segja að Jón Haukur hafi komið
inn í nýja tíma í vegagerð á svæð-
inu en hann vann fyrstu árin sem
vélamaður og bílstjóri við flutning á
vélum og búnaði til vega og brúar-
gerða. Vélaútgerð var þá stór þátt-
ur í starfseminni enda öll verk unn-
in af vega- og brúarvinnuflokkum
Vegagerðarinnar og flest tæki í
eigu hennar. Það var því mikið verk
að flytja til vélar og búnað og ekki
heiglum hent í vonskuveðrum og
ófærð, þegar flytja þurfti vélar á
verkstæði sem bilað höfðu í snjó-
mokstri.
Ég þekkti Jón ekki mikið á þeim
tíma en man samt eftir þessum
myndarlega manni sem hafði ótrú-
lega hæfni til að herma eftir mönn-
um og teiknaði skemmtilegar skop-
myndir. Mér er minnisstætt eitt
sinn þegar ég heimsótti föður minn
á skrifstofuna, en þá kom Jón
ásamt skemmtinefnd sem átti að
sjá um árshátíð og átti Jón að
herma eftir Karli Friðrikssyni sem
hafði mjög sérstakan hlátur. Til
vonar og vara átti að leyfa Karli að
heyra skemmtiatriðið fyrirfram því
hann var skapríkur maður. Þar
kom að Jón hló í eftirhermunni og
hló þá Karl líka og mátti ekki
greina frá hvorum kom rétti hlát-
urinn. Myndir eftir Jón voru sér-
stakar og hafði hann hæfileika að
draga fram sérkenni þeirra sem
hann teiknaði. Var ljóst að þar var
listamaður á ferð sem síðan aug-
ljóslega hefur erfst til afkomenda.
Við kynntumst síðan vel árið
2000 þegar ég kom til starfa sem
umdæmisstjóri fyrir Norðaustur-
land. Hann var einn af þremur
rekstrarstjórum sem þá voru undir
minni stjórn og sá um þjónustu við
vegi á Eyjafjarðarsvæðinu. Rekstr-
arstjórastarfið er erfitt starf og
mæðir mikið á þeim mönnum. Jón
hafði þann hæfileika að taka öllum
með jafnaðargeði og aldrei heyrði
ég hann æsa sig upp við menn þó
oft hafi hann þurft að taka á móti
erfiðum samtölum. Hann komst vel
af við starfsmenn sína og var vin-
sæll meðal þeirra og hafði gott orð
á sér hjá sveitarstjórnarmönnum og
vegfarendum.
Jón Haukur starfaði hjá Vega-
gerðinni á Akureyri frá 1954, fyrst
sem bílstjóri fram til ársins 1970 að
undanskildum tveimur árum sem
hann vann hjá Olíuverslun Íslands.
Hann vann síðan á skrifstofunni
eftir 1970 og var ljóst að faðir minn,
Guðmundur Benediktsson sem var
rekstrarstjóri á Eyjafjarðarsvæð-
inu, hugsaði sér hann sem eftir-
mann sinn og gekk það síðan eftir
1980. Hann starfaði síðan sem
rekstrarstjóri fram til ársins 2002
er hann lét af störfum að eigin ósk
eftir farsælt starf hjá Vegagerðinni
í nær 50 ár.
Við vegagerðarmenn söknum
góðs drengs og minnumst hans með
þakklæti og söknuði.
Fyrir hönd Vegagerðarinnar vil
ég færa fjölskyldu Jóns Hauks okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Birgir Guðmundsson.
Jón Haukur
Sigurbjörnsson
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Systir mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGIBJÖRG M. ÓLAFSDÓTTIR,
(Ebba),
Súðavík,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði fimmtu-
daginn 23. desember.
Útförin fer fram frá Súðavíkurkirkju fimmtudaginn
30. desember kl. 14.00.
Ragnheiður Ólafsdóttir,
Hildur Maríasdóttir,
Sigríður Hrönn Elíasdóttir,
Ólafur Elíasson,
Margrét G. Elíasdóttir,
Sigurjón Vífill Elíasson,
tengdabörn, barnabörn og langömmubörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
INGIBJÖRG ÞÓRA SIGURGRÍMSDÓTTIR,
Grænumörk 5,
Selfossi,
áður Heiðarbrún, Stokkseyri,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands að morgni
föstudagsins 24. desember.
Útförin fer fram frá Stokkseyrarkirkju fimmtudaginn
30. desember kl. 13.00.
Sveinbjörn Guðmundsson,
Jóhann Sveinbjörnsson, Ólöf Bergsdóttir,
Einar Sveinbjörnsson, Kristín Friðriksdóttir,
Bjarki Sveinbjörnsson, Sigrún Kristinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ELÍN JÓNSDÓTTIR DUNGAL,
Grensásvegi 58,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum Fossvogi miðvikudag-
inn 15. desember, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 29. desember kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jón Þorvaldsson, Vallý Helga Ragnarsdóttir,
Steinunn Þorvaldsdóttir, Finnur Geirsson,
Hilmar Á. Hilmarsson, Guðfinna M. Sævarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær unnusti minn, sonur, bróðir okkar, barna-
barn og tengdasonur,
BRYNJAR ÞÓR INGASON,
Fjarðarstræti 2,
Ísafirði,
lést sunnudaginn 19. desember.
Jarðarförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju miðvikudag-
inn 29. desember kl. 14.00.
Rannveig Jónsdóttir,
Ingi Þ. Guðmundsson,
Almar Þór Ingason,
Fannar Þór Ingason,
Birta Kristín Ingadóttir,
Óttar Gunnarsson,
Pálína Þórarinsdóttir,
Margrét Gunnarsdóttir, Jón Sigurpálsson
og aðrir aðstandendur.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og systir,
RANNVEIG ÞORBERGSDÓTTIR,
áður Fögruvöllum,
Garðabæ,
Háahvammi 7,
Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 23. desember.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn
4. janúar kl. 13.00.
Margrét Gunnarsdóttir, Hafþór Hafdal Jónsson,
Jóhanna Þorbergsdóttir, Jón Óli Gíslason,
Ingibjörg Þorbergsdóttir, Eiríkur Pálsson,
Guðmundur Þorbergsson, Margrét Hannibalsdóttir,
Hafþór Þorbergsson,
Stefán Þorbergsson,
Þórir Friðriksson.
✝
Elskulegi maðurinn minn, pabbi okkar, tengda-
pabbi og afi,
ERLING SIGURLAUGSSON
bifvélavirkjameistari,
Nesbala 3,
Seltjarnarnesi,
lést þriðjudaginn 21. desember.
Útför hans fer fram frá Seltjarnarneskirkju, fimmtu-
daginn 30. desember kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Parkinsonsamtökin á Íslandi.
Halldóra Sigurgeirsdóttir,
Reynir Erlingsson,
Rúnar Erlingsson,
Ingilaug Erlingsdóttir, Jóhann Kjartansson
og fjölskyldur.