Morgunblaðið - 28.12.2010, Side 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2010
✝ Herdís Antoníus-ardóttir fæddist í
Núpshjáleigu á Beru-
fjarðarströnd 21.
mars 1923. Hún lést á
öldrunardeild Land-
spítalans 17. desem-
ber síðastliðinn. Her-
dís ólst upp í
Núpshjáleigu á Beru-
fjarðarströnd hjá for-
eldrum sínum Jó-
hönnu
Vilhjálmsdóttur, f.
1892, d. 1973, og Ant-
oníusi Jónssyni, f.
1890, d. 1956. Systkini Herdísar eru:
Björg, f. 1917, d. 2005, Jón, f. 1918,
d. 1998, Sigurður, f. 1919, d. 1999,
Ingibjörg, f. 1921, d. 2008, Herborg,
f. 1925, d. 2008, Kristveig, f. 1928, dó
á barnsaldri og Vilhjálmur f. 1929.
Eiginmaður Herdísar var Sig-
steinn Sigurbergsson frá Eyri við
Fáskrúðsfjörð, f. 1922, d. 1986. For-
eldrar hans voru Sigurbergur Odds-
son, f. 1894, d. 1976 og Oddný Þor-
steinsdóttir, f. 1893, d. 1983.
Börn þeirra eru: Jóhanna Ant-
onía, f. 1945, fyrri eiginmaður Sig-
urður Helgason, d. 1968. Þeirra
börn: 1)Sigsteinn, f. 1964, maki
börn: Halldór, f. 2001 og Guðrún
Helga, f. 2003, 3) Sigsteinn, f. 1977,
4) Oddný, f. 1991.
Oddný, f. 1952, maki Líney R.
Halldórsdóttir, f. 1961. Sjöfn, f.
1958, maki Finnur Pálsson, f. 1956,
þeirra börn: 1)Hlín, f. 1982, maki
Brynjar Gunnarsson, f. 1978, 2) Héð-
inn, f. 1988, maki Sóley Stef-
ánsdóttir, f. 1986, 3) Rán, f. 1994.
Þröstur, f. 1965, fyrrverandi eig-
inkona, Ásgerður S. Bjarnadóttir, f.
1966, þeirra börn: 1) Telma, f. 1987,
2) Bylgja, f. 1990, 3) Hilmar, f.
1996. Núverandi maki Þrastar er
Soffía Sturludóttir, f. 1969, hennar
börn: 1) Daníel, f. 1994, 2) Sindri, f.
1997.
Herdís og Sigsteinn byrjuðu bú-
skap í Vestmannaeyjum 1945 en
bjuggu þó lengst af í Reykjavík,
fyrstu árin á Lindargötu þá á Njáls-
götu, síðan Langholtsvegi 158 og þá
Njörvasundi 24. Herdís bjó síðast að
Skúlagötu 20 eftir að Sigsteinn dó.
Þau hjónin áttu sumarbústað við
Hafravatn á sjötta og sjöunda ára-
tugnum þar sem þau héldu heimili
að sumarlagi.
Herdís gekk í Húsmæðraskólann
á Hallormsstað. Eftir að hún stofn-
aði heimili var hún lengstum heima-
vinnandi húsmóðir en starfaði við
fiskvinnslu af og til. Síðar vann hún
við umönnunarstörf á Hrafnistu í
Reykjavík í 23 ár.
Útför Herdísar fer fram í Grafar-
vogskirkju í dag, 28. desember 2010,
klukkan 13.
Halla Pálsdóttir, f.
1963, þeirra börn:
Haraldur Bogi, f.
1985, maki Eygló
Björnsdóttir, f. 1987,
þeirra barn Alba Líf, f.
2009, Jóhanna Ant-
onía, f. 1989, 2) Sigríð-
ur Sara, f. 1968, maki
Guðmundur Björns-
son, f. 1969, þeirra
börn: Alexander, f.
1995, Anton, f. 1999
og Erla, f. 2001, síðari
eiginmaður Jóhönnu,
Kristinn I. Sigurðsson,
d. 2008. Þeirra börn: 1) Herdís El-
ísabet, f. 1979, maki Sveinn Ingi
Steinþórsson, f. 1979, þeirra börn:
Ísabella Diljá, f. 2007 og Kristín
Lilja, f. 2010, 2) Helena, f. 1982, maki
Sverrir K. Karlsson, f. 1979, þeirra
börn: Embla Karen, f. 2004 og Gerð-
ur Lind, f. 2007.
Sigurbergur f. 1948, maki Guðrún
Hauksdóttir, f. 1952. Þeirra börn: 1)
Herdís, f. 1971, fyrrverandi eig-
inmaður, Jörundur Á. Sveinsson, f.
1971, þeirra börn: Sigrún María, f.
1993, Snædís María og Sigurbergur
Áki, f. 2004, 2) Heiða, f. 1976, maki
Hafliði Halldórsson, f. 1972, þeirra
Sú saga gengur að tengdafaðir
minn, Sigsteinn Sigurbergsson frá
Eyri við Fáskrúðsfjörð, hafi forðum
gengið um fjallaskörð frá bernsku-
heimili sínu að Núpshjáleigu á
Berufjarðarströnd. Þar fórnaði
hann nokkru til, kól á fótum, var fót-
kaldur það sem hann átti eftir ólif-
að. Hann var að vitja um fjöruga
stúlku, Herdísi, rétt af unglings-
aldri sem seinna varð eiginkona
hans. Þarna átti Dísa sín bernsku-
og unglingsár, góð ár. Jörðin var lít-
il, með litlu tvílyftu timburhúsi og
dálitlu fjárhúsi, smiðju, fjósi. Jörðin
bar nokkrar kindur, oftast kú og
hest. En það fylgdu sjávarnytjar,
útræði á báti sem koma mátti að
landi í lítilli vík; aflanum kastað á
land en börnin báru hann þaðan.
Alltaf var nóg að borða og mat-
urinn í minningunni sá besti sem
framreiddur hefur verið á Íslandi,
móðirin gerði fjölbreyttan mat úr
fábreyttu hráefni. Allt atlæti var
með besta móti, þanin nikka, söngur
og önnur glaðværð, hversdags. Eins
og flestir í þennan tíma tóku börnin
þátt í heimilis-, bú- og sjóverkum,
bjuggu að því síðar með verkviti á
nær öllu sem upp kom. Þær syst-
urnar í miðið (Dísa, Hebba og Imba)
voru nánar, brölluðu margt saman,
ekki allt til gagns, en margt til gleði.
Að vetrum var farið um klammaða
jörð á skautum, milli bæja eða bara
til gamans. Á sumrin var oft gengið
yfir í gullafjöruna og tíndir fallegir
steinar og skeljar. Á bátnum var
farið yfir fjörðinn á Djúpavog bæði
til að erinda og til að skemmta sér á
böllum. Ég heyrði líka um ballferðir
upp á Hérað eða Egilsstaði. Ætli
þau Dísa og Steini hafi ekki hist
fyrst á slíkri samkomu.
Sem unglingur var Dísa í vist hjá
frændfólki og um tíma hjá elstu
systurinni, Björgu, að Dilksnesi í
Hornafirði. Enn liggur falinn hring-
ur efst á Lónsheiði sem Dísa tapaði
á leiðinni þangað. Við í næstu ætt-
liðum höfum leitað hans en ekki
fundið. Dísa var veturtíma á Hús-
mæðraskólanum á Hallormsstað.
1945, árið sem frumburðurinn
fæddist, bjuggu Dísa og Steini sér
heimili í Vestmannaeyjum þar sem
hann nam húsgagnabólstrun; voru
þar nærri tvö ár. Síðan bjuggu þau í
Reykjavík, fyrstu árin á Lindargötu
en lengst í Njörvasundi 24. Mörg ár
sjöunda áratugar bjuggu þau sum-
arlangt í bústað sínum við Hafra-
vatn. Í huga Dísu var „heima“ þó
alltaf Núpshjáleiga og Berufjarðar-
fjöllin. Auk heimilishalds þar sem
allur matur og flest föt barnanna
voru heimaunnin og tímabundin
störf við fiskvinnslu, vann Herdís
við umönnunarstörf á Hrafnistu í
nær þrjá áratugi, tvö ár fram yfir
sjötugt. Þar undi hún hag sínum vel,
að vinna öðrum í haginn, oftast
brosandi. Ég efa ekki að hún hafi
strítt gamla fólkinu, eins og öðrum,
en alltaf græskulaust.
Kannski voru aðaleinkenni Dísu
keppniskap og kímnigáfa þó oft
væri hún svona eins og kvíðin að til-
efnislausu. Við engan hefur verið
eins gaman að spila á spil, sérstak-
lega ef henni gekk illa, þá var ekki
hætt fyrr en í lengstu lög. Lynd-
iseinkunn Dísu gekk áfram til
barnanna, sem flest nýttu keppnis-
skapið til afreka í íþróttum. Ég á
henni Dísu, sem gaf mér Sjöfn dótt-
ur sína, margt upp að unna.
Finnur Pálsson.
Amma mín var fullkomin. Hún
var ekta amma. Í huga mínum og
hjarta geymi ég ótal minningar um
allar góðu stundirnar sem við áttum
saman.
Einhvern veginn er erfitt að lýsa
ömmu Dísu í einu orði eða nokkrum
setningum því hægt væri að skrifa
heila bók. Hún var alltaf glöð, og
með húmorinn í lagi!
Það voru ófá skiptin sem við sát-
um tvær saman með Dominos-pítsu
og ískalda kók, það var oft hlegið
þegar vinirnir hringdu og ég sagðist
vera að fara til langömmu minnar
að panta pítsu. Allir voru sko sam-
mála því að ég ætti langflottustu
ömmuna sem kynni sko gott að
meta.
Takk fyrir allar góðu stundirnar
og allt sem þú kenndir mér í lífinu.
Megi ferðalagið sem framundan er
verða þér gott og ég veit að það
verður tekið vel á móti þér.
Hvíldu í friði og Guð blessi minn-
ingu þína elsku amma.
Þín
J. Antonía Sigsteinsdóttir.
Elsku amma, það er svo undar-
legt að hugsa til þess að núna sértu
farin og maður fái ekki að hitta þig
aftur. Þú varst alltaf svo hlý og góð,
með svo stórt ömmuhjarta. Sam-
verustundirnar voru margar og það
er margs að minnast en við höfum
þær minningar fyrir okkur. Það var
oft svo gaman hjá okkur þegar við
fengum að gista hjá þér í Njörva-
sundinu, spila svarta pétur og fá svo
að kúra undir ömmusæng. Þá fórstu
með allar bænirnar með okkur, all-
ar sem við kunnum og engri mátti
gleyma. Alltaf var stutt í grínið hjá
þér og oft mikið hlegið. Alltaf var
hægt að segja þér allt milli himins
og jarðar enda sagðir þú engum frá
leyndarmálum. Stundum liðu marg-
ir dagar milli þess sem maður hitti
þig, þú skammaðir mann aldrei en
sagðir iðulega þegar þú kvaddir:
„Komdu svo fljótt aftur.“
Nú kveð ég þig elsku amma mín.
Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
(Vatnsenda-Rósa)
Takk fyrir allt elsku amma Dísa.
Það voru sannkölluð forréttindi að
eiga svona góða ömmu.
Þú verður alltaf hjá mér í hjart-
anu.
Þín
Telma.
Elsku amma Dísa, það eru svo
margar góðar minningar sem koma
upp í hugann þegar ég lít til allra
góðu stundanna sem við áttum sam-
an. Minningar sem hlýja manni um
hjartarætur. Það var alltaf svo gott
að koma til þín. Nýbakaðar kleinur,
partar og alls kyns kræsingar voru
bornar á borð. Þú dekraðir alveg við
mann. Þú hafðir gaman af því að
segja manni alls konar sögur. Sögur
frá því að þú varst ung, sögur af þér
og Steina afa og sögur af mömmu og
systkinum hennar. Þú varst mikill
sögumaður og sagðir manni sögurn-
ar af mikilli innlifun. Þú varst ætíð
ung í anda og hafðir mikið gaman af
því að hrekkja og stríða. Þá sérstak-
lega barnabörnunum. Þú sást alltaf
spaugilegu hliðarnar á lífinu. Ein af
góðu minningunum er þegar ég fór
með þér í rútu austur á land þegar
ég var yngri. Þú varst dugleg að
benda mér á helstu hóla og hæðir og
segja mér sögur í leiðinni. Man eftir
þessari ferð eins og hún hafi verið í
gær. Litli og stóri Dímon, allir fal-
legu firðirnir og sandarnir eru mér
enn í fersku minni. Við heimsóttum
systur þínar og nutum þess að vera
úti í góða veðrinu saman. Þú ljóm-
aðir öll þegar við keyrðum um
hvern fjörðinn á fætur öðrum.
„Sérðu, Beta Dís, hvað þetta er fal-
legt.“ Sem það var. Þvílík fegurð.
Þú varst stolt að sýna mér æsku-
slóðirnar þínar. Ég er þakklát fyrir
allar góðu minningarnar um þig,
elsku amma mín.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Hvíl í friði, elsku amma Dísa.
Herdís Elísabet Kristinsdóttir.
Elsku amma mín, nú er komið að
kveðjustund, en þeim tíma hafði ég
kviðið fyrir. Þú áttir svo stóran stað
í hjarta okkar allra sem sást best á
þessum fjórum síðastliðnu mánuð-
um sem þú dvaldir á sjúkrahúsinu.
Þar var alltaf einhver hjá þér og
kannski stundum of margir því við
vildum helst öll vera hjá þér í einu.
Mínar fyrstu góðu minningar eru
frá því þú bjóst í Njörvasundinu.
Þar var alltaf svo gott að vera, mikið
fjör en samt svo yfirvegað og nota-
legt andrúmsloft. Það að fá að kúra
á milli ykkar afa var mjög vinsælt
hjá okkur barnabörnunum og mesta
furða að þið skylduð haldast í rúm-
inu með okkur öll á milli ykkar.
Mörgum stundum eyddi ég á verk-
stæði afa úti í bílskúr þar sem hann
bólstraði alla stólana. Þar fékk ég
að byggja skip og fleira úr spýtuaf-
göngum, síðan kom ég inn til þín og
þar tók á móti manni ilmur frá heil-
um kleinu- og partafjöllunum og
öðru bakkelsi.
Þú varst mjög dugleg, amma mín,
og alltaf allt svo hreint og fínt hjá
þér þrátt fyrir að þú værir með okk-
ur öll á ýmsum aldri í kringum þig
og þurfti sjálfsagt hver sína athygli,
en þú varst montin af þessum flotta
hópi þínum. Ég man þegar ég var
hjá ykkur á sumrin þegar við bjugg-
um í sveitinni. Þá var ekki bands-
potti eftir hjá þér því þú varst búin
að hjálpa mér að prjóna og hekla úr
öllum hnyklum sem þú áttir og var
það fullur pappakassi af sokkum og
vettlingum sem ég fór með mér í
sveitina. Einnig seinna þegar ég var
orðin eldri þegar ég kom með efni
sem þurfti að verða kjóll eftir
klukkutíma. Þú varst svo þolinmóð
og við redduðum kjólnum saman á
tilsettum tíma.
Það var svo oft gaman hjá okkur,
amma, og margar góðar stundir að
minnast eins og þegar ég var að
læra hárgreiðsluna og það tók mig
fyrst allan daginn að setja í þig rúll-
urnar. Oft vorum við búnar að hlæja
að því seinna þegar ég var að greiða
þér á stofunni minni og þú varst
orðin flottari en allar drottningar
heimsins. Það var oft voðalega gott
þegar þú hringdir í mig í vinnuna og
sagt var hinum megin á línunni:
Sigga mín, það er kjötsúpa í pott-
inum. Þá var ég ekki lengi til þín.
Seinna var það svo ég sem kom með
súpuna að þínum hætti til þín. Þá
varst þú jafn glöð og ég var áður.
Þú varst mikill prakkari og grín-
ari í þér og alltaf með nokkra brand-
ara uppi í erminni og þér fannst
gaman að fá einn nýjan. Já, það var
stutt í húmorinn og meira að segja
þegar þú varst á sjúkrahúsinu
komstu með einn og einn sem fékk
mann til að brosa enda sögðu börnin
mín alltaf: Amma er svo fyndin og
skemmtileg, og mikið elskuðu þau
þig.
Þegar ég hugsa til þín, elsku
amma mín, þá líður mér vel. Þú
varst svo falleg og þegar ég horfði á
þig í dag var svo mikill friður yfir
þér og jafnvel pínu bros. Þú varst
engri lík og mun ég sakna þín sárt
en ég veit að afi hefur tekið á móti
þér og þá líður mér vel því hann var
eins og þú, gullmolinn minn. Takk
fyrir allt, elsku amma mín.
Þín
Sigríður Sara.
Í dag kveðjum við elsku ömmu
okkar sem var án efa besta amma í
heimi. Þegar við lítum til baka rifj-
ast upp svo margar hlýjar, góðar og
skemmtilegar minningar. Fallega
heimilið í Njörvasundi, sem var allt-
af opið, og elskulegi afi Sigsteinn
sem kvaddi okkur alltof snemma.
Sögustundirnar, spilakvöldin,
göngutúrarnir í Elliðarárdalnum,
ilmandi kleinur, sultur úr garðinum
og svona gætum við lengi haldið
áfram.
Amma Dísa var mikill húmoristi
og það var alltaf stutt í hláturinn og
fallega brosið. Þegar hún flutti frá
Njörvasundi á Skúlagötuna tóku
við aðrir tímar sem voru alls ekki
síðri. Fallegt og hlýlegt heimili,
sem líka var alltaf opið öllum þeim
sem vildu koma í kaffi og spjall. Að
vísu var einn tími dags sem ekki var
æskilegt að trufla, það var þegar
Leiðarljós var í sjónvarpinu. Þá var
síminn tekinn úr sambandi.
Elsku amma Dísa, við kveðjum
þig með sorg í hjarta en gleðjumst
jafnframt yfir endurfundum ykkar
afa. Þegar okkar tími kemur erum
við ekki í vafa um að þú takir bros-
andi á móti okkur með einni rjúk-
andi heitri með skinku og ananas.
Þín barnabörn,
Herdís, Heiða, Sigsteinn,
Oddný og barnabarnabörn.
Í fáum orðum vil ég kveðja eina
yndislegustu manneskju sem ég hef
kynnst. Ég hitti Dísu fyrst fyrir 27
árum þegar við maðurinn minn vor-
um að byrja saman. Hann fór þá
með mig að hitta Dísu ömmu og
Steina afa í Njörvasundi og fann ég
strax að þau skiptu hann svo miklu
máli. Þegar ég fór að kynnast þeim
fann ég hvað þau voru einstakar
manneskjur.
Dísa missti Steina sinn árið 1986
aðeins 64 ára gamlan og var það
henni mikill missir. Dísa vann lengi
á Hrafnistu og var elskuð og dáð af
vistmönnum sem og samstarfsfólki.
Frænka mín sem vann þar með
Dísu sagði mér að þær sem áttu að
vera á vakt með Dísu hefðu verið
svo ánægðar af því að þær vissu að
þá yrði vaktin svo skemmtileg. Já
hún Dísa amma var í eðli sínu alveg
einstakur húmoristi og var alveg
frábært að hlusta á hana þylja upp
brandara og skemmtisögur. Já og
búðarferðirnar með henni gátu á
orskotsstundu snúist upp í algjöran
skrípaleik, en þá var amma búin að
upphugsa einhvern hrekk (góðlát-
legan) og kom þá stríðnisglampi í
augun og það tísti í henni. Þá vissi
maður að nú væri eitthvað í bígerð
hjá henni. Já engin lognmolla þar
sem Dísa amma var, alltaf fjör og
skemmtilegheit.
Minningarnar um Dísu ömmu
eru svo skemmtilegar að ég brosi á
meðan ég rifja upp allar frábæru
stundirnar með henni. Við erum öll
svo miklu ríkari sem fengum að
vera hér samferða henni.
Hjartans þakkir fyrir allt elsku
yndislega Dísa amma. Steini þakk-
ar þér líka allt sem þú varst honum
og gerðir fyrir hann.
Guð blessi þig.
Þín
Halla.
Elsku Dísa mín, nú kveð ég þig
með söknuði. Ég vil þakka þér fyrir
allar góðu samverustundirnar
gegnum árin. Frá því ég kynntist
þér fyrst hefur alltaf verið svo gott
að koma til þín og leita til þín.
Þú varst alltaf til staðar fyrir
okkur og alltaf tilbúin til að hjálpa.
Þú sýndir okkur alltaf svo mikla
væntumþykju. Þín verður sárt
saknað.
Ásgerður.
Herdís
Antoníusardóttir
✝
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
ÞÓRHALLS MAGNÚSSONAR
fv. flugstjóra,
Asparási 6,
Garðabæ.
Hafdís Guðbergsdóttir,
Guðberg Þórhallsson, Sigrún Stefánsdóttir,
Hulda Þórhallsdóttir, Jóhann Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabarn.