Morgunblaðið - 28.12.2010, Page 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2010
R
Tilkynningar
Dregið hefur verið í síma-
happdrætti Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra
Vinningar komu á eftirtalin númer:
Toyota i.Q 1.0 að verðmæti kr. 2.440.000
kom á miða númer:
68013
ToyotaYarisTerra 1.0 að verðmæti kr.
2.760.000 hver bifreið komu á miða
númer:
21293110353408637786819676284
Toyota Aygo 1,0 VVT-i að verðmæti kr.
2.450.000 hver bifreið komu á miða
númer:
171124196154131842989794599509
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra þakkar
landsmönnum veittan stuðning og óskar
vinningshöfum til hamingju.
Handhafar vinningsmiða framvísi þeim á skrif-
stofu félagsins að Háaleitisbraut13, Reykjavík,
sími 535-0900.
Byrjað verður að afhenda vinninga 5. janúar
2011.
Smáauglýsingar 569 1100
Spádómar
ÞÓRA FRÁ BREKKUKOTI
– Spámiðill
Spái í spil og kristalskúlu
Heilunartímar
Fyrirbænir
Algjör trúnaður
Sími 618 3525
www.engill.is
Dýrahald
Labrador Retriever hvolpar.
Hreinræktaðir. Ættbókarfærðir HRFÍ.
Sprautaðir. Tilbúnir til afhendingar.
Verð kr. 160 þús. Upplýsingar í síma
695 9597 og í síma 482 4010.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratugareynsla.
Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig
á hinum ýmsu byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Tómstundir
Plastmódel í miklu úrvali.
Tómstundahúsið, Nethyl 2,
sími 5870600.
www.tomstundahusid.is
Til sölu
Ódýr blekhylki og tónerar í
HP, Dell, Brother, Canon og Epson.
Send samdægurs beint heim að
dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150.
Sjá nánar á blekhylki.is
Verslun
Trúlofunar- og giftingarhringar í
úrvali Auk gullhringa eigum við m.a.
titanium og tungstenpör á fínu verði.
Sérsmíði, framleiðsla og viðgerðar-
þjónusta. ERNA, Skipholti 3,
s. 552 0775, www.erna.is.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi. Kaupi allt
gull, nýlegt, gamalt og illa
farið. Leitið til fagmanns og fáið góð
ráð. Uppl. á demantar.is, í síma
699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13 (við Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
C.P. þjónusta. Veiti bókhalds-,
eftirlits- og rannsóknarvinnu alls-
konar. Hafið samband í síma
893 7733.
Bókhaldsstofan ehf. Reykja-
víkurv. 60, Hf. Færsla á bókhaldi,
launaútr., vsk-uppgjör, skattframtöl,
stofnun fyrirtækja. Magnús Waage,
viðurkenndur bókari, s. 863 2275,
www.bokhaldsstofan.is.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Bílaþjónusta
Húsviðhald
Parket er okkar fag í 26 ár
Verið í góðum höndum
Notum eingöngu hágæða efni
Förum hvert á land sem er
FALLEG GÓLF ehf - Sími 898 1107
www.falleggolf.is - golfslipun@simnet.is
Þak og
utanhússklæðningar
og allt húsaviðhald.
Ragnar V. Sigurðsson ehf.
Sími 892 8647.
Raðauglýsingar
- nýr auglýsingamiðill
569-1100
finnur@mbl.is
Au pair vantar til Suður-Englands
Ramsgate, fjölskylda með 2 stelpur,
3ja og 4 vantar au pair til að keyra
þær í leikskóla og sækja. Staða laus
strax eftir jól. Umsókn sendist á
sad@atlanta.is.
✝ Þuríður RagnaJóhannesdóttir
fæddist 12. desember
1916 í Gröf í Skaft-
ártungu. Hún lést á
Hjúkrunar- og dval-
arheimilinu Klaust-
urhólum 15. desem-
ber 2010. Foreldrar
hennar voru Jóhann-
es Árnason bóndi, f.
24.8. 1881 á Melhóli í
Meðallandi, látinn
22.8. 1958 í Gröf, og
Ólöf Gísladóttir, f.
19.2. 1894 í Gröf, látin
24.1. 1992. Systkini Þuríðar: Elstur
er Gísli Kjartan, f. 1915, látinn
1945, á eftir Þuríði kemur Árni, f.
1918, svo kemur Sigursveinn, f.
1920, árið 1924 fæddist andvana
drengur, Sigurlaug
er næstyngst, f. 1923,
yngstur er Sveinn
Páll, f. 1929.
Synir Þuríðar eru:
Ólafur Jóhann
Björnsson, kona Ólafs
Jóhanns er Steinunn
Guðjónsdóttir, þau
eiga tvær dætur og
fimm barnabörn, og
Gísli Halldór Magn-
ússon, kona Gísla
Halldórs er Ásta
Sverrisdóttir. Þau
eiga þrjá syni og eitt
barnabarn.
Útför Þuríðar Rögnu fer fram
frá Grafarkirkju í Skaftártungu í
dag, 28. desember 2010, og hefst at-
höfnin kl. 14.
Trú, von og kærleikur
í einlægu hjarta,
leiða þjáningar brott
og lýsa nóttina bjarta
(Höf. óþekktur)
Þessi orð kenndi elsku langamma
mín mér þegar ég var yngri en vildi
ekki segja mér hver höfundurinn
væri, eftir árangurslausa leit hef ég
gefist upp og er farin að halda að hún
hafi skáldað þetta upp sjálf, en fyrir
mér var hún oft dularfull á þennan
hátt. Við vorum alltaf nánar, líklega
vegna þess að hún passaði mig nán-
ast á hverjum degi fyrsta árið mitt á
meðan mamma var í Fóstruskólan-
um. Mér finnst ég einstaklega hepp-
in að hafa átt hana að en ég lít á hana
sem eina af uppalendum mínum.
Hún kenndi mér vísur og bænir og
sagði mér sögur frá fyrri tíð, það
finnst mér ómetanlegt. Ég byrjaði að
drekka kaffi hjá henni þegar ég var
aðeins tveggja ára. Hún kenndi mér
að baka pönnukökur og vöfflur, ekki
hægt að telja hvað ég fór oft til henn-
ar að baka en einnig var hún víðfræg
fyrir kleinurnar sínar og jólakökurn-
ar. Það var alltaf gaman að fara til
ömmu í kaffi og kleinur.
Hvíldu í friði elsku amma Þura,
minningar um þig munu lifa í hjarta
mínu.
Kveðja, skottið þitt,
Anna Steina Finnsdóttir.
Þuríður Ragna
Jóhannesdóttir
Hann Friðrik,
systursonur minn,
háði hetjulega bar-
áttu við sjúkdóminn
sem engum eirir, hann tókst á við
þetta verkefni af einstöku æðru-
leysi og styrk en varð að lúta í
lægra haldi og kvaddi þennan
heim alltof snemma aðeins 59 ára
að aldri.
Ég minnist þess þegar við Stella
systir biðum spenntar eftir komu
Steinunnar litlu systur okkar, til
Siglufjarðar fyrir rétt rúmum 59
árum, en hún átti þá von á sínu
fyrsta barni. Barnið fæddist 13.
nóvember, gullfallegur drengur
sem var skírður Friðrik Helgi í
höfuðið á afa sínum. Hann var
sannkallað óskabarn á heimilinu
þar sem fyrir voru bara nokkrar
fullorðnar manneskjur, sem allar
elskuðu hann, dáðu og báru á
höndum sér, enda var hann ljúfur
og góður drengur, eiginleikar sem
einkenndu hann alla ævi, þrátt fyr-
ir allt dekrið.
Það koma mörg minningabrot
upp í hugann frá árunum á Siglu-
firði, ég man sérstaklega eftir þeg-
ar við Stella sátum hjá honum eitt
sinn og áttum að koma honum í
svefn, en gekk eitthvað brösugt.
Brugðum við á það ráð að segja
lögguna vera að koma, Friðrik
settist þá upp í rúminu, alsæll og
sagði: „já, hann er vinur minn“.
Þannig var það, Friðrik átti alls
staðar vini, á öllum aldri, ég man
að Jón Hjaltalín útgerðarmaður
bauð honum með sér í göngutúra
og það var gaman að horfa á þá
vinina ganga hönd í hönd um götur
Friðrik Helgi Jónsson
✝ Friðrik HelgiJónsson fæddist á
Siglufirði 13. nóv-
ember 1951. Hann
lést á heimili sínu í
Reykjavík 12. desem-
ber 2010.
Útför Friðriks fór
fram frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík 20.
desember 2010.
á Siglufirði, en þá
sögðu margir Sigl-
firðingar að Jón
Hjaltalín væri
barnapía hjá Friðriki
Guðjónssyni.
Svo kom að því að
fjölskyldan flutti frá
Siglufirði, afi og
amma í Garðabæ,
Friðrik Helgi í Hafn-
arfjörð og undirrituð
austur á Reyðarfjörð.
Ég fylgdist alltaf
vel með honum
frænda mínum og við
héldum góðu sambandi þó að fjöll
og firnindi skildu að. Það var gam-
an að sjá hvað honum gekk vel í
lífinu, farsæll og vel liðinn í starfi
og átti yndislega og samheldna
fjölskyldu. Það gladdi mig ósegj-
anlega þegar hann kom austur á
afmælinu mínu í fyrra, minningin
um þá heimsókn yljar mér um
hjartarætur og mun gera lengi.
Sigmar minn og börnin okkar,
þau Ásta Magga, Hreinn og Óli
minnast frænda síns með virðingu
og hlýju og við biðjum Guð að
blessa og styrkja Guðnýju, Hildi,
Stein, Steinunni og systkinin í
þeirra miklu sorg.
Ég kveð þig með söknuði, elsku
drengurinn minn,
þín móðursystir
Gréta Friðriksdóttir.
Of fljótt, of fljótt er góður vinur
fallinn í valinn.
Elsku Friðrik minn, mikið er
sárt að þú sért farinn frá okkur.
Eflaust ertu hvíldinni feginn, kæri
Friðrik, eftir þær þrautir sem þú
hefur mátt lifa við síðustu mánuði.
Í þau skipti sem veikindi þín bár-
ust í tal vildir þú sjaldnast gera
mikið úr þeim. Æðruleysi þitt og
baráttuvilji var aðdáunarverður.
Ég kynntist Friðriki sem ungur
drengur í Hafnarfirði þar sem ég
bjó við Öldugötu en hann í Háuk-
inn. Við vorum miklir samherjar í
FH gegnum alla yngri flokka
knattspyrnudeildar FH og upp í
meistaraflokk. FH sem var okkur
allt.
Það er komið að kveðjustund og
nú er Friðrik, yndislegur vinur,
kært kvaddur. Hetjulegri baráttu
er lokið. Guðnýju og fjölskyldunni
allri sendi ég innilegustu samúðar-
kveðjur.
Guð blessi minningu Friðriks.
Hærra, minn Guð, til þín,
hærra til þín,
enda þótt öll sé kross
upphefðin mín.
Hljóma skal harpan mín:
Hærra, minn Guð, til þín,
hærra til þín.
(Adams/Matthías Jochumsson)
Pétur Ó. Stephensen.
Ég komst fyrst í kynni við Frið-
rik er ég hóf nám í sálfræði við
Háskóla Íslands árið 1993. Þá
fékk ég að kynnast kennaranum
Friðriki. Hann var hvetjandi, vel
gefinn, hafði brennandi áhuga á
fræðasviðinu og lagði sig fram við
að kynnast nemendum. Auk þess
tók ég strax eftir því að hann var
rökfastur og lá yfirleitt ekki á
skoðunum sínum. Hann gerði
námið skemmtilegt og heillandi og
hvatti nemendur til betri verka.
Er ég var að ljúka BA-námi bauð
Friðrik mér starf sem aðstoðar-
maður hans og deildi ég með hon-
um skrifstofu hans um tíma. Þar
fékk ég að kynnast manninum
Friðriki. Hann var einstakur fjöl-
skyldumaður, íþróttamaður, tón-
listarunnandi og mikill keppnis-
maður. Hann var auk þess
glaðlyndur og fyndinn. Hann stóð
ávallt með sínu fólki, hvort sem
það var innan fjölskyldunnar,
vinahópsins eða meðal háskóla-
samfélagsins. Ég gæti lengi talið
upp kosti Friðriks. Ég vil þakka
honum fyrir að hafa hvatt mig
áfram. Hann setti mark sitt á líf
mitt líkt og svo margra annarra.
Ég væri ekki á þeim stað sem ég
er á í dag ef ég hefði ekki notið
leiðsagnar hans. Fjölskyldu Frið-
riks, Guðnýju, Hildi og Steini,
sendi ég innilegar samúðarkveðj-
ur.
Helga Rúna Péturs.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfu-
daga.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað
er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað
útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra,
systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál-
anum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum.
Minningargreinar