Morgunblaðið - 25.01.2011, Blaðsíða 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2011
Sudoku
Frumstig
5 9 8
6 3
8 7 5
2 4 6 7
7 8 4
6
9 3
5 9 4
8 5 2
7 6 8 3
4
9
2 7
4 6 7 5 9
3 4 6
2 8
6 5 9 7
3
7 3
9 4 6
9
7 5
9 1 7 6
4 1 9 8
4 3 1
6 8 2
5 9 6
4 3 7 8 5 2 6 1 9
1 9 5 4 6 3 7 2 8
8 6 2 9 1 7 3 4 5
3 2 1 5 9 8 4 6 7
7 5 8 3 4 6 1 9 2
9 4 6 7 2 1 8 5 3
6 1 3 2 8 5 9 7 4
2 7 4 1 3 9 5 8 6
5 8 9 6 7 4 2 3 1
1 3 2 6 4 9 8 5 7
8 7 5 3 2 1 6 9 4
6 9 4 8 5 7 2 3 1
2 6 7 5 9 3 4 1 8
3 4 1 2 7 8 9 6 5
5 8 9 4 1 6 7 2 3
7 2 6 1 8 5 3 4 9
4 5 8 9 3 2 1 7 6
9 1 3 7 6 4 5 8 2
5 3 4 1 7 6 2 8 9
9 6 8 3 2 5 1 7 4
7 2 1 8 4 9 3 6 5
3 5 9 6 8 7 4 2 1
1 8 7 4 3 2 9 5 6
2 4 6 9 5 1 7 3 8
4 1 3 7 6 8 5 9 2
8 7 5 2 9 4 6 1 3
6 9 2 5 1 3 8 4 7
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 25. janúar,
25. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Drottinn er hlutskipti
mitt og minn afmældi bikar; þú held-
ur uppi hlut mínum. (Sálm. 16, 5.)
Kunningi Víkverja fór á dögunumá tónleika með Karlakórnum
Heimi í Skagafirði og segist ekki sjá
eftir því. Gleðin var við völd og heið-
ursgestur tónleikanna var Guðni
Ágústsson. Það mun hafa verið var-
lega sagt í Morgunblaðinu á dög-
unum að Guðni hafi farið á kostum í
ræðu sinni. Hann hafi séð til þess að
bæði kórmenn og gestir fengu marg-
sinnis magakrampa af hlátri. Hóf
Guðni mál sitt á að lofa karlakórinn
og hafði orð á því að hann væri stöð-
ugt að yngjast og batna. Sagðist
hann sjá mikinn mun á kórnum frá
því hann sá hann síðast, nú stæðu
menn bísperrtir á pöllunum með
brjóstkassann þaninn út í loftið eftir
að kona tók við tónsprotanum. Sagði
Guðni stjórnandann, Helgu Rós
Indriðadóttur, hafa merkjanleg
áhrif á Heimismenn og þeir væru
allir unglegri á sviði. Óttaðist Guðni
að þegar hann kæmi næst í Skaga-
fjörðinn að hlýða á Heimi hefði kór-
inn breyst í drengjakór!
x x x
Eftir því sem Víkverji kemstnæst hefur Guðni nokkuð til
síns máls. Fyrir utan hvað eldri kór-
félagar hafa yngst andlega þá hafa
fleiri ungir söngmenn bæst í hópinn.
Helga Rós, sem er lærð söngkona,
hefur aukið raddæfingar og meira að
segja látið karlana hlaupa upp og
niður stigana á æfingum í Miðgarði.
Þeir eru því greinilega í fantaformi
og hlakkar Víkverji til að hlusta á
kórinn í Langholtskirkju 26. febrúar
en kvöldið áður verða þeir í Njarð-
víkurkirkju.
x x x
Í langri sögu Heimis er þekkt aðtveir og þrír ættliðir syngi sam-
an. Gárungar hafa talað um að menn
hætti ekki í kórnum fyrr en þeir falla
í ómegin og eru bornir niður af pöll-
unum. Eitt sinn gerðist það á tón-
leikum í Sæluviku Skagfirðinga að
einn af eldri kórmönnum féll í yfirlið
og varð að flytja hann á sjúkrahús. Á
leiðinni út úr húsi á sjúkrabörunum
sagði hann ótrauður við félaga sína:
„Ykkur er alveg óhætt að halda
áfram drengir, ég drepst ekki!“
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 bænar, 8 gangi, 9
landspildu, 10 veiðarfæri, 11
undirnar, 13 skyldmennin,
15 hungruð, 18 skattur, 21
höfuðborg, 22 ákæra, 23
kynið, 24 komst í veg fyrir.
Lóðrétt | 2 stenst, 3 dugleg-
ur, 4 staðfesta, 5 ráfa, 6 olíu-
félag, 7 kvenfugl, 12 greinir,
14 illmenni, 15 poka, 16 tíð-
ari, 17 háski, 18 átelja, 19
hindri, 20 beitu.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 sýpur, 4 högum, 7 rótum, 8 ýlfur, 9 mör, 11 part, 13
maka, 14 undra, 15 garð, 17 norn, 20 hró, 22 tófur, 23 lækur, 24
rúmar, 25 kanna.
Lóðrétt: 1 skráp, 2 pútur, 3 römm, 4 hlýr, 5 gifta, 6 murta, 10
öldur, 12 tuð, 13 man, 15 getur, 16 rifum, 18 orkan, 19 narra, 20
hrár, 21 ólík.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 dxc4
5. a4 Bf5 6. e3 e6 7. Bxc4 Bb4 8. 0-0
Rbd7 9. De2 0-0 10. e4 Bg6 11. Bd3
Bh5 12. e5 Rd5 13. Rxd5 cxd5 14. De3
Be7 15. Bd2 Rb8 16. a5 a6 17. Hfc1 Rc6
18. Re1 Dd7 19. Bc2 Dd8 20. Dh3 Bg6
21. Bxg6 hxg6 22. Dg4 Hc8 23. Rf3 Dd7
24. Bg5 Bb4 25. Dh4 Re7 26. g4 Hxc1+
27. Hxc1 Hc8 28. Kg2 Rc6 29. Hd1
Bxa5 30. Hd3 Rb4 31. Hb3 Db5 32.
Be7?
Staðan kom upp í A-flokki Tata
Steel-skákhátíðarinnar sem fram fer
þessa dagana í Wijk aan Zee í Hol-
landi. Kínverski stórmeistarinn Hao
Wang (2.731) hafði svart gegn franska
kollega sínum Maxime Vachier-
Lagrave (2.715). 32. … Rd3!! 33. Hxb5
Rf4+ 34. Kg3 Re2+ 35. Kh3 Rf4+ 36.
Kg3 Re2+ 37. Kg2 Rf4+ og samið um
jafntefli.
Svartur leikur og heldur jafntefli.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Í gegnum stokkinn – aftur.
Norður
♠K863
♥2
♦8432
♣ÁKG5
Vestur Austur
♠D74 ♠G1052
♥Á1097 ♥K864
♦Á765 ♦DG109
♣109 ♣3
Suður
♠Á9
♥DG53
♦K
♣D87642
Suður spilar 5♣.
Ástralinn Ron Klinger hefur skrifað
bók í anda hinnar sígildu sögu Darvas
& Hurt frá 1947 – Right Through The
Pack. Eins og í fyrirmyndinni eru það
spilin í stokknum sem hafa orðið og
segja frá eftirminnilegri lífsreynslu.
Klinger nefnir sína bók einfaldlega
„Right Through The Pack Again“.
Í spilinu að ofan er stolt tígulátta í
hlutverki sögumanns. Vestur kom út
með ♦Á og skipti yfir í tromp í öðrum
slag. Sagnhafi tók í borði og spilaði
hjarta á drottninguna heima og ás
vesturs.
Vörnin hefur fengið tvo slagi og ef
vestur trompar út aftur virðist suður
sitja uppi með tapslag á hjarta í lokin.
En svo er ekki og ástæðan er hin öfl-
uga tígulátta í borði. Austur má nefni-
lega ekkert spil missa í síðara tromp-
ið!
25. janúar 1732
Snjóflóð féll á bæinn Brimnes
við Seyðisfjörð. Níu manns
fórust en jafn margir komust
lífs af. Veturinn var mjög snjó-
þungur og sums staðar nefnd-
ur Brimnesvetur.
25. janúar 1938
Rauð norðurljós sáust bæði
hér á landi og annars staðar í
Evrópu. Þau „voru mörgum
nýstárleg loftsýn og hafa vak-
ið mikið umtal og jafnvel geig
hjá sumum,“ sagði Jón Ey-
þórsson veðurfræðingur í
þættinum Um daginn og veg-
inn.
25. janúar 1952
Sveinn Björnsson lést, 70 ára.
Hann var sendiherra Íslands í
Kaupmannahöfn í nær tvo
áratugi og kjörinn ríkisstjóri
Íslands 1941. Þegar lýðveldið
var stofnað, 17. júní 1944, var
Sveinn kosinn fyrsti forseti Ís-
lands á Alþingi og tvisvar
þjóðkjörinn forseti, 1945 og
1949.
25. janúar 1963
Hjartagangráður var settur í
fyrsta sinn í Íslending, Hörð
Gestsson, 52 ára bílstjóra. Að-
gerðin var gerð í Árósum en
hana framkvæmdi íslenskur
læknir, Hans Svane.
25. janúar 1980
Kvikmyndin Land og synir var
frumsýnd í Reykjavík og á
Dalvík. Ágúst Guðmundsson
gerði myndina eftir sögu Indr-
iða G. Þorsteinssonar. Hún var
fyrst í röð nýrra íslenskra
kvikmynda.
25. janúar
1990
Íslensku
bók-
mennta-
verðlaunin
voru veitt í
fyrsta sinn.
Þau hlaut Stefán Hörður
Grímsson.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Ingólfur Steinsson, tónlistarmaður og ritstjóri,
fagnar 60 ára afmæli sínu í dag. Aðspurður segist
hann ekki ætla að blása til stórveislu í tilefni af af-
mælinu, en hyggst þess í stað hitta fjölskyldu og
vini í rólegheitunum. Ingólfur er ritstjóri á náms-
efnissviði Námsgagnastofnunar, en heldur auk
þess úti eigin útgáfu, Tungu, sem kennd er við
húsið sem hann ólst upp í. Á áttunda áratug síð-
ustu aldar var Ingólfur einn stofnenda hljómsveit-
arinnar Þokkabótar frá Seyðisfirði, hvaðan Ing-
ólfur er sjálfur. Sú hljómsveit starfaði með hléum, og kom meðal
annars saman fyrir 100 ára afmæli Seyðisfjarðarkaupstaðar árið
1995. Sama ár kom út plata með bestu lögum sveitarinnar. Ingólfur
hefur einkum unnið að eigin tónlist síðustu ár. Árið 2002 gaf hann út
plötuna Kóngsríki fjallanna, og Krás á köldu svelli árið 2006. Báðar
innihalda þær frumsamin lög Ingólfs, og nýtur hann fulltingis
þekktra tónlistarmanna við flutninginn. Sömu sögu er að segja af
nýrri plötu sem hann hyggst gefa út með haustinu, Segið það móður
minni. Sú inniheldur ný lög Ingólfs við kvæði Davíðs Stefánssonar frá
Fagraskógi sem hann syngur sjálfur ásamt dætrum sínum, þeim
Sunnu og Arnþrúði. einarorn@mbl.is
Ingólfur Steinsson er sextugur í dag
Fagnar með vinum og fjölskyldu
Söfnun
Berglind og
Guðrún Rósa, nem-
endur í Folda-
skóla, seldu í sum-
ar krækiber,
fjallagrös og fleira
og gáfu ABC
barnahjálp pening-
inn sem þær söfn-
uðu, 1.860 kr. sem
fara í mat handa
börnum í Úganda.
Flóðogfjara
25. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.06 0,5 10.18 3,8 16.33 0,6 22.50 3,6 10.30 16.51
Ísafjörður 6.12 0,2 12.13 2,1 18.40 0,2 10.55 16.36
Siglufjörður 2.40 1,2 8.27 0,1 14.58 1,2 21.01 0,1 10.39 16.18
Djúpivogur 1.15 0,1 7.22 1,9 13.35 0,2 19.46 1,9 10.04 16.16
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Forðastu að deila við vini þína og
kunningja um sameiginlegar eignir og ábyrgð
í dag. Einhver sem verður maki þinn er þegar
fundinn.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Dagurinn í dag er heppilegur fyrir við-
skipti og samninga. Slepptu því að ala með
þér gremju eða erfa eitthvað við einhvern.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það er karlmennska að geta við-
urkennt mistök sín og lært af þeim. Og ef þú
lendir í að koma flóknu máli á hreint muntu
verða dáð/ur fyrir vandvirknina.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Sagt er að maður læri meira af óvin-
um sínum en vinum, en það þarf ekki endi-
lega að vera þannig. Ef þú ætlar að gefa þér
tíma til að tala við fólk, hlustaðu þá af at-
hygli.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Sköpunar- og listhæfileikar koma fram
hjá þér í starfi. Meðalvegurinn er vandrat-
aður sem annað.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Sjálfsagi krefst þess að þú hafir hug-
ann við markmið þín, þó að freistingarnar
kalli í eftirmiðdaginn. Láttu fólk sýna ábyrgð.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Einhver sem passar ekki inni í fjöl-
skyldumynstrið er með fótinn í dyragættinni.
Gerðu þér far um að vera raunsæ/r.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Óvænt rómantískt daður við
einhvern leiðir þig í vandræði. Margskonar
möguleikar blasa við. Brjóttu upp rútínuna.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Vertu heiðarleg/ur við sjálfa/n
þig, því þú veist að ef þú slærð hlutunum á
frest verða þeir aðeins erfiðari viðureignar.
Hvernig væri að skella sér á námskeið?
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er ákaflega gefandi að eiga
sálufélaga sem skilur mann og þekkir allar
manns þarfir. Notaðu daginn og talaðu við
foreldri eða mikilvæga manneskju í þínu lífi.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Mögulegt er að þú kaupir ein-
hvern listrænan, óvenjulegan eða nútíma-
legan hlut fyrir heimilið í dag. Þó að ein-
hverjum finnist óþægilegt að heyra hið sanna
eru athugasemdir þínar réttar.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú hefur mikla þörf um þessar mund-
ir til að tala við fólk. Enginn ætlast til þess að
þú verðir sérfræðingur einn, tveir og þrír.
Stjörnuspá