Morgunblaðið - 25.01.2011, Blaðsíða 12
FRÉTTASKÝRING
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Samninganefnd ASÍ ákvað á fundi
með Samtökum atvinnulífsins í gær
að slíta viðræðum um forsendur
fyrir gerð kjarasamninga til allt að
þriggja ára. Gera SA það að skil-
yrði að lausn fáist í sjávarútvegs-
málum áður en gengið verði frá
kjarasamningum. „Samninganefnd
ASÍ er ekki reiðubúin að setjast að
viðræðum á þessum forsendum,“
segir í umfjöllun ASÍ um viðræðu-
slitin.
Óvissan um endurnýjun kjara-
samninga hefur magnast við þetta.
Einn af reyndustu fulltrúum verka-
lýðshreyfingarinnar minntist þess
ekki í samtali í gær að svo flókin
staða hefði komið upp í kjaravið-
ræðum um áratuga skeið.
Hvert framhaldið verður ræðst
af viðræðum atvinnurekenda við
einstök landssambönd og félög,
sem vilja fæst semja lengur en til
næsta hausts. Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri SA, sagði hins
vegar í gær að samtökin myndu
ekki ganga til kjarasamninga til
skamms tíma.
Beðið var svara stjórnvalda um
aðgerðir til að greiða fyrir gerð
kjarasamninga fyrir fund samn-
inganefnda ASÍ og SA í gær. „Ég
talaði við forsætisráðherra í síma
rétt fyrir fundinn og met það svo að
það sé vilji stjórnvalda að koma að
viðræðum við okkur um þau atriði
sem við settum fram og þroska
lausnir á þeim málum sem við höf-
um sett sem úrslitaatriði,“ sagði
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
ASÍ vill hins vegar ekki tengja
skilyrði SA um stjórnkerfi fiskveiða
við gerð kjarasamninga. „Það er al-
veg á hreinu að við erum ekki tilbú-
in að setjast að viðræðum við at-
vinnurekendur um þriggja ára
kjarasamning, sem var þeirra til-
laga, byggt á þeirri forsendu að það
sé hægt að taka efni slíks samnings
og nota sem þvingunaraðgerð við
stjórnvöld um afstöðu útgerðar-
manna í sjávarútvegsmálum,“ segir
Gylfi.
„Alþýðusambandið hrökk frá sem
slíkt. Nú þurfum við bara að ræða
við einstök landssambönd,“ segir
Vilhjálmur Egilsson. „Það liggur
alveg fyrir að málið klárast ekki
nema við sjáum til lands í sjáv-
arútvegsmálunum og okkur takist
að ljúka þeim. Það á ekki að koma
neinum á óvart. Við höfum sagt
þetta mjög lengi. Málið er þó ekki á
reit eitt vegna þess að endurskoð-
unarnefndin [um stjórnkerfi fisk-
veiða] skilaði af sér í september
með víðtækri sátt. Það sem við er-
um að biðja um er að þessi sátt
verði útfærð í lagabúning.“
Tekur lengri tíma
Hann segir að SA hafi ekki feng-
ið nein svör frá ríkisstjórninni um
að hún vilji á einn eða neinn hátt
ræða við SA um sjávarútvegsmálin.
„Það er mjög merkilegt út af fyrir
sig. Það hefur ekki verið leið til
sátta hingað til að vilja ekki ræða
við nokkurn mann,“ segir hann.
Vilhjálmur segir að fyrst kjara-
viðræðurnar eru nú komnar í þenn-
an farveg muni þessi mál öll taka
lengri tíma, „en Samtök atvinnulífs-
ins eru ekki að fara að gera ein-
hvern skammtímasamning“, segir
hann. Mjög mikilvægt sé að eyða
óvissunni og hvetja til fjárfestinga.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Viðræðum slitið Eftir árangurslausan fund ASÍ og SA hjá ríkissáttasemjara í gær varð ljóst að ASÍ er hætt öllum tilraunum til að vinna að kjarasamningi
til þriggja ára. SA lýkur ekki samningum nema lausn finnist í sjávarútvegsmálum og eru ekki tilbúin að skrifa undir skammtímasamninga.
Viðræðum siglt í strand
ASÍ hættir að ræða við SA um samræmda launastefnu til þriggja ára SA
hvika ekki frá skilyrði um sjávarútveginn en fá engin viðbrögð ríkisstjórnarinnar
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2011
„Það vekur nú
furðu mína að
menn skuli fara
frá borðinu út af
annars vegar
sjávarútvegs-
málum,“ segir
Guðbjartur
Hannesson vel-
ferðarráðherra
um að viðræðum
ASÍ og SA hafi
verið hætt í gær. „Ég sé ekki teng-
inguna þar á milli fyrir alla atvinnu-
rekendur á Íslandi.“
ASÍ óskaði eftir því að velferð-
arráðuneytið birti tölur um neyslu-
viðmið fyrir viðræðurnar. Guð-
bjartur segir að annað hafi aldrei
staðið til.
„Það hefur verið í ákveðnu ferli
frá því í haust. Við munum birta þær
7. febrúar, við náum því bara því
miður ekki fyrr,“ segir Guðbjartur.
„Ég harma það að þær skuli ekki
vera til fyrr.“ Þessa dagana vinnur
starfshópur að skýrslu um neyslu-
viðmiðin og er að ganga frá þeim að
sögn ráðherrans. gislibaldur@mbl.is
Furðar sig
á kröfu SA
í viðræðum
Tölur um neyslu-
viðmið koma 7. feb.
Guðbjartur
Hannesson
ASÍ lagði fjölda tillagna um aðgerðir
fyrir ríkisstjórnina 12. janúar sl. til
að auðvelda gerð kjarasamninga.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir forsætisráðherra hafa í gær
lýst vilja til að koma að viðræðum
um þessi mál. Það sé þó ljóst að að-
koma ríkisstjórnarinnar sé bundin
við að gengið verði frá langtíma-
samningum. Gylfi segir að sumt
þurfi að útfæra betur á næstu vik-
um. Af einstökum málum sem leysa
þarf eru málefni Starfsendurhæfing-
arsjóðs, jöfnun lífeyrisréttinda,
hækkun bóta og aðgerðir til að auka
atvinnu.
Í umfjöllun á vefsíðu ASÍ í gær-
kvöldi um þá stöðu sem upp er kom-
in segir að ljóst megi vera „að aðild-
arsamtök ASÍ munu ekki ljúka
kjarasamningi meðan ekki liggur
fyrir niðurstaða um hið opinbera
framfærsluviðmið sem lofað hefur
verið langt skeið og nú fer huldu
höfði í velferðarráðuneytinu.“
Aðgerðir mið-
ast við lang-
tímasamning
Ólafur Bernódusson
Skagaströnd | Byggðasamlagið
Norðurá hefur nú opnað 390 þúsund
rúmmetra sorpurðunarstað í
Stekkjarvík í landi Sölvabakka á milli
Blönduóss og Skagastrandar. Að
byggðasamlaginu standa sveit-
arfélögin sex í A-Húnavatnssýslu og
sveitarfélögin í Skagafirði. Þá hefur
Flokkun Eyjafjörður ehf. gert samn-
ing við byggðasamlagið um að taka
sorp til urðunar af Eyjafjarðarsvæð-
inu en sá samningur var ein af for-
sendum þess að farið var í að byggja
upp urðunarstað í Stekkjarvík.
Undirbúningur þess að finna urð-
unarstað sem gæti verið framtíð-
arlausn fyrir umrædd sveitarfélög er
nokkuð langur en á vordögum 2009
var gerður leigusamningur um 30 ha
land úr landi Sölvabakka til 30 ára.
Þá þegar hófst síðan ýmiss konar
undirbúnings- og hönnunarvinna
ásamt umsóknarferli um starfsleyfi.
Slíkt starfsleyfi liggur nú fyrir frá yf-
irvöldum enda allur frágangur urð-
unarstaðarins miðaður við ýtrustu
kröfur og staðla sem um slíkt gilda.
Fyrsti áfangi af fjórum
Þessi áfangi sem nú er tekinn í
notkun er fyrsti áfangi af fjórum.
Hér er um að ræða 20 metra djúpt
urðunarhólf sem er 2,7 ha að stærð.
Áætlað er að stækka hólfið fjórum
sinnum eftir því sem það fyllist en
gert er ráð fyrir að núverandi hólf
muni fyllast á sex til sjö árum. Þá
hefur verið byggt 65 fermetra þjón-
ustuhús á rúmgóðu þjónustuplani og
þar komið fyrir 18,3 metra langri bíl-
vog sem getur vigtað allt að 100 tonn
í einu. Heildarkostnaður við verkið
eins og það er í dag er um 360 millj-
ónir en það er fjármagnað með lán-
um frá Lánasjóði sveitarfélaga til 13
ára.
Að sögn Magnúsar B. Jónssonar,
stjórnarformanns Norðurár, er
Stekkjarvík mjög hentug fyrir starf-
semi af þessu tagi. Jarðlögum er
þannig háttað að auðvelt er að ná sig-
vatni, mengunarhætta frá staðnum
er nánast engin þar sem vatns-
auðlindum og grunnvatni er ekki
hætt, sjón- og hljóðmengun í lág-
marki og hvorki sjaldgæfar plöntur
né dýr á válista verða fyrir áhrifum
frá svæðinu. Þá hafa heldur engar
fornminjar fundist á svæðinu. Magn-
ús segir að með tilkomu svæðisins sé
fundin framtíðarlausn á sorpurðun
allra sveitarfélaga á svæðinu frá
Gljúfurá í vestri að Vaðlaheiði í austri
og mun Stekkjarvík koma í stað fjög-
urra misvel gerðra urðunarstaða
sem nú verður lokað.
Tekið við sorpi víðar að
Auk þess sagði hann að hugs-
anlega gæti komið til urðunar á sorpi
frá Húnaþingi vestra og Vestfjörðum
í framtíðinni. Sorpmóttakan verður
opin alla virka daga en það er á
ábyrgð móttökustöðvanna á hverju
svæði fyrir sig að sjá til þess að ein-
ungis óendurvinnanlegt sorp komi á
urðunarstaðinn.
Við formlega opnunarhátíð
Stekkjarvíkur var viðstatt sveit-
arstjórnarfólk af svæðinu og ýmsir
hagsmunaaðilar aðrir. Magnús B.
Jónsson lýsti framkvæmdum á svæð-
inu fyrir gestum og síðan var farið í
skoðunarferð um urðunarsvæðið.
Þar fylgdust gestirnir með vinnu-
brögðunum er fyrsti sorpfarmurinn
úr Skagafirði var urðaður af nýráðn-
um umsjónarmanni Stekkjarvíkur,
Fannari Viggóssyni.
Norðurá opnar fullkominn urðunarstað
Sorpurðunarstaður við Stekkjarvík tekinn í notkun Tekur við sorpi úr Húnaþingi og Skagafirði
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Á vigtinni Fyrsti sorpfarmurinn úr Skagafirði veginn. Sveitarstjórnarfólk
og aðrir gestir fylgjast með inni í þjónustuhúsinu.
Kjaradeilu Starfsgreinasambands Íslands (SGS) og SA
var vísað til Ríkissáttasemjara 17. janúar sl. Hann hefur
boðað til fundar með aðilunum kl. 11 í dag en að sögn
Björns Snæbjörnssonar, formanns samninganefndar
SGS, er staða mála afar óljós. Hann segir þó ljóst að ekki
sé hægt að ganga að kröfum SA um að tengja gerð
kjarasamninga við lausn á sjávarútvegsmálum. „Ef þeir
setja það sem skilyrði á fundinum þá eru þeir í rauninni
að hafna því að þeir ætli að gera kjarasamning við okkur
nema eftir dúk og disk. En við bara höldum okkar striki
með okkar kröfur.“
Ætla að halda sínu striki
FUNDAÐ Í KJARADEILU SGS OG SA Í DAG
Björn
Snæbjörnsson