Morgunblaðið - 25.01.2011, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2011
Þeir gátu eitt og annað í gamla Sov-étinu, alræðissæluríki öreiganna.
Láttu mig hafapólitískan and-
stæðing í sólarhring
eða svo,“ átti Bería
KGB-forstjóri að hafa
sagt við Stalín, „og
hann verður búinn að
játa og undirskrifa
skjal um að hafa njósn-
að fyrir Viktoríu
Bretadrottningu.“
Eftir dauða Stalínslét Krúsjoff reyndar hengja
Bería upp á krók í hans eigin höfuð-
stöðvum og gamlir undirmenn fengu
að pota í hann.
Þegar ekkja Leníns byltingar-leiðtoga var eitthvað óþæg í
taumi átti Stalín að hafa skipað henni
að bæta úr, ella kæmi hann sér upp
nýrri ekkju Leníns.
Og enn er sá karl í fréttum.
Hann liggur í glerkistu í grafhýs-inu sem við hann er kennt og
þar lá Stalín við hlið hans um tíma uns
Krúsjoff kjaftaði frá í ræðu.
Þá var Stalín tekinn úr glerbúrinuog huslaður aftan við grafhýsið.
Og nú hafa 270.000 stuðningsmennPútíns forsætisráðherra skorað
á yfirvöld að Lenín fari sömu leið og
verði jarðaður.
Lenín lést 21. janúar 1924.
Sagan sýnir að þann atburð hefðimátt tilkynna þannig án þess að
ýkja: Vladímír Lenín er látinn. Jarðar-
förin verður auglýst síðar.
Stalín
Komið að jarðarför
STAKSTEINAR
Lenín
Veður víða um heim 24.1., kl. 18.00
Reykjavík 4 skýjað
Bolungarvík 5 rigning
Akureyri 8 skýjað
Egilsstaðir 3 skýjað
Kirkjubæjarkl. 3 skýjað
Nuuk 1 skýjað
Þórshöfn 3 léttskýjað
Ósló -6 þoka
Kaupmannahöfn 2 þoka
Stokkhólmur 1 heiðskírt
Helsinki 0 þoka
Lúxemborg 2 skýjað
Brussel 6 léttskýjað
Dublin 6 skýjað
Glasgow 7 skýjað
London 7 léttskýjað
París 6 skýjað
Amsterdam 6 léttskýjað
Hamborg 5 skýjað
Berlín 1 slydda
Vín -1 léttskýjað
Moskva -6 snjókoma
Algarve 11 skúrir
Madríd 7 heiðskírt
Barcelona 8 heiðskírt
Mallorca 8 léttskýjað
Róm 7 heiðskírt
Aþena 10 skúrir
Winnipeg -12 skafrenningur
Montreal -23 léttskýjað
New York -12 heiðskírt
Chicago -4 þoka
Orlando 16 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
25. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:30 16:51
ÍSAFJÖRÐUR 10:55 16:36
SIGLUFJÖRÐUR 10:39 16:18
DJÚPIVOGUR 10:04 16:16
FRÉTTASKÝRING
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Samtökin Bíllaus telja að aukinn
kostnaður við útgerð einkabíls feli í
sér tækifæri til að efla almennings-
samgöngur á höfuðborgarsvæðinu og
hafa í því skyni boðað til opins fundar
með fulltrúum Reykjavíkurborgar á
Grandagarði á morgun.
Magnús Jensson, arkitekt og for-
maður samtakanna, gagnrýnir að
fargjöld Strætó skuli hækkuð á sama
tíma og vísbendingar séu um að
strætisvagnar séu að verða vinsælli
ferðamáti á höfuðborgarsvæðinu.
„Nú þegar fólk er að vakna til vit-
undar um almenningssamgöngur
eigum við allra síst að rýra þjónustu
almenningsvagna. Komið hefur fram
að mælanleg aukning hafi orðið í far-
þegafjölda Strætó og við eigum því
alls ekki að draga saman seglin held-
ur fremur að nota tækifærið og auka
ferðaframboðið,“ segir Magnús en
um 1.500 manns eru skráðir á Face-
book-síðu samtakanna. Fundurinn
fer fram á Grandagarði 16 og hefst
klukkan 20.00 annað kvöld.
Fólk hugsar sér til hreyfings
Reynir Jónsson, framkvæmda-
stjóri Strætó, tekur undir að vísbend-
ingar séu um að hugarfarsbreyting
sé að verða í samgöngumálum.
„Ég tel að einkabíllinn skipi þann
sess í íslensku heimilishaldi að menn
neiti sér um ýmislegt áður en þeir
leggja bílnum. Við eigum þetta sam-
band við bílinn okkar. Á hinn bóginn
held ég að margir séu að hugsa sér til
hreyfings. Ég er þannig þeirrar skoð-
unar að ef við bjóðum ekki upp á gott
almenningssamgöngukerfi þá veigri
fólk sér frekar við það að skipta um
ferðamáta. Sú þróun verður allavega
hægari en efni og aðstæður gefa til-
efni til. Kreppan er tækifæri.“
Aðspurður um hækkanir á gjald-
skrá Strætó leggur Reynir áherslu á
að enn sé mjög hagstætt að taka
strætisvagn, að teknu tilliti til þess
afsláttar sem fáist af hverri ferð með
aðgangs- og miðakortum. Hann
bendir jafnframt á að farþegum hafi
fjölgað um 8% á síðasta ári.
Forgangsakgrein yrði til bóta
Hvað snertir tækifæri til að auka
notkun strætisvagna enn frekar seg-
ir Reynir að borðleggjandi sé að sér-
stök forgangsakrein fyrir strætis-
vagna á Kringlumýrarbraut, á
leiðinni á milli Hafnarfjarðar og
Reykjavíkur, myndi verða til mikilla
bóta.
Þá séu svonefndir hópleigubílar [e.
flex tours] – leigubílar sem margir
farþegar séu um – fýsilegur kostur.
Telja kreppuna fela í sér
tækifæri fyrir strætisvagna
Framkvæmdastjóri Strætó og formaður samtakanna Bíllaus vilja aðgerðir
Morgunblaðið/Eggert
Hlemmur að kvöldlagi Stighækkandi kostnaður við rekstur einkabíls ætti að gera Strætó fýsilegri kost.
Bryndís Jónsdóttir, frkv.stj. Samtaka foreldra grunnskólabarna í Reykjavík,
gagnrýnir að stakt fargjald barna og unglinga skuli hækkað úr 100 kr. í 350
kr. Samtökin hafa gagnrýnt hækkunina. „Tilefnið var ályktun foreldrafélag-
anna í Garðabæ sem þau sendu okkur um þessar hækkanir. Við fórum í kjöl-
farið að skoða þessar breytingar hjá Strætó. Hér er bæði verið að skerða
þjónustuna og hækka gjöldin. Fækkun ferða á kvöldin skerðir þjónustuna
að vísu ekki svo mikið fyrir börnin. Hins vegar eru börn á grunnskólaaldri
að taka strætó í skólann og vegna tómstunda. Því fylgir gríðarlegt óhag-
ræði að ekki skuli lengur vera hægt að greiða fyrir eina ferð með hundr-
aðkalli. Nú þurfa börnin að vera með 350 krónur í smáaurum hvora leið,“
segir Bryndís og bætir því við að hún sjái ekki hagræðið í breytingunum. Þá
komi hækkunin illa niður á heimilisbókhaldi fjölskyldna.
Mikið óhagræði fyrir börnin
SAMTÖK FORELDRA GRUNNSKÓLABARNA ERU ÓSÁTT